Morgunblaðið - 27.10.1985, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.10.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 B 31 FYRIR 25 ARUM Þetta var hið mesta ævintýri — sagði Birgir ísleifur Gunnarsson „Hér er mynd af þremur ía- lenskum laganemum, sem fóru utan fyrir skemmstu í boði bandarískra stjórnvalda er sjá um stúdentaskipti og fræðslu- ferðalög. Boðið var þremur bestu námsmönnum lagadeildarinnar, þ.e. þeim þremur stúdentum, sem hæsta einkunn höfðu hlotið á fyrrihluta prófi í lagadeild og stunda nú nám í seinni hluta. Þessir stúdentar voru Birgir fsleifur Gunnarsson, Jóhannes L. Helgason og Guðrún Erlends- dóttir.“ (MorgunblaAiA 30. aept 1900.) Prófessor Ármann Snævarr hafði frumkvæðið að því að tekin voru upp regluleg sam- skipti við háskólann „Northern Ohio University" í borginni Ada í Ohio, sagði Birgir Isleifur Gunnarsson þegar hann var inntur eftir þessu ferðalagi fyrir 25 árum. „Ármann hafði verið gistipró- fessor þarna og prófessor hafði einnig komið hingað til lands frá þessum háskóla. Líklega hefur þetta verið fyrsta ferðin af þessu tagi sem við farin var og síðan held ég að sú regla hafi viðgengist að íslenskir laganem- ar fari þarna og heimsæki skól- ann. Ef ég man rétt vorum við í þrjár vikur í ferðinni, helmingi ferðarinnar eyddum við í borg- inni Ada og sátum í tímum hjá hinum ýmsu prófessorum og tók- um almennt þátt í háskólalífinu. llér er mynd af þrei.iur ís- lenzkum Iaganemum, sem fóru utan fyrir skemmstu i boði bandariskra stjórnvaida, er sjá um stúdentaskipti og fræðsluferðalög. Boðið var þremur beztu námsmönnura lagadeildarinnar, þ.e. þeim þremur stúdentum, sem hæsta einkunn höfðu hlotið á fyrrihlula prófi í Lagadeild og stunda nú nám í seinni hluta. Þessir stúdentar voru Birgir fsl. iunnarsson, Jóhannes L. ' Helgason og Guðrún Erlends- dóttir. Hér eru þau stödd í garði við dónahús Hæstaréttar Bandaríkjanna i Washington, D.C. Á bekknum sitja þau Guðrún og John M Harlan, aðstoðarhæstaréttardómari, og ræðast við. Fyrir aftan þau standa (frá vinatri): Birgir, Jóhannes og Rex Conrad, lög fræðingur við lögfræðiskrif- stofuna Cross, Murphy & Smith i Washington, sem var Ileiðsögumaður tslendinganna i höfuðborginni. Morgunblmðið/Bjami. Birgir Isleifur Gunnarsson. Við kynntumst nemendum og öðru fólki og enn þann dag í dag er ég að fá kveðjur frá þeim er ég kynntist f þessari ferð. Ég man að koma okkar til bæjarins vakti athygli á sínum tíma, enda borgin litil, fólk stoppaði á götum úti og bauð okkur far og það kepptist við að bjóða okkur heim. Við nutum semsagt mikillar gestrisni. Greinin sem birtist fyrir 25 árum. Á þessum tíma var það ævin- týri að fá að fara í svona ferð, svo ég tali nú ekki um alla leið til Bandaríkjanna. Það var þá ekki eins algengt og í dag að ungt fólk ferðaðist mikið. Hinum helmingnum af dvöl okkar vestra eyddum við í Wash- ington við að skoða merkilega staði og síðan áttum við nokkra daga í New York á eigin vegum." — Þið hafið þannig ekkert vitað af því fyrirfram að þeir efstu hlytu þessa ferð? „Nei, alls ekki, þetta kom mjög óvænt. Ég held að Ármann Snævarr hafi haft tiltölulega frjálsar hendur hvernig hann setti þessar reglur.“ — Finnst þér tíminn hafa verið fljótur að líða síðan? „Mér finnst örstutt síðan þetta gerðist, svo mikið er víst.“ JUDO Nýtt námskeið hefst 4. nóvember Þjálfari er Þóroddur Þórhallsson. Innritun og upplýsingar í síma 83295, alla virka daga kl. 13—22. Júdódeijd Ármanns Ármúla 32. Öllum þeim sem glöddu mig á áttatíu og fimmára afmæli mínu med heimsóknum, gjöfum og skeytum 5. október sl. fceri ég mínar hjart- anlegustu þakkir og ámaöaróskir. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Gudjónsdóttir, Skipasundi 26. FYRSTA FLOKKS STURTUKLEFAR FRA Kferalfe Afgreiðum einnig sérpantanir með stuttum fyrirvara 14.900,- HORNKLEFI 2 hlutar hver hlið. 16.500,- HORNKLEFI 3 hlutar hver hlið. 9.700,- RENNIHURÐ f. sturtubotn 3 hlutar 9.146- V/€NGHURÐ 25.500,- FULLBÚNIR STURTUKLEFAR (m/blöndunartœkjum) VATNSVIRKINN/ ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455. SKRIFSTOFA 685966

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.