Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
B 13
Barið á
Brössum
Kvikmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN: Tvíburarnir
(Double Trouble) ☆'/2
Leikstjóri: E.B. Clutcher.
Aðalhlutverk Bud Spencer,
Terence Hill. ítölsk, frá
1984. Dreifing Columbia.
Þá eru þeir aftur komn-
ir í slagtog saman, Bud
Spencer og Terence Hill,
sem nutu talsverðra vin-
sælda í „Trinity“-mynd-
unum á síðasta áratug. í
millitíðinni hafa þessir
„abbott og costello-trúð-
ar“ gert allnokkrar til-
raunir til að halda vin-
sældum sínum, einir á
báti, en þær hafa lang-
flestar mislukkast. Hill
fékk m.a. tvö tækifæri í
bandarískum myndum,
Mr. Million og March or
Die, en af einhverjum
ástæðum hlaut sá blá-
eygði enga náð fyrir aug-
um kvikmyndahúsagesta
vestan hafs. Spencer hélt
fast við sinn gamalkunna,
einhliða leikmáta, að
berja saman hausum
andskota sinna. Hann var
víst orðinn þunnskipaður,
aðdáendahópurinn hans.
Þeim vegnar því sjálfsagt
best með því að halda
hópinn, enda kúnstugir
saman.
í Tvíförunum taka þeir
félagar upp þráðinn að
nýju og bregða sér nú, í
tvöföldum hlutverkum,
suður til Rio. Þar eiga
þeir tvífara sem ráða þá
til að skipta um hlutverk
við þá í vikutíma, fyrir
dávæna fjárfúlgu. Enda
kemur á daginn að Brass-
arnir eiga, þrátt fyrir auð
og allsnægtir, við hin
flóknustu vandamál að
stríða, m.a. er heill bófa-
flokkur sífellt á hælum
þeirra.
Það þarf að sjálfsögðu
ekki að spyrja að endalok-
um, fyrrverandi Trinity—
bræður útkljá öll vanda-
mál sinna glæstu tvífara
uppá gamla mátann, með
hausaskellum Spencers og
akróbatík Hills.
Þeir eru í sömu sporun-
um, Spencer og Hill, leik-
stíllinn og taktarnir allir
í anda þess er stjarna
þeirra skein skærast, á
tímum Trinity-mynd-
anna. Nú berja þeir aðeins
brassa í stað bófa vesturs-
ins og reiðskjótarnir eru
Rollsar. Efniviður og efni-
stök öll af Trinity-skólan-
um.
Fyndnin er ekki há-
fleyg, frekar en í fyrri
myndum félaganna. Hún
byggist aðallega á gamal-
kunnum ærslaleiknum
sem einkum felst í litrík-
um, yfirgengilegum slags-
málum og skopi sem bygg-
ist á andstæðum í fari
þeirra.
Þegar haustið er að
ganga í garð norður í
Dumbshafi er vel til fund-
in tilbreyting að slæpast
um sólbakaðar götur Rio
um stundarbil í hressum
félagsskap.
HÚSGAGNASÝNING
KL. 2 — 5 í DAG
Nýjar gerðir af
leðursófasettum
VALHÚSGÖGN
Ármúla 4,
s: 685375
Stúdentaleikhúsiö
á hringferö meö rokk-söng-
leikinn:
EKKÓ-
guðirnir ungu
Efftir Claes Andersen, þýðing: Ólfur Haukur
Símonarson, tónlist: Ragnhildur Gísladóttir,
leikstjórn: Andrés Sigurvinsson
Patreksfjörður ....... 2. sept. kl. 21.00
Þingeyri ............. 3. sept. kl. 21.00
Bolungarvík .......... 4. sept. kl. 21.00
Hnífsdalur ........... 5. sept. kl. 21.00
Hvammstangi .......... 6. sept. kl. 21.00
Blönduós ............. 8. sept. kl. 21.00
Sauðárkrókur ......... 9. sept. kl. 21.00
STÚDENTA
LEWHÚSn
interttoro
Btómum
viðaverokl
Dæmi um verð: áður nú 210.-
Burknar (venjui.) Burknar(stærri) Aspas springeri mmni) ■ Aspas springen (stæm)^. . ,.3S&r- 270.- 145.- 195.-
Ýmsar aðrar vörur seldar
SSXSSS,".