Morgunblaðið - 27.10.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
B 3
Konurnar héldu myndarlega
upp á daginn á Sauðárkróki
Sauðárkróki, 24. október.
KONUR á Sauðárkróki béldu myndarlega upp á kvennadaginn. í morg-
un gengu þær fylktu lidi frá Fjölbrautaskólanum aö Hótel Mælifelli þar
sem þær drukku morgunkaffi og réðu ráðum sínum.
Verkakvennafélagið Aldan
stóð fyrir samkomu í Bifröst,
sem hófst kl. 14. Þar var fjöldi
fólks — að sjálfsögðu aðallega
konur — en þeim karlmönnum,
sem létu sjá sig var tekið með
miklum fögnuði og rausn. Veit-
ingar voru á borðum, ræður
fluttar, sungið af krafti og hóp-
dans stiginn. Margar konur tóku
sér frí frá störfum í dag og olli
það nokkurri röskun hjá sumum
stofnunum og fyrirtækjum.
Karlmenn reyndu að bæta þar
úr með misjöfnum árangri.
Um kvöldið var svo mannfagn-
aður í Miðgarði á vegum Sam-
bands skagfirskra kvenna. Með-
fylgjandi myndir eru frá sam-
komunni í Bifröst.
- Kári
m MorgunblaSið/Sverrir Pálsson
Konur a Akureyri
KONUR á Akureyri tóku virkan þátt í dagskráratriöum kvennafrídagsins. Hér má sjá þéttskipaðan sal í
Alþýðuhúsinu, en þar var opið bús allan daginn. Um 2.000 konur rituðu nöfn sín í gestabók hússins á
kvennafrídaginn.
4
Ziirich er næsli alþjóðaflugvöllur við yfir 40
skíðastaði í Austurríki, Sviss og Liechtenstein
- Við fljúgum þangað
í skíðabók Peter Stuyvesant og Daily
Mail segir meðal annars um nokkra
þessara staða:
AUSTURRÍKI
Brand :?
Stórgóður staður fyrir byrjendur
og meðalgóða skíðamenn.
Góður Qölskyldustaður. Barna-
heimili. Góður skíðaskóli. •
Göngubrautir. Tveir innanhúss
tennisvellir. Óformlegt og Qör-
ugt skemmtanalíf.
Biirserberg 12.40)
Rólegur og fallegur staður, lítill
en vel skipulagður. Góður fyrir
byrjendur og meðalgóða skíða-
menn. Tilvalinn fyrir foreldra
með ung börn. Góður barna-
skíðaskóli. Löng sleðabraut og
göngubraut. Diskótek og dans í
nokkrum hótelanna.
Gangellen o.ioj
Fyrsta flokks lítiil skíöastaður.
Vingjarnlegt andrúmsloft. Góð-
ur fyrir byrjendur og meðalgóða
skíðamenn. Tilvalinn fyrir Qöl-
skyldur. Gott barnadagheimili.
Fjölbreytt skemmtanalíf.
Gurtís (2.30)
Prýðilegur staður fyrir byrjendur
og skíðafólk á öðru ári. Ef þið
eruð á bíl geta reyndir skíða-
menn fundið fjölbreyttari svæði
á nærliggjandi stööum, svo sem
Brand, Schruns, Tschagguns,
Gargellen og Gaschuren. Frekar
lítið skemmtanalíf.
St Anton moi
Alþjóðleg skíðamiðstöð. Reyndir
og góðir skíðamenn njóta sín
best þarna en það er líka ágæt-
lega hugsað um byrjendur.
Skíðaskóli með 300 kennurum.
Mikið og Qölbreytt skemmtana-
líf.
Stuben o.soi
Alltaf nógur snjór. Gott svæði
fyrir meðalgóða og mjög góða
skíðamenn. Þótt gert sé ráð fyrir
byrjendum er þetta ekki heppi-
legasti staðurinn fyrir þá, og ekki
fyrir börn. í grenndinni eru St.
Anton, Zúrs og Lech og mögu-
leikarnir því ótæmandi fyrir þá
sem eru á bíl. Fjörugt skemmt-
analíf.
SVISS
Andermatt 13.201
Stórskemmtilegt þorp í fögru
umhverfi. Hentugt fyrir fjöl-
skyldur. Löng „vertíð" og nógur
snjór. Hentar öllum en meðal-
góðir og mjög góðir skíðamenn
munu njóta sín best. Litlar bið-
raðir nema um helgar. Skemmt-
analíf óformlegt og Qörugt.
Braunwald 12.10)
Mjög hlýlegt og líflegt þorp.
Fyrsta flokks fyrir börn. Hentar
aðallega byrjendum og meðal-
góðum skíðamönnum. Brekkur
einkum mót suðri og mjög sól-
ríkar. Góður skíðaskóli.
Davos 14.551
Með bestu skíðastöðum í
heimi. Löng „vertíð" og nógur
snjór. Góð Qallaveitingahús.
Barnaheimili og fínar barna-
brekkur. Geysileg Qölbreytni fyrir
góða skíðamenn. Sextán nætur-
klúbbar og tugir smábara segja
sitt um skemmtanalíf.
Klosters <4.301
Klosters er hrífandi staður og
góður fyrir þá sem vilja minna
og hlýlegra þorp en Davos.
Hentar öllum skíðamönnum.
Eitt af bestu skíðasvæðum í
heimi. Barnaheimili. Fjölbreytt
skemmtanalíf.
Pontresina 15.301
Hér um bil allar tegundir vetrar-
íþrótta. Óvíða betri brekkur eða
göngubrautir. Ágætt skemmt-
analíf. Mikið af ungu fólki.
Miirren (5.30
Dæmigert Alpaþorp. Hentugt
fyrir Qölskyldur. Barnabrekkur og
barnaheimili. Góðar göngu-
brautir. Þétt lyftunet. Hentar
öllum skíðamönnum. Óform-
legt og létt skemmtanalíf.
UECHTENSTEIN
Malbun 12.301
Þetta einstaklega hrífandi land.
milli Austurríkis og Sviss, höfðar
til allra sem hafa í sér snefil af
rómantík. Svona hlýtur Rúritanía
að hafa verið. Þetta er lítill og
frekar rólegur skíðastaður. Góð-
ur fyrir byrjendur og Qölskyldur
en annars takmarkaður.
Skemmtanalíf ekki Qölbreytt en
hlýja og gleðiyfiröllu mannlífi.
3fARNARFLUG
Lágmúla 7. simi 84477