Morgunblaðið - 08.09.1985, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 08.09.1985, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER1985 71 „Ætli ég sé ekki svona mikil ævintýramanneskja í mér“ — segir Guðrún Högnadóttir, 19 ára, sem næsta hálfa árið mun dvelja í S-Afríku við ýmis störf ÓHÆTT er að fullyrða að næsta hálfa árið verði ævintýri líkast fyrir Guðrúnu Högnadóttur, 19 ára frá Reykjavik, sem í lok þessa mán- aðar heldur til Afriku þar sem hún mun vinna að ýmsum verkefnum næstu sex mánuðina, ásamt 49 öðr- um ungmennum viðsvegar að úr Evrópu. Ferðin er skipulögð af EEE-sam- tökunum (Educational Experience in Europe) í tilefni af ári æskunnar, undir einkunnarorðunum „Þróun, þátttaka, friður". EEE-samtökin voru stofnuð fyrir þremur árum og er markmið þeirra að stuðla að samskiptum milli æsku Evrópu og annarra þjóða heims. Höfuðstöðvar samtakanna eru i Vestur-Berlin en Afrikuferðin er skipulögð frá skrifstofu samtakanna i London. Ferðin var auglýst í vor fyrir ungmenni í Evrópu á aldrinum 20 til 25 ára, og sett sem skilyrði að þau væru bæði ensku- og frönsku- mælandi. Um 2000 umsóknir bárust og voru 50 valdar. Var Guðrún eini umsækjandinn frá Norðurlöndum þeirra á meðal. Blm. hafði tal af Guðrúnu á dögunum og spurði hana fyrst hvað hefði orðið til þess að hún sótti um að fara þessa ferð. Ævintýraþrá „Ætli ég sé ekki svona mikil ævintýramanneslda í mér“, sagði Guðrún og hló. „Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á Afríku og því þró- unarstarfi sem þar er unnið. Frá því ég lauk stúdentsprófi um síð- ustu jól, hef ég unnið hjá Rauða krossi íslands og líkar mjög vel í því starfi. Þar rakst ég á auglýsingu frá EEE-samtökunum þar sem Afr- íkuferðin var kynnt.Ég hugsaði mig ekki um tvisvar heldur sótti strax um, þó að ég væri ekki orðin tvítug. Reyndar var ég frekar vonlitil um að ég kæmist vegna þess að ég hafði áður sótt um vinnu hjá öðrum hjálparstofnunum en hvergi komist að þar sem ég var of ung. I þessu tilviki virðist þó hafa ver- ið veitt undanþága þvi ég fékk svar frá samtökunum þar sem ég var beðin að koma til London i viðtal i júní. Þar var ég ásamt 200 öðrum látin gangast undir ýmis próf og send i alls kyns viðtöl, þar sem ég var spurð um ástæður fyrir áhuga mínum á verkefninu, um stjórn- mála skoðanir o.fl. Sjálfri mér til mikillar furðu var ég bara róleg miðað við það að alþjóðleg nefnd væri að spyrja mig spjörunum úr! Skömmu siðar fékk ég svar um að ég væri „ein af útvöldum" og ætti að hitta hin 49 ungmennin i London 1. október". Björgun síðustu hvítu nashyrninganna í Zaire 1 hverju verða verkefnin f Afríku fólgin? „Við verðum látin vinna með ungmennum frá Afriku, sitja ráð- stefnur með þeim og kynnast dag- legu lífi þeirra, í von um að slik kynni stuðli að sterkari tengslum milli æskufólks í heimsálfum Evr- ópu og Afríku. Segja má að það sé liður í friðarbaráttunni að stuðla að jákvæðum samskiptum milli æsku viðkomandi þjóða. Hópurinn hittist i London 1. október. Þar er meiningin að við kynnumst hvert öðru auk þess sem við verðum undirbúin undir förina. Þar hittum við fylgdarfólk okkar, fjóra frá EEE-samtökunum sem þekkja leiðina og auk þess verða laeknar og hjúkrunarfólk með i för- inni, ef eitthvað skyldi út af bregða. Ffa London höldum við svo viku sfðar til Alsír þaðan sem ekið verð- ur áleiðis ti Suður-Afriku. Á leið- inni tökum við að okkur ýmis verk- efni i samvinnu við stofnanir eins og Alþjóða Rauða krossinn, World Wildlife Foundation, UNICEF og ýmsar aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna svo dæmi séu nefnd. Verkpfnin vpWÍI! f ^ við björgun síðustu hvftu nashyrn- inganna í Zaire, en þeir eru aðeins 11 talsins. 1 Kenýa munum við vinna að matvæladreifingu og endurbyggingu þorpa og i Botswana munum við vinna með Þjóðminja- safni landsins við uppgröft forn- leifa. Auk þess munum við sitja ráðstefnur með æskufólki Afriku í tilefni af ári æskunnar.“ Erfítt að búa sig í slíka ferð Og hvað hefur maður svo með sér f hálfs árs ferðalag um S-Afriku? „Við fengum lista yfir allt það sem nauðsynlegt var að hver og einn hefði með sér, af fatnaði og öðru. Kom það sér mjög vel þvf skiljanlega er erfitt að búa sig i slfka ferð. Hins vegar er ýmislegt sem við þurfum að afla okkur i sameiningu þegar út er komið, s.s. torfærujeppar, tæki, matvæli o.fl. Við borgum ferðina sjálf og kostar hún hvern og einn um 150 þús. kr. ísl. Vissulega er þetta dýr ferð en ég Morgunblaðið/Arni Smborg Guðrún Högnadóttir hef verið dugleg að spara f sumar. Svo hef ég sótt um styrk hjá ýmsum fyrirtækjum og fengið jákvæðar viðtðkur. Að ferðinni lokinni er ætlast til þess að við miðlum reynslu okkar, hver f sínu heimalandi. Ég mun þvi væntanlega fara i ýmsa skóla og segja frá þvi sem fyrir augu bar i ferðinni sem er í vændum. Ferðin hefur þegar fengið mikla umfjöllun hjá evrópskum fjölmiðlum og breskur kvikmyndahópur hyggst kvikmynda ferðina. Þá hyggjast EEE-samtökin gefa út bók um ferð- ina að henni lokinni." Guðrún kvaðst ekki geta neitað þvi að mikill ferðahugur væri kom- inn í hana. „Fyrst fannst mér til- hugsunin um ferðalagið spennandi. Núna þegar farið er að nálgast það að ég haldi „út í óvissuna" er ekki laust við að yfir mig færist hálf- gerður kvfði. En það verður ekki aftur snúið úr þessu svo nú er bara að duga eða drepast," sagði þessf hressilega stúlka að endingu. RF BEINT ÚR FKYSTINUM -TILBÚIÐ ÁÍO MÍN. SUNNUDAGSTILBREYTING Brúnið 375 g af sveppum í 5 . mín í 30 g af smjöri. Blandið 250 g af grænum baunum saman við. Kryddið með salti og 1 tsk af múskati. Berið fram með steiktum KJÚLLETTUM og ristuðu franskbrauði eða rúgbrauöi. KJÚLLETTUR Á ÍTALSKAN MÁTA Stráið basilikum yfir KJÚLL- ETTURNAR. Steikið’á annarri hliðinni í 2 mín. í 73 g af smjöri. Snúið og þekið KJÚLLETT- URNAR með feitum, mildum osti. Steikið í 5 mín. (hafið lok á pönnunni) eða þar til osturinn er bráðinn. Gott er að hafa með soðið spag- hetti í smjöri. DÁLÍTIÐ LÉTT OG GOTT Setjið heita KJÚLLETTU á sal- atblað ásamt rækjum og sveppum. Hellið salatsósu yfir, t.d. sýrðum rjóma, bland- aðan persillu, salti, pipar og hvítlauk ef vill. Berið fram með hituöu snittubrauði. PAPRIKU KJÚLLETTUR MEÐ HRÍGRJÓNUM Mýkið 12 perlulauka í 25 g af smjöri. Setjið 2 tsk af papriku og örlítinn kanil út í, síðan 2 dl af tómatpúrru og 2 dl rjóma. Hellið þessu yfir hrisgrjónin. Raðið síðan léttsteiktum KJÚLLETTUM ofan á. HEITAR KJÚLLETTUR MEÐ FRÍSKANDI KARTÖFLUSALATI Hrærið saman 2 dl jógúrt, 2 dl rjóma, 2 tsk sítrónusafa, salti og pipar. Sneiðið 400 g af soðnum kartöflum út í. Bragð- bætið með fínt skornu dilli. KJÚLLETTUR í HÁDEGINU Heit eða kæld KJÚLLETTA á smurðu rúgbrauði. Skreytt með salatblaði, tómötum, gúrkusneiðum. Einnig má bragðbæta með súrmeti eða fleski og brúnuðum sveppum. KJÚLLETTUR í HAMBORGARABRAUÐI Hitið hamborgarabrauð. Setjið salatblað, remúlaði og KJÚLL- ETTU í brauðið, ásamt sinnepi og tómatsósu, einnig hráan eða steiktan lauk. Viö kynnum KJÚLLETTUR á sýningunni Heimiliö 85. ísfugl fremstur 1 Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit Sími: 666103 r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.