Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985
hitablásaramir hafa í 20 ár yljað landsmönnum, bæöi til lands og sjávar við öll
möguleg störf og aðstæður. Þeir henta allstaðar og eru þeir hljóölátustu á
markaðnum.
Fáanlegir í eftirtöldum stærðum: 2250 k.cal., 5550 k.cal., 8050 k.cal., 11740 k.
cal., 15380 k. cal. og 29600 k. cal., miðað viö 80°/40° C.
Afköstin eru frábær, enda sérbyggðir fyrir hitaveitu.
Wesper umboðið
Sólheimum 26,104 Reykjavík,
sími 91 — 34932
o
// / // i // / // d jr |
LAXDA11»
LAUGAVEGI63.
■ ■ ■ —_______
Morgunblaðift/Emilfa
Jens Urnp Jensen riö verk sín i Kjarvalsstödum. Ghtggarnír sem hanga
f loftinu ern þeir sem listamaöurinn hefur unnið fyrir Sauðárkróks-
kirkjn.
„Það er alltaf
upplifun að koma
til íslands“
— segír danski myndlistarmaðurinn
Jens Urup Jensen, er sýnir sem gestur
með Septem-hópnum á Kjarvalsstöðum
„Mér finnst allltaf ákveðin upplifun að koma til fslands," sagði danski
myndlistarmaðurinn Jens Urup Jensen í stuttu spjalli við blaðamann
Morgunblaðsins á Kjarvalsstöðum í gær. heir Jens Urup og Hafsteinn
Austmann taka þátt f sýningu Septem-hópsins sem nú stendur yfir á
Kjarvalsstöðum til 15. september sem gestir. Sýnir Jens IJrup þar m.a. átta
steinda glugga, gerða fyrir Sauðárkrókskirkju, ásamt fleiri gluggum úr
gleri og steinsteypu og Ijósmyndum.
„Mér fellur líka vel að sýna hér
en þetta er í annað skipti sem ég
sýni á íslandi," sagði Jens Urup.
„Árið 1975 hélt ég stóra yfirlits-
sýningu í Norræna húsinu í boði
þáverandi framkvæmdastjóra,
Mai Britt Innander. Þátttaka min
í sýningu Septem-hópsins nú er
þannig til komin að ég minntist á
það við Jóhannes Jóhannesson, að
það gæti verið gaman að halda
sýningu á þessum gluggum i
Reykjavík, áður en þeir yrðu sett-
ir upp í Sauðárkrókskirkju. Það
varð svo úr að mér var boðið að
sýna með Septem hér á Kjar-
valsstöðum, en gluggarnir fara
norður um leið og sýningunni lýk-
ur.
Ég er mjög ánægður með það að
vera með I þessum hóp. Þetta eru
góðir listamenn og marga þeirra
hef ég þekkt lengi, t.d. Valtý Pét-
ursson og Jóhannes Jóhannesson.
Kristjáni Davíðssyni kynntist ég
á ftalíu þegar við Guðrún vorum
þar á ferð, árið 1949, en við höfð-
um áður verið við nám í akademf-
unni í Flórens," sagöi Jens Urup.
En hann er kvæntur Guðrúnu
Sigurðardóttur, listmálara, systur
listamannanna Hrólfs og Sigurð-
ar.
„Við Guðrún kynntumst í aka-
demíunni í Kaupmannahöfn 1945,
en það ár komu margir fslend-
ingar inn á akademíuna. Prófess-
orinn sagði mér að líta vel eftir
„Litla íslandi”, eins og hann kall-
aði Guðrúnu og það hef ég reynt
að gera síðan," sagði Jens Urup
Jensen og brosti.
Mikill skortur er á fötum vfða f Afríku. Rauði Itross faUnds er nú að hefja
fatasöfnun og hvetur fólk til að gefa hreinan og heilan fatnað sem það er hætt
að nota, en komið gætu þjáðum meðbræðrum í Afrfku að miklu gagni.
„Gefum föt til Afríku“:
Rauði krossinn safnar föt-
um fyrir bágstadda í Afríku
Öll heil og hrein föt vel þegin
RAUÐI KROSS íslands er nú að hefja fatasöfnun fyrir bágstadda í Afríku
undir kjörorðunum „Gefum fatnað til Afríku“. Söfnunin hefst mánudaginn 9.
september og stendur til 15. september. Deildir Rauða krossins munu veita
fatnaðinura viðtöku.
í Reykjavík verður tekið á móti fatnaði í Tónabæ, Árseli, Fellahelli, Þrótt-
heimum og í aðalstöðvum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins að Öldugötu 4.
Deildir samtakanna utan Reykjavíkur
hver í sínu umdæmi.
í frétt frá Rauða krossinum
kemur fram að samkvæmt upplýs-
ingum frá fulltrúum samtakanna,
sé nú mikill skortur á fatnaði í
mörgum Afríkulöndum. Auk venju-
legra ígangsfata vanti víða skjól-
klæðnað, þar sem nætur eru kaldar
og einnig sé víða brýn þörf fyrir
barnaföt.
Síðan segir i frétt frá Rauða
krossi fslands: „Hér á íslandi eiga
margir fatnað sem fólk vill ekki
nota lengur af ýmsum ástæðum.
Víða er um hreinan og heilan fatnað
sem yrði þeginn með þökkum af
munu auglýsa hvar þær taka við fatnaði
þeim sem engin eða of fá föt eiga.
Vegna þessa hefur Rauði krossinn
nú ákveðið að beita sér fyrir fata-
söfnun á íslandi til þeirra Afr-
(kubúa sem eiga of lítinn fatnað.
Hér er um að ræða allar tegundir
af nothæfum fatnaði aðrar en skó-
fatnað. Föt þurfa að vera hrein og
heil en mega vera notuð.
Rauði krossinn vonar að sem
flestir noti þetta tækifæri til að
gera hvort tveggja í senn, líkna
bágstöddu fólki í Áfríku og losa sig
við þann fatnað sem hefur af ýmsum
ástæðum verið lagður til hliðar.