Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 45

Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 45
MORGUNBLABIÐj SUNNUDAQUfi 8> SEPTEMBER 1985, 45 | Hnuggin kona fær himnasendingu Jenny Hayden og Stjörnumaðurinn í kapphlaupi sfnu ri) tímann og banda- rfska landherinn í hinni vel leiknu mynd Aðkomumaðurfnn. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Aðkomumaðurinn (Starman) ★ ★ ★ Leikstjóri John Carpenter. Tónlist , Jack Nitzsche. Kvikmyndataka Donald N. Morgan, A.S.C. Klipping Marion Rothman. Hljóðupptaka Don S. Walden og Michael Redbourn. Handrit Bruce A. Evans og Raynold Gideon. Tæknibrellur Roy Arbogast. Framleiðandi Larry J. Franco. Aðal- leikendur Jeff Bridges, Karen Allan, Charles Martin Smith, Richard Ja- eckel, Robert Phalen. Bandarísk, frá Columbia Pictures. Frumsýnd í árslok ’84. Ath.: Columbia fékk Dean Riesner til að endurrita handrit þeirra Gideons og Evans, og er sagt að hann eigi mestan heiðurinn at þrí. Samtök handritahöfunda ákríðn samt að halda nafni hans utan myndarinnar. Carpenter þótti það slík hneisa að hann tileinkar þessum flinka höfundi myndina, en hann skrifaði, m.a. bandrit myndanna Dirty Harry og Charley Varrick. Skip utanúr geimnum kemur til jarðar í Wisconsin í Bandaríkjun- um. Vera sem er innanborðs kemst af og brýst inní hús í nágrenninu. Þar býr ekkjan Jenny Hayden, (Karen Allen), en geimveran finn- ur hárlokk af nýlátnum manni hennar, Scott, (Jeff Bridges). Það dugar henni til að líkamnast í fullkomið útlit eigandans, aðeins hreyfingarnar eru aðrar. Jenny fylgist með í forundran er veran breytist úr fóstri i Scott, fullskap- aðan, á stofugólfinu hjá henni. Þannig upphefst fyrsta ástar- sagan á milli geimveru og jarðar- búa á hvíta tjaldinu. Það er svosem engum sérstökum frumlegheitum fyrir að fara í efnistökunum, en leikstjórinn, John Carpenter, legg- ur meira uppúr mannlega þættin- um en tæknilegum brellibrögðum og sagan rennur áfram með síauk- inni rómantík. Scott/Starman, getur á bjagaðri ensku, upplýst Hayden að koma hans til jarðar sé tilkomin vegna heimboðs af plötunni sem send var út í geiminn með Voyager II. Hann verði síðan heimtur aftur um borð í móðurskipið á ákveðnum stað í Arizona-fylki eftir fjóra sólar- hringa. Lengur haldi hann ekki lífi á jörðinni. Hayden bæði skelfist og hrifst af þessari samsetningu í fyrstu, gerir nokkrar flóttatilraunir á meðan þau þeysast á bíl hennar vestur til Arizona. En smásaman takast með þeim ástir, nokkuð sem er nýtt fyrir stjörnumanninum. Hernaðaryfirvöld komast strax á slóð þeirra og ætla að hafa hendur f hári stjörnumannsins. En hann og Hayden eru ávallt með nokkurt forskot og velviljaður vísindamaður, (Charles Martin Smith), bjargar þeim yfir loka- hjallann. Svo sannarlega óvenjuleg mynd frá hrollvekjumeistaranum John Carpenter. Og hún sýnir og sannar að hann kann að fást við fleira en að hræða líftóruna úr fólki. Hér slær hann á glaðværa og róman- tíska strengi. Tengir saman, á ljúf- sáran hátt, hinar ólíku verur. Hinn hnuggna jarðarbúa og saklausu, lítið eitt vélmennislegu geimveru — en bæði eru þau einmana, hvort á sinn hátt. Það eru mörg bæði bráð- skemmtileg og vel unnin atriði í Aðkomumanninum, þau tengjast flest hinu sínánara sambandi söguhetjanna í gegnum myndina. Aftur á móti er annað nokkuð flausturslegt, þó einkum upphafs- atriði sem ekki er nægjanlega upplýsandi. Þá kemur á óvart að öll meiriháttar tæknibrögð, sem löngum hafa einkennt myndir af þessari gerð, láta bæði lítið yfir sér, sem er i góðu lagi, en eru auk þess mörg áberandi illa gerð. Hlutverkavalið er óaðfinnan- legt. Þau Allen og Jeff Bridges eru bæði tvö framúrskarandi leikarar. Allen hefur örugglega ekki verið í annan tíma betri en í tilfinninga- heitri tjáningu sinni á hinni ringl- uðu ekkju og Bridges vinnur enn einn leiksigur sem gesturinn utan- gátta. Þá túlka af jafn mikilli sannfæringu gáska og gleði jafnt sem viðkvæmni og trega. Ekki er síður vel valið í auka- hlutverkin. Sá gamli jaxl, Richard Jaeckel, sem löngum hefur mátt halda sig í skugga stjarnanna, oft i vanþakklátum hlutverkum skit- seyða, fær hér eitt talsvert matar- meira hlutverk en hann á að venj- ast og skilar því vel. Sama er að segja um Charles Martin Smith, hann smellur í hlutverk vísinda- mannsins. Minni hlutverk eru öll áberandi vel mönnuð. Þá er og ástæða að geta tónlistar Nitzsches og töku Morgans. Hlý og manneskjuleg meðferð Carpenters á efniviðnum afsakar nokkra hnökra og þokukennda kafla í annars bráðhnyttnu og velskrifuðu handriti. Hin hlýlegu og jákvæðu áhrif Aðkomumanns- ins endurspeglast ágætlega i spurningu sem ungur sonur minn varpaði fram að sýningu lokinni; „Heldurðu að þeir geri ekki St&r- man 11?“ ÚTSALA Á mánudaginn hefst útsala á áklæðum og alls konar fata- efnum. Mikið úrval. Allt alullarefni Einstakt tækifæri til kaupa á vandaöri vöru á ótrúlega lágu veröi. / Hvaö skeöur þegar útsöludagar enda á föstudaginn? / & / Álafossbúðin Vesturgötu 2, sími 22090 Vetrarönn K.V.R. hefst mánudaginn 9. september. Fnstir timar fyr't liðakeifu verða frá manudögum tii fóstudagn. kl. 18 20. kl 20 22 og kl. 22- 00.30 Vcgnn einstíikni samningíi K V.R. vid Öskjuhltd sf. vt'tður 20°o ódýrara ad keila á toslum timum en i opinni keilu. Timarnir frá kl. 18—20 og 20—22 kosta 1200 kr. og tímar frá 22—00.30 kosta 1400 kr. Keilutíma er aðeins hægt að bóka að frágengnum samningi og greiðslum. Þrír valkostir eru á greiðslufyrirkomulagi: 1. Hver mánuður greiddur fyrirfram. 2. Hálf vetrarönn greidd fyrirfram. sem gefur 10 % viöbótarafslátt. 3. Öll vetrarönnin greidd fyrirfram. er gefur 20% viðbótarafslátt. Hafið samband við Ásgeir Pálsson eða Helgu Sigurðardóttur í keilusalnum Öskjuhlið eöa síma 621599/621513. Hinir fyrstu ad bóka fá bestu valkosti. Stærri hópar, samstarfsmenn, skólafélagar o. fl. ættu aö gefa gaum aö blokkpöntun brauta. Það veitir meiri ánægju og eflir tengslin aö leika með hópnum á samhliða brautum. FJÖLSK YLDUTÍMAR 35% AFSLÁTTURH Fastir fjölskyldutimar verða alla laugardaga og sunnudaga kl. 9—10.30, kl. 10.30—12, kl. 12—13.30 og kl. 13.30—15. STAÐFESTIÐ STRAX, verðið er aðeins 700 kr. hvert sinn. KVENNATÍMAR Alla virka daga frá kl. 10—17 verða sérstakir (vin)kvennatimar. Húsmæður, þetta er tækífærið til að skreppa úr skurnum, leika ódýrt á föstum tímum, og gleymid ekki barnaheimilinu okkar. ÖKEYPIS! Kynningar Sérstakar ókeypis kynningar fyrir félög, klúbba og samstarfsmenn verða allar helgar í vetur. Æskileg stærð hópa er 5—25 manns. HRINGIÐ OG PANTIÐ ókeypis kynningu. Haldið hópinn. KEILU OG VEGGBOLTAFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.