Morgunblaðið - 01.09.1985, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 01.09.1985, Qupperneq 19
kjarnorkustríð ok hann hélt því fram að Rússar yrðu að fylgjast með tækninýjungum á sviðum venjulegra vopna. Brottvikning Ogarkovs var dæmi um vaxandi spennu i sam- búð heraflans og flokksins, sem vill halda áfram að móta stefnuna i hermálum. Ýmsir telja að Ogarkov hafi fyrst og fremst haft Kínverja í huga þegar hann setti fram kenn- ingar sinar um aukna áherzlu á venjulegan hernað. Vitað er að sovézkir hermenn vilja að miklu meiri áherzla verði lögð á ógnun- ina frá Kínverjum, sem þeir telja hina raunverulegu óvini Rússa. Þó hefur Ogarkov oft komið fram með háværar kvartanir og ógnanir í garð Bandaríkjamanna og sagt að þeir og hermáiastefna þeirra séu aðaiógnunin við friðinn. Ogarkov var fluttur til Minsk eftir brottvikninguna og að því er bezt er vitað var hann skipaður „yfirmaður aðalstöðva allra vest- urvígstöðvanna", sem eru gegnt miðherliði NATO. Þessar aðal- stöðvar starfa aðeins á friðartím- um og eru yfirstjórn nokkurs kon- ar „vofuhers". Talið er að Ogarkov hafi sjálfur fundið upp þetta herstjórnarkerfi þegar hann var herráðsforseti til að gera Rússum kleift að stunda svokallaðan hátæknihernað, ef stríð brýzt út. Þetta er mikilvægt embætti, svo að Ogarkov virðist ekki hafa fallið í algera ónáð og staða hans var tvíræð. Þetta virtist benda til þess að deilurnar um kenningar hans væru óútkljáðar. í nóvember birtist grein eftir Ogarkov í fræðilegu hermálariti, Þar sem hann útskýrði lærdóma þá sem mætti draga af síðari heimsstyrjöldinni og lýsti til- gangsleysi fleiri kjarnorkuflauga. Hann undirritaði ásamt öðrum leiðtogum frétt um lát Ustinovs skömmu fyrir jól og nafn hans var birt næst á eftir nafni varaland- varnaráðherrans, en á undan nöfnum yfirmanna herstjórnar- umdæma. Annars birtist nafn Ogarkovs ekki á prenti fyrr en í vor, þegar landvarnaráðuneytið gaf út bók hans „Sagan kennir okkur ár- vekni". Þessi bók Ogarkovs virtist bergmála helztu kenningar úr fyrri bók, sem hann sendi frá sér 1982. Þar hvatti hann til aukins hernaðarviðbúnaðar, ekki aðeins heraflans og hergagnaiðnaðarins, heldur allra atvinnugreina. Bækur og greinar Ogarkovs bera með sér að hann hefur reynt að koma fram í hlutverki helzta herfræðings Rússa á þessum ára- tug, en á Vesturlöndum er hann frægastur fyrir það að hann var talsmaður Rússa þegar sovézk orrustuflugvél skaut niður flugvél suður-kóreska flugfélagsins í Austur-Asíu haustið 1983. Síðari bókar Ogarkovs var lof- samlega getið í sovézkum blöðum í vor og skömmu síðar virðist Gorb- achev hafa tekið hann í sátt þegar þær fréttir bárust að hann hefði verið skipaður yfirmaður herliðs Varsjárbandalagsins. Þar með er hann orðinn þriðji valdamesti maður sovézka heraflans. MORGUNBLAÐIP, SUNNUDApUR 1. SEPTKMBER^ 1985 I Kulikov, Ogarkov og Ustinov. Einn er látinn, annar féll í ónáð og var tekinn í sátt og sá þriðji befur verið settur af. inn og fær herfræðingur. Árið 1977 var hann aðalhernaðarráðu- nautur Eþíópíumanna og átti þátt í ósigri Sómalíumanna í stríðinu í Ogaden-auðninni. Núverandi starfi hefur hann gegnt frá 1980 og hann var einn þeirra sem komu til greina í stöðu Kulikovs. Yfirmaður loftvarnaliðsaflans, sem er skipað 630.000 mönnum, er Alexander Koldunov, sem er 61 árs. Hann var orrustuflugmaður í heimsstyrjöldinni og mun hafa skotið niður 46 flugvélar. Hann gegndi ýmsum yfirmannsstöðum eftir stríðið og varð yfirmaður loftvarna í Moskvu 1970. Núver- andi starfi hefur hann gegnt síðan 1978. Pavel Kutakhov er >-firmaður flughersins, sem er skipaður 475.000 flugliðum og 6.780 bar- dagaflugvélum og brynvörðum þyrlum. Hann fór 367 árásarferðir í stríðinu og skaut niður 14 óvina- flugvélar. Kutakhov, sem er sjö- tugur, hefur verið >*firmaður flug- hersins síðaq 1969. Sergei Gorshkov, sem er 73 ára, hefur verið >-firmaður sjóhersins í 28 ár og breytt honum úr litlum strandgæzlufíota í alhliða sjóher, sem siglir um öll heimsins höf. Hann er einn kunnasti yfirmaður sovézka heraflans, en þó ekki sá valdamesti, og varð yngsti aðmír- áll í sögu Sovétríkjanna 31 árs gamall. Gorshkov hefur gegnt úr- slitahlutverki í röskun hernaðar- jafnvægis risaveldanna. Nýtt tækifæri Valdataka Gorbachevs hefur greinilega veitt Ogarkov nýtt tækifæri. Báðir virðast gagnteknir þeim ótta að Rússar dragist aftur úr á tæknisviðinu. Skoðanir Ogar- kovs hafa ekkert breytzt síðan honum var vikið úr stöðu her- ráðsforseta, þegar hann var talinn mikill „haukur“. Endurreisn hans nú virðist sýna að Gorbachev sé sammála því að efla beri herinn og gera hann nýtízkulegri. Vestrænir fulltrúar telja einnig að Gorbachev geri nú sömu kröfu um starfshæfni í heraflanum og á öðrum sviðum þjóðlífsins. Þeir telja einnig ljóst að Gorbachev muni reyna að tryggja að herút- gjöld verði ekki of mikil. Ogarkov nýtur mikils álits inn- an hersins, einkum meðal yngri herforingja, þótt margir hafi haft horn í síðu hans. Verið getur að Gorbachev hafi viljað koma sér í mjúkinn hjá þessum öflum með endurreisn Ogarkovs. Talið er að Ogarkov láti það verða sitt fyrsta verk að stuðla að því að herlið Varsjárbandalagsins taki ný vopn í notkun og tileinki sér nýjar baráttuaðferðir. Mannabreytingarnar að undan- förnu geta verið enn ein tilraun flokksforystunnar til að hafa taumhald á herforingjastéttinni með því að ala á sundrungu and- stæðra valdahópa í heraflanum. Þessum deilum er ekki lokið. En ljóst er að hleypa verður að nýrri kynslóð og þótt herforingi eins og Ogarkov geti ekki talizt ungur er hann þróttmikill. GH skv. Poliliken 0.(1. Fundur í Minsk Mikilvægt er talið að Gorbachev kaus að ræða við æðstu yfirmenn hersins í Minsk áður en hann fór í sumarleyfi um miðjan júlí. Hann hélt ræðu, sem ekki var greint frá í málgagni hersins, anovs, sem fór með málefni her- gagnaiðnaðarins í miðstjórninni og keppti við hann um völdin, og notaði tækifærið til að kynna eft- irmann hans, Tsaitsev. Gorbachev átti ekki formlegan fund með æðstu mönnum hersins þegar hann tók völdunum fyrr á skipun Zaitsevs í nýtt embætti að aðeins austur-þýzk blöð hafa greint frá henni. „Der Spiegel“ hermir að það hafi gerzt eftir að sovézkur vörubíll ók á bíl Banda- ríkjahers skammt frá Potsdam 13. júní. Æðsti yfirmaður sovézka hers- ins í Ungverjalandi, Kotshetov hershöfðingi, hefur einnig verið skipaður í nýtt embætti nýlega. Nokkrar mannabreytingar hafa einnig orðið í sjóhernum. Enn hefur ekkert verið hróflað við tveimur æðstu mönnum hers- ins, Sokolov landvarnaráðherra og Akhromeyev herráðsforseta, eftir- manni Ogarkovs, sem hefur verið varkárari en hann og látið lítið á sér bera. En athyglisvert er að Sokolov hefur ekki verið skipaður í stjórn- málaráðið og það styður þá kenn- Yepishev (til hægri) í Tékkóslóvakiu 1968: hvatti til innrásar. „Krasnaja Zvezda". Hins vegar lagði blaðið á það áherzlu í for- ystugrein að það væri skylda sér- hvers kommúnista að hlusta á „samstjórnina". Þetta var túlkað sem hvatning til Gorbachevs um að hlusta meira á liðsforingja- stéttina. Hvernig sem á því stóð var aðal- ritstjóri „Krasnaja Zvezda", Makweyev hershöfðingi, þegar i stað rekinn. Tveimur dögum síðar svaraði flokksmálgagnið „Pravda" málgagni hersins og sagði: „agi og regla“ eru skylda allra hermanna, „allt frá óbreyttum til mar- skálka“. Þegar nýr ritstjóri tók við stjórn „Krasnaja Zvezda" baðst blaðið þegar í stað afsökunar. Blöð á Vesturlöndum hafa ekki verið á einu máli um fund Gorb- achevs með herforingjunum í Minsk 10. júlí. Brezka tímaritið „Economist" hefur kallað Orgakov „Rommel Gorbachevs“, en vestur- þýzka tímaritið „Der Spiegel“ seg- ir að sett hafi verið ofan í við hann i Minsk. Gorbachev ræddi við herfor- ingjana í Minsk nokkrum dögum eftir brottvikningu Grigori Rom- T-72-skriðdrekar á æfingu einhvers staðar I Austur-Evrópu. þessu ári, líklega vegna þess að hann hefði þá neyðzt til að mæta ásamt Romanov. Ástæðan til þess að Minsk var valinn fundarstaður var líklega sú að þar með kom hann í veg fyrir að ýmsir valda- menn hersins í Moskvu gætu mætt. Fleiri tilfærslur Margt er á huldu um valdabar- áttuna í Rauða hernum, en þó má vera ljóst að Kulikov hefur verið fengið hreint virðingarembætti í Moskvu og að Zaitzev hefur verið fluttur frá Austur-Þýzkalandi. Einkennilegt er í sambandi við ingu að hann muni ekki gegna starfinu lengi. Hár aldur Sokolovs styður einnig þá skoðun. Ef til vill er Ogarkov ætlað þetta embætti í framtíðinni. Því geta verið í aðsigi harðnandi deilur um mótun her- málastefnunnar. Engin breyting hefur heldur orðið á stöðum yfirmanna land- hers, flughers, sjóhers og loft- varnaliðsins. Petrov marskálkur, sem áður var nefndur, er enn yfirmaður landhersins. Hann er 68 ára gam- all og hefur undir sinni stjóm 1,8 milljónir hermanna og 50.000 skriðdreka. Hann er talinn ákveð- GOKSHKOV ZAIZKV: SETTUR AF. SOKtlLOV OGARKOV

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.