Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 48
48 MORÖÚHBLADIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 Persónuleikakenning H.J. Eysencks Flokkunarfræði af ýmsu tagi er ein af grundvaHaraðferdum vísind- | viðfangsefninu. Það gildir því um sálfræði, rétt eins og aðrar fræðigrein- anna. Það gildir um flestar fræðigreinar að þær leitast við að koma I ar, að hlutverk flokkunarfræðinnar er fyrst og fremst að koma skipulagi skipulagi á, og finna merkingu í þeim fyrirbærum sem þær fást við. I á mannlega hegðun, hugsun og athafnir, þannig að þessi fyrirbæri verði Þetta er oftast gert með flokkun og kerfisbundnum skilgreiningum á | skiljanleg. Persónuleikakenning H J. Eys- enck er slíkt flokkunarkerfi. Kenningin fæst við mannlega hegðun og hugsun og leitast við að lýsa og skýra ýmislegt það í fari fólks sem er mismunandi frá manni til manns. Hún leiðir af sér ýmsar tilgátur um orsakir þessa mismunar. Jafnframt leit- ast hún við að spá fyrir um hegðun og viðbrögð fólks út frá skapgerðareinkennum þess. Það er kannski örlítið misvís- andi að tala um persónuleika- kenningu Eysencks, þar sem miklu fleiri einstaklingar en hann hafa komið við sögu þeirra hugmynda sem hann byggir á. Því er rétt að líta i örstuttu máli á hvaðan hugmyndirnar koma. Gríski læknirinn Galen setti á annarri öld e. Kr. fram hug- myndir um fjórar megingerðir mannlegs skapferlis. Menn væru annaðhvort léttlyndir (sangu- ine), þunglyndir (melancholic), bráðlyndir (choleric) eða dauf- lyndir (phlegmatic). Hinn frægi heimspekingur Immanuel Kant lýsti einnig í sinni þekktu mann- fræði fjórum megingerðum skap- gerðar og notaði flokkun Galens, en endurbætti hana og skýrði nánar. í byrjun þessarar aldar betrumbætti síðan þýski sál- fræðingurinn Wilhelm Wundt þessar hugmyndir. Hann setti fram tilgátu um að hver einstakl- ingur gæti haft sambland þess- ara eiginleika. í stað þess að menn skiptust ákveðið niður í þessa fjóra flokka, hefði hver einstaklingur alla þessa eigin- leika í nokkrum mæli, en mis- munandi mikið af hverjum þeirra. Fleiri fræðimenn lögðu Eys- enck til grunninn í persónuleika- kenninguna. Má þar nefna aust- urríska geðlækninn Otto Gross, sem reyndi að tengja skapgerðar- einkenni við lífeðlisfræðiieg fyr- irbæri. Sálfræðingurinn Cari Gustav Jung, bætti við þetta hugmyndum um inn og úthverfa persónugerð, og síðast en ekki síst ber að nefna geðlækninn Kretschmer sem innleiddi hug- myndina um að geðrænir kvillar væru ekki í eðli sínu frábrugðnir eðlilegu ástandi, heldur væru öfgakennt stig eðlilegra eigin- leika. H.J. Eysenck gaf árið 1947 út sína fyrstu bók, „Dimensions of Personality", og tók með henni upp á sína arma, þær hugmyndir um persónugerð sem áður voru nefndar. Árið 1957 kom frá hon- um bókin „The Dynamics of Anxiety and Hysteria“ þar sem hann tengdi kenninguna um persónuleikann hugmyndum um örvun og hömlun. I bókinni „The Biological Basis of Personality" (1967) skýrði hann og útfærði þessar hugmyndir nánar og tengdi rannsóknum á ýmsum sállífeðlislegum fyrirbærum. Persónuleikalíkan Eysencks er þannig samansett, að hverjum einstaklingi má lýsa með þrem meginvíddum, sem eru óháðar hver annarri. Álítur Eysenck að ýmsar tegundir geðrænna vand- kvæða megi skilja sem öfga- ástand þessara vídda. Hin fyrsta er „Psychoticism" eða harðlyndi (toughmindedness). önnur vídd- in er nefnd „Extraversion-Intro- version" eða inn- og úthverfi, og lýsir því hvort einstaklingurinn er félagslyndur og úthverfur eða dulur og fáskiptinn. Þriðja og síðasta víddin hefur verið nefnd „Neuroticism" sem kannski mætti kalla tilfinninganæmi á íslensku. Álítur Eysenck ýmis taugaveiklunareinkenni og kvilla vera tengda þessari vídd. Það ber að leggja á það áherslu að þótt þetta persónuleikalíkan Eysenck H.J. Eysenck hefur skrifað fjölmörg rit um sálfræði. Þau beinast öll að sama marki: Að auka þekkingu manna á sjálfum sér. Aðferð Eysencks felst i því, að athuga hvað menn gera og geta gert. Þetta þýðir að þekking- arinnar er aflað með því að afla reynslu af því, hvernig menn haga sér, og einnig þýðir það, að niðurstöðurnar verða að standa og falla eftir því hvernig þær koma heim og saman við reynslu. Rannsóknaefnið, maðurinn, er flókið fyrirbæri. Frumlegustu rannsóknir Eysencks beinast að persónuleika manna, hvernig flokka megi persónueinkenni manna, og við hverju megi búast af mönnum með ólíka persónu- gerð. Þessar rannsóknir hafa vissulega aukið þekkingu manna á sjálfum sér. Athygli Eysencks hefur einnig beinzt að því, hvað menn geta gert, að hæfileikum manna, og þá einkum að hugtaki, sem erfitt hefur reynzt að skil- greina, mannlegri greind. í bók, sem Eysenck ritaði 1973 og heitir Um ójafnræði manna, er sé við fyrstu sýn ákaflega einfalt, þá gefur það möguleika á mjög fjölbreytilegum samsetningum eiginleika, vegna þess að hér er um ótengdar viddir að ræða. Það er því mögulegt samkvæmt lík- aninu, að hafa alla þessa per- sónueiginleika samtímis, aðeins mismunandi samsetta. Eysenck hefur í rannsóknum sínum stuðst mjög við svokallaða þáttagreiningu. Hún er aðferð til samantekt um þetta efni. Menn hefur greint á um hugtakið greind, og ekki síður um greind- arpróf. Bent hefur verið á, að greindarpróf mæli þann hæfi- leika, sem þarf til að standa sig vel á skólaprófum. Því verður ekki á móti mælt, að sá, sem nær góðum árangri á greindarprófi, er líklegur til að standa sig vel í skólanámi. Sumir sálfræðingar hafa þó bent á, að það séu fleiri mikilvægir hæfileikar, sem taka beri tillit til, svo sem hæfileika til frumlegrar, gagnrýninnar hugsunar og sköpunargáfa. Greindarpróf mæli færni, sem er mótuð af hefðbundnum gild- um menningarinnar, en láti sér í léttu rúmi liggja sérvizku, áráttu til að vera öðruvísi eða frábrugðinn því venjulega. Eys- enck bendir á, að próf sem eiga að mæla sköpunargáfu hafi góða fylgni við greindarpróf. Það hafi komið í ljós, að þeir hæfileikar, sem greindarpróf mæla vel, feli í sér eða útiloki a.m.k. alls ekki sköpunarhæfni, frumleika. Greind felur í sér hugkvæmni. þess að vinna úr mælingum á t.d. eiginleikum fólks og hefur Eysenck á þann hátt þróað per- sónuleikaspurningalista sem mælir þær víddir sem áður voru nefndar. Þáttagreining byggir á því, að reynt er að skýra sam- band milli margra atriða eða breyta, með dreifingu fárra grunnþátta. Þannig notar Eys- enck hinar þrjár grunnvíddir persónuleikalíkansins til þess að og hugkvæmur maður með ríkt ímyndunarafl er líklegur til af- reka. Og greindarprófið getur gefið vísbendingu um, hvert krókurinn beygist. Eysenck hefur rannsakað náið, í hversu ríkum mæli má móta greind eða auka hana. Niður- staða hans er sú í stuttu máli, að vissulega megi kenna mönn- um ýmiskonar færni, en að 80% sé greind arfgeng. Andlegir hæfileikar barns eru teknir í arf frá foreldrum. Umhverfið móti menn í tiltölulega litlum mæli. Það leiðir þá af þessu, að ekki getur hvaða barn sem er lært hvað sem er. Skólanám þarf að laga að erfðri getu hvers barns. Þeir kennarar fara villir vegar, sem halda, að það sé hægt að kenna hvaða barni sem er hvað sem er. Eysenck bendir einnig á, að greind og geta fari ekki endi- lega eftir stétt. Vissulega þurfa þeir, sem vinna afrek á einhverju sviði eða standa sig vel í ábyrgð- armiklum stöðum, að hafa góða greind. En þar með er ekki sagt, að ein stétt hafi háa greind. skýra samband fjölda atriða sem tengd eru hegðun og sálarlífi mannsins. Þetta er oftast gert með því að fjöldi fólks er beðinn að svara spurningum um ýmis efni. Þær eru síðan notaðar í þá flóknu tölfræðilegu úrvinnslu sem þáttagreining byggist á. Eysenck hefur þróað persónu- leikapróf sitt, EPQ (Eysenck Personality Questionnaire) á þennan hátt. Próf þetta er meðal annars notað hér á landi og hefur verið staðlað og búið til notkunar á vegum Háskóla íslands. Persónuleikakenning þessi og EPQ-prófið hafa getið af sér umfangsmiklar rannsóknir, þar sem fundist hafa tengsl milli þeirra þátta sem prófið mælir og ýmissa mannlegra eiginleika. Þetta eru eiginleikar svo sem, skynjun, næmni gagnvart lyfj- um, minni, sársaukaskyn, ár- vekni, viðbragðsflýtir, félagsleg viðhorf, vöðvaspenna og auðvitað geðrænar truflanir og vand- kvæði. Svona mætti lengi telja. Persónuleikakenning þessi hefur því allmikið notagildi bæði fyrir rannsóknir á hegðun og sálarlífi fólks og einnig fyrir meðferð og greiningu geðrænna kvilla. Eysenck hefur ætíð lagt mikla áherslu á nákvæm og visindaleg vinnubrögð, og hafa rannsóknir þær og kenningasmíð sem tengj- ast persónuleikakenningu hans einkennst af þessu. En þrátt fyrir þetta, hafa ýmsir gagnrýnt hann, sérlega fyrir þau tengsl sem hann hefur haldið fram að væru milli t.d. glæpatilhneigingar eða stjórnmálaskoðana annars vegar og persónuleika hins vegar. En kenningin virðist lifa góðu lífi og hafa öðlast fastan sess á meðal þeirra hugmynda um manninn sem nú ríkja. Hvort hún verður langlíf, verður reynslan að leiða í ljós. önnur lága. Barn greindra for- eldra erfir ekki nauðsynlega og skilyrðislaust greindarstig for- eldranna. Foreldrar flytja erfða- vísa, sem gera barnið ólíkt þeim. Barnið getur haft sömu eða lægri greindarvísitölu en foreldrarnir. Börn foreldra með lága greind geta haft mun hærri greindar- vísitölu en foreldrarnir. Skóla- menntun á því ekki að miða við stétt foreldra, heldur getu barn- anna. Hér er um að ræða mikilvæg og umdeild efni. Menn geta verið Eysenck ósammála. En þeir sem vilja mótmæla honum, verða þá að tefla fram athugunum sem eru byggðar á traustari grunni og betri úrvinnslu en niðurstöður Eysencks eru byggðar á. Rit Eysencks sýna bæði yfir- gripsmikla þekkingu og nákvæm vinnubrögð þaulreynds rann- sóknarmanns. Þessvegna hafa þau haft áhrif, ekki aðeins meðal sálfræðinga, heldur og langt út fyrir raðir þeirra. Arnór Hannibalsson EYSENCK Einn litríkasti og jafn- framt þekktasti sálfræð- ingur Breta, Hans J. Eysenck, kemur til landsins um helgina í boði Sálfræðingafélags íslands. Eysenck er fæddur í Berlín 1916, en flúði til Englands skömmu eftir valdatöku nasista. Þar lauk hann doktorsprófi í sálfræði og var upp úr síðari heimsstyrjöldinni skipaður prófessor við geðlæknisfræðistofnun Lundúnaháskóla. Á starfsferli sínum hefur Eysenck verið mjög af- kastamikill rannsakandi og rithöfundur. Þar hef- ur hann komið víða við, en þekktastur er hann þó fyrir rannsóknir sínar og kenningar um per- sónuleika manna. Eysenck hefur lengst af verið umdeildur mað- ur enda ófeiminn við að segja skoðanir sínar og gagnrýna þær kenningar sem hann telur rangar. Þar má nefna — að skýringar freud- ista á geðsjúkdómum væru til lítils gagns og að ekkert benti til þess að freudisk með- ferð (analísa) gæfi meiri árangur en að láta tímann lækna sárin. — að hægt sé að fullyrða um áhrif erfða á / greind. Eysenck telur að hægt sé að skýra 80% af almennri greind út frá erfðum. — að persónuleikar kommúnista og hægri öfgamanna væru, þrátt fyrir allt, ekki svo ólíkir. Júlíus K. Björnsson um greind og greindarpróf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.