Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985
B 25
'Samstarfinu
jmsveitin he
SMÁSKÍFUR
VIKUNNAR
Sú besta
Aled Jones — Memory
14 ára piltur syngur Memory meö
ótrúlegri sópranröddu. Lagiö er
eftir Andrew Lloyd Webber, en
textinn eftir Trevor lf|in og er aö
finna í söngleiKnum Catk Jones litli
er þriöji einstakllrtgurirtn sem syng-
ur lagið og kemur þvi inn a topp 50
í Bretlandi/ Aö áliti Popparans er
Memory falle^asta lalfsem nokkru
sinni hefur veriö samiö og flutning-
ur Aled litla er sérdeilis einstakur.
Þefiöuppil!
Aörar ágætar
Madness — Yesterdays
Men
Dulítiö langt síöan þetta kom út
en hvaö um þaö: „Vel af sér vikiö
strákar!“ Þaö er greinilegt að þeir
félagar hafa notað tímann síöustu
tvö árin vel. Hér er á feröinni agað
fulloröinspopp aö hætti Madness.
Men at Work — Maria
Hay syngur aö hætti félaganna í
Black Uhuru meö viöeigandi hebre-
skum áhrifum. Lagiö er mjög einfalt
og ætli bassaleikarinn hafi notað
fleira en 3 nótur í laginu. Popparinn
efast bara um þaó. Samt fellur allt
Gítarnögl Sigga í Rikshaw
Hvað aðhefst hljómsveitin Rikshaw þessa dagana?
Er söngvarinn kominn með nýja hárgreiðslu?
Fann Sigurður gítarleikari gítarnöglina sína aftur?
Popparinn mun reyna að svara einhverjum af þessum spurningum.
sem flís viö rass. En, en .. . Dulítiö
vantar upþ á aö Down Under ævin-
týriö veröi endurtekiö.
Afgangurinn
Stevie Wonder — Part-
Time Lover
Vel sungiö aö vanda en lagið því
miöur klisjukennt aö öllu leyti.
Wonder er einn höfuösnillingur
þopþsins og á aö baki mörg stór-
brotin lög. Part Time Lover fer sjálf-
sagt seint í þann flokk.
Denise Lasalle — Come to
bed
Þetta hljómar eins og gamalt
Barry White lag. Nú er áriö 1985,
en ekki 1970 og ?. Ætli titill lagsins
sé ekki nóg til þess aö hindra mann
í aö fjárfesta í þessu. Ekki lagaöist
þaö þegar hún var sett á fóninn,
blessuð platan. Þaö má þó benda á
gott snerilhögg aftarlega í laginu
semgóöan punkt.
Hugh Cornwell: Nýrakaöur
og sætur.
Fimmtudaginn 12. september
hélt sveitin ágæta tónleika í Holly-
wood. Aösókn var verulega góö.
Um 500 manns hylltu hljómsveitina
sem þarna flutti meöal annars efni
af væntanlegri hljómplötu Rik-
shaw. Verið er aö leggja síöustu
hönd á upptökur í London þessa
dagana. Utgefandi er Koolie Pro-
duction (þiö þekkið þaö núll).
Aö sögn þeirra Rikshaw-pilta er
ýmislegt á döfinni hjá hljómsveit-
inni en ekki tímabært aö segja frá
öllu strax. Rikshaw heldur hljóm-
leika í Hollywood 26. september
og þá er ætlunin aö hljómsveitin
leiki á úrslitakvöldi Ungfrú Holly-
wood-keþþninnar í Broadway
sunnudaginn 6. október. Viö segj-
um þetta gott í bili.
Rikshaw
Af íslensku /aA
Fyrir viku síöan birti Popparinn frétt þess efnis " 0
aö íslenska landsliöiö í handknattleik hyggð-
ist syngja tvö lög inn ð hljómplötu i
nssstunni I fjáröflunarskyni vegna
þátttöku í úrslitakeppni HM t Sviss
í febrúar á næsta ári. Pl-
kemur út í byrjun desember i
það leyti sem fyrstu landsleik
irnir í lokaundirbúningi fara
fram í Laugardalshöllinni.
Platan verður seld í hljóm-
plötuverslunum um land
allt svo og á landsleikjum.
í bígerö er að Ijósmynd
af liöinu fylgi plötunum
og ef til vill eitthvað
fleira. Það hefur verið
afráöið aö hljómplatan
verði tekin upp í Hljóð-
rita. Forráöamenn þess
ágæta hljóövers kom
virkilega til móts við ís-
lensku landsliðsstrák-
ana svo og allur kostnað-
ur við gerð plötunnar verði
sem minnstur. Ekki veitir
af ef einhver hagnaöur á aö
verða af plötusölunni. í vik-
unni hefur veriö leitað til
helstu fyrirtækjanna sem koma
nálægt hljómplötuútgáfu, varö-
andi gerö umslags og pressunar
og það er sama sagan alls staðar.
Landsliöspiltunum hefur undantekningar-
laust veriö vel tekið og greinilegt að allir eru af vilja gerðir til að styrkja gotl
málefni.
Nú þegar er búiö aö gera textana sem verða á plötunni og eru þeir samdir
af útvarpsmanninum góðkunna, Helga Má Baröasyni, sem kallar ekki allt
ömmu sína þegar textasmíö er annars vegar. Lögin verða aftur á móti samin
af Jóni Ólafssyni í Possibillies. Ekki er búiö aö ákveöa hver mun taka þetta
upp né hvaða hljóöfæraleikarar muni leika undir en undirtektir þeirra sem
rætt hefur verið við hafa verið mjög góðar. Hljóðfæraleikarar til dæmis munu
ekki taka krónu fyrir ómakiö. Áfram íslandl
Gamli harðjaxlinn
farinn að línast?
— Hugh Cornwell verður fyrir svörum
„Ekki myndi ég vilja mæta Hugh Cornwell í
myrkri," sagöi ung stúlka eitt sinn við Poppar-
ann.
Hugh þessi Cornwell er gítarleikari og
söngvari hljómsveitarinnar Stranglers sem í
mörg ár hefur átt í höggi viö hina ýmsu aöila.
Blaöamenn hafa fundiö hljómsveitinni allt tíl
foráttu í gegnum tíöina þó heldur hafi þaö
lagast síöustu misserin. Nú ættu aö vera hafn-
ar upptökur á væntanlegri
Stranglers-plötu og bíöur
Popparinn afar spenntur eftir
Síöasta platan, Aural
var hreint stórbrotin.
hefur þó leyft sér að
eitt hliðarspor frá
þau 10
hefur veriö
tveimur árum sendi
dæmis frá sér sólóplöt-
una Nosferatu. Hann hefur
samið kvikmyndatónlist, leikiö í
kvikmyndum og á sviöi og ...
og nýlega kom út litil plata meö
Cornwell. Lagið sem þar um
ræðir heitir One in a Million.
Mörgum gagnrýnendum finnst
nú töffarinn svartklæddi heldur
að linast. En hvað segir Corn-
well sjálfur:
„Þetta er aöeins lítið dægur-
lag, falleg melódía. Enginn
boðskapur eins og er a.m.k.,"
segir þessi hrokkinhæröi rokka-
ri.
Cornwell finnst allt meira eöa
minna ómögulegt í poppinu í
dag og seoist-aidÉlÉÉttto á neitt
af þessu
„Sú
best í
frá Bath
Strákarnir
gamla
staö blásara leika þeir allt á gít-
ara Stórbrotin sveit og sérdeil-
is frísk," segir Cornwell.
Roy Orbison, Gene Pitney og
Ennio Morricone eru í miklu
uppáhaldi hjá Cornwell, allt
gmlir hjartaknúsarar og fær
mann til aö hugsa enn og aftur
hvort gamli baráttujaxlinn sé
eitthvaö að linast?
„Þú getur ekki veriö ungur,
reiöur maður ef þú ert ekki ung-
ur,“ segir Cornwell. Svar þetta
segir í raun og veru þaö sem
þarf aö segja. Ferfalt húrra fyrir
Cornwell. Húrra ... húrra ...
húrra ... húrra.
Bilun í Hljóðrita
Upptokur á plötu Gunnars Þórðarsonar hafa dregist um nokkra daga
vegna bilunar í tækjabúnaði Hljóörita. Vonandi setur þetta ekki mikið
strik í reikninginn og reyndar ólíklegt þar sem um 4-5 daga töf er aö
ræöa. Jónas R. Jónsson mun hafa veríð sendur út í varahlutaleit og
málinu ku vera bjargað þegar þetta er skrifaö.
Gunnar Þórðarson
hefur verið viö
upptökur í Hljóð-
rita. Þær hafa nú
dregist vegna
tækjabilunar.