Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 6
6 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
Bladburöarfólk
óskast!
Ingólfsstræti
Leifsgata
Hverfisgata
65—115
Barónstígur
4—33
Laugavegur
34—80 ‘
Kvennafrídagurinn:
Vinnustaðir á Selfossi að
mestu kvenmannslausir
SelfosNÍ, 24. október.
KONUR á Selfossi tóku virkan
þátt í kvennafrídeginum í dag og
tóku sér frí frá störfum þeim er
þær vinna utan heimilis. Stærstu
vinnustaóir kvenna voru lokaöir
í dag og haldið gangandi af körl-
um sem tóku á sig „neyðarvakt-
ir“ í tilefni dagsins.
Dagurinn rann upp með því
að morgunhanarnir sem mæta
í sundlaugarnar urðu frá að
hverfa þar sem allt var lokað
þegar að var komið, þó vinna
þar líka karlar, en sú skýring
var nefnd að líklega hefði eig-
inkona karlsins tekið sér frí
frá því að vekja hann.
Dagvistarstofnanir voru lok-
aðar í dag og einnig heilsu-
gæslustöðin og sömu sögu var
að segja um Vöruhús KÁ en
þar starfa konur í miklum
meirihluta. í bönkunum vinna
margar konur og þar var sömu
sögu að segja nema hvað karl-
menn sátu þar í sætum kvenna
til að bankarnir héldu andlit-
inu. í skólunum var frí hjá
velflestum kvenkennurum og
stúlkur í Gagnfræðaskólanum
og í Fjölbrautaskólanum tóku
sér einnig frí frá námi allan
daginn eða hluta úr degi svona
til að minna á sig. Á sumum
vinnustöðum s.s. í Mjólkurbú-
inu og í Sláturfélaginu fór
hluti kvennanna í frí en aðrar
unnu sinn dag.
Ekki var um neina dagskrá
að ræða af hálfu kvenna í dag
hér á staðnum en margar kon-
ur fóru til Reykjavíkur á úti-
fundinn sem þar var haldinn
og til að líta inn í kvenna-
smiðjuna í Seðlabankahúsinu.
Líklegt verður þó að telja að
margar konur hafi verið heima
við og sinnt sínu húsmóður-
starfi þennan dag án annarra
launa en þeirra óbeinu sem
fyrir slík störf er að hafa.
Sig Jóns.
KRISTALSTÆR
Nýi myndlampinn í Nordmende sjónvarpstækjunum hefur 4 afgerandi nýjungar framyfir
keppinautana.
1. Skjárinn er flatur og hornréttur og býður upp á bjartari mynd alveg út í hornin.
2. Dregið hefur verið úr endurspeglun ljósa úr umhverfinu, þannig að skerpan hefur aldrei
verið betri.
3. Myndlampinn er þannig samsettur að lóðréttir, svartir borðar eru settir á ónotuðu svæðin á
innra yfirborði skjásins og þeir gegna því hlutverki að afmarka fullkomlega jaðar fosfórsins. Ut-
koman er svo hárfín litaupplausn, að annað eins hefur ekki sést áður.
4. Nýja rafeindakerfið skapar svo kristaltæra mynd á skjáinn, að það er eins og þulurinn sé
kominn inn í stofu til þín.
SÍMI 29800
V® TÖKUM VEL
A MÓTI ÞÉR
NORDMENDE
HEFUR AFGERANDI YFIRBURÐI