Morgunblaðið - 22.09.1985, Qupperneq 20
20 B
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985
Svavar A. Jónsson
„Ríðum heim til Hóla“
Það var snemma á fostudagsmorgni sem næstum full rúta af eldhress-
um unglingum lagöi af stað frá umferðarmiðstöðinni í Keykjavík. Sumir í
rútunni þekktust en aðrir ekki. Ferðinni var heitið á æskulýðsmót að
Hólum í Hjaltadal. Á leiðinni voru fleiri eldhressir unglingar teknir upp í.
Á Hólum var fyrir hið hressasta lið víðsvegar að af Norðurlandi.
Yfirskrift þessa æskulýðsmóts
var „Ég vil starfa fyrir hann“ og
var tekin úr þekktum söng,
„Kristur hann býr í mér og ég vil
starfa/lifa/syngja fyrir hann.“
Á mótinu var fjallað um for-
sendur þess að vera kristinn, af-
leiðingar þess og um að þjóna
Guði, hvernig, hvenær og hvers
vegna.
Á mótinu var margt til gam-
ans gert. Þar voru söngstundir,
þar sem lærðir voru nýir söngv-
ar og hvernig hægt væri að
vinna með þá, t.d. skipta stórum
hóp í nokkra smærri hópa:
Fyrsti hópurinn syngur textann,
annar laglínuna, þriðji klappar,
fjórði smellir fingrunum o.s.frv.
Kenndur var m.a. söngurinn
„Lífíð gefur Guð“ úr söngbókinni
„í lífi og leik“ sem æskulýðsstarf
Þjóðkirkjunnar gaf út 1984:
Lífið gefur Guð, í Ijósi býr hann.
Líta fær það enginn né skilja það kann.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von.
Fæddur er, sem Mariu lítill son.
Dýrð sé þér, ó, Guð, í himnanna hæð,
í heiminn að þú komst í fátækt og smæð.
Já, Guð fmn ég hér frelsi, líf og von.
Fæddur er, sem Maríu lítill son.
Merlin — Kristján Valur Ingólfsson
Ginnig voru Bibliulestrar þar
sem teknir voru fyrir textar úr
Biblíunni og ræddir í hópum.
Kvöldvökur voru þar sem æsku-
lýðsfélögin voru kynnt en flestir
af þátttakendum mótsins voru
úr æskúlýðsfélögum víðvegar að
af landinu. Auk þess var farið í
leiki, sund, gönguferðir o.s.frv.
Á sunnudeginum var messa.
Þessi messa var að því leyti sér-
stök að allir höfðu undirbúið
hana. Skipt var i fjóra hópa:
Fyrsti hópurinn samdi predik-
unina, annar valdi söngvana,
þriðji gerði bænirnar og sá fjórði
undirbjó kirkjuna fyrir mess-
una. Þátttakendur völdu þann
hóp sem þeir vildu. Þetta var
lífleg messa þar sem allir voru
virkir þátttakendur en ekki að-
eins áhorfendur. Þarna kom
skýrt í ljós hinn tvíþætti til-
gangur messunnar sem er þjón-
usta Guðs við manninn og þjón-
usta mannsins við Guð.
Það voru þreyttir en ánægðir
unglingar sem héldu af stað frá
Hólum hver til síns heima. 1 rút-
unni til Reykjavíkur hljómaði
söngurinn af krafti en þess á
milli notfærðu ferðalangarnir
sér síðustu stundirnar til að
ræða saman.
Síðustu helgina í ágúst á
næsta ári verður annað svona
mót og ef til vill verða þá fleiri
unglingar saman komnir því enn
er verið að stofna ný æskulýðs-
félög.
Hólar í Hjaltadal.
Þátttakendur að leik. f baksýn sést hluti af yfirskrift mótsins sem þeir
hönnuðu.
Áhrif kristins æskuiýðsstarfs
— spjallað við Jeanette Snorrason
Það var fullt af bílum fyrir
framan Hallgrímskirkju á
mánudagsmorguninn. Þétt bíla-
umferðin sveigðist gætilega um
Eiríksgötuna og Njarðargötu.
En fólkið, sem var á stjái hljóp
við fót af því að stórkarlaleg
rigning tók til að drjúpa hátt af
himni. Ég gekk niður Skóla-
vörðustíginn, ætlaði til aðvent-
istanna, sem hafa þar skrif-
stofur sinar og verzlun. Ég ætl-
aði að hitta þar einhvern og taka
tali um þýðingu kristins æsku-
lýðsstarfs. Hallgrímskirkja
gnæfir tignarleg yfir Skóla-
vörðustíginn, yfir alla borgina.
Hún og allar hinar kirkjunar, öll
kristilegu félögin, bæði í borg-
inni og úti um allt landið, fara
nú að kalla saman fólkið sitt og
bjóða nýju fólki í hópana. Góði
hirðirinn safnar saman fólki
sínu, eins og Ásdis skrifaði um á
sunnudaginn var.
1 Frækorninu er Jeanette
Snorrason að afgreiða. Hún er
bandarísk en hefur búið hér i 12
ár og talar afbragðsgóða ís-
lenzku. Hún tekur erindi mínu
vel.
Er það vegna áhrifa frá æsku þinni
sem þú ert játandi og starfandi í
kristinni kirkju núna?
Já. Ég var kaþólsk fyrst. En for-
eldrar mínir gerðust aðventistar
þegar ég var 8 ára. Ég hélt samt
áfram að fara með ömmu minni
í kaþólsku kirkjuna við og við.
Það var auðvitað mikið áfall
fyrir hana og alla fjölskylduna,
sem var kaþólsk, að við skyldum
verða aðventistar. Ég skil það
fjarskalega vel. Það myndi líka
verða áfall fyrir mig ef börnin
mín færu í aðra kirkjudeild. Já,
ég er sannfærð um að það var
vegna áhrifanna, sem ég varð
fyrir á þessum árum, að ég er
kristin núna.
Eru það áhrif frá kaþólsku kirkj-
unni eða aðventkirkjunni?
Það eru áhrifin frá aðvent-
kirkjunni. Kaþólska kirkjan
hafði ekki mikil áhrif á mig
vegna þess að ég var svo ung
þegar ég var þar. En ég man
mjög vel eftir mér þar. En þegar
ég var komin í aðventkirkjuna
var ég orðin stærri og gat skilið
umræður um trúmál.
Hvað var það þá í kirkjunni, sem
mótaði þig?
Það var mikið skátastarf,
starf aðventskáta. Og hvíldar-
dagsskóli. Þar starfaði stórkost-
legt fólk. Og okkur var boðið í
heimboð til kennaranna. Ég
gekk líka i barnaskóla aðvent-
ista. Þetta var stór skóli, um 400
nemendur. Vinir mínir voru þar
líka. Þetta var líf okkar. Ég hélt
áfram alla tíð í aðventskólum og
tók þaðan háskólapróf.
Hvað lastu í háskóla?
Uppeldisfræði. Ég kenni í
barnaskóia aðventista hérna og
kenndi fyrst í skóla aðventista í
Bandaríkjunum. Ég hef starfað
hjá aðventistum í 20 ár.
Geturðu sagt mér nánar hvað er
svo gott við það að alast svona upp
í kirkjunni sinni?
Það er erfitt að útskýra það.
Mér kemur fyrst í hug hvað það
er hlýlegt. Umhverfið, sem við
sköpum þessum börnum, er
vernd. Við teljum að það sé
nauðsynlegt að vernda þau gegn
reykingum t.d. og áfengi og öðr-
um vímuefnum. Við getum sýnt
þeim kærleika Guðs og hjálpað
þeim til að skilja að það er nauð-
synlegt fyrir þau að hjálpa öðr-
um.
Það liggur beint við að spyrja hvort
þið óttist ekki að það verði þeim
erfitt að mæta áhrifunum, sem
ríkja fyrir utan þennan verndaða
heim.
Ég er alveg viss um að það
verður þeim erfitt. Það er mín
skoðun. Við reynum að útskýra
fyrir þeim að þau þurfi ekki að
hafa neitt með ýmsa hluti að
gera, tóbak og áfengi t.d. Og við
reynum að útskýra að við viljum
gefa þeim það, sem er svo gott og
Jeanette Snorrason
mikilvægt að þau vilji ekki hafa
neitt með þessa hina hluti að
gera. En sumum er ekki nóg það
sem kirkjan vill gefa þeim. Það
er ekki svo að öll börnin, sem
alast upp í aðventkirkjunni,
haldi þar áfram. Það er
sameiginlegt allri kristinni
kirkju að sumir hverfa frá
henni. En flestum er það mikil
hjálp að hafa alizt upp í krist-
inni trú.
BENIDORM.SUMARAUKI ISOUNNI
2S.740t 27.500t
TVÆR VIKUR/TVEIR IIBÚÐ
Beint leiguflug í báðar áttir, eða með viðkomu í London í baka-
leið. Góð gisting, íbúðir eða hótel. Að venju verður hjúkrunar-
fræðingur með í ferðinni til aðstoðar við aldraða. Kynnið ykkur
ferðatilhögun og verð hjá okkur.
ÞRJÁR VIKUR/TVEIR IÍBÚÐ
FERÐAMIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133