Morgunblaðið - 22.09.1985, Síða 8

Morgunblaðið - 22.09.1985, Síða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985 til að ná Rainbow Warrior, skipi Greenpeace-samtakanna, upp á yfirborðið eftir að því var sökkt í höfninni í Auckland á Nýja-Sjá- landi, telur til dæmis að nota megi stækkaða útfærslu á þeirri aðferð sinni við að ná flakinu upp. Þetta telja margir fráleitt og benda á að ekki sé því saman að jafna að ná litlum togara upp af grunnsævi inni í höfn og að ná 46.328 lesta skipi upp af 4 kílómetra dýpi úti á rúmsjó. Ætla að kafa niður næsta sumar Hver svo sem framtíð flaksins af Titanic verður, er óhætt að segja að deilur um það hafi ekki látið á sér standa. Hér að framan var minnzt á óvissuna um þaö hver eigi flakið. í framhaldi af því ligg- ur ekkert fyrfir um það hvort hver sem er geti reynt að slæða upp verðmæti úr flakinu. Vísinda- mennirnir sem fundu flakið hafa látið í ljós þá ósk sína að flakið og minning þeirra rúmlega 1.500 sem þar fórust fái að hvíla í friði í kaldri gröf sinni. Þó hefur dr. Ballard lýst áhuga á að reyna að kafa niður að flakinu á næsta sumri í kafbátnum Alvin, sem bandaríski flotinn á. Þetta er 16 tonna kafbátur, l'h metra langur og tekur þriggja manna áhöfn, skipstjóra og tvo vísindamenn. Báturinn getur kafað mjög djúpt, og er skrokkurinn úr tftani. Þrjú kýraugu eru á skrokknum, hvert á stærð við undirskál og tveir grip- armar eru utan á skrokknum, og með þeim má taka upp hluti sem eru allt upp í það að vera á stærð við væna ferðatösku. Ekki kveðst þó Ballard vilja ná sér í minja- gripi, heldur aðeins fá að líta flakið augum. Annað er upp á teningnum hjá olíukóngnum Jack Grimm frá Texas. Hann segist vera staðráð- inn í því að kafa niður að flakinu næsta sumar í sex manna kafbáti til að reyna að ná þar einhverjum verðmætum. Hann bendir á að flakið liggi á opnu úthafi, þar sem engin þjóð eigi lögsögu og hver og einn geti athafnað sig eftir eigin getu. „Hér er um að ræða björg- unaraðgerðir, og björgunarréttinn hlýtur sá sem fyrstur verður til að nýta sér hann,“ segir Grimm. Og fleiri hafa lýst áhuga á að reyna. Það er því ekki ótrúlegt að til tíðinda kunni að draga á næsta sumri. „Grófasti myndastuldur í blaðasögunni“ En deilurnar eru ekki aðeins um flakið sjálft og það sem í því er. Þær hófust strax og fyrstu mynd- irnar bárust til lands. Lögfræðing- ur einn í Toronto í Kanada, Mic- hael Levine, skýrði frá því þegar þyrla kom til Woods Hole með fyrstu myndirnar frá vísinda- mönnunum um borð í Knorr að fyrir nokkrum mánuðum hefði kanadíska fréttastofan Can- adawide samið við Dr. Ballard um einkarétt þar í landi á öllum myndum varðandi leiðangurinn. Þegar fyrirspurnir bárust Canadawide frá evrópskum blöð- um, var fyrirspyrjendum vísað til Alain Ayache ritstjóra vikuritsins Le Meilleur í París, en hann kvaðst hafa einkarétt í Evrópu á öllum Ijósmyndum af flakinu. Símalín- urnar milli Parísar og London voru logandi, því öll brezku blöðin vildu verða fyrst með myndirnar, bæði svart-hvítar og litmyndir. Orðsending tíl fyrirbekja og einstaklinga í atvinnurekstri Skattrannsóknarstjóri hefur ákveðið að kanna bókhald þeirra aðila sem eru skyldir til að gefa út reikninga í viðskiptum sinum við neytendur. Kannað verður hvort farið er eftir þeim reglum sem gilda um skráningu viðskipta á nótur, reikninga og önnur gögn. Dagana 23. september til 7. október verða 400 fyrirtæki úr 27 atvinnugreinum heimsótt af starfsmönnum Skattrannsóknarstjóra ( þessu skyni. Könnunin nær til fyrirtælga úr eftirtöldum atvinnugreinum-. Númeratvlnnu- grelnar: Heltf atvinnugreinar: 261 Trésmíði, húsgagnasmíði 262 Bólstrun 332 Gleriðnaður, speglagerð 333 Leirsmíði, postullnsiönaður 339 Steinsteypugerð, steiniðnaður 350 Málmsmíöi, vélaviðgerðir 370 Rafmagnsvörugerð, raftækjaviðgerðir 383 Bifreiðaviðgerðir, smurstöðvar 385 Reiöhjólaviðgerðir 395 Smlði og viðgerð hljóöfæra 410 Verktakar, mannvirkjagerö 420 Bygging og viögerð mannvirkia 491 Húsasmlði 492 Húsamálun 493 Múrun 494 Plpulögn 495 Rafvirkiun 496 Veggfóðrun, dúklagning 497 Teppalögn 719 Ferðaskrifstofur 826 Tannlækningar 841 Lögfræðiþjónusta, fasteignasalar 842 Bókhaldsþjónusta, endurskoðun 843 Tæknileg þjónusta 847 Innheimmtustarfsemi 867 ijósmyndastofur 869 Persónuleg þjónusta ót. a.,t.d. heilsuræktarst. SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI Fyrstu tilboðin sem Ayache bár- ust voru upp á 20 þúsund pund (rúmlega 1,1 milljón króna), en fóru ört hækkandi, og að kvöldi 4. september hafði Lundúnablaðið Daily Express að sögn Ayache boðið 210 þúsund pund fyrir einka- rétt á myndunum á Bretlandi (tæplega 12 milljónir króna). En fótunum var kippt undan Ayache daginn eftir þegar Evening Stand- ard í London birti fyrstu myndirn- ar, en þær hafði blaöið tekið af sjónvarpsskerminum. Önnur blöð hættu þá samningaumleitunum við Ayache og fylgdu fordæmi Evening Standard, enda af nógu að taka því brezku sjónvarpsstöðv- arnar sýndu fréttamyndir sem sendar voru um sjónvarpshnetti frá Bandaríkjunum. Að sjálfsögðu var Ayache lítt hrifinn af þessu tiltæki brezku blaðanna, sem hann sagði að væri „grófasti mynda- stuldur í blaðasögunni". Hann hefur nú höfðað mál gegn brezka sjónvarpinu BBC, Associated Press-fréttastofunni og þeim blöð- um sem birtu myndirnar. Ekki fer þó Ayache alveg slypp- ur og snauður frá viðskiptunum, því hann hefur selt franska tíma- ritinu Paris-Match tvö sett af lit- myndum fyrir sem svarar 116 þús- und pundum (um 6,6 milljónir króna) og auk þess selt birtingar- réttinn á ítaliu og Spáni fyrir samtals 85 þúsund pund (rúmlega 4,8 milljónir). Þessar deilur um myndirnar komu flatt upp á vísindamenn við Woods Hole-hafrannsóknarstofn- unina, og sagði talsmaður þar að stofnunin hefði enga samninga gert og ætlaði alls ekki að selja neinar myndir. „Myndirnar sem við tókum eru almenningseign," sagði talsmaðurinn, og bætti því við að þær yrðu afhentar fjölmiðl- um ókeypis eftir því sem þær yrðu handbærar. Þótt Titanic hafi iegið á hafs- botni í 73 ár er skipið nú enn í sviðsljósinu. Enginn harmleikur á sjónum hefur valdið jafnmiklum viðbrögðum um heim allan og sögurnar um örlög skipsins ósökkvandi og þeirra rúmlega 1.500 karla, kvenna og barna sem fórust þessa aprílnótt 1912. En fáar sögur hafa verið jafn ásæknar og frásögn þeirra sem björguðust af því þegar þeir sátu í björgunar- bátunum og heyrðu óminn frá skipshljómsveitinni, sem lék „Hærra minn Guð til þín“ meðan risaskipið seig ljósum prýtt niður í dýpið. (Heimildir: Observer, New York Times, Time, Newsweek, o.fl.) umar gleðin 15 ára Eittaf afmælis- börnunumi Broadwayum næstu heígi. Maggiog16 aörirskemmti- kraftar. Miða- og borðapant- anir í síma 77500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.