Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 36

Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 fltargtiitHfifrifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Bjöm Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 400 kr. á mánuði innanlands. í iausasölu 35 kr. eintakiö. Gorbachev, Sakharov og barn Tarkovskí- hjónanna Að undanförnu hefur mikið verið látið með Gorbach- ev, hinn nýja ieiðtoga Sovét- ríkjanna, á Vesturlöndum. Talað hefur verið um hann sem fulltrúa nýrrar kynslóðar og búast megi við miklum breytingum á utanríkisstefnu Sovétríkjanna og raunar í inn- anlandsmálum einnig. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem fjöl- miðlar á Vesturlöndum falla fyrir nýjum leiðtogum í Sov- étríkjunum. Þess er skemmst að minnast, hvernig fjallað var um Andropov fyrir nokkr- um misserum, þrátt fyrir langan feril hans hjá hinni al- ræmdu leyniþjónustu Sovét- manna, KGB. Fyrir aldar fjórðungi var Krúsjoff, þáver- andi leiðtogi Sovétríkjanna, eitt helzta eftirlæti fjölmiðla hins vestræna heims, sem töldu valdatðku hans tákna nýja tíma. A sama tíma og vestrænir fjölmiðlar lofa Gorbachev, sem boðbera nýrra tíma aust- ur þar, beinist athyglin enn einu sinni að hlutskipti sov- ézka vísindamannsins Andrei Sakharov. Hvers vegna í ósköpunum sleppa Sovétmenn þessum manni ekki úr landi? Meðan hann bjó í Moskvu var hann hundeltur af útsendur- um KGB, sem vöktuðu hann við hvert fótmál. Þegar það dugði ekki til var hann sendur í útlegð innan Sovétríkjanna til borgar, sem enginn Vestur- landabúi fær að koma til. Fjöl- skylda Sakharovs fær nánast engar fréttir af honum eða hvernig heilsu hans er háttað. Þegar fréttir gjósa upp á Vest- urlöndum um það, að hann sé látinn fer ákveðið kerfi í gang í Sovétríkjunum, sem byggist á þvi að nota mann nokkurn í Moskvu, sem lengi hefur verið á mála hjá KGB en jafnframt haft sambönd við dagblöð í Bretlandi og Þýzkalandi til þess að leka einhvers konar fréttum, stundum sjón- varpsmyndum af Sakharov, gjarnan með blað í höndum, þar sem dagsetning sést, til þess að sýna það og sanna, að hann sé lifandi. Þessi leikur er nú búinn að standa yfir í allmörg ár. Hann er að vísu endurtekning á meðferð annarra andófs- manna í Sovétríkjunum en í tilfelli Sakharovs er þetta grárri leikur en nokkru sinni fyrr. Þá fyrst væri tilefni til þess að ræða það yfirleitt, hvort valdataka Gorbachevs hefði í för með sér breytingar á stefnu og vinnubrögðum Sov- étstjórnarinnar, ef hinn nýi leiðtogi Sovétríkjanna beitti sér fyrir því, að Sakharov fengi fararleyfi til þess Iands, sem hann óskaði eftir. Meðan Sakharov situr í útlegð og ein- angraður er fáránlegt að tala um ný vinnubrögð í Moskvu, þótt aðalritari kommúnista- flokksins þar láti svo lítið að taka í hönd verkafólks. En það er að vísu dæmigert fyrir þá yfirborðsmennsku sem tröll- ríður hinum vestræna fjöl- miðlaheimi að telja slíkar til- tektir tákn um stefnubreyt- ingu. Sakharov er ekki eini ein- staklingurinn í Sovétríkjun- um, sem sætir illri meðferð af hálfu stjórnvalda þar. Fleiri eiga um sárt að binda af þeim sökum. Athygli okkar íslend- inga hefur undanfarna mán- uði beinzt að öðru slíku dæmi, þar sem'er viðleitni rússneska kvikmyndaleikstjórans Tar- kovskýs og konu hans til þess að fá barn sitt frá Sovétríkj- unum. Hvers konar grimmd- aræði er það í þessu landi, sem veldur því, að fólk getur ekki fengið barnið sitt til sín, þótt því hafi sinnazt við stjórnvöld austur þar? Er einhver sérstök ástæða til að brosa breitt 'framan í þá valdamenn, sem stjóma slíku kerfi? Athygli okkar íslendinga hefur beinzt sérstaklega að máli Tar- kovský-hjónanna vegna þess að íslenzk leikkona, Guðrún S. Gísladóttir, hefur nýlega leik- ið í kvikmynd sem Tarkvoský vinnur nú að. Það er fyllsta ástæða til þess fyrir islenzk 8tjórnvöld að beita þeim áhrif- um, sem þau hafa yfir að ráða til þess að hjálpa Tar- kovský-hjónunum. Slík aöstoð hefur áður borið árangur fyrir annan landflótta Rússa, Vlad- Smir Askenasí. , Axel Jónsson Sjálfstæðismenn í Kópa- vogi hafa í 30-40 ára sögu þess byggðarlags verið í allt annarri stöðu en flokksbræður þeirra í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa jafnan verið minni- hlutaflokkar og sjaldan átt aðild að myndun meirihluta í bæjarmálum. Þessi ólíka staða á sér sögulegar forsendur, sem hér verður ekki fjallað um. Hitt er ljóst, að á þessu tímabili hefur Sjálf- stæðisflokkurinn verið byggður upp smátt og smátt og er nú stærsti og öflug- asti flokkurinn í bæjarmálum Kópavogs, þótt hann sé þar enn í minnihluta. Einn þeirra manna, sem átt hafa mestan þátt í þessari eflingu Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi, var Axel Jónsson, fyrrum alþingismaður og bæjarfulltrúi, sem nú er látinn. Þessi hógværi maður var kjölfestan í starfi Sjálfstæðisflokks- ins í stærsta kaupstað landsins utan Reykjavíkur um langt árabil. Hann var einn þeirra stjórnmálamanna, sem átti auðvelt með að sýna pólitískum and- stæðingum fyllstu sanngirni. Þess vegna var á hann hlustað í þeirra röðum. Hvort sem hann var í minnihluta eða meiri- hluta í bæjarstjórn Kópavogs hafði hann áhrif á gang mála. Axel Jónsson átti margvísleg sam- skipti við Morgunblaðið á löngum starfs- ferli. Fyrr á þessu sumri lét hann vin- samleg orð falla við höfund þessa Reykjavíkurbréfs um uppbyggingu Morgunblaðsins á undanförnum árum, fjölbreyttni þess og starfsemi alla. Hlý- hugur hans í garð blaðsins kom berlega í ljós hvað eftir annað. Axel Jónsson mun skipa veglegan sess í sögu Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi og bæjarfé- lagsins sjálfs. Breytingar í landbúnadi Sviptingar í landbúnaði hafa verið miklar á undanförnum árum og áratug- um. Líklega hefur engin atvinnugrein byggt upp jafn öflug og áhrifarík hags- munasamtök og landbúnaðurinn. Þetta hefur ekki sízt byggzt á þeim mikia pólit- íska styrk, sem bændur hafa haft í landinu m.a. vegna kjördæmaskipunar. Að öðru leyti stendur landbúnaðurinn auðvitað mjög djúpum rótum í samfélagi okkar og byggir því á gömlum merg. Hvað sem þessu líður er ljóst, að landbúnaðurinn stendur nú á miklum tímamótum. í upphafi þessarar aldar var landbúnaðurinn önnur höfuðat- vinnugrein landsmanna. Þann sess skip- ar landbúnaðurinn ekki lengur. Við- fangsefni hans nú er að draga saman seglin og laga sig að breyttum aðstæð- um. Það er óhjákvæmilegt, að umsvif hins hefðbundna landbúnaðar minnki verulega á næstu árum og að því verði stefnt, að framleiðsla hans á kjöti og mjólkurafurðum verði í samræmi við innanlandsneyzlu. Tæknivæðing hefur verið mikil í land- búnaði á undanförnum áratugum bæði hér og erlendis. Það er nánast ótrúlegt hvað tiltölulega fámennur hópur getur framleitt mikið magn af matvælum. Þótt bændum hafi fækkað mikið á undanförnum árum má búast við, að sú þróunn haldi áfram m.a. á þann veg, að nýir bændur komi ekki í stað þeirra, sem hætta búskap fyrir aldurs sakir. Landbúnaðurinn er að ganga í gegnum breytingar atvinnugreinar, sem er að dragast saman. Slík breyting hefur margvísleg vandamál í för með sér fyrir fólkið, sem byggt hefur afkomu sína á búskap. Þess vegna á það að vera lykil- þáttur í aðgerðum landbúnaðarins til þess að aðlaga sig breyttum aðstæðum að auðvelda þessu fólki að hætta búskap án þess að það verði eignalaust. Eðlilegt er, að almannavaldið komi þar til skjal- anna. Slíkar breytingar í landbúnaði snerta ekki einungis bændur sjálfa og skyldulið þeirra. Nokkur kauptún í landinu hafa byggzt upp, sem þjónustumiðstöðvar fyrir landbúnaðarhéruð. Fólkið í þessum byggðarlögum getur einnig staðið frammi fyrir afleiðingum samdráttar í landbúnaði. Það er t.d. augljóst, að vinnslustöðvum landbúnaðarins hlýtur að fækka, þegar fram í sækir. Vinnslustöðvar landbúnaðarins hafa margar hverjar staðið sig frábærlega vel í þróun vöru, sem neytendum er þóknanleg. Þetta á sérstaklega við um mjólkurvörurnar, sem hafa náð miklum gæðum. Kjötvinnslan er ekki komin eins langt 1 sinni uppbyggingu. Margir forystumenn bænda líta raunsæjum augum á stöðu landbúnaðar- ins nú og gera sér grein fyrir því, sem þar er á ferðinni. Það mundi auðvelda þessar breytingar mjög, ef raddir þeirra yrðu ráðandi í röðum bænda. Þá má einnig vænta jákvæðari viðbragða af hálfu neytenda og skattgreiðenda í umræðum um aðstoð við landbúnaðinn á þessu breytingaskeiði. Suður-Afríka Athygli fólks beinist nú mjög að Suður-Afríku og framvindu' mála þar. Auðvitað er ljóst, að hvítu mennirnir geta ekki til lengdar haldið blökkumönn- um frá áhrifum á landsstjórnina. Á hinn bóginn fer ekki á milli mála, að saga hvítra manna í Suður-Afríku er önnur en hvítra manna í því ríki, sem áður hét Rhódesía. Þess vegna er varasamt að leggja þróunina í þessum tveimur lönd- umaðjöfnu. Umræður um málefni Suður-Afríku vekja upp margvíslegar siðferðilegar spurningar, ekki sízt fyrir Evrópubúa, sem telja sig vera sterkari á svellinu í þeim efnum en flestar aðrar þjóðir heims. Nú er mikið rætt um margvísleg- ar refsiaðgerðir í garð Suður-Afríku. íþróttamenn þaðan megi ekki taka þátt í kappleikjum annarra þjóða, ekki skuli keyptur varningur frá Suður-Afríku sv.frv. Refsiaðgerðum af þessu tagi var haldið uppi gagnvart hvítu minnihluta- stjórninni í Rhódesíu á sínum tíma og gáfust misjafnlega vel. Spurningin, sem lýðræðisþjóðir Vest- urlanda standa hins vegar frammi fyrir í þessu sambandi er: ef við neitum hvít- um íþróttamönnum frá Suður-Afríku um þátttöku í kappleikjum vegna kúgun- ar þeirra á blökkumönnum, hvers vegna neitum við ekki einnig að keppa við íþróttamenn frá alræðisríkjum Austur— Evrópu. Er kúgun hvítra manna í Suð- ur-Afríku á blökkumönnum þar verri en kúgunaraðgerðir Sovétmanna í Afg- anistan frá siðferðilegu sjónarmiði séð? Er fangelsun Nelson Mandela í Suður— Afríku verri að þessu leyti en fangelsun leiðtoga Solidarnoc í Póllandi eða inni- lokun Sakharovs í Sovétríkjunum? Hver er hinn siðferðilegi munur á kúgunarað- gerðum hvítra manna í Suður-Afríku og kúgunaraðgerðum kommúnista- stjórnanna í Austur-Evrópu? í umræð- unum um Suður-Afríku verða Evrópu- menn að hafa manndóm í sér til þess að svara þessum spurningum. í umræðum hér á íslandi hefur annar þáttur þessa máls skotið upp kollinum. Á sunnudaginn var, birti Morgunblaðið viðtal, sem tekið var við Nelson Mandela í fangelsi því, sem hann hefur setið í nú um aldarfjórðung, frá því að hann var kornungur maður tekinn höndum. Jafnframt birti Morgunblaðið viðtal við Hilmar Kristjánsson sem búsettur hefur verið í Suður-Afríku í um 20 ár. Sjónar- mið þessa íslendings eru áreiðanlega andstæð skoðunum langflestra íslend- inga á þessu máli. Þjóðviljinn taldi það hneykslanlegt af Morgunblaðinu að birta viðtalið við Hilmar Kristjánsson. MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR & SEPTEMBER 1985 37 -—-ÍU ^ REYKJAVIKURBREF laugardagur 7. september Síðsumarsblfóa viö höfnina á Grundarfirði. Kirkjufell f baksýn. Morgunblaðið/ Stcfán Hjartaraon Hvers vegna? Ef við viljum halda lýð- ræðishefðir okkar í heiðri verðum við þá ekki að viðurkenna rétt meðbræðra okkar til þess að hafa aðrar skoðanir en við hin og rétt þeirra til þess að kynna þær á opinberum vettvangi? Á hvaða siðferðilegum grunni ætla menn að standa ef þeir segja sem svo: þú hefur svo ógeðslegar skoðanir, sem svo til allir eru á móti, að við birtum ekki það sem þú segir. Hvar á að draga þessa línu? Hvar ætlar Þjóðviljinn að draga hana? Það er líka eftirtektarvert, að úr annarri átt er veitzt að fréttamanni sjónvarps í Velvakandabréfi fyrir það að flytja fréttir um þessi mál, sem bréf- ritara voru ekki þóknanlegar. Eru fréttamenn að koma í stað sendiboða, sem fyrr á öldum voru teknir af lífi fyrir það eitt að flytja váleg tíðindi? Vandi sjávarútvegs Núverandi ríkisstjórn hefur setið að völdum í rúm tvö ár. Þrátt fyrir það sjást þess engin merki, að hún hyggist taka á vandamálum sjávarútvegsins á þann hátt að máli skipti. Sjávarútvegin- um er að blæða út. Eignir hans eru að brenna upp í taprekstri ár eftir ár. Ef svo heldur fram sem horfir verða ekki mörg ár þangað til sjávarútvegsfyrir- tækin í landinu standa uppi eignalaus. öll atorka ríkisstjórnarinnar virðist fara í það að framfylgja kvótakerfinu. Að öðru leyti eru þar til bær yfirvöld að setja togara á nauðungaruppboð, sem út af fyrir sig getur verið heilsusamlegt. Fiskvinnslan stendur frammi fyrir því, að hún fær ekki lengur fólk til vinnu fyrir þau laun, sem hún býður upp á. Póstmaður vestur á fjörðum sagði við höfund Reykjavíkurbréfs í sumar, að hann sæi eftir því hvað hann hefði unnið lengi í frystihúsi. Það væri alltof erfið vinna fyrir svipað kaup og hann fengi í þjónustustarfi hjá ríkinu. Sums staðar er ekki lengur hægt að halda frystihús- um gangandi nema með útlendingum og í þeim efnum tekst misjafnlega til um ráðningar. Vinnuaflsskortur í frystihúsum og hátt verðlag á ferskum fiski í Bretlandi veldur því, að nú vantar fisk á Banda- ríkjamarkað. Afleiðing þess ef við getum ekki tryggt föstum viðskiptavinum okk- ar nægan fisk verður sú, að þeir snúa sér annað með viðskipti sín. Á meðan sjávarútveginum blæðir út hefur hann litinn, sem engan mátt til þess að takast á við þessi vandamál. Því miður er hins vegar ekkert sem bendir til þess að ríkisstjórnin hyggist taka á grundvallar- vanda sjávarútvegsins. Sumir segja, að rótin að vanda sjávar- útvegsins séu erlendar lántökur. Verði þeim hætt muni draga úr þeirri þenslu, sem sogi vinnuaflið úr sjávarútveginum til sín. M.ö.o. þá hafi fólk ekkert annað að leita en í frystihúsin. Vera má, að eitthvað sé til i þessum kenningum. En það kann ekki góðri lukku að stýra fyrir sjávarútveginn 1 framtíðinni, ef hann getur ekki fengið vinnuafl á þeim kjör- um, sem hann býður nema vegna þess að fólk hefur ekkert annað að leita. Sú lausn á vanda sjávarútvegsins sýnist vera með býsna neikvæðum formerkj- um. Hugmyndasnauð pólitík Á máli manna víðs vegar um land má finna mikla óánægju með stjórn- málamenn og flokka. Skýringin er ekki bara sú, að afkoma fólks sé léleg. Þjóðin þarf líka á andlegri næringu að halda. Hana sýnist hvergi vera að fá um þessar mundir. Stjórnmálamennirnir veita þjóðinni ekki þá hugmyndaríku forystu, sem hún þarf á að halda. Stundum þarf að tala við kjósendur um annað en verð- bólgu og efnahagsmál. Það heyrir til undantekninga, að stjórnmálamenn geri það. Þess vegna ríkir deyfð og drungi yfir pólitíkinni í landinu. Þar er enga hugljómun að fá. Þar er engin skapandi, hugmyndarík forysta, sem vísar veginn framávið. En er þá forystu að finna á öðrum sviðum þjóðlífsins? „í upphafi þessar- ar aldar var land- V búnaðurinn önnur höfuðatvinnugrein landsmanna. Þann sess skipar landbúnaðurinn ekki lengur. Við- fangsefni hans nú er að draga saman seglin og laga sig að breyttum að- stæðum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.