Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 9

Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 B 9 Starfsmönnum heilbrigöisyfirvalda ... og öörum sérfræöingum ber saman um aö óhæfir læknar kosti heilsugæsluna í Bandaríkjunum miUjaröa dollara á ári SJÁ: DÝRT SPAUG DYRTSPAUGl Stundum ættu læknar ekki aö ganga lausir Eftir áratuga aðgerðarleysi ætlar Bandaríkjastjórn, iðn- aðurinn í landinu og heilbrigðis- yfirvöld loksins að ráðast til atlögu við læknastéttina og það ófremd- arástand sem ríkir hjá hluta henn- ar. Læknishjálp í Bandaríkjunum er yfirleitt mjög góð en samt sem áður má finna innan um lækna, sem eru drykkjumenn, eiturlyfja- sjúklingar, elliærir, illa menntað- ir, óheiðarlegir, óákveðnir, truflað- ir á geði eða á einhvern annan hátt ófærir um að vinna sitt verk. Þetta á að sjálfsögðu við um flestar starfsstéttir en munurinn á lækn- um og öðrum er sá, að mistökin þeirra geta haft dauðann í för með sér. Ýmis samtök lækna áætla t.d. sjálf, að á hverjum tíma séu 5—10% læknanna óvinnufærir og ættu ekki að koma nálægt sjúkl- ingi. Áhyggjur af sívaxandi útgjöld- um til heilbrigðismálanna, sem nú eru talin rúmur milljarður dollara á dag, hafa neytt menn til að gera eitthvað í málinu enda er það dýrt að hafa menn í vinnu, sem ekki geta skilað sínu verki. Af þessum sökum er nú unnið skipulega að því að fá fólk til að leita ekki til lélegra lækna og sumir læknar hafa verið sviptir lækningaleyfi og aðrir settir í endurhæfingu. Starfsmönnum heilbrigðisyfir- valda, talsmönnum læknafélaga og öðrum sérfræðingum ber saman um, að óhæfir læknar kosti heilsu- gæsluna í Bandaríkjunum millj- arða dollara á ári hverju. Mistökin valda því, að sjúkralegan verður lengri, fólk þarf að leggjast oftar en ella, gera verður fleiri dýrar aðgerðir og loks eru það lögsóknir, sem kosta milljónir dollara. Nýlegar upplýsingar um lélega læknisþjónustu á bandarískum herspítölum og efasemdir um læknisaðgerðina, sem gerð var á Ronald Reagan í júli sl., hafa orðið til að vekja enn meiri athygli á þessu máli en ella. Meginvandinn er það sundurlausa kerfi aga- nefnda, sem þróast hefur á þessari öld. Sjúkrahús, læknafélög, leyfis- nefndir ríkjanna og landssamtök fjalla öll um mál þeirra lækna, sem lögsaga þeirra nær til, og hvert um sig reynir að verja sinn skika án tillits til nokkurs annars. óhæf- ur læknir hrökklast þess vegna frá einu sjúkrahúsinu til annars og úr einu ríkinu í annað en enginn einn hefur yfirsýn yfir allt sviðið. „Það eru aðeins ríkin sjálf, sem veita lækningaleyfi," segir Donald Foster, aðstoðaryfirmaður svika- máladeildar dómsmálaráðuneytis- ins, „og ætlast er til þess, að læknafélögin fylgist með sínum mönnum. Mistökin í þessum mál- um eru hins vegar svo mikil, að augljóslega verður eitthvað að gera og líklega neyðist ríkið til að grípa í taumana." Foster og aðrir benda á máli sínu til stuðnings, að í fyrra komst það upp, að nokkur þúsund manns, sem aldrei höfðu stundað læknis- HORMUNGARI Iborginni Bhopal á Indlandi er fólkið enn að deyja, sem varð fyrir eiturgufum frá verksmiðju Union Carbide-fyrirtækisins. Þúsundir annarra fórnarlamba berjast við að ná andanum þar sem þau veslast upp í hreysunum í grennd við verksmiðjuna, sem hef- ur nú verið yfirgefin og er að verða ryði að bráð. Það eru meira en níu mánuðir liðnir frá því gaslekinn varð og ail- ar þær konur sem voru barnshaf- andi, þegar ósköpin dundu yfir þann 3. desember 1984, hafa ann- aðhvort fætt börnin sín eða misst fóstrin. Læknar halda þvi fram, að eitrunin hafi valdið því að fjölmörg fóstur hafi látist í móðurkviði langt fram eftir marzmnauði síð- astliðnum. „Enn þann dag í dag sjáum við eitt eða tvö lík á hverri viku þar sem gasið hefur verið banameinið," segir Heersh Chandra læknir, sem er yfirmaður réttarlækninga- og eiturefnadeildar hins virta Gandhi-læknaskóla í Bhopal. „Og hér er aðeins um þau lík að ræða, sem mér eru send til krufn- ingar. Deyi fórnarlömbin í heima- húsum eða annars staðar utan sjúkrahúsa, þá fréttum við ekki af því. Fólki hér er ekkert um krufn- ingar gefið. Af hverjum 100 íbúum hér í Bhopal sem látast eru að minnasta kosti 98 brenndir án krufningar. Þess vegna tel ég mjög líklegt að mun fleiri látist ennþá af völdum eiturgufunnar en við fáum sannanir fyrir hér,“ segir Chandra ennfremur. Opinberir embættismenn í Bhop- al áaetla, að um 2.500 manns hafi ltiast strax og slysið varð, en menn gera sér samt grein fyrir því, að aldrei verði vitað með fullri vissu um tölu látinna, því heilu fjölskyld- urnar týndu lífinu og enginn varð eftir til þess að veita yfirvöldunum upplýsingar. Ekki bætir það heldur úr skák að lík fjölda fólks voru brennd samtímis og skortur er á áreiðanlegum manntalsskýrslum. Sumir embættismenn fullyrða, að um fjórar þúsundur hafi farizt, þegar hvítt eiturský lagðist yfir kofana í grennd við verksmiðju- byggingunna, þar sem fólk var í fasta svefni. Langmestur hluti mál, höfðu keypt sér fölsk skírteini og störfuðu sem læknar. Það mat, að fimm til fimmtán læknar af hverjum hundrað ættu að hætta störfum alveg eða um stundarsakir, er byggt á tölum um áfengissýki, eiturlyfjanautn, geð- veiki, glæpi og önnur vandamál meðal Bandaríkjamanna almennt. Ýmis atvik úr daglega lífinu sýna vel hvað við er að fást. Læknir nokkur í Indiana var fyrir ekki löngu dæmdur í fangelsi en meðal annars, sem honum var gefið að sök, var að hann hafði kastað eldsprengju inn í járn- vörubúð, lagt á ráðin um að sprengja upp aðra verslun, fengið tvo sjúklinga með eiturlyfjum, peningum og ókeypis læknishjálp, til að reyna að dreþa tvo lækna og reynt að fá tvo aðra sjúklinga til að brenna heilsugæslustöð. Hann var seinna sviptur lækninga- leyfi. í Illinois var læknir, sem hafði verið lögsóttur a.m.k. 13 sinnum fyrir mistök í starfi, dæmdur til að greiða konu nokkurri, fyrrum sjúklingi sínum, 9 milljónir doll- ara. Hún er jafnvel ófær um að tala, eftir að hann hafði gert að- gerð á nefi hennar. Læknirinn hefur ekki enn verið sviptur leyfi. Sjaldgæft er, að læknaráðin í ríkjunum svipti menn leyfi og það er jafnvel fátítt líka, að beitt sé minniháttar refsingum. I Banda- ríkjunum var á síðasta ári aðeins fundið að verkum eins læknis af hverjum 318. Var þá oftast um að ræða áminningar eða aðrar að- gerðir, sem ekkert komu starfs- leyfi læknisins við. - JOEL BRINKLEY Og enn fjölgar fórnar- lömbum eiturgassins FJÖLDAGRÖF: stundum var eng- inn af fjölskyldunni eftir til frásagn- ar. þessa fólks bjó við sárustu fátækt. Um 200 þúsund manns til viðbótar urðu fyrir eituráhrifum og um 60 þúsund þeirra eiga enn við alvar- lega sjúkdóma að stríða. Chandra læknir, sem stjórnar rannsókninni á afleiðingum gaslek- ans, segir, að þeir sem látizt hafi undanfarna mánuði hafi verið með margs konar skemmdir á liffærum. „Krufningar okkar leiða i ljós skemmdir á lungum, heila, nýrum og lifur,“ segir hann. Læknar og embættismenn eru einnig að kanna óvenju mörg fóst- urlát og andvana fæðingar hjá mæðrum sem urðu fyrir eituráhrif- um. „Eiturgufurnar höfðu mikil áhrif Ofsóknir skólasystk- ina enda með ósköpum Fyrir skömmu fannst 14 ára gamall japanskur unglingur sem hafði hengt sig á hlöðulofti. Hann hét Seiji Sato og var búsett- ur i Fukushima. 1 skólatöskunni hans fannst miði þar sem á stóð: „Láttu okkur fá 15 þúsund jen og vélhljólið þitt. Að öðrum kosti verður þú tekinn í gegn.“ Lögregl- an kvað upp úr um að Seiji hefði fyrirfarið sér vegna ofsókna skóla- félaga sinna. Yfirheyrslur leiddu i ljós að hann hafði mánuðum saman orðið fyrir áreitni og fjár- kúgun af hálfu bekkjarsystkina sinna. Yfirleitt er litið um ofbeld- isverk i Japan og þjóðin er lög- hlýðin og siðavönd. Eigi að síður líður varla sú vika að skólabörn verði ekki fyrir aðkasti og ofsókn- um af hálfu félaga sinna. Á fyrri helmingi þessa árs var vitað um 251 tilvik, þar sem lög- reglan hafði afskipti af ofbeldi og þvingunum af þessu tagi. Á þessu tímabili sviptu þrir unglingar sig lífi, tvær 13 ára gamlar stúlkur og 14 ára drengur, vegna þess að þau gátu ekki afborið ofsóknirnar, kom fram í rannsókn lögreglunnar á fóstrin. Þau hafi skort súrefni vegna þess að gasið olli öndunar- erfiðleikum hjá mæðrunum, oft um margra mánaða skeið og í sumum tilvikum verða öndunarerfiðleik- arnir varanlegir," að sögn Chandra. í sjúkrahúsi, sem ríkið hefur komið upp í grennd við slysstaðinn, er stöðugur straumur fólks sem leitar aðstoðar. Læknarnir segja, að flestir sjúklinganna sem þangað komi til meðferðar, kvarti um önd- unarerfiðleika og ókennilega verki í kviðarholi, svo og magnleysi og lystarleysi. „Við höfum meðhöndlað um 60 þúsund manns fram að þessu. Um 40% þeirra þjást af sjúkdómsein- kennum í lungum og um 45% af sjúkdómseinkennum í maga,“ segir dr. N.R. Bhandari, sem er formaður læknanefndar þeirra sem ríkis- stjórnin skipaði til að hafa eftirlit með aðstoðinni við fórnarlömbin. Umhverfis verksmiðju Union Carbide í Bhopal sprettur nú hátt gras og fáeinir verðir hafa eftirlit með henni. „Niður með heimsvald- astefnuna” hefur verið málað með hvítri málningu rétt við aðalhliðið. Að öðru leyti er þar ekkert um að vera, nema hvað sjúk fórnarlömbin safnast þangað öðru hvoru til að mótmæla og krefjast hjálpar. - RICHARD S. EHRLICH á málsatvikum. í skýrslunni segir að ofbeldisverk á veikburða og varnarlausum skólabörnum eða svokölluðum „kennarasleikjum" væru algengust. Fyrr á þessu ári var ráðizt á 14 ára heyrnarskerta stúlku. Logandi sígarettum var stungið í hörund hennar og hún var afklædd og barin. í ljós kom að bekkjarfélagar hennar höfðu verið þar að verki, stúlkur jafnt sem piltar. Oft ráðast ofbeldishneigðir unglingar aö börnum Japana sem lengi hafa búið og starfað erlendis og skera sig því að ýmsu leyti úr. Margir líta þannig á að ofbeldis- verkin endurspegli ákveðna þætti í japönsku samfélagi, þ.e. skort á umburðarlyndi gagnvart þeim sem eru frábrugðnir öðrum á einhvern hátt, eru til dæmis af öðrum kyn- þætti, óframfærin, minni máttar eða hafa öðruvísi reynsluheim en allur fjöldinn. Þetta skýrir á hinn bóginn ekki hvers vegna ofbeldisverk og áreitni hafa á tiltölulega skömmum tíma orðið eins konar þjóðarböl, sem nauðsynlegt hefur reynst að ráðast gegn. Hafa menn í því sambandi nefnt nauðsyn þess að reisa eins- konar leiðbeiningastöðvar þar sem foreldrar og börn geti fengið sér- fræðilega aðstoð. Sú skoðun nýtur og stöðugt meira fylgis að ofbeldisverkin eigi ekki rætur að rekja til þess aga- leysis og frjálslyndis, sem smám saman hafa rutt sér til rúms í japönsku samfélagi, heldur jafnvel hins gagnstæða. Það er krafan um undirgefni, löghlýðni og refsing- arnar fyrir smávægilegustu frávik sem veldur því að upp úr sýður. þetta var staðfest fyrir nokkrum árum þegar nemendur í ýmsum skólum gerðu uppreisn gegn kenn- urum sínum og kemur enn fram, þegar þeir nú láta til skarar skríða gegn skólasystkinum sínum. „Með því að grípa til ofbeldis eru börnin í rauninni að hefna sín fyrir kúgun og harðstjórn,“ segir Masayuki Hayashi, japanskur fræðimaður sem hefur skrifað mikið um menntamál. I apríl síðastliðnum birtist grein í hinu frjálslynda blaði Asahi Shimbun. Þar var komist svo að orði að japönsk börn væru flokkuð eins og gallaðar agúrkur, sem kaupmenn fleygðu ef þær væru óseljanlegar. Skólinn hafnaði þeim sem ekki stæðust ítrustu kröfur og á sama hátt höfnuðu nemendur þeim félögum sínum sem væru á einhvern hátt öðruvísi en fjöldinn. ROBERT WHYMANT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.