Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
B 11
Kraft-
mikið og
blátt
áfram
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
PS&Co
í léttum dúr
Útg.PS
Pétur Stefánsson hefur engar
vöflur á þegar hann gefur út
plötur. Platan sem hann sendi
frá sér ásamt félögum sínum I
Big Nós Band á sinum tima
fannst mér beinskeytt, blátt
áfram og þar að auki skemmti-
leg. Því miður virtust fáir mér
sammála þá (hvers eigum vér
armir plötugagnrýnendur að
gjalda?).
Pétur Stefánsson hefur ekkert
breyst frá útkomu plötu Big Nós
Bandsins. Inntakið i tónlist hans
er hið sama, hrátt og blátt áfram
rokk og ról. Tónlistin ber það
glöggt með sér af hvaða kynslóð
Pétur er og er ekkert nema gott
um það að segja. Sú kynslóð veit
lika hvað almennilegt rokk er.
Kynslóð nútimans þekkir vart
haus né sporð á sliku. Hún kemur
eflaust heldur ekki til með að
kaupa þessa plötu, þeir sem gera
það eru af rokkkynslóðinni.
Ég sagði hér að framan að
Pétur hefði ekkert breyst frá þvi
á Big Nós Band-plötunni og fer
ekki ofan af þvi. Hins vegar eru
lögin á 1 léttum dúr i aðgengi-
legri búningi, þ.e. meira „com-
mercial* án þess þó nokkru sinni
að ná þvi marki að teljast bláköld
söluvara. Yfirbragðið er mjög
keimlikt, þ.e. svipaður taktur i
lögunum og spilamennska öll
fremur einföld. Þó vönduð i alla
staði. Söngvari er Pétur hins
vegar ekki góður, a.m.k. á hinn
venjulega mælikvarða.
Lagið Ung og rik, sem hljómar
reyndar: „Ung, gröð og rik ...“ i
textanum sjálfum hefur náð tals-
verðum vinsældum á rás 2, mest
aö ég hygg fyrir innihald textans.
í þessu tilviki kokgleypti hinn
dæmigerði islenski gelgjuskeiðs-
unglingur agnið. Sjálfur hafði ég
jafnvel búist við að gamla Flow-
ers-lagið Slappaðu af næði vin-
sældum en svo verður vart úr
þessu.
Það er fátt ef nokkuð nýtt að
finna á í léttum dúr enda mark-
miðið með útgáfunni eflaust ekki
að ryðja nýjar brautir. Platan
staðfestir hins vegar að enn eru
til „ekta“ rokkarar hér á landi.
Pétur Stefánsson er einn þeirra.
HEIMSINS FVRSIA
ZOOM UÓSRfTUNARVÉL
Minolta EP-450Z Ijósritunarvélin býöur upp
ó meira en 780 stiglausa minnkunar- og
stœkkunarmöguleika. Ljósritunarvél sem
sameinar ZOOM Ijósritunartœknina meö
fjölda annarra nýjunga.
„Kerfisval" stjórnar sjólfvirkri pappirsmötun,
pappírsrööun, minnkun og stœkkun auk 3ja ótta
pappírsvali. Kyrrstœtt myndborö, 25 eintök ó mín.
og Micro Toning tryggir kristaltœr á
afrit ö allan venjulegan pappír.
ZOOM LJÓSRITUNARVÉLAR - HREIN TÖFRATÆKI
E
KJARAN
AfiMÚW 22 REYKJAVÍK SÍMI83022
MINOLTA
ORION 2A 33.900*
ORION 2A er myndbandstæki sem hefur allt sem þú þarft, úrvalsgóða
mynd, fullkomna tækni og trausta þyggingu. VHS-tæki á aðeins 33.900
krónur.
... ---- . mttaa
i aaaa mm—mmi
XEN0N4B 39.900’
XENON 4B hefur alla sömu eiginleika og 3CN tækið, auk þess, sem það
hefur 12 stöðva forval, enn vlðtækara móttökusvið og stjórnborð af allra
nýjUstu gerð. Stórglæsilegt tæki á aðeins 39.000 krónur.
I£8«M
ISSSil
ID HS sstre *
I i i I 1 I t
XEN0N3CN 36.900*
XENON 3CN er enn fullkomnara og fjölbreyttara, með sjálfvirkri upptöku
fyrir fjórar stöðvar og ólíka dagskrárliði, minni og þráölausri fjarstýringu,
.. OUIUN I . ------ OHION
I
ORIONYM 47.900*
ORION VM fjölnota myndbandstækið er hvort tveggja ( senn fullkomið
heimilismyndbandstæki og ferðatæki með afnotarétti af myndtökuvél til
upptöku á eigin myndefni. Bráðsnjöll frambúðarlausn, sem hittir hvar-
vetna í mark, á aðeins $7.900 krónur. * Slgr. nri
LAUGAVEG110
SÍMI27788 /7V7