Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
! -----------------------------------
fimmtán ára. Ári seinna fóru þau
að búa. Hún aðlagaðist ekki lífinu
í Lépanges, lét sig dreyma um
sumar og sól og fékk Jean-Marie
einu sinni til að fara með sér til
Rimini.
Það er gamall siður í sveitahér-
uðum Frakklands að skrifa nafn-
laus bréf til þeirra sem manni er
eitthvað í nöp við.
Villemin-fjölskyldan var vön
slíku en þó keyrði úr hófi í byrjun
1983. Þá fjölgaði bréfunum mjög
og upphringingarnar urðu í lokin
um 100 talsins. Sendandinn kall-
_ aði sig „Hrafninn" og skrifaði í
einu af fyrstu bréfunum, sem Al-
bert Villemin, afi Grégorys, fékk:
„Þú munt einnig hengja þig.“
„Hrafninn" þekkti mjög aug-
sýnilega gamla sögu ættarinnar.
Foreldrar Alberts voru mjög
ströng við börnin sín og refsuðu
þeim miskunnarlaust. Eitt barn-
anna datt eitt sinn á ofn og höfuð-
kúpubrotnaði. Móðirin var hand-
tekin og sett í fangelsi. Faðirinn
fór í stríðið, þetta var á fimmta
áratugnum, en hengdi sig svo
skömmu eftir að hann sneri heim.
Flest nafnlausu bréfanna og
upphringinganna, sem voru þann-
ig að ekki var hægt að greina
hvort karl eða kona talaði, snerust
( þó um Jean-Marie og hálfbróður
hans. Monique kona Alberts átti
soninn Jacky áður en hún gifti sig.
Hann er enn oft kallaður bastarð-
j urinn þótt Albert hafi ættleitt
hann. Bréfritari hótaði að koma
fram hefndum ef Albert færi ekki
að koma jafn vel fram við „Bast-
arðinn" og við Jean-Marie, en
| hann er kallaður „Chef“, eða yfir-
maðurinn, í bréfunum. Bréfin
( voru öll skrifuð með stórum
( prentstöfum og eitt hljóðaði svo:
„Ef þið viljið að ég hætti þá legg
( ég eftirfarandi til: Þið megið ekki
umgangast yfirmanninn meir. Þið
verðið líka að koma fram við hann
eins og bastarð... Ef þið gerið
það ekki þá mun ég láta verða af
hótunum mínum í garð yfir-
mannsins og litlu fjölskyldunnar
hans. Jacky og elskunni hans hef-
ur einnig verið kastað til hliðar.
Nú er komið að því að höndla yfir-
manninn eins og bastarð. Hann
getur huggað með peningunum
sínum. Þig getið valið: Lífið eða
dauðann." í síðasta bréfinu, sam
afinn fékk, áður en Grégory var
drepinn sagði: „Ég sé að ekkert
hefur breyst. Þið eigið enn bara
eitthvað afgangs fyrir hinn sama
og yfirmaðurinn kemur enn í
heimsókn tif ykkar... Ég ætla
ekki að gera honum, mömmu-
drengnum, neitt mein og ekki
heldur dökku stúlkunni hans eða
snáðanum. Þetta er síðasta bréfið
frá mér, þið fáið aldrei fréttir frá
mér framar. Þið munuð spyrja
sjálf ykkur hver ég sé en munið
aldrei komast að því.“
Kannsókninni
klúðrað
„Hrafninn" hringdi í ömmu
Grégorys klukkan hálf sex, þriðju-
daginn 16. október í fyrra. „Eg hef
náð fram réttlæti, ég hef tekið son
yfirmannsins, ég hef hent honum í
Vologne-ána,“ sagði kynlaus rödd-
in. Jean-Marie fékk nokkru seinna
nafnlausa nótu sem á stóð: „Yfir-
maður, vonandi drepstu af áhyggj-
um. Peningarnir þínir duga ekki
til að fá soninn til baka. Þetta er
mín hefnd, aumingja greyið."
Brunaliðsmenn slæddu líkið úr
ánni fjórum tímum eftir að amm-
an fékk símhringinguna.
Christine hafði losnað snemma
úr vinnunni þennan dag. Hún
hafði ekki tíma til að drekka kaffi
með dagmömmunni þegar hún
sótti Grégory. Hún varð að flýta
sér heim að strauja. Hún lokaði að
sér, opnaði ekki einu sinni hlerana
á húsinu þótt blíðviðri væri úti,
stillti útvarpið hátt og straujaði í
tæpan hálftíma. Grégory var úti
að leika sér í sandbing. Hann var
horfinn þegar mamma hans fór að
líta eftir honum klukkan rúmlega
fimm, blá skóflan stóð ein eftir í
sandbingnum.
Bernard Laroche var drepinn
fyrir framan konu sína
og son.
Christine Villemin
Jean-Marie Villemin
Lögreglan á staðnum fellur und-
ir varnarmálaráðuneytið og er
með öllu óvön svona málum. Hún
fór kappsamlega af stað og lofaði
að finna sökudólginn sem fyrst.
Öll Villemin-ættin, um 140 manns,
nema Christine og Jean-Marie,
var kölluð inn og látin taka rit-
handarpróf. Rithandarsérfræð-
ingum kom saman um að Bernard
Laroche hefði skrifað hótunar-
bréfin. Fimmtán ára mágkona
hans játaði loks eftir langar yfir-
heyrslur að hún hefði séð hann
fara burtu með Grégory og koma
einan til baka. Bernard var hand-
tekinn og sat inni, ákærður um
morð, í fjóra mánuði. Mágkonan
hafði þó dregið vitnisburðinn til
baka, hágrátandi fyrir framan
sjónvarpsvélar, tveimur dögum
eftir að hann var handtekinn. Hún
hafði gefið hann eftir 25 tíma yfir-
heyrslur hjá lögreglunni. Hún hef-
ur ekki mætt í skólann í lengri
tíma og er undir stöðugu eftirliti
móður sinnar.
Bernard hafði eitt sinn stigið í
vænginn við Christine án nokkurs
árangurs. Etir að hann var laus úr
haldi kom lögreglumaður í heim-
sókn til Jean-Marie og Christine
og sagði meðal annars að hann
hefði sjálfur verið löngu búinn að
drepa Bernard ef Grégory hefði
verið sonur hans. Christine var
lögð inn á sjúkrahús um þetta
leyti með innvortis blæðingar.
Jean-Marie heimsótti hana föstu-
daginn 29. mars og þau töiuðu
lengi saman. Skömmu eftir hádeg-
ið sama dag skaut hann Bernard
til bana og sagði í samtali við
Christine á eftir að hann hefði
gert það fyrir hana. Laroche-
fjölskyldan er sögð hafa ætlað að
hefna Bernards en Marie-Ange
tók af skarið, hækkaði róminn og
kom í veg fyrir frekari blóðsút-
hellingar.
Rannsóknardómarinn í málinu,
Jean Michel Lambert, er ekki
nema 33ja ára. Hann áttaði sig á
að rannsóknin gekk ekki nógu vel
eftir að Bernard var drepinn og
bað rannsóknarlögregluna í Nancy
að taka málið að sér. Hún er van-
ari glæpamálum og fellur undir
franska dómsmálaráðuneytið. Það
kom í ljós þegar rannsóknarlög-
reglan fór að kanna málin, að eng-
in húsleit hafði verið gerð hjá
Jean-Marie og Christine eftir
morðið á Grégory, hann var ekki
almennilega krufinn af því að
lögreglan var svo viss um sök
Bernards og þau hjónin tóku aldr-
ei rithandarpróf. Öll ættin var
aftur kölluð saman í próf og þau
hjónin voru einnig látin skrifa að
þessu sinni. Rithandarsérfræðing-
um kom að þessu sinni saman um
að Christine hefði skrifað hótun-
arbréfin. Þrjár samstarfsstúlkur
hennar segjast hafa séð hana
póstleggja bréf á pósthúsinu um
fimmleytið sama dag og morðnót-
an var póstlögð til Jean-Marie.
Símareikningar þeirra hjóna sína
að þau notuðu símann mörgum
sinnum oftar á þeim tíma sem
„Hrafninn" var uppá sitt besta en
annars. Christine var aldrei hjá
Jean-Marie þegar hann fékk upp-
hringingar eða nafnlausu bréfin.
Við húsrannsókn, sem loks var
gerð, fannst nokkuð sérstakt reipi
sem var af sömu gerð og Grégory
litli var bundinn með.
Þekktur lögfræðingur í París,
Henri-René Garaud, hefur tekið
mál hjónanna að sér. Hann er
mikill talsmaður sjálfsvarnar.
Fyrir nokkrum árum vann hann
mál fyrir bifvélavirkja sem var
orðinn þreyttur á innbrotum á
verkstæðið sitt og kom lítilli
sprengju fyrir í ferðaútvarpi.
Sprengjan sprakk í höndunum á
næsta innbrotsþjófi og varð hon-
um að bana. Bifvélavirkinn var
sýknaður af morðákærunni fyrir
tilstilli Garauds. Hann er hlynnt-
ur því að höggstokkurinn verði
aftur tekinn í notkun fyrir barna-
morð og telur Jean-Marie hafa
verið í rétti þegar hann drap
Bernard. Christine segir hann
saklausa með öllu. Sagan segir að
hann ætli í framboð fyrir Gaull-
ista á næsta ári og þetta mál er
góð auglýsing fyrir hann.
Hver drap Grégory litla? Það
veit enginn með vissu nema morð-
inginn sjálfur. Flest sönnunar-
gögn beinast nú að Christine. Hún
hefði haft tíma til að skjótast með
strákinn niður að ánni og heim til
að hringja í ömmuna á þeim tíma
sem leið frá þvi að stúlkurnar sáu
hana á pósthúsinu og hefur bréf
sem hún sendi til að sanna það. Og
af hverju hefði hún átt að vilja
drepa son sinn? Hún var víst allt-
af góð við hann og samkomulagið
við Jean-Marie var og er gott.
Helst mætti halda að hún hafi
ekki þolað lífið í dalnum, Ville-
min-fjölskylduna og tengsl Jean-
Maries við hana. Hún horfði mikið
á sjónvarp og las ekkert nema
heldur ómerkilegar kvennahetju-
sögur í fangelsinu. Kannski rugl-
aði sá ævintýraheimur sem hún sá
í sápuóperum og las um í bókum
hana í ríminu og hún greip til ör-
þrifaráða til að losna úr hinum
lokaða heimi í Lépanges.
ab tók saman.
B 15
HELGAR OG VIKUFERÐIR FLUG OG GISTING
London
Verð frá kr.: 19.456/vikuf. 13.376/helgarf.3nt. 14.217/helgarf.4nt
Hótel: GRANLEY GDNS. Verð pr. mann í tvíbýli.
13.376.-
FLUG OG GISTING HELGAR OG VIKUFERÐIR
Luxemborg
Verð frá kr.: 16.962/vikuf. 13.563/helgarf.4nt. ^
Hótel: HÓTEL iTALÍA. Verð pr. mann í tvíbýli.
13.565.-
FLUG OG GISTING HELGAR OG VIKUFERÐIR
Osló
Verð frá kr.: 21.209/vikuf. 14.261/helgarf.3nt.
Hótel: HÓTEL MUNK. Verð pr. mann í tvíbýli.
14.261.-
FLUG OG GISTING HELGAR OG VIKUFERÐIR
Kauprnh
Verð frá kr.: 23.194/vikuf. 15.603/helgarf.3nt. 16.738/helgarf.4nt.
Hótel: COSMOPOLE. Verð pr. mann í tvíbýli.
18.603.-
HELGAR OG VIKUFERÐIR FLUG OG GISTING
Glasgow
Verð frá kr.: 18.121/vikuf. 12.126/helgarf.3nt. 13.950/helgarf.5nt.
Hótel: HOSPITALITY INN. Verð pr. mann I tvíbýli.
12.126.-
HELGAR OG VIKUFERÐIR FLUG OG GISTING
Stockholm
Verð frá kr.: 26.049/vikuf. 17.761/helgarf.3nt.
Hótel: HÓTEL CITY. Verð pr. mann í tvíbýli.
17.761.-
HELGAR OG VIKUFERÐIR FLUG OG GISTING
París
Verð frá kr.: 22.073/vikuf. 18.397/helgarf.4nt.
Hótel: GRAND MODERNE. Verð pr. mann í tvíbýli.
18.397.-
=! FERÐA..
Íil MIDSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
BJARN OAGUR/AUGL