Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 44
 44 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 M tg Finn tk.k.i fe-to^eyms/urriiáönn.. Ldttu m\g WoJcl c»nn snobran blda.r\." HÖGNI HREKKVÍSI „ pu GBTOR. BTiP PB6AR PlG l'lSTifí! ■ E'PA t?U QETUR HRINQTÁ t?JÓKJIMM." „Á þeim stundum vildi maður helst vera orðinn ein af öndunum á tjðrninni,” aegir unglingur Vonandi verða sem fæstir fyrirmyndarborgarar Unglingur skrifar: Mér blöskraði nú þegar ég las bréf sem einhver Níní skrifaði um daginn og birtist í Velvakanda til að svara fyrir hönd unglinga, vegna skrifa konu sem hafði verið áreitt á leið sinni niður Hverfis- götuna. Það er svo sem hægt að skilja það að miðaldra kona verði nokkuð hrædd þegar einhverjir vígalegir strákar gera hróp að henni seint um kvöld. En þá dettur mér nú í hug málsháttur sem ég lærði í sveitinni þegar ég var lítill og ku vera þýddur úr ensku: Hundar sem gelta bíta ekki. En það er nú ekki málið. Það sem mér fannst hallærislegast í þessu Níníar bréfi var þessi setning: „Við eigum eftir að verða fyrir- myndar borgarar einn góðan veð- urdag alveg eins og þið hin.“ Skilur Níni virkilega ekki að þetta er hættan sem allir unglingar standa frammi fyrir, að eiga ekki séns á neinu nema að verða eins og þetta ömurlega svokallaða fullorðna fólk sem hugsar ekki um neitt nema belginn á sér og að eiga sem mest? Eg ætla bara að vona að sem fæstir þeirra sem nú eru á mínu reki eigi eftir að verða fyrirmynd- ar borgarar en því miður geri ég mér alltof vel ljóst að þetta eru örlög f lestra. Maður verður hreint og beint þunglyndur að hugsa til þess að flestir jafnaldrarnir skuli horfa með aðdáun á fullorðna heimsk- ingja algerlega gagnrýnislaust. Á þeim stundum vildi maður helst vera orðinn ein af öndunum á Tjörninni. Velvakandi er tilgangslaus þáttur A.T. skrifar: Kæri Velvakandi. Yfirleitt hef ég haft gaman af að lesa það sem stendur í dálkum þínum án þess að velta því sér- staklega fyrir mér. Allskyns raus og rekistefnur hafa enda birst þar, margt bráðfyndið. En upp á síðkastið hefur þessi velmerkta opna, með skrítlunum og Velvak- anda, farið að fara meir og meir í taugarnar á mér. Ég verð bein- línis pirruð þegar ég les bréf konu sem kvartar yfir framferði ungl- inga, eða húsmóður sem er fyllt hryllingi yfir kommúnisma á Kúbu. Bréf og hringingar um sjónvarpsþætti, hljómsveitir, skemmtistaði og fleira í þeim dúr: Ég þoli það ekki. Tapaði þrennum gler- augum og fleira dóti Gleðimaður hringdi: Ég hef séð upp á síðkastið að margir hafa beðið Velvakanda að koma á framfæri fyrir sig tilkynn- ingum um hluti sem hafa tapast. Því datt mér í hug að hann gæti liðsinnt mér í þessu máli. Þannig er að um síðustu helgi fór ég á skemmtistað, Glæsibæ minnir mig frekar en Þórskaffi. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Þegar tók að líða á kvöldið gleymdi ég mér við dans og söng eins og gengur og veit ég ekki fyrr til en ég ranka við mér upp á Ártúns- höfða innan um allskyns óárenni- legar byggingar. Það var nú útaf fyrir sig gott og blessað, hefði ég ekki verið búinn að tapa öðrum skónum, og öllu lauslegu úr jakkavösum mínum. Meðal þess sem tapaðist var veski með öllum mínum skilríkjum og talsverðum peningum, lyklar og tvenn gler- augu. Þriðju gleraugun hafði ég verið með á nefinu og voru þau horfin líka. Einnig tapaði ég þarna úrinu mínu og bók með kvæðum eftir Kristján Eldjárn. Ég er nú enginn aurasál og má hver sem vill hafa alla þá peninga sem í veskinu voru. En um bókina, gleraugun og skilríkin er mér sárt. Það kemur sér til dæmis afar illa fyrir mig að sjá ekkert. Ef einhver kynni að hafa þetta í fórum sínum sem ég hef nefnt, gæti hann þá ekki verið svo vænn að hringja í síma 22448. Ástæðan fyrir því að ég sest nú niður í fyrsta sinn og skrifa þér sjálf er sú að mér ofbýður og ég veit að þetta má bæta. Það er vel hægt að haga skrifum í Velvakanda þannig að þau hafi einhvern tilgang og einhver taki mark á því sem þar stendur. En til þess þarf að hvetja lesendur til að skrifa um það sem ein- hverju máli skiptir og hafa þenn- an dálk í huga þegar eitthvað er að gerast í þjóðfélaginu sem það vill segja álit sitt á. Eins ættu lesendur blaðsins að gera miklu meira af því að segja álit sitt á blaðinu og því sem stendur í því. í útlöndum virðist vera tals- vert um að fólk skrifi blöðum og segi álit sitt á greinum og fréttum sem birtast. Þar eru líka sjaldan birt heil bréf, oftast eru stuttir útdrættir látnir nægja. Fáir taka mark á Velvakanda eða lesendadálkum annarra blaða. Forstöðumenn stofnana sem gagnrýndar eru virðast sjaldan finna hjá sér einhverja hvöt til að svara þeim skrifum. Og lesendur líta yfir dálkinn einsog framhald af skrítlunum sem eru vinstra megin við hann á opnunni. Það er synd, því þarna ætti einmitt að vera hægt að fá einhverskonar þverskurðarmynd af þeim skoðunum sem raun- verulega eru algengar meðal al- þýðu manna. Ég skora því á Morgunblaðið að gera eitthvað í þessum málum. Þó Velvakandi geti verið fyndinn og skemmtilegur er hann næstum því alveg tilgangslaus í þeirri mynd sem hann er nú og mætti eins leggja hann niður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.