Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 25
MORGUNELAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 25 fá fylgi við hugmyndir sínar? Að mínu mati eru þeir góðir og er einkum á tvö atriði að líta í því viðfangi. Hið fyrra er, að hefð- bundin miðjustefna í stjórnmálum hefur beðið skipbrot og það blasir við hverjum heilvita manni að fara verður einhverjar nýjar leið- ir. Leið frjálshyggjunnar er fersk og spennandi, sameinar hugmynd- ir um réttlæti og hagkvæmni, og höfðar sérstaklega vel til ungs fólks (sem er enn mikilvægari kjósendahópur en áður, eftir lækkun kosningaaldurs í 18 ár), en ungt fólk er yfirleitt móttækilegra fyrir nýjungum og ekki eins bund- ið á klafa hagsmuna eins og hinir sem eldri eru. í annan stað er frjálshyggjan, sem samþykkt var mótatkvæðalaust á einhverju fjöl- mennasta SUS-þingi sem haldið hefur verið, með jarðsambandi, ef svo má komast að orði. Þetta at- riði er ákaflega þýðingarmikið með því ýmsum hefur fundist (og það kannski ekki að ófyrirsynju), að frjálshyggjumenn væru svo róttækir í nýsköpunarhugmynd- um sínum að erfitt, ef ekki óger- legt, yrði að eiga við þá samvinnu : í raunhæfu stjórnmálastarfi á „vettvangi dagsins". Hver sá sem kynnir sér samþykktir SUS- þingsins, hvort sem er á sviði at- vinnumála eða velferðarmála, hlýtur að verða að viðurkenna, að ungir sjálfstæðismenn eru engir skýjaglópar. Tillögur þeirra eru sýnilega hugsaðar sem raunhæfur valkostur í stjórnmálabaráttunni. Ég veit að þær hafa verið lengi i smíðum og að baki þeim liggur mikil vinna og umræða innan SUS. Þetta held ég að skýri hvers vegna þær mættu ekki neinni and- stöðu á þinginu. „Miðju-mennirn- ir“ innan SUS geta fellt sig við þær, enda hafa þeir tekið þátt i að móta þær í það Jarðbundna" horf, sem þær eru nú i. Auðvitað verður róðurinn þyngri meðal eldri flokksmanna, en það er alls engin ástæða til að ætla annað en að ýmsar ályktanir SUS-þingsins geti fengið hljómgrunn meðal þeirra og síðan kjósenda, ef að kynningu þeirra er staðið jafn myndarlega og innan SUS. Veikleiki SUS Fjölmennasti hópurinn á Akur- eyrarþingi SUS voru ungmenni á aldrinum 16—25 ára o^ innan þess hóps er skólafólk í meirihluta. Þetta er út af fyrir sig styrkleika- merki (ekki sist með tilliti til kom- andi kosninga), en það er sam- setning eldri hópsins (25—35 ára), sem gæti verið áhyggjuefni. Þar vantar t.d. fleiri grunnskóla- kennara, fóstrur og hjúkrunar- fræðinga, svo dæmi séu tekin af þeim starfsstéttum, sem mikill hávaði hefur verið út af. Hinar róttæku tillögur SUS í „velferð- armálum" snerta einmitt það fólk sem þessum störfum gegnir og það þarf engum að koma á óvart að það mun snúast gegn þeim ef því finnst sérhagsmunum sínum ógnað. Þess vegna er afar mikil- vægt að ungir sjálfstæðismenn ræði við það og geri þvi ýtarlega grein fyrir hugmyndum sínum. í r. • 25 þúsund nýir kjósendur í lokaræðu sinni á þinginu veik Vilhjálmur Egilsson að þeim tvennum kosningum sem verða ipilH 28. og 29. þings SUS: „Við þessar kosningar munu 25.000 kjósendur ganga að kjörborðinu í fyrsta sinn. Það er verkefni okkar að vinna Sjálfstæðisflokknum fylgi hjá þessum jafnöldrum okkar. Það mun kosta vinnu og baráttu, en umfram allt kostar það að við mótum okkur skýra stefnu sem höfðar til okkar kyn- slóðar. Við verðum að geta gefið henni von um að stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn sé atkvæði ' með framtiðinni og bættum lífs- kjörum. Atkvæði með valfrelsi, vexti og velferð." Ég held að þetta sé einmitt kjarni málsins. Og það veltur á miklu hvernig að þessum mál- flutningi verður staðið. Tækifærið er fyrir hendi, og það væri hryggi- legt ef það glataðist. jbbsusmow ReyKJ®®*dhúsinu), ____________ tkonura°w freestafe, liSímótiWuitl'nftl Einnige'J* isamlœ*n’ls'fthara K Skelfanl^íV ^jft !><■ n kl ,4"‘ s&Sr**** einstakUnð3' 83 ... ^VSStiskennsia laugara- r t kL 14-ir- Þeir sem reynt hafa, þekkja þá sérstöku tilfinningu að vakna á ensku úrvalshóteli og skipuleggja daginn við girnilegt morgunverðarborð- ið. Óhætt er að mæla með verslunarferð um morguninn með viðkomu í Oxford Street eða á Portobello Road og Haymarket. Þeir yngri ættu hik- laust að kíkja í tískuverslanirnar á Kings Road. Sjálfsagt er síðan fyrir alla að líta inn í stóru verslanahúsin. Á út- sölunum er oft hægt að gera frábær kaup. Hádeginu er vel varið á enskum pöbb. Maturinn er bæði ódýr og góður og andrúmsloftið líkt. Eftir hádegið er tilvalið að skoða sig um og heimsækja eitthvert af 400 söfnum borgarinnar eða lista- miðstöðina Barbican. Kvöldinu er vel varið á ein- hverjum góðum veitinga- stað. Þú notar bara næsta kvöld til að sjá leikritið, ball- ettinn, fara á tónleika eða söngleik - þú getur valið á milli Starlight Express, Chess, Mutiny og ótal fleiri. Sérstakur starfsmaður Úr- vals í London annast miðapant- anir og hvers kyns aðstoð. Þegar dimma tekur opnar Pétur í Stringfellow dyrnar á næt- urklúbbi sínum - þar eru Islendingar velkomnir. _________________________ Kvöldinu má ljúka í spilavíti rm 1 Tm -■ c% nn- þú ert nú einu sinni í London. FRA KR. 10.822 I sérstökum hópferðum 20. sept., 3. og 17. okt. tekur íslenskur fararstjóri á móti þér á flugvellinum og rúta ekur þér að dyrum White House eða Gloucester hótelsins. Önnur hótel sem við bjóðum uppá eru m.a. Cranley Gardens, London Metropole og Selfridge - allt ósvikin úrvalshótel. URVALSFRl í HEIMSBORGINNI FYRIR VERÐ Þótt knattspyrna sé ekki eitt af áhugamálunum ættirðu endilega að fara á heimaleik Arsenal eða Tottenham - þú athugar bara að sýna réttan lit! Dæmi um verð: Helgarferð (3 dagar) kr. 13.822.-pr, mann Vikuferð (7 dagar) kr. 18.919.-pr. mann FERMSKRIFSrOFAN ÚRVAL Ferðaskrifstofan Úrval v/Austuvöll. Sími 26900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.