Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 21

Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 21
■MOfcGtJNBLAÐIÖ, ÍWNNunAGUR T. SEÍPTEMBÉftTfc85 ÖB BLÁBER „Komum, tínum berin blá! bjart er norðurfjöllum á, svanir fljúga sunnan yfir heiði. Hér er laut og hér er skjól, hér er fagurt — móti sól gleðidrukkinn feginsfaðm ég breiði... Guðm. Guðm. „Mikil berjaspretta fyrir vondum vetri.“ Samkvæmt því verður veturinn umhleypinga- samur, þar sem berjaspretta er mjög misjöfn. Varla er von, að berin þroskist fyrir norðan og austan á því kalda sumri, sem þar hefur verið. Sunnanlands hefur verið mikil spretta á krækiberjum — bókstaflega hægt að moka þeim upp, en bláberin er minna um. Þó er bláberjaspretta sæmileg sums staðar. í búðum sjáum við stór innflutt, ræktuð og rándýr bláber. Þau ber eru mun bragðminni en íslensku villtu berin, bláber og aðalbláber. Aðal- bláberin eru ljúffengari en bláberin, en sunnanlands vaxa nær eingöngu „bara bláber". Þar er yfirleitt miklu snjóléttara og snjóa leysir fyrr, en aðalbláber vaxa helst þar sem snjóþungi er og þá helst í skorningum og lautum, þar sem snjóa leysir seint. í nokkrum dölum sunnanlands vaxa aðalbláber í hlíðum sem snúa ttil norðurs, en þar helst snjórinn lengur en í hlíðum sem vita mót sól. Norðan- og austanlands hefi ég séð hlíðar sem voru bókstaflega bláar af aðalbláberjum, þegar maður leit til þeirra. Þar vaxa aðalbláberin á smárunnum. Sennilega er það eins fyrir vestan. Laufið á aðalbláberjarunnunum er mun mýkra en á bláberjalyngi og eru aðalbláberin fastari á greinunum. Kjötið í aðalbláberjum er rauðleitt en mun hvítara í bláberjum og aðalbláberin eru ekki eins fagurblá. Sums staðar í Noregi voru bláber talin eitruð. Þar líta þeir aðeins við aðalbláberjum. Þeir kalla bláberin „skinntryte" og það með fyrirlitningu. Aðalbláber henta betur til frystingar en bláber þar sem þau eru ekki eins súr, en berin súrna við frystingu. Best eru bláberin fersk með sykri og óþeyttum rjóma en margt er hægt að búa til úr þeim — og bláberja- sulta er ómissandi með jólarjúpunum. Fryst bláber 500 g bláber 100 g sykur Blandið saman bláberjum og sykri. Setjið í plastpoka og frystið. Bláberjasulta 1 kg bláber 700 g sykur pektín (magn skv. leiðb. á pakkanum) 1. Hreinsið og þvoið bláber- in, setjið f stóran pott. Merjið berin örlítið með kartöflu- stappara. Sjóðið við vægan hita í 10 mínútur. 2. Setjið pektfn út f og látið sjóða eins lengi og segir á pakkanum. 3. Takið pottinn af hellunni og hrærið sykurinn út í. Sult- una á ekki að sjóða aftur, heldur hræra f þar til sykur- inn er bráðnaður. 4. Látið sultuna kólna að mestu áður en þið hellið henni f krukkurnar. 5. Vætið smjörpappírsbút í áfengi eða ediksblöndu og leggið yfir sultuna. 6. Setjið lok á krukkurnar eða bindið tvöfalda plast- filmu yfir og smeygið teygju utan um. 7. Merkið krukkurnar með innihaldi og dagsetningu. Athugið: Hér er ekki gert ráð fyrir að nota rotvarnar- efni. Þið verið sjálf að meta, hvort þið viljið nota það. Mjög mikið atriði er að setja sykur- inn ekki út í sultuna fyrr en búið er að sjóða pektinið. Annars hleypur sultan ekki. Leiðbeiningar á pökkunum eru rangmr. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Bláberjabaka (pie) Handa 4 % kg bláber Vi dl hunang 100 g hveiti 50 g heilhveiti 1 msk. flórsykur W tsk. hjartarsalt 75 g smjör eða smjörlíki 2 msk. kalt vatn 1 eggjarauða 1. Takið frá 1 tsk. af eggjarauð- unni og setjið saman við 1 msk. af vatni í bolla. Setjið lok yfir og geymið. 2. Blandið saman hveiti, heil- hveiti, flórsykri og hjartarsalti. 3. Myljið smjörið út í mjölið. 4. Setjið það sem eftir er af eggjarauðunni og 1 msk. af vatni saman við deigið og hnoðið vel. Geymið á köldum stað í 1 klst. 5. Velgið hunangið svo að það verði alveg fljótandi. 6. Setjið bláberin f bökumót eða annað eldfast mót. Hellið hunanginu yfir. 7. Takið smábút af deiginu og rúllið í lengju og þrýstið á barm mótsins. 8. Fletjið hinn hluta deigsins út og búið til hlemm jafnstóran bökunni. Leggið deighlemminn ofan á berin og þrýstið í deigið sem er á jaðri mótsins. 9. Pikkið bökuna með prjóni nr.2. 10. hrærið saman 1 tsk. af eggjarauðinni og vatnið og pens- lið bökuna að ofan með því. 11. Búið til lauf úr afgangs- deiginu og leggið ofan á bökuna. Penslið laufin líka. 12. Berið bökuna fram kalda með ís eða þeyttum rjóma. Pönnukökuterta meö bláberjum Vz kg bláber 3 msk. sykur 4eggjarauður 4 sléttfullar msk. sykur 4 msk. mjólk 4 msk. hveiti 4 eggjahvítur örlítið smjör til að bera á pönn- una. 1. Þeytið eggjarauðurnar með sykrinum. 2. Hrærið hveiti og mjólk var- lega saman við. 3. Þeytið hvíturnar og biandið saman við með sleikju. 4. Smyrjið pönnukökupönnu og bakið 6 þykkar pönnukökur úr deiginu. Þær eiga að bakast við mjög hægan hita. Gætið þess að þær bakist alveg í gegn. 5. Blandið saman bláberjum og sykri. 6. Þegar fyrsta pönnukakan er bökuð, setjið þið sjötta hluta blá- berjanna ofan á hana, leggið síðan næstu pönnukökur yfir og svo koll af kolli. Bfst eru höfð bláber. 7. Berið kökuna fram heita með þeyttum rjóma eða ís. Steikt brauð með bláberjar- rjóma og súkkulaði Handa 4 Fjórar sneiðar formfranskbrauð 4 msk. smjör + 2 msk. sykur 1 peli rjómi 250 g bláber fersk eða frosin 2 msk. sykur 'Æ pk (50 g) suðusúkkulaði. 1. Þvoið og hreinsið bláberin. Afþiðið ef þið eruð með frosin ber. Setjið 2 msk. af sykri saman vð fersku berin, en ef berin eru fryst, er líklegt að búið sé að setja sykur saman við þau. 2. Bræðið smjörið á pönnu, setjið 2 msk. af sykri saman við. Steikið brauðsneiðarnar báðum megin í smjörinu. Kælið. 3. Þeytið rjómann og setjið saman við bláberin. Skipið blá- berjarjómanum jafnt á brauð- sneiðarnar. 4. Hitið bakarofn í 70-100°C, setjið súkkulaðið á eldfastan disk og bræðið inni i ofninum. Kælið örlítið, en hellið síðan yfir blá- berjarjómann á brauðsneiðunum og berið fram. Berið kaffi með. Athugið: Ef ykkur sýnist svo, er gott að setja 2 msk. af sherry, líkjör eð öðru sætu víni saman við súkkulaðið áður en því er helltyfir bláberjarjómann. IRorjjtia&lafcift esió reglulega af ölmm fjöldanum! ítalska, spænska, enska Fyrir byrjendur Upplýsingar og innritun í síma 84236 Rigmor GROTRIAN — STEINWEG Píanó — Flyglar Pálmar ísólfsson & Pálsson sf. Pósthólf 136, Rvík, símar 30392,13214,11980 FRAMTÍÐIN Olíu og akríl þekjubæs á veggi, glugga, hurðir, vindskeiðar, palla og grindverk. Mest selda viðarvörn í Noregi -16 ára reynsla. • 17fallegirlitir. • Þykkfljótandi. • Lekurekki. • Frábær ending. SÍÐUMULA 15-SÍMI33070

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.