Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 16
i6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUKNUDAGUR1. SEPTEMBER 1985
Fyrirlestur í
Námsgagnastofnun:
Námsefnis-
gerð og
kennslufræði
DR. WOLFGANG Kdelstein Oytur
erindi þriðjudaginn 3. september í
Kennslumiðstöð Námsgagnastofn-
unar, Laugavegi 166, sem nefnist:
„Álitamál í skólastarfi — hugleið-
ingar um námsefnisgerð og kennslu-
fraeði." Erindið hefst kl. fjögur og
verða umræður um efnið að því
loknu.
Dr. Wolfgang Edelstein stjórn-
ar uppeldis- og kennslufræði-
rannsóknum við Max Plank Insti-
tut fúr Bildforschung í Berlín.
Hann gegndi ráðgjafarhlutverki
við skólarannsóknadeild mennta-
málaráðuneytisins meðan sú deild
starfaði, einkum í sambandi við
endurnýjun og mótun námsefnis
og námskrár í samfélagsfræði.
Einnig hefur Dr. EMelstein ritað
margt um skólastefnu á íslandi og
stundað rannsóknir hér.
Námsgagnastofnun og Hag-
þenkir — félag handhafa höfund-
arréttar á fræðiritum og kennslu-
gögnum — gangast fyrir erindis-
flutningnum og umræðufundin-
um. Allt áhugafólk er velkomið.
(Úr fréUmtUkynningu)
Afvopnunarviðræður í Genf:
Ekkert
samkomulag
Gnf, 30. ágúxL AP.
VIÐRÆÐUM fulltrúa 40 þjóða um
afvopnun lauk í Genf í dag, án þess
að komist yrði að niðurstöðu um
hvernig fara ætti að því að koma á
banni á kjarnorkuvopnatilraunir.
En lítið skref var tekið í átt að
höfuðtakmarki þingsins: banni við
efnavopnum.
Um þessar mundir er annað
þing haldiíf í Genf, sem ýmsar
þjóðir taka þátt í, þar á meðal
vestur-evrópskar. Þar hafa stór-
veldin verið gagnrýnd fyrir að
hafa ekki stöðvað vopnakapp-
hlaupið.
Á afvopnunarþinginu héldu
Bandaríkjamenn fast við þá skoð-
un sína að það hefði forgang að
fækka kjarnorkuvopnum, en bann
við kjamorkuvopnatilraunum
væri langtímatakmark.
Þeir héldu því fram að ekki væri
hægt að framfylgja banni, þó að
Sovétmenn segi að tæknilega sé
unnt að fylgjast með því hvort
banni sé hlýtt.
Egyptar leita
aðstoðar ILO
Genf, 29. igúsL AP.
f GÆR fór egypska stjórnin þess á
leit við Alþjóðavinnumálastofnun-
ina, ILO, að hún „hlutist til um við
líbýsk yfirvöld", að réttindi erlendra
verkamanna í Líbýu verði tryggö.
Beiðnin var fram borin á
klukkustundarlöngum fundi eg-
ypska utanríkisráðherrans, Esmat
Abdel Meguid, og aðalfram-
kvæmdastjóra ILO, Francis
Blanchard, að því er fram kemur í
tilkynningu sem stofnunin gaf út.
Ráðherrann lét í ljós „áhyggjur
stjórnar sinnar vegna brottvísun-
ar erlendra verkamanna frá Líb-
ýu, þ. á m. margra Egypta", sagði í
tilkynningunni.
Egypsk stjórnvöld hafa kvartað
yfir því, að verkamennirnir hafi
ekki fengið neinar aukagreiðslur
vegna brottvísunarinnar og að
lagt hafi verið hald á fjármuni
þeirra og persónulegar eigur.
LOKSINS
Caterpillar vökvagröfur á hjólum fáanlegar með
margvíslegum fylgihlutum svo sem: 45 gerðir af
skóflum, vökvahamrar, rifklær, lyftikrókar, gripklær,
vibra-þjöppur, segulstál o.fl.
Eins og alltaf verða allar gröfur frá Caterpillar
framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti og
samkvæmt ströngustu kröfum um endingu, öryggi
og þægindi í stjórnun og viðhaldi.
Sérstakt kynningarverd verður á fyrstu vélunum,
sem seldar verða hérlendis.
vinsamlega hafló samband vlð söludeild okkar og
fáló upplýsingar um veró og greiðslukjör.
CAT-206 11,7 tonn — CAT-212 14,0 tonn
CAT-214 15,5 tonn — CAT-224 19,0 tonn
œUHKKiáff IhIheklahf
[j_"J Laugaveg. 170 172 Sim. 212 40
Catorpiliar. Cat ogJBaru skrásatt vörumafki ———————————
Vandaður en ódýr
Pantiö nýja Kays-vetrarlistann á kr. 200
+ burðargjald. Nýjasta vetrarlínan,
búsáhöld, leikföng o.fl. o.fl.
Pantið skólafötin
Höfum opnað nýtt útibú aö
Ármúla 8. Opiö frá kl. 1—6.
RM B. M AGNUSSON
feilVI HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI S2866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
IMISSAN
Munið okkar
landsfrægu
kjör!
Tökum flesta
notaða bfla
upp í nýja.
Nissan Urvan High roof,
diesel. 2300 cc. dieselvél, 5
gíra kassi og ótakmarkaö pláss.
Kr. 588.900,-
INGVAR HELGASON HF
Syningarsalurtnn /Rauðagerði, simi 33560.
SPARAR
PÉR
SPORIN
Nissan Sunny Van. 74
hestöfl, 4ra gíra, framhjóladrif-
inn og þrælliöugur. Kr.
297.800,-