Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 Tækniþróun hf.: Að nýta góða hugmynd STOFNFUNDUR Tækniþróunar hf. var haldinn í vikunni en hluthafar eru Háskóli íslands, Hf. Eimskipa- félag íslands, Félag íslenskra idn- rekenda, Idnlánasjóóur, B.M. Vallá, Smjörlíki hf. og Plastprent hf. Hlutafé er 9,9 milljónir og skiptist þannig að Háskólinn legg- ur fram þriðjung fjárins, Eim- skipafélagið einn þriðja og Félag íslenskra iðnrekenda þriðjung. Iðnlánasjóður og aðrir hlutahafar eru innan vébanda félags ís- lenskra iðnrekenda og leggja fram sinn skerf í nafni þess. Að gera góða hugmynd nýtilega Á blaðamannafundi sem hald- inn var í tilefni stofnunarinnar kom fram að hér er ekki um að ræða framleiðslufyrirtæki heldur þróunar- og rannsóknafélag. Að sögn Guðmundar Magnússonar háskólarektors er tilgangur fé- lagsins að sinna hátækniverkefn- um á sviði tölvu- og hugbúnaðar, þróa rafeindaiðnað og hanna upp- lýsinga- og stýrikerfi hvers konar. „í megindráttum fer starfsemin þannig fram að aðilar innan Há- skólans eða úti í atvinnulífinu geta leitað til fyrirtækisins með hugmyndir eða niðurstöður rann- sókna sem unnið hefur verið að. Fyrirtækið hefur síðan milligöngu um að kanna hvort hægt sé að nýta þær í þágu atvinnulífsins," sagði Guðmundur meðal annars. „I sem stystu máli er Tækniþróun hf. ætlað að gera góðar hugmyndir að nýtilegri framleiðslu sé þess nokkur kostur og ég legg áherslu á að þær ásamt upplýsingum geta bæði komið frá aðilum innan Hl og frá atvinnulfinu." Nauðsyn að koma þjónustu HÍ við atvinnulífíð í fastar skorður Undirbúning að stofnun félags- ins sagði Guðmundur að mætti rekja til fundar sem haldinn var í Skólabæ fyrir tveimur árum. „En forsenda fyrir stofnuninni er að sjálfsögðu lagaheimildin er sam- þykkt var á Alþingi 13. april síð- astliðinn þar sem kveðið er á um að háskólanum skuli heimil eign- araðild að rannsóknar- og þróun- — Fyrsta skrefíð til aukinna tengsla HÍ og atvinnulífsins, segir Guðmundur Magnús- son háskólarektor arfyrirtækjum í því skyni að þróa hugmyndir og hagnýta niðurstöð- ur rannsókna og þjónustuverkefna sem skólinn vinnur að hverju sinni. Þessum verkefnum hefur fjölgað mjög á síðustu árum og nauðsynlegt að koma þjónustu þessari í fastar skorður. Einstaka íslensk fyrir- tæki geta ekki staðist erlent vísindastarf Að undanförnu hefur mikið ver- ið rætt um aukin tengsl skóla og atvinnulífs og aukna þátttöku þess í nýsköpun atvinnugreina. For- senda nýsköpunarinnar eru rann- sóknir en íslensk fyrirtæki hafa enn sem komið er ekki lagt mikið fé til þeirra, né vöruþróunar. Slíkt er enda afar kostnaðarsamt og krefst mikils mannafla. Einstaka íslensk fyrirtæki eru of smá til að geta keppt við rann- sóknir erlendra risafyrirtækja sem mörg hafa fleiri vísindamenn í sinni þjónustu en starfa hér á landi. Jafnframt gæti sá kostnað- ur sem hlýst af misheppnaðri til- raun til nýsköpunar riðið innlend- um félögum að fullu. Með stofnun Tækniþróunar hf. eru sameinaðir kraftar islenskra vísindamanna og fyrirtækja i landinu þannig að streymi upplýs- inga sé gagnkvæmt milli þessara aðila. Einnig geta þeir nú keppt við erlenda samkeppni og nýtt sína þekkingu í þágu íslensks at- vinnulífs. Félagið er af þeirri stærð að það þolir jafnvel að ein- ungis fimmta til tíunda hver hugmynd reynist framkvæmanleg. 100 kennarar með doktors- gráðu frá 42 háskólum Sem fyrr segir mun Tækniþróun einungis starfa fyrir hátækniiðn- að og hugbúnað enda er þekking íslenskra vísindamanna vísinda- . Atvinnulífið og Háskólinn takast í henc or, Guðmundur Magnússon háskólareki íslenskra iðnrekenda og Þorkell Sigurli ar Eimskips. manna á því sviði sótt viða að. Guðmundur nefndi sem dæmi að við HÍ störfuðu um 100 prófessor- ar, dósentar og lektorar sem hefðu hlotið doktorsnafnbót frá 42 há- skólum erlendis. „Það er íslensku visindastarfi mikill styrkur Betðuáborð ARÐARBERJAGRAUTUR SVESKJUGRAUTUR Það er aldeilis ekki „sami grautur í sömu skál“ þegar gæðagrautarnír frá MS eru annars vegar. Smekkur heimilisfólksíns er að sjálfsögðu mísmunandí og því höfum víð nú bætt við tveím nýjum tegundum. Þannig geturðu nú, íyrirhafnarlaust, gert öllum til hæfis og valið úr 4 tegundum af þykkum og gómsætum gæðagrautum. Þeír fást bæði í eíns lítra og hálfs lítra umbúðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.