Morgunblaðið - 18.08.1985, Side 20

Morgunblaðið - 18.08.1985, Side 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1985 Svavar A. Jónsson „Stráksi flaug í gegnum hurðina“ — spjallað við þrjá þýska ferðamenn sögu því til áréttingar. Einu sinni var dyrabjöllunni hjá okkur hringt klukkan tvö aö næturlagi. Við krakkarnir vor- um ein heima og þoröum ekki til dyra. Um morguninn var stór blóðpollur fyrir utan dyrnar, á stéttinni. Pabbi frétti svo hvað hefi verið um að vera. Einn ungl- ingurinn, 19 ára, hafði sofið hjá vinkonu sinni um nóttina vegna þess að foreldrar hennar voru ekki heima. Eitthvað komu þó Þýsku ferðalangarnír ásamt Svavari Gylfasyni. Nú er sá tími árs að ferðamenn fara um landið í hópum. A dögunum hitti ég þrjá Þjóðverja, sem voru að skoða landið okkar. Það voru þau Ortwin Pfláging, tuttugu og þriggja ára guð- fræðinemi, bróðir hans Holger, sextán ára nemi og kærasta Ortwins, Annette Rodtmann, sem er nítján ára. Þau voru mjög hrifin af íslandi og íslendingum en gáfu sér þó tíma til að spjalla við okkur um stund áður en þau héldu áfram að ferðast. Eg bað þau að segja okkur frá Þýskalandi. Faðir Annette var prestur í 15 ár í lítilli iðnaðarborg, sem hét Witten. Það vakti forvitni mína og mér lék hugur á að vita hvernig það væri að vera prestsdóttir á slíkum stað. „Erfitt," sagði Annette. „Ég var öfunduð og það var oft lumbrað rækilega á mér. í Witt- en er mikið af utangarðsfólki og ofbeldið sem það sýnir er tjáning mikillar félagslegrar neyðar. Það er erfitt fyrir íslendinga að gera sér neyð þýskra stórborga í hugarlund. Raunar þurfa borg- irnar ekki að vera stórar, það er nóg að þær séu ómanneskju- legar. f Witten eru heilu hverfin ekkert nema háhýsi og stundum búa margar fjölskyldur saman í einni íbúð. Við vorum eina fjöl- skyldan, sem átti eigið hús og stóran garð. Hverfið, sem við áttum heima í, var verkamanna- hverfi. Ekkert nema stór hús, verksmiðjur, bílar og þvotta- snúrur. Þetta samfélag á við gríðarlegt áfengisvandamál að stríða. Hvar, sem maður gekk, fann maður fyrir mikilli niður- bældri reiði og sárum ótta. Verkamennirnir unnu flestir í stóru stálveri, unnu þar á vökt- um. Þessi mikla vinna á vöktum varð til þess að fjölskyldulífið eyðilagðist. Börnin voru til að mynda alltaf ein. Þau gátu hvergi leikið sér í þeim stein- steypufrumskógi, sem borg þeirra var. í garði prestsins gát- um við leikið okkur og því vorum við skiljanlega öfunduð. Börn þessara verkamanna fá oftast lélega menntun og koma illa undirbúin út í lífið. Voru eirðarlaus." — Bitnaði þessi niðurbælda reiði, sem þú talaðir um, mikið á pabba þínum? „Ekki endilega. Fólkið stritaði daginn út og inn en það hugsaði sem svo að presturinn þyrfti ekkert að vinna. Hann þyrfti bara að prédika einu sinni í viku á meðan það erfiðaði. En pabbi reyndi að blanda geði við verkafólkið. Fáir komu í kirkju á sunnudögum, svo pabbi fór til fólksins. Fór á knæpurnar með köllunum. Hann náði ágætu sambandi við fólkið. Kynntist mörgum. Reyndi líka að hjálpa fólkinu félagslega. Myndaði til dæmis vinnuhópa fyrir atvinnu- lausar stúlkur, en þær voru margar í Witten og áttu erfiðara með að fá vinnu en strákarnir. Starf á meðal ungmenna hafði ætíð átt mjög vel við hann. Pabbi spyrðist fyrir í söfnuðin- um hvort ekki væru einhverjir, sem þyrftu á húshjálp að halda í u.þ.b. hálft ár. Sextán gáfu sig fram og þar með fengu sextán stúlkur vinnu. Pabbi hitti stelp- urnar svo vikulega og ræddi við þær allar saman um hvað þeim fyndist um atvinnu sína, hvað þær vildu og hvernig þær ætluðu að búa sig undir lífið. Þessi vinna, þó að hún væri ef til vill ekki margbrotin, var stökkbretti fyrir stúlkurnar út í lífið. Marg- ar fengu pláss í skóla fyrir vikið. 1 borginni var mikið um at- vinnulausa unglinga. Alkunna er að mikið atvinnuleysi er í Þýska- landi. Þessi atvinnulausu ung- menni höfðu ekkert við að vera, fóru um borgina í hópum, drukku, dufluðu, stálu bílum, kveiktu i og svo framvegis. Pabbi Ortwin Pflaging hitti hópinn eitt sinn og ákvað að reyna að koma þeim til hjálp- ar. Þau náðu sér í gamlan járnbrautarvagn og honum var komið fyrir ekki ýkja langt frá safnaöarheimilinu. Krakkarnir innréttuðu vagninn sjálf og höfðu þar með eignast fyrirtaks aðstöðu fyrir ýmiskonar félags- starfsemi. Þau máttu vera I þessum vagni að vild. Pabbi bar ábyrgð á þessu. Ekki voru krakk- arnir alltaf til friðs en þegar þau höfðu lent í vandræðum komu þau ávallt til föður míns og spurðu hann hvernig hægt væri að Iaga það, sem f ólagi var. Brátt fóru þessir unglingar að aðstoða söfnuðinn við ýmislegt. Hjálpuðu til'dæmis við að gera „ævintýraleikvöll" fyrir yngri krakkana. Það lýsir vel þeim þjóðfélags- legu umbrotum og átökum, sem eru í slíkum borgum, að annar ungmennahópur kom skömmu síðar og eyðilagði allt saman, vagninn og leikvöllinn." — Nú var pabbi þinn mennta- maður og ekki á unglingsaldri. Náði hann til ungmennanna í borginni? Jlá, ég held mér sé óhætt að segja það. Ég get sagt þér smá- Annette Kodtmann foreldrarnir fyrr heim, en ætlað var. Faðirinn kom að stráknum á brókinni uppi í rúmi hjá stúlk- unni og henti honum fatalausum út. Hafði ekki einu sinni fyrir því að opna hurðina og í gegnum hana flaug stráksi. Þetta var glerhurð og því skarst strákurinn illa. En pabba þótti vænt um að strákurinn hefði komið til sín. Var þá ný- byrjaður að starfa meðal ungl- inganna og fannst þetta tilvik lýsa því að hann hefði unnið traust krakkanna. Best að bæta því hér við að strákurinn náði í hjálp læknis og var hann ekki eins illa farinn og maður hefði getað ímyndað sér.“ — Varstu mikið með pabba þínum? „Tiltölulega, já. Meira en systkini mín. Stundum tók pabbi mig með á jarðarfarir fólks, sem allir höfðu gleymt, allskyns utanveltufólks. Oft voru þar bara ég og pabbi, auk grafara og þeirra, sem báru kistuna. Þetta voru mjög sorglegar stundir, þeir látnu höfðu dáið öllum gleymdir. Fólk getur hæglega verið einmana, þótt það búi í stórum borgum. Stundum finn- ast lík í íbúðum, í miðjum stór- Holger Pflaging borgum, sem legið hafa þar jafn- vel árum saman án þess að nokk- ur hafi tekið eftir því. Ég þekkti vel, hvað pabbi gerði, en þar með er ekki sagt að hann hafi staðið einn í þessu öllu. Söfnuðurinn studdi hann með ráðum og dáð. Ekki síst sóknarnefndin, sem oft fundaði fram eftir nóttu. Eitt má ég til með að segja. Um 1870 fluttu margar þýskar fjölskyldur til Rússlands. Þar hafði þeim verið lofað skattfríð- indum. Þeir héldu saman, Þjóð- verjarnir í Rússlandi. Þar voru heilu þorpin þýsk. Þeir varð- veittu tungu sína og menningu og sama máli gegnir um afkom- endur þeirra. Einum þeirra kynntist ég í Witten, en hann var fæddur og uppalinn í Rúss- landi. I stríðinu varð hann að berjast við Þjóðverja, sem von- legt var. Svo lenti hann í þýsku fangelsi. Þar var sagt við hann: „Þú ert þýskur maður. Þú átt að berjast með okkur!" Skyndilega var hann farinn að berjast við gamla samherja. En sagan er ekki búin. Hann var líka tekinn fastur af Rússum og þeir sögðu við hann: „Þú ert Rússi. Þú átt að berjast með okkur!“ Þannig hraktist hann á milli fylkinga í stríðinu og lenti að lokum í þrælkunarbúðum í Sfberíu. Þurfti hann að dúsa þar í 10 ár. Þá fékk hann að flytjast til Þýskalands og þar heyrði hann í kirkjuklukkum á sunnudögum í fyrsta skipti í fimmtán ár. Það var mjög mikilvægt fyrir hann. Þessir þýsku Rússar (eða rússn- esku Þjóðverjar) hafa varðveitt gamlan evangelísk-lútherskan arf. Því kemur þeim margt spánskt fyrir sjónir í þýsku kirkjunni nú á dögum. Oft skömmuðu þeir pabba fyrir að vera að skipta sér af félagslegum vandamálum. Það var þó allt af góðum huga gert. En þetta fólk á mjög erfitt. Það er fætt og upp- alið í Rússlandi. Það er hvorki rússneskt né þýskt, eins og sýndi sig í stríðinu." Og hér grípur Ortwin, guð- fræðineminn, tækifærið og kem- ur með stutta athugasemd. Hingað til hefur hann fylgst með af áhuga. „Kirkjan á að vera rödd þeirra, sem ekki hafa neina rödd. Hún á að fá að vera kirkja þeirra líka. Hún á að vera óhrædd við að gagnrýna tíðarandann. Sífellt eiga menn að vera að líta í kringum sig og spyrja: Hvað er að. Kristnir menn eiga að vera til fyrir heiminn." Að endingu spyr ég þau hvern- ig þeim lítist á fsland. Holger verður fyrir svörum. „Fólkið kemur ekki til okkar og ávarpar okkur að fyrra bragði. En þegar maður ávarpar það eru allir óvenjulega vin- gjarnlegir. Það er skrýtið að sjá alla þessa einmanalegu bónda- bæi, sem dreifðir eru um allt. Hlýtur að vera erfitt á veturna. fslendingar eiga líka mikið af kirkjum, þó ekki séu þær allar stórar. Gaman að horfa á alla krossana á landakortinu." Að lokum kemur Holger með spurningu: Hvaða augum líta ís- lendingar ferðamenn? Eru ferðamenn þeim mikill þyrnir í augum? Þessa spurningu læt ég ganga til ykkar, lesendur góðir. Nú eru margir, innlendir og útlendir, á ferð um landið. Hjálpumst að við að greiða götu þeirra! Góða ferð! - SAJ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.