Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 47

Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 3 47 Laugarásbíó; Hitchcock-hátíðin: MAÐURINN SEM VISSIOF MIKIÐ Handritshöfundurinn John Hill alappar af maö handritunum sínum. Bandaríkin: Laugarásbíó sýnir um þessar mundir síöustu myndina á svo- kallaöri Hitchcock-kvikmyndahó- tíö, sem staðiö hefur meö löngum pásum frá í fyrra. Þaö er Maður- inn sem vissi of mikiö, mynd sem margir telja meö bestu mynd meistarans. Alfred er eitt stærsta nafniö í kvikmyndasögunni, enda þótt stór hópur bíógesta nútímans kannist ekki viö hann. Hann fæddist áriö kvikmyndaheiminum spannaöi sextíu ár, frá 1920 til 1980. Slíkt er aö vísu ekki einsdæmi, en fáir leik- stjórar eiga eins mörg listaverk og hann. Hitchcock gerói spennu- myndir, og segir hann á einhverj- um stað aö hann hafi haldiö sig viö þær því áhorfendurnir, aödáendur hans, hafi krafist þess. Þaö er erfitt aö hugsa sér Hitchcock gera róm- antíska mynd. Eitt helsta einkenni hans er aö hann spilar á tilfinn- IYNDIR,: Sl Fl JM 1899 og dó 1980, ferill hans í ingar áhorfandans til aö framkalla EB n PARAMOUNT JAMES DORIS LDREIV E R1 )A STEWART DAY John Hill er handritahöfundur og hefur unnið hjá kvikmyndafyr- írtækjum í Hollywood í 14 ár. Hann hefur skrifaö ein 12 kvik- myndahandrit en aöeins eitt þeirra oröiö aö kvikmynd. Jack Epps og Jim Cash hafa skrifaö átta kvikmyndahandrit og ekkert þeirra hefur veriö notaö til kvik- myndagerðar. Hvert kvikmynda- fyrirtæki í Hollywood fœr inn á borð til sín kannski 10.000 hug- myndir aö söguþræöi á ári og borgar handritahöfundum fyrir aö skrifa handrit aö svona 1000 þessara hugmynda en 85 eöa 90 prósent þeirra veröa aldrei aö kvikmynd. Kvikmyndahandrit getur falliö í gleymskunnar dá í Hollywood af mörgum ástæöum jafnvel þótt þaö sé mjög gott. Efni sem samiö er meö t.d. Dustin Hoffman í huga lendir í skúfffunni ef stjarnan hefur engan áhuga. Yfirmenn kvik- myndaveranna hætta og nýir koma í staðinn meö ólikar skoöan- ir og skoöanir fólks á kvikmyndum breytast. Núna ganga unglinga- myndir best í Bandaríkjunum og Clint Eastwood-myndir án Clint Eastwood (Code of Silence, Wit- ness). Höfundar, sem svo ætla aö skrifa á þessum línum, verða fyrir því aó tiskan breytist og allt ööru- vísi myndir veröa vinsælar. Þaö má vera aö handritahöf- undar í Hollywood séu ekki hátt skrifaöir á stjörnuhimninum miöað viö leikara og leikstjóra en þeir hafa eitt framyfir þá. Þeir fá borg- aö hvort sem myndir þeirra eru geröar eöa ekki. Varaforseti fram- leiðsludeildar Paramount-fyrirtæk- isins, David Madden segir aö eitthvaö um 900 til 1000 handrita- höfundar, sem vinna fyrir fyrirtæk- iö skrifi handrit, sem aöeins eru sýnd hér og þar í bænum, kannski í þau boðiö og þau svo sett niöur í skúffu til eilíföar. Tvo af átta handritum Noru Ephron hafa orðiö aö kvikmynd. Þaö fyrra var Silkwood, sem hún skrifaöi meö Alice Arlen, og nú er annaö handrit hennar í kvikmynd- um, Heartburn, sem byggt er á hennar eigin metsölubók. Foreldr- ar Noru skrifuöu handrit aö 14 myndum, sem öll voru nýtt. Hún er því 12 myndum á eftir þeim. „Ef mér á aö takast aö gera 14 myndir um ævina meö sama hraöa og hlngaö til, þ.e. eitt af hverjum fjór- um handritum mínum er notaö, yröi ég aó skrifa 56 handrit og veröa 132 ára,“ segir Ephron. Þýtt. —ai. Alfred Hitchcock (1899—1980) áhrif, tragísk eöa kómísk; hann þurfti ekki aö baöa sig upp úr blóöi eins og minni spámenn neyðast til. Til aö mynda kvikmyndaöi hann Psycho í svart/hvítu svo blóöiö í sturtuatriöinu yröi ekki eins áber- andi og þaö heföi oröiö í lit. Hitchcock geröi Manninn sem vissi of mikiö strax á eftir The Trouble With Harry, sem Laugar- ásbíó sýndi sl. vetur. Hann átti þá aö baki listaverk eins og The Thirty Nine Steps, Notorious og Rear Window, en átti eftir aö gera North by Northwest, Psycho, The Birds ~ - og Frenzy. Maöurinn sem vissi of mikiö er reyndar endurgerö Hitchcocks á samnefndri mynd hans frá árinu 1934. Söguþráðurinn er eitthvaó á þá leiö aö þegar Ben McKenna hefur setió læknaþing i París ákveöur hann aö skreppa til Marokkó meö konu sinni og tíu ára syni. Þar kynnast þau frönskum manni, Bernard. Hann býöur þeim hjónum í mat, en hættir þó viö á síöustu stundu. Ben og kona hans snæöa í \ staöinn á veitingahúsi meö ensk- um hjónum. Þar er hins vegar Bernard í fylgd fagurrar konu. Daginn eftir eru þau á mark- aöstorgi þegar arabi nokkur er stunginn 'til bana. Hann hnígur niöur viö fætur Bens og hvíslar deyjandi aö stjórnmálamaöur muni brátt myrtur í Lundúnum. Arabinn reynist vera Bernard. f aöalhlutverkum eru James Stewart, sem lék í fjölmörgum Hitchcock-myndum, og Doris gamla Day. Þaó er engin ástæöa til aö missa af þessari mynd. Þess skal getiö aö Ljótur leikur (Foul Play) meö Goldie Hawn var byggö aö nokkru leyti á þessari mynd^ Hitchcocks. hjó Bandaríkin: JJ BOK UM HIMNAHLID CIMINOS ÍQ Nýlega kom út í Bandaríkjun- um bók eftir Steven Bach, sem ber heitið Final Cut eöa Síðasta klipping og greinir frá öllu basl- inu í kringum gerö myndarinnar Heaven’s Gate (Himnahliö), sem kvikmyndafyrirtækið United Artists sá um framleiöslu á. Bach var yfirmaöur framleiðslu- deildar fyrirtækisins og bar því aö nokkru leyti ábyrgö á hvernig fór en þeir í Hollywood vilja kenna myndinni um aö United Artists var selt til Metro Goldwin Meyer-fyrirtækisins. Bókin þykir lýsa mjög vel inn- viöum eins af risum kvikmynda- borgarinnar, UA. Þar ríkti ringul- reiö og skipulagsleysi, tíö rifrildi viö upptökur, slagsmál í sýningar- herbergjum og smáskærur á skrifstofugöngunum. Og mitt í öllum fyrirganginum er ákveöiö aö gera þennan vestra, sem í fyrstunni var kallaöur The John- son County War (Stríðiö í John- sonsýslu). Hún átti aö kosta 7,5 milljónir dollara. Eftir 28 milljón dollara í viöbót og nokkrar nafna- breytingar kallaöi Heaven’s Gate yfir sig hroöaleg ummæli gagn- rýnenda og gríöarlegt tap og UA varögjaldþrota. Miöpunktur bókarinnar er Heaven’s Gate og skyldi engan undra. Fyrir Bach var gerö kvik- myndarinnar eins og æfing í von- brigðum og fíflsku. Fyrirtækiö þurfti á vinsælli mynd aö halda. Michael Cimino haföi unniö til tvennra Óskarsverölauna fyrir The Dear Hunter (Hjartarbaninn). Bach og samstarfsmenn hans voru hrifnir af því aö fá hann til aö gera vestrann og allir voru þess Ur Heaven’s Gate (Himnahliö), sem ásamt öðru setti United Artists-kvikmyndafyrirtæk- iö á hausinn. fullvissir aó leikstjórinn héldi sér viö fjárhagsáætlunina. Samning- urvarundirritaöur. En allt fer í klessu. Cimino er mörgum mánuðum á eftir áætlun og endar uppi meö 1,3 milljón fet af filmu fyrir klipparana aö vinna meö. „Þaö jafngildir yfir 100 venjulegum kvikmyndum,“ skrif- ar Bach. Samkvæmt samningn- um mátti kvikmyndin alls ekki vera lengri en þrír tímar aö lengd en hún veröur næstum fjórir og er sýnd í New York viö slæmar undirtektir. Hun er tekin úr dreif- ingu, stytt og endurklippt og aftur send í umferö en undirtektirnar eruþærsömu. Skipt er um forstjóra hjá UA og Nerbert nokkur Auerbach tekur viö. Hans fyrsta verk er aö ákveöa aö sjá um framleiöslu á mynd Barböru Streisand, Yentl þótt undirmenn hans hvetji hann til aö sleppa því. En Auerbach er fastur fyrlr enda hafói Streisand sungiö titillagiö fyrir hann á skrifstofunni og lagt til aö hann léki hlutverk fööur hennar í myndinni. En svo fer þó aö Streisand snýr sér til annarra meö mynd sína. Og mitt íglundroöanum er Bach rekinn. i bókinni lýsir Bach kynnum sínum af ýmsum stjörnum kvik- myndanna eins og Robert De Niro, Woody Allen, Peter Sellers og Martin Scorsese. Gimino fær vitaskuld neikvæöa umfjöllun og sakar Bach hann m.a. um óþrjót- andi sjálfselsku og hann lýsir miklu rifrildi um val leikstjórans á upptökustaö. Land, sem UA haföi rutt og lagfært með fullkomnu áveitukerfi, var í eigu Ciminos eftir því sem síðar kom í Ijós. — ... I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.