Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985
fclk í
fréttum
Afríkulag Dana
selst eins og
heitar lummur
IDanmörku kom út hljóm-
plata fyrir stuttu til styrktar
þjáðum og hungruðum í Afríku.
Tuttugu og sex manna söng-
hópur kom saman auk hljóm-
sveitar og hljóðritaði þetta
Afríkulag Dana. Lag og texta
gerði 22 ára dönsk stúlka,
Nanna Luders.
„Platan hefur hlotið mjög
góðar undirtektir í Danmörku
— hún hefur verið rifin út úr
búðunum eins og heitar lumm-
ur. Þremur dögum eftir útkomu
hennar heyrði ég að 40.000
eintök hefðu selst og er ekki
annað hægt en að gleðjast yfir
því. Mér finnst svo sannarlega
tími til kominn að við endur-
gjöldum eitthvað af því sem
við, vesturlandaþjóðir, höfum
tekið frá Afríkulöndum," segir
Nanna í samtali við danskt
tímarit.
„í gær heyrði ég nágranna
minn sem býr í sama stiga-
gangi, raula fyrir munni sér
laglínurnar, „Afríka, Afríka...
det bli’r bedre dag for dag... “
og finnst mér slíkt bera vott
um að fólki líki lagið." Nönnu
var boðið að heimsækja Afríku
til að litast í kringum sig, en
hún afþakkaði og sagði að sér
fyndist alls ekki við hæfi að
hluti af söfnuninni rynni í að
kaupa flugfar handa henni.
„Flugfargjaldið hefði kostað
um 50.000 krónur, auk þess sem
ég þoli ekki meira en 30 gráðu
hita.“
Nanna hyggst gefa út sína
eigin LP-plötu von bráðar, en
hana vantar nafn á eitt af nýju
lögunum sínum þar, sem hún
samdi sérstaklega fyrir kær-
asta sinn. „Ég mun hinsvegar
reyna að hugsa um nafnið í
fríinu því við erum að fara
saman á notalegan stað þar
sem við ætlum að liggja í
sandinum og njóta sólarinnar,"
sagði Nanna.
Nanna Liiders
50
flug-
slys
Maðurinn á myndinni hét
Louis Bleriot og var
franskur. Hann er löngu horfinn
til feðra sinna og því ekki mikið
í sviðsljósinu lengur. Hann setti
heimsmet sem líklega verður
aldrei hnekkt. Hann smíðaði
nefnilega 10 mismunandi flug-
vélar og lenti í um það bil 50
flugslysum áður en honum tókst
að fljúga yfir Atlantshafið.
Nýjasta tæknin við
leit gullskipsins á
Skeiðarársandi.
Flogið er með leit-
artækin, sem era
samskonar og not-
uð era við olíuleit,
í flugdreka þessum
er sést á myndinni.
„Sumir fara til Spánar
fríinu, en við höldum á
— segir Kristinn Guðbrandsson
einn eigandi Gullskips hf.
Het Wapen van Amsterdam, gullskipið fræga frá Hollandi, sem strandaði á Skeið-
arársandi áriö 1667 er enn ófundið, en þó hafa menn ekki gefið upp vonina um
að finna kaupfarið og eru nú komnir enn einu sinni á sandinn með nýjustu tækni.
í Morgunblaðinu fyrir 25 árum birtist frétt þar sem sagt er frá því að leit að skip-
inu væri að hefjast. Það var Bergur Lárusson frá Kirkjubæjarklaustri sem þá fékk
tilskilin leyfi og hóf þá fyrst leitina, 293 árum eftir strandið. Fyrir þremur árum
stofnaði Bergur fyrirtækið Gullskipið hf. ásamt Kristni Guðbrandssyni hjá Björgun
hf. auk annarra.
Blaðamaður Morgunblaðsins
náði tali af Kristni í vikunni þar
sem verið var að vinna að undir-
búningi á Skeiðarársandi. Þeir
Bergur voru þar staddir með sex
manna leitarlið og hugðust í þetta
sinn taka upp fullkomnari tækni
við leitina frá því sem verið hafði
undanfarin ár. „Leit fer nú fram
úr flugvél og notum við olíuleitar-
tæki frá Ameríku," sagði Kristinn.
„Flogið verður með mælinn yfir
leitarsvæðið og mælt verður með
átta metra millibili. Tækin mæla
frávik frá segulsviðinu, sem sér-
stök tölva tekur við og vinnur úr.
Nú er ætlunin að leita á svæði sem
við höfum aldrei farið inn á áður
sökum tækjaskorts, þ.e,. Skeiðar-
áin sjálf, eða öllu heldur hluti af
henni. Ain þarna er þriggja km.
breið og þurfum við því að leita á
þriggja ferkílómetra svæði í einu,
en áður tókum við fyrir einn fer-
kílómetra í einu. Nú erum við
einnig með lóran, sem ætti að
auðvelda okkur leitina í stað þess
að fara hingað og þangað með
mælinn eins og gert var.“
Kristinn sagði að allir, sem við
þetta ynnu, væru í sjálfboðavinnu.
„Við erum að þessu í okkar sum-
arfríi. Sumir fara til Spánar, en
við kjósum að fara á Skeiðarár-
sandinn. Við erum ekkert á því að
gefast upp. Sextíu árum var eytt
í að finna Titanic svo að það þýðir
lítið að gefast upp eftir 25 ára
leitarstarf hér.“
Kaupskip þetta var eitt glæsi-
legasta skip í kaupskipaflota Hol-
lendinga á sínum tíma. Talið er
að milli 200 og 300 manns hafi
verið um borð, en 60 til 80 manns
var bjargað. Talið var að skipið
hafi flutt m.a. gull, demanta, pell, J
purpura og margt fleira ásamt
kryddvöru. Hafi farmurinn verið
metinn á 43 tunnur gulls, sem
hafi jafngilt 8,6 milljónum króna M
á þeirra tíma mælikvarða.
Kristinn sagðist ekki gera sér
neinar vonir um að græða á farm-
inum ef hann raunverulega fynd- i
ist. „Ríkið tekur sitt. Við þurfum
að greiða 12% fyrir leitarréttinn.
Landeigandinn, Skaftafell, tekur
12% og síðan fara sjálfsagt milli
60 og 70% í skatta og aðrar skyld-