Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 B 39 <- j Akira Kurosawa undirbýr atriöi í nýju myndinni sinni Ran. Lucas gerir mynd um Hávarð önd George Lucas er iðulega viöriöinn gerö margra mynda í einu og sú allra nýjasta, sem hann hefur verið meö puttana í, heitir Howard the Duck („Há- varður önd“ í bókstaflegri merkingu) og fjallar hún um ansi undarlega hluti. Meö aöalhlutverkiö í myndinni fer leikkona að nafni Lea Thompson, sem leikur í Aftur til framtíðarinnar (Back to the Future, væntanleg jólamynd Laugarásbíós), en á móti henni leikur maður aö nafni Jeffrey Jones, sem leikur Jósep II Aust- urríkiskeisara svo vel í Ama- deus. Myndin um öndina Hávarö er byggö á teiknimyndafígúru og er um önd drá annarri plánetu, sem lendir á jörðinni fyrir ein- hverja tilviljun. Þaö skal tekið fram aö öndina leikur maöur í andargerfi. Tökur á myndinni eru aö hefj- ast um þessar mundir og heitir leikstjóri hennar Williard Nuyek. Lucas er framkvæmdastjóri verksins og vill helst ekkert segja um söguþráöinn. Þaö litla sem gefið hefur verið upp er aö myndin kemur til meö aö verða „andarútgáfa af IndianaJones". Og nú bíður maöur bara spenntur eftir því aö fá aö vita hvað þeim dettur næst í hug vestur í Hollywood. Kannski þeir geri kvikmynd um brauörist, sem fellur til jaröar og breytist í hjólhest. Hún gæti heitið „Raggi reiöhjól". — ai. George Lucas. Hvaö dettur hon- um í hug næst? Astríöuglæpir Kathleen Turner hefur mikið sést í reykvískum kvikmynda- húsum að undanförnu. Bíóhöll- in sýnir nýjustu mynd hennar, Heiður Prizzis; Austurbæjarbíó endursýndi Blóöhita fyrir nokkru og Nýja bíó sýnir um- deildustu mynd hennar, Ástríðuglæpi en þá mynd gerði Ustinov leikur Poirot í þriðja sinn Ef nefna ætti eitthvert eitt hlut- verk, sem Peter Ustinov er fræg- astur fyrir, kemur Hercule Poirot fyrst upp í hugann. Tvisvar hefur okkur gefist tækifæri til aö sjá hann í hlutverki þessarar frægu sögupersónu Christies í myndun- um, Dauðinn á Níl (Death on the Nile) og lllt undir sóHnni (Evil under the Sun). Og núna leikur hann leynilögreglumeistarann belgíska í þriöja sinnið í sjón- varpsmynd sem sýnd var hjá CBS-stöðinni í Bandaríkjunum 19. október sl. Myndin heitir á frummálinu Agatha Christie’s ’13 for Dinner og er byggö á sögunni „Lord Edg- ware Dies“, sem Agatha Christie reit á fjóröa áratugnum. Sagan er færö i nútímahorf og segir frá því þegar Poirot hittir glæsilegan kven- mann í viötalsþætti sem David Frost stjórnar í Bretlandi. Kven- maöurinn þykist vera ameríska leikkonan Jane Wilkinson, sem gift er Edgware lávaröi. Þaö kemur þó í Ijós þegar líöur á viötalsþáttinn aö kvenmaöurinn heitir í rauninni Carl- otta Adams og hefur atvinnu af aö líkjaeftiröörum. Hin raunverulega Jane Wilkinson er svo hrifin af eftirhermunni aö hún býður Carlottu og Poirot í kvöld- ferö. Meöan á kvöldverðinum stendur tilkynnir hún aö hún vildi Ken Russell, sem frægur er fyrir að fara ótroðnar slóðir. Ástríðuglæpir er djörf mynd fyrir fulloröiö fólk, segir Kathl- een, myndin fjallar um kynferðis- legar þarfir konu og mun því koma viö kaunin á sumu fólki, en hún fær þaö einnig til aö hugsa. Kathleen segir þaö hafa veriö freistandi að leika í þessari mynd, enda þótt hún skildi ekki söguna í fyrstu, en handritshöf- undurinn Barry Sandler, þurfti að útskýra söguna fyrir henni. Kathleen byrjaöi tiltölulega seint aö leika í myndum (hún er rúmlega þrítug) og því tók hún þá stefnu að festast ekki í ákveðnum hlutverkum og hefur henni tekist þaö. Fólk eldist hraðar en það yfirleitt gerir sér grein fyrir, segir leikkonan, og því verö ég aö taka áhættur. Hún segist bera mikla virðingu fyrir Ken Russel, leikstjóra myndar- innar, telur hann mikinn lista- mann. Þaö er vægast sagt skondiö að lesa þaö sem Kathleen Turner segir um mynd sína og þaö sem gagnrýnendur hér á landi hafa um hana aö segja. Bandaríkja- mönnum þótti myndin svo gróf aö henni var dreift í fá kvik- myndahús og bannaö var aö auglýsa hana í sjónvarpi. Hér- lendis hrista menn hausinn. Árni Þórarinsson segir til aö mynda í Morgunblaðinu síöastliöinn miö- vikudag aö myndir Russells séu oftast þannig aö engu líkara sé en höfundurinn hafi ekki vitaö hvaö hann er aö gera, þær séu hamslausar orgíur af litum, hreyfingum og tónum, að hug- mynd Russells um vitundarvíkk- un í Ástríöuglæpum virðist vera sú aö ráöast á skynfæri áhorfan- dans meö því að rífa hann upp á kynfærunum. Aðrir blaöadómar hafa verið í svipuðum dúr. helst losna viö eiginmann sinn fyrir fullt og fast, en hann hefur neitaö staöfastlega aö veita henni skilnaö. Seinna þegar Edgware lávaröur finnst látinn, lendir Jane efst á lista yfirhinagrunuöu. Þaö er Fay Dunaway, sem leikur bæöi Carlottu og Jane. Hún hefur sjálfsagt gripiö hlutverkin fegins hendi því upp á síökastiö hefur hún varla leikiö annaö en sögufrægar persónur eins og Wallis Simpson (Portrait: The Woman I Love), Evu Peron (Evíta Perón) og Isabellu Spánardrottningu (Christopher Columbus). — ai. Stjörnugjöfin Stjörnubíó: Ein af strákunum ★★ Tónabíó: Eyðimerkurhermaðurinn ★ Háskólabíó: Amadeus ★★★’A Austurbæjarbíó: Gremlins ★★★ Vafasöm viöskipti ★★% Laugarásbíó: Milljónaerfinginn ★% Gríma Bíóhöllin: Heiöur Prizzís ★★★’A Á puttanum ★★ Víg í sjónmáli ★★Vt Ár drekans ★★W Auga kattarins ★★★ Regnboginn: Vitnið ★ ★★1/l Rambo ★★% sv. Haing Ngor Man einhver eftir Haing Ngor? Nafniö hljómar ef til vill ekki kunn- uglega, en flestir ættu aó þekkja hann á mynd. Haing Ngor lék í hinni eftirminnilegu frumraun Rolands Joffé á kvikmyndasviöinu, The Kill- ing Fields, og fékk meira aö segja Óskar. En hvaö gerir Ngor þegar frægöaröldurnar lægir og áhugi fólks á Kambódíu dvínar? Þaö er spurningin sem Ngor veltir fyrir sér þessa dagana. hann er nefnilega atvinnulaus, hefur átt erfitt upp- dráttar þrátt fyrir skjóta frægö. Þaö skyldi þó aldrei fara fyrir Haing Ngor, eins og svo mörgum áöur, aö hann leiki í kvikmynd um sjálfan sig eóa skrifi sjálfsævisögu sína á fer- tugsaldrinum — rétt til aö geraeitt- hvaö? Haing Ngor lék f The Killing Fields, en honum hafa engin kvik- myndatilboð borist og er þvf at- vinnulaus. Brigitte Nielsen sem Kolbrún rauösokka. Birgitte Nielsen Brígitte Nielsen heitir ung sænsk kona sem kvaddi fólkið sitt og hélt vestur um haf. Það er svosem ekkert einsdæmi, en þaö (ó)merkilega er að Brigitte þessi hefur nú krækt í einn umtal- aöasta og ríkasta en jafnframt hæfileikaminnsta karlleikara é hinni vestrænu strönd, hvern annan en Sylvester Stallone. En ekki nóg meö þaö. Hún hefur fengið hlutverk í tveimur kvikmynd- um. Fyrri myndin sem hún lék í heitir Red Sonja og var hún sýnd snemma sumars og markaöi engin spor í sögu kvikmyndanna, enda þótt vöövakippan Schwarzenegger léki stórt hlutverk. Red Sonja (Kol- brún?) f jallar öörum þræöi um vaxt- arræktarstúlkur nokkru fyrir Krists- burö! Hin myndin er auövitað Rocky IV, sem Stallone er aö Ijúka viö þessa dagana, en myndin veröur tilbúin snemma í desember. Nielsen hin sænska leikur kærustu rússneska hnefaleikakappans sem keppir viö Rocky.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.