Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUB 22. SEPTEMBER1985
B 17
Brids
Amór Ragnarsson
Bridsdeild
Breiðfírðinga
3ja kvölda hausttvímenningur
félagsins hófst síðastliðiö
fimmtudagskvöld.
Spilað er í tveimur 12 para
riðlum og einum 14 para. Röð
efstu para eftir aðskorið í 14
para riðlinum hefur verið aðlag-
að skorinu í 12 para riðlunum.
A-riðilI
Jón Stefánsson
— Magnús Oddsson 214
Jóhann Jóhannsson
— Kristján Sigurgeirsson 214
Birgir Sigurðsson
— Oskar Karlsson 188
Magnús Björnsson
— Benedikt Björnsson 187
B-riðill
Gísli Víglundsson
— Þórarinn Árnason 199
Sveinn Jónsson
— Sveinn Þorvaldsson 186
Sigríður Ingibergsdóttir
— Jóhann Guðlaugsson 183
Steinunn Snorradóttir
— Vigdís 181
C-riðill
Þorsteinn Erlendsson
— Þorsteinn Bergmann 193
Guðlaugur Sveinsson
— Magnús Sveinsson 192
Elís Helgason
— Þorsteinn Kristinsson 187
Halldór Jóhannesson
— Ingvi Guðjónsson 182
Meðalskor 165.
Stjórnandi er ísak Örn Sig-
urðsson og er spilað í húsi Hreyf-
ils við Grensásveg.
Minningarmót um
Einar Þorfínnsson
Opna minningarmótið um
Einar Þorfinnsson á Selfossi
verður laugardaginn 5. október
nk. Skráning er þegar hafin hjá
stjórn félagsins og Ólafi Lárus-
syni á skrifstofu Bridssam-
bandsins (s: 91—18350).
Spilaöur verður 36 para Baro-
meter, með 2 spilum milli para,
alls 70 spil. Spilamennska hefst
kl. 10 árdegis og verður spilað í
Gagnfræðaskólanum á Selfossi.
Umsjón og útreikning annast
þeir bræður Hermann og Ólafur
Lárussynir.
Veitt verða 5 verðlaun þeim
pörum er flest stig hljóta sam-
tals. Þau verða: 1. verðlaun kr.
20.000, 2. verðlaun kr. 16.000, 3.
verðlaun kr. 12.000, 4. verðlaun
kr. 8.000, og 5. verðlaun kr. 4.000.
Keppnisgjald verður kr. 1.500
pr. par. Að auki er spilað um
silfurstig. Búast má við að mjög
fljótt fyllist í þetta mót, þannig
að þeir sem hafa áhuga á að vera
með eru beðnir um að hafa sam-
band við stjórn félagsins eða
Ólaf Lárusson hið fyrsta.
Frá Bridsfélagi
Akureyrar
Bautamótið í tvímennings-
keppni hefst næsta þriðjudag í
Félagsborg. Spilaðar verða fjór-
ar umferðir. Bautinn og Smiðjan
gefa verðlaun í mótið.
Þeir sem hafa hug á þátttöku
þurfa að staðfesta það við stjórn
félagsins fyrir kl. 20 á sunnu-
dagskvöld nk. Einnig má geta
þess, að þeir félagar Ánton Har-
aldsson og Stefán Ragnarsson
munu annast umsjón með spila-
mennsku í Dynheimum á mið-
vikudagskvöldum fyrir þá sem
hafa áhuga á því í vetur.
Bikarkeppni Brids-
sambands ís-
lands lokiö
Sveit ísaks Arnar Sigurðsson-
ar Reykjavík varð bikarmeistari
Bridssambands íslands. Sveitin
sigraði sveit Arnar Einarssonar
Akureyri í úrslitaleik, með 237
stigum gegn 64.
Urslit einstakra lota fóru
þannig: 1. lota 28—9
Sigurður—Júlíus, ísak — Sturla
2. lota: 65-14
Hermann—Ólafur, ísak—Sturla
3. lota: 76-18
Hermann—Ólafur, Sigurður-
—Júlíus
4. lota: 68-23
Sigurður—Júlíus, Isak—Sturla
I sveit ísaks eru, ásamt hon-
um, Sturla Geirsson, Hermann
Lárusson, Ólafur Lárusson, Sig-
urður Sigurjónsson og Júlíus
Snorrason.
Þetta er fyrsti titill sem þeir
félagarnir ávinna sér fram að
þessu. Úrslitaleikurinn var aldr-
ei verulega skemmtilegur á að
líta, svo miklir voru yfirburðir
sveitar ísaks. Þó er hægt að
hrósa frammistöðu sveitar Ak-
ureyringanna, sem er besti
árangur sveitar utan Reykjavík-
ur í mótum Bridssambandsins í
mörg herrans ár. Þá aveit skip-
uðu: Örn Einarsson fyrirliði,
Dísa Pétursdóttir, Soffía Guð-
mundsdóttir, Hörður Stein-
bergsson, Ólfur Águstsson og
Pétur Guðjónsson.
40 sveitir hófu keppni í upp-
hafi Bikarkeppni. Eftir undan-
keppni (1. umferð) stóðu eftir 32
sveitir og var síðan spilað eftir
útsláttarfyrirkomulagi þar til
ein sveit stóð uppi sem sigurveg-
ari í mótinu. Sveit ísaks spilaði
við eftirtaldar sveitir í mótinu: í
2. umferð við sveit Zarioh frá
Akureyri, í 3. umferð við sveit
Jóns Haukssonar Vestmanna-
eyjum, í 4. umferð við sveit Þórð-
ar Sigfússonar Reykjavík, í 5.
umferð við sveit Jóns Hjaltason-
ar Reykjavík og eins og áður
sagði i úrslitum við sveit Arnars
Einarssonar Akureyri.
Bridssamband íslands þakkar
keppendum fyrir þátttökuna í
sumar í Bikarkeppninni. Um leið
er minnt á, að enn eiga nokkrar
sveitir ógreitt keppnisgjald fyrir
þátttöku. Þær sveitir sem hafa
ferðast í keppni og skulda enn
þátttökugjaldið þurfa ekki að
hafa áhyggjur, því sú upphæð
verður dregin frá. En hinar (og
þær eru nokkrar) sem engan
ferðakostnað hafa eru vinsam-
lega beðnar um að gera skil hið
fyrsta, svo hægt sé að gera mótið
upp.
Nýbakaöir bikarmeistarar í brids 1985. Efri röð frá vinstri: Ólafur Lárusson,
Júlíus Snorrason og Hermann Lárusson. Fremri röð: Sturla Geirsson, fsak
Örn Sigurðsson og Sigurður Sigurjónsson.
Ttl hamingju
eigendui
Kjarabréía!
-Þiö völduö rétta kostinn.
Þeir sem keyptu kjarabréí Verðbréíasjóðsins h/í
þann 17. maí sl. haía íengið betri vexti en aðrir.
78% ársvexti
Til samanburðar voru aðrir vextir þannig á sama tímabili:
Bankabok 45% Aðrir verðbróíasjóðir 58%
Ríkisskuldabréí 50% Kjarabrél Verðbréíasjóðsins h/f 78%
For»*ndur: • M/v gengl veröbrélasfóöa 6 sept 85 • M/v spariskírteinl meö 7% raunOvöxtun • M/v bestu 6 mOn verötryggöa bankarelknlnga (3,5% raunávöxtun) • Ekkl er teklö tilllt til
lnnlausnargjalds eöa sölulauna
Það er augljóst, að Kjarabréfin okkar hafa gefið betri ávöxtun en aðrir
valkostir, írá því að sala þeirra hóíst 17. maí 1985.
Kjarabréí Verðbréíasjóðsins h/f íást í ílestum pósthúsum og hjá
Verðbréfamarkaði Fjáríestingaríélagsins, Haínarstrœti 7, Reykjavík. Símar 28466 8c 28566.
VERDBREFA
SJÖDURINN HF
Hafnarstræti 7
101 Reykjavik