Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985
B 3
W —
þágu. Sumir álíta að vélarnar
hækki í verði við að vera skráð-
- ar á íslandi frekar en í Afríku-
löndum. Gunnar vildi ekki bera
ísland saman við einhver Afr-
íkulönd en gaf lítið út á að sölu-
gildi vélanna ykist við íslensku
skráninguna.
„Það er nú farið að setja
hljóðdeyfa á þessar vélar og þá
verður spurningin um skráning-,
una úr sögunni. Fyrsta DC-8
63-vélin með hljóðdeyfi er t.d. að
fara í loftið núna á næstu dög-
um. Hún er skráð á írlandi. Það
tekur tíma að fá deyfana af-
greidda og eigendur þessara
véla sem Air Arctic er með
komu frekar seint inn í myndina
svo að þeir þurfa að bíða fram á
næsta ár eftir þeim. Það er
betra fyrir þá ef það er hægt að
nýta vélarnar í leigu á meðan
þeir bíða en láta þær standa al-
veg ónotaðar.
Hljóðdeyfarnir kosta svona 3
milljónir dollara. Það er ekki
mikil fjárfesting þegar völin er
að kaupa þá eða kasta vélunum.
’Fyrir flugfélag eins og Flugleið-
ir sem ætlar kannski ekki að
fljúga vélunum í nein tíu ár enn
þá borgar sig samt að kaupa
hjóðdeyfana af því að það eykur
endursöluverðið á vélunum
seinna meir, sérstaklega ef þær
verða seldar í fraktflug til
Bandaríkjanna en markaðurinn
fyrir DC-8-vélarnar verður lík-
lega einna stærstur þar.“
Þegar Gunnar segir „við“ í
sambandi við þessi flugvéla-
viðskipti þá á hann við nokkur
fyrirtæki og þrjá mismunandi
hópa sem hann starfar aðallega
með. Einn mannanna heitir Bob
Koronzkinski og er Bandaríkja-
maður af Úkraínuættum. Gunn-
ar starfaði mikið með honum
eftir að hann fór út í eigin við-
skipti. „Hann rak fyrirtæki í
Þýskalandi. Við höfðum oft
áhuga á sama hlutnum og
ákváðum þá að vinna sameigin-
lega að honum frekar en að
keppa hvor við annan. Það er oft
auðveldara að taka hálfa kök-
una heldur en heila. Við vinnum
enn mikið saman, hann er
stjórnarformaður i Air Xport og
er þar alltaf einn til tvo daga í
viku en ég fer þangað einu sinni
til tvisvar í mánuði."
Air Xport á stórt flugvéla-
skýli á Zaventem-flugvellinum í
Brussel. Gunnar skoðaði það áð-
ur en það var keypt en eigendur
þess voru viðriðnir „þef-flug-
vélahneykslið" í Frakklandi í
hittifyrra. „Skýlið var búið að
vera til sölu í tvö ár þegar við
keyptum það,“ sagði Gunnar.
„Það var búið að skrifa mikið
um það í blöðin og velta fyrir sér
hvað ætti sér stað í því. Það er
einfalt og skrifstofuhúsið ágætt.
Við fengum það fyrir gott verð
af því að það var búið að vera í
sölu svo lengi." Fjármunir fyrri
eigenda þornuðu upp þegar það
kom í ljós að franskir ráðamenn
höfðu verið plataðir hrapallega
og engin von var á að „þef-olíu-
leitarflugvél" yrði framleidd á
næstunni.
Ein stærstu flugvélaviðskipt-
in sem Gunnar hefur átt aðild
að til þessa voru kaup á tveimur
Boeing 747 af Swissair sem
Norðmenn og Svíar keyptu. „Ég
hef auk þess séð um kaup og
sölu á vélum bæði frá Frakk-
landi og Bretlandi," sagði Gunn-
ar. Hann situr nú í stjórn
þriggja fyrirtækja, Avex, Air
Xport og Cargolux. Avex keypti
11 þotur af United Airlines
skömmu áður en fyrirtækið sem
Gunnar er aðili að ákvað að
kaupa hlut í fyrirtækinu og
hann fékk sæti í stjórninni.
Hann vildi þó sem minnst segja
um þessi fyrirtæki og viðskipti
þeirra — frumskógur flugvéla-
viðskiptanna er jafndimmur eft-
ir sem áður. ab
ISLENSK
Um er aö ræöa þrjú
myndbönd — klukku-
stundarlangt hvert.
LEIKFIMI I
Æfingar ætlaðar fólki
sem þjáist af bakveiki,
vöðvabólgu og/eða
gígt
LEIKFIMI II
Æfingar ætlaðar byrj-
endum og eldra fólki.
LEIKFIMI III
Æfingar ætlaðar
fólki í góðri lík-
amlegri þjálfun.
LEIKFIMI
Á MYNDBÖNDUM
Útsölustaöur í Reykjavík:
Hagkaup Skeifunni 15.
Sendumípóstkröfu.
Heilsa
og
sport sf.
Sími
18054
Enn einu sinni komum
við ó óvart og bjóðum
GoldStar
heimilistölvu og skjá
fyrir aðeins 13.980 kr.
eða 5000 kr. út og eftirstöðvar á 5mán.
GoldStar
ö' GoldStar
FC-200 tölvan er á MSX-
staðli og getur því notað öll jaðartæki
og hugbúnað með þennan staðal,
sem japanskir framleiðendur hafa
komið sér saman um.
IFC-200 er 64 KB RAM og
32 KB ROM, hefur 16 liti, góða teikni-
getu (256x192), frábæra tónlistar-
hæfileika, tengimöguleika fyrir stýri-
pinna, prentara, Ijósapenna og seg-
ulband.
S1E3EHEH MBM-2233 skjárinn er afar
þægilegur , grænn 12" skjár með
góða stafaupplausn.