Morgunblaðið - 27.10.1985, Qupperneq 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNfcUDAGUR 27. OKTÓBER1985
Ásdís Emilsdóttir
SvavarA. Jónsson
Kirkjuþing og kirkjuráð
vilja afnema prestkosningar
Kristján Þorgeirason kirkjuráðs-
maður.
Rætt við Kristján Þorgeirsson
Kirkjuþing stendur nú yfir. Það hófst hinn 22. októ-
ber og stendur til 31. október. Það er nú haldið í safnað-
arheimili Bústaðakirkju í Reykjavík.
Hvað gerir Kirkjuþing? Við
tókum Kristján Þorgeirsson
kirkjuþingsmann tali um það, en
Kristján situr einnig í Kirkju-
ráði. Kirkjuþing á að eiga frum-
kvæði að málum sem efla krístni
f landinu og fjalla um mál, sem
biskup, Kirkjuráð, Alþingi, ráð-
herra eða aðrír vísa til þingsins.
Kirkjuþingsmenn bera svo sjálf-
ir upp mál, sem þeir hafa áhuga
á innan þessa ramma.
Hverjir sitja á kirkjuþingi?
Á kirkjuþingi sitja kjörnir
fulltrúar frá kjördæmunum 9,
einn prestur og einn leikmaður
úr hverju, nema tveir prestar og >
tveir leikmenn úr Reykjavíkur-
kjördæmi. Þá er þar fulltrúi
guðfræðideildar og fulltrúi
presta í sérþjónustu og fulltrúi
kirkjumálaráðherra. Biskup á
sjálfkrafa setu á þinginu og
vígslubiskupar eiga þar líka sæti
en hafa ekki atkvæðisrétt.
Hvað situr þingið lengi?
110 daga. Það er haldið árlega
að hausti.
Hvað verður svo um málin, sem
Kirkjuþing fjallar um?
Því verður ekki neitað að sum
mál eiga erfitt um frekari fram-:
gang, sérstaklega þau, sem fara
fyrir Alþingi. Tvö mál, sem fóru
frá Kirkjuþingi fyrir síðasta
Alþingi, voru þó afgreidd, lög um
breytingu á sóknargjöldum og
lög um sóknarnefndir og héraðs-
fundi o.fl. Sóknargjöld verða nú
ekki lengur nefskattur heldur
ákveðinn hundraðshluti af út-
svari.
Hver rekur á eftir málum Kirkju-
þings við Alþingi?
Mál kirkjunnar eru rædd í
samstarfsnefnd kirkju og Al-
þingis, sem er skipuð Kirkjuráði,
forseta sameinaðs þings og ein-
um fulltrúa frá hverjum stjórn-
málaflokki. Þar er sá vettvangur,
sem rætt er við alþingismenn um
þessi mál og þau útskýrð fyrir
þeim.
Eru oft fuudir í samstarfsnefnd-
inni?
Alltaf að afloknu Kirkjuþingi.
Kirkjuráð leggur þá fram þau
mál, sem Kirkjuþing sendir
Alþingi og ætlazt er til að al-
þingismennirnir i nefndinni
kynni sér þau. Svo eru fundir
haldnir eftir því sem mál verða
til. Kirkjuráð óskar æði oft eftir
fundi í sambandi við aðalfund
Kirkjuráðs, sem er haldinn í
febrúar.
Hefur það gedzt vel að hafa
þessa samstarfsnefnd kirkju og
Alþingis?
Það hefur verið afar þýðing-
armikið og á eftir að reynast
vel. Nefndin er vettvangur, þar
sem kirkjan kemst í samband við
Alþingi og þar eru mál kynnt og
skipzt á skoðunum. Oft er þar
ágreiningur um mál, t.d. um
prestskosningar.
Hvað líður nú tillögum um af-
nám prestskosninga?
Frumvarp um það hefur verið
lagt fyrir Álþingi en það hefur
sofnað í nefnd. Kirkjuþing og
kirkjuráð vill afnema prests-
kosningar enda algjör misskiln-
ingur að nokkurt lýðræði sé í þvi
að söfnuðir kjósi prest sinn einu
sinni, sem situr svo í embætti í
áratugi. Hvar er þá lýðræðið á
meðan? Það væri jafn lýðræðis-
legt að fá að kjósa héraðslækna
og skólastjóra eins og að kjósa
sóknarpresta.
Hvert er svo verkefni kirkju-
ráðs?
Kirkjuráð fer með sameiginleg
málefni þjóðkirkjunnar, það
framkvæmir og fylgir eftir álykt-
unum og samþykktum kirkju-
þings og þeim erindum, sem bisk-
up, Alþingi, ráðherra og stofnan-
ir og starfsmenn kirkjunnar vísa
til þess. Það er biskupi til ráðu-
neytis um starfsmannahald
kirkjunnar og undirbýr með
honum Kirkjuþing. Kirkjuráð
getur sjálft haft frumkvæði að
lagafrumvörpum fyrir kirkjuna.
Það fer með stjórn Kristnisjóðs
og hefur forræði Skálholtsstaðar
og Skálholtsskóla samkvæmt
lögum.
Hvað kemur Kirkjuráð oft sam-
an?
Minnst 5 sinnum á ári. Fundir
þess standa frá 2 dögum til viku
og dag hvern er unnið frá morgni
til kvölds. Á aðalfundi er út-
hlutað fé úr Kristnisjóði.
Hvað er Kristnisjóður?
Kristnisjóður varð til árið 1970
samkvæmt samþykki þáverandi
kirkjumálaráðherra og kirkju-
stjórnarinnar. I hana renna
prestslaun niðurlagðra presta-
kalla og hálf laun ósetinna
prestakalla. Prestaköllum hefur
verið fækkað og kirkjan á ekki
að skaðast af því fjárhagslega
heldur geta ráðstafað þessu fé. í
Kristnisjóð renna líka framlög
fólks og áheit. Verkefni Kristni-
sjóðs er að efla kirkju og kristni
í landinu, til þess er margt gert
og peningar sjóðsins fara til
þeirra starfa.
Er fjárhagur kirkjunnar góður?
Kirkjan er hornreka í þjóð-
félaginu hvað fjármál snertir,
því miður. Það gengur sannast
sagna mjög erfiðlega að fá fjár-
magn til hennar. Ég er ekki
ánægður með þá hlið málsins. 1
rauninni finnst mér ríkið ráðsk-
ast of mikið með málefni kirkj-
unnar. Fjárveitinganefnd og
Alþingi búta niður það fé, sem
kirkjunni er veitt á fjárlögum.
Kirkjuráð ætti hins vegar að
ráðstafa þessu fé því það hefur
betri yfirsýn yfir fjárþarfir
kirkjunnar. Ég er þó ekki að vé-
fengja það að alþingismenn hafi
vit á þessum málum. Launamál
presta eru heldur ekki sem
skyldi. Og það er afar erfitt að
fá fé til að viðhalda embættis-
bústöðum presta. Bústaðirnir eru
eign ríkisins, sem skaðast sjálft
mikið ef þeim er ekki haldið við.
Svo er líka afar erfitt að fá fé
til að sinna erlendum samskipt-
um þjóðkirkjunnar þótt þau séu
mjög mikilvæg.
Gengur betur að fá innri málefn-
um kirkjunnar framgengt?
Það er miklu auðveldara að
annast það, sem við megum sjálf
framkvæma. Sumt er þó lengi á
leiðinni. Hugmyndir um Kirkju-
hús eru t.d. 40 ára gamlar, en
það var ekki fyrr en í sumar að
þær urðu að veruleika. Þá tók
Kirkjuhúsið í Suðurgötu til
starfa. Það er líka mikið mál og
áhugavert að skipuleggja Skál-
holtsstað og vinna að bókhlöð-
unni þar. Og svona mætti mörg
mál upp telja.
Hefur þér þótt það skemmtilegt
verkefni að sitja á Kirkjuþingi og
í Kirkjuráöi?
Já, ég hef virkilega notið þessa
starfs. Það má segja að verkefni
Kirkjuráðs séu ekki alltaf gleði-
leg en ég hef notið þess í marga
veru að sinna þeim. Vandamál
eru til þess að takast á við þau
og snúa sér að því að leysa þau.
Það hefur verið gaman að vinna
með þeim mönnum, sem starfa
saman í Kirkjuráði. Það er sam-
stæður hópur, sem hefur alltaf
leitazt við að finna jákvæðar
lausnir.
Hverjir sitja nú í Kirkjuráði?
Biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, er sjálfskipaður
formaður Kirkjuráðs. Þar sitja
nú líka séra Jónas Gíslason, dós-
ent, Gunnlaugur Finnson, fyrr-
verandi alþingismaður, séra Sig-
urður Guðmundsson, víglsubisk-
upogég.
Og þá kveðjum við Kristján
Þorgeirsson, þökkum fyrir grein-
argóðar upplýsingar, sem hann
lætur i té með ljúfmennsku og
festu, og óskum Kirkjuþingi ár-
angursríkra starfa okkur öllum
til heilla. Við minnumst þess að
Biblían áminnir okkur um að
hafa þau í heiðri, sem erfiða fyrir
okkur.
Fólk er svo værukært
— segir séra Helga Soffía Konráðsdóttir
Eftir samtalið við Kristján um kerfi kirkjustjórnar-
innar datt mér í hug að fá að taka einhvern tali um
viðlitið til kirkjunnar, sem að einhverju leyti er bundin
í ákveðið kerfi en að öðru leyti lifir lífi sínu eins og
það væri ekki til. Eða hvað? Eg fékk séra Helgu Soffíu
Konráðsdóttur til að spjalla við mig. Hún hefur tekið
mikinn þátt í starfi KFUK og Kristilegu skólahreyfing-
arinnar og starfar sem aðstoðarprestur í Fella- og
Hólasókn.
„Það kemur ýmislegt í ljós
þegar ég kynnist kirkjunni sem
starfsmaður hennar. Hún er
annars vegar stofnun, hins vegar
kirkja, sem er að boða eitthvað
sérstakt. Sem stofnun er hún
bygging, með presti, sóknar-
nefnd, organista, kór o.s.frv.
Hins vegar er hún samfélag
fólks, sem trúir á boöskap henn-
ar.“
Og hvað um tengslin milli stofn-
unarinnar og samfélagsins?
„Fólk setur jafnaðarmerki
miUi kirkjunnar sem stofnunar
og þess, sem hún er að boða. Mér
finnst það slæmt þegar ég verð
vör við það hjá safnaðarfólki
mínu að það telur að boðskapur
kirkjunnar og presturinn sé það
sama. Og ef því finnst presturinn
fúll og leiðinlegur segir það að
boðskapur kirkjunnar sé leiðin-
legur. Én boðskapur kirkjunnar,
trúin, sem hún boðar, er aðalat-
riðið.“
Telurðu að fólk hugsi lítið um
aðalatriðið?
„Mér verður það æ ljósara
hvað kirkjusókn er léleg. Það er
sjálfsagt svo að stundum kemur
allur söfnuðurinn í kirkju til
sveita, þar sem guðsþjónusta er
haldin einu sinni í mánuði. En
hérna í þéttbýlinu er kirkjusókn
léleg. allir láta skira börnin sín
en sinna svo ekki dagiegri guð-
rækni. Þetta er tvískinnungur.
Hvers vegna lætur fólk skíra
börnin sín ef það kemur svo ekki
íkirkju?”
Hefurðu hugmyndir um ástæð-
urnar?
„Ég held að sumra skýring-
anna sé að leita hjá kirkjunni
sem stofnunar, hjá þjónum henn-
ar. Ég veit ekki hvort prédikun
okkar er sífellt ný, fersk og
vakandi. En skýringanna er líka
að leita hjá fólkinu sjálfu. Það
lætur kirkjuna svo afskiptalausa
að presturinn hlýtur oft að ein-
angrast og starfa í dauðu um-
hverfi þótt hann sé mitt í söfnuði
sínum."
Hvernig finnst þér sjálfri að
takast á við prédikunarstarfið í
söfnuðinum?
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir.
„Ég er í þessu starfi á vegum
kirkjunnar vegna þess að ég vil
boða Jesúm Krist, sem er lffs-
hamingja mín og sannfæring. Ég
finn mig vanmáttugu til að préd-
ika út frá þessum gömlu textum,
sem handbókin leggur upp í
hendurnar á mér. Ég finn að ég
þarf að vera vel að mér í guðfræði
og vera í sambandi við fólk. Préd-
ikunin er þáttur í starfi mínu og
krefst mikils. Það Það er mér
knýjandi spurning hvernig ég
tala um Jesúm.“
Hvernig talarðu um hann?
„Ég vil tala um hann svo að
fólk skilji, vera persónuleg, höfða
til einstaklingsins sem persónu,
til innstu tilfinninga. Það er svo
hættuleg yfirborðsmennska rikj-
andi í þjóðfélaginu og efnis-
hyggjan er gífurleg. Ég heyri úr
mörgum áttum að boðskapurinn
um Krist sé gamall og úreltur
og hafi ekkert að segja. En fólk
þarf jafn mikið á frelsun að
halda núna og alltaf. Fólk er
óöruggt og hrætt, óttast jafnvel
sjálft sig. Vilji menn sjá vit í
tilveru alls og hvers og eins þá
skynja menn það vit í Jesú Kristi.
í honum finna þeir háan og
mikinn Guð, sem varð barn og
manneskja alveg eins og við og
þekkti ótta og öryggisleysi. Ég
get sagt það af sjálfri mér að það
er mikil lífsfylling að geta sagzt
þekkja Guð og eiga samfélag við
hann. Ég vil hvetja fólk til að
lesa Ritninguna, heyra hvað
aðrir segja um hana, koma þang-
að, sem hún er útskýrð. Fólk er
svo værukært. Ég væri þakklát
ef prédikun mín gæti vakið fólk
til þess að hugsa um sjálft sig í
ljósi Guðs.“