Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 18

Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR27. OKTÓBER1985 AÐALFUNDUR Landsmálafélagsins VarÖar veröur haldinn 29. október n.k. kl. 20.30 í Sjálfstæöishúsinu Valhöll Háaleitisbraut 1. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Vörn fyrir velferöarríkiö, ræöa Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra. Stjórnin. HLUTABRÉFA MARKAÐURINN TILKYNNIR: HAMPIÐIAN HF HEFUR FAUD OKKUR ADANNAST SÖUJ NÝRRA HLUTABRÉFA í FÉLAGINU Þau bréfsem seld verða aðþessu sinni eru að nafnverði kr. 5,5 milljónir. Bréfin verða seld á genginu 110. Lágmarkssala til hvers kaupanda verður kr. 100.000 á nafnverði. Sala hefst 7. nóvember næstkomandi og henni lýkur 15. nóvember. Á þessu ári verður ekki um frekari útgáfu hlutabréfa að ræða, en skv. ákvörðun félagsins verða á árinu 1986 seld bréf að nafnverði kr. 6 milljónir. í dag er hlutafé að nafnvirði 78,5 milljónir króna. Hampiðjan er eitt fárra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði laga nr. 9 frá 1984 og vísast til ákvæða þeirra um skattfríðindi við kaup á hlutabréfum. Viðskipti með hlutabréf í Hampiðjunni eru frjáls á sama hátt og með almenn viðskiptabréf. FRÁ OG MEÐ MÁNUDEGINUM 28. OKTÓBER LIGGJA UPPL ÝSINGAR FRAMMIÁ SKRIFSTOFU OKKAR. Revkiavík. 27. október 1985. Hlutabréíamarkaóurinn hf. Skólavörðustíg 12,3. h. Reykjavík. Sími 21677 Góóu gæjarnir — Robert llrich og Timothy Hutton sem bræóurnir í Turk 182. Góðir gæjar gegn vondum köLlum Kvikmyndir Árni Þórarinsson Bíóhöllin: Einn á móti öllum — Turk 182 ★ ★ Bandmrísk. Árgerð 1985. Handrit: James Gregory Kingston, Denis Hamill, John Hamill. Leikstjóri: Bob Clark. Aðalhlutverk: Timothy Hutton, Robert Urich, Robert Culp, Kim Cattrall, Peter Boyle, Darren McGavin. Ofvaxið barnabíó, er það skásta sem mér dettur í hug að segja um Turk 182. Gamla bandaríska klisjan um góða gæjann sem segir vondu köllun- um stríð á hendur er hér þrykkt rétt eina ferðina enn á alein- faldasta hátt en með miklum viðbúnaði. Aumingja Timothy Hutton, einn efnilegasti leikari Banda- ríkjanna af yngri kynslóð, hefur látið plata sig til að leika ungan New York—búa sem ákveður að hefna harma fyrir bróður sinn, fyrrum brunavörð sem sviptur er örorkulífeyri eftir slys við björgunaraðgerðir úr eldsvoða utan vinnutíma. Hutton leitar réttar hans með því að grafa undan spilltum borgarstjóra New York sem gerir hann að hálfgildings þjóðhetju — að sjálfsögðu. öll undirbygging þessarar sögu, reyndar yfirbyggingin líka, er með eindæmum illa unnin og meira og minna út í hött. Stund- um er eins og höfundar taki efnið alvariega, þeir þykist vera að skjóta á kerfiskallana sem fjar- lægst hafa litla manninn sem kerfið á að þjóna. Slík ádeila er ekki marktæk. Stundum nálgast myndin fjölskylduharmleik þeirra bræðra. Það verður heldur ekki marktækt. En þegar Turk 182 leyfir sér að vera sú della sem hún er, þá getur verið dálítið gaman að henni. í henni er slæð- ingur af fyndnum smáatriðum og Robert Culp, sem ekki hefur sést á tjaldinu í mörg ár, er svo skemmtilega kvikindislegur í hlutverki borgarstjórans að unun er að fylgjast með niður- lægingu hans. Og þótt Bob Clark leikstjóri kláms sé fremur kænn kvikmyndagerðarmaður eins og sannast á syrpu hans sem kennd er við Porky’s, má hann eiga það að hann heldur uppi sæmilegum hraða í Turk 182. Af því leiðir að þessi annars ómerkilega mynd er gjaldgengt þrjúbíó. Tootsie fyrir táningana Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjörnubíó: Ein af strákunum — One of the Guys Leikstjóri Lisa Gottlieb. Handrit Dennis Feldman og Jeff Franklin. Tónlist Tom Scott. Aðalleikendur Joyce Heyser, Clayton Rohmer, Billy Jacoby, Tony Hudson, Will- iam Zabka. Bandarisk frá Tri Star/Columbia, gerð 1985. Léttasótt unglingamynda- framleiðenda linnir ekki, af- raksturinn flæðir látlaust inná tjðld kvikmyndahúsanna. Þess- um gagnrýnanda frekar til skelf- ingar en hitt, því þegar maður er búinn að hesthúsa á annan tug slíkra mynda á nokkrum mánuð- um, þá er orðaforðinn hartnær þurrausinn, svo nauðalikar eru þær hver annarri. öllum til guðsblessunar kveð- ur þó við örlítið breyttan tón hjá framleiðendum Einnar af strákunum, því hér er á ferðinni táningaútsetning Yentls, Tootsie og Victors, Victoriu. Fjallar um stúlku sem skiptir um skóla íklædd karlmannsgerfi. Þannig útlítandi telur hún sig eiga öllu betri möguleika á að blaða- mannahæfileikar hennar fái að njóta sannmælis á komandi námskeiði. En sæt og barmfögur stúlka hlýtur fljótlega að lenda í vand- ræðum i karlmannsham, og svo fer líka hér. Það koma upp margar, broslegar aðstæður sem kvikmyndagerðarmenn afgreiða oftast með þokkalegum árangri. Handritshöfundur er greinilega (þjófóttur) húmoristi og ófeim- inn við að leita uppi aðhláturs- efni innan klæða, á þeim svæðum sem oftast eru vel hulin mann- legu auga. Þá er farið, af veikum mætti, inná stöðu kvenna, en öll fara þau kvenréttindamál fyrir ofan garð og neðan. Þessi margþvælda formúla er því nokkuð frábrugðin þeim fyrri, umgerðin sjálf, skólalífið, samdráttur unglinganna skoðað- ur frá nýju sjónarhorni og það lukkast á köflum. Frambærilegir leikarar hjálpa talsvert uppá sakirnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.