Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 20

Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 20
20 MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNTJDAGUR 23. FEBRÚAR1986 • • Höfundur er varaformaður stjóm- ar Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Náttúrufræðidagurinn: Eðlis- o g efna- fræðingar bregða á leik Tíundi náttúrufræðidagur áhugahóps um byggingu nátt- úrufræðisafns verður haldinn sunnudaginn 23. febrúar í húsi Raunvísindastofnunar Háskólans við Dunhaga (húsið á bak' við Háskólabíó). Dagskráin stendur kl. 13.30-16.00. Þessi dagur markar nokkur tíma- mót. Hingað til hafa náttúrufræð- ingamir að mestu fjallað um hinar hefðbundnari greinar náttúru- fræða, en nú verður farið út fyrir það svið til þess að Ieggja áherslu á, að eðlis- og efnafræði teljast einnig til náttúrufræða og ber því sess í væntanlegu náttúrufræði- safni, segir m.a. í fréttatilkynningu. Ananaustum, Grandagarði 2, sími 28855. Oflugt efnahags- líf framtíðarinn- ar mun greiða ellilífeyrinn FLAGGSTANGIR! H Fegrum borgina á 200 ára afmælinu Við bjóðum fyrirtækjum og einstakling- um mjög vandaðar og sterkar sænskar trefjaplast flaggstangir 6, 8, 10 og 12 metra á hagstæðu verði. Hvort sem sett er upp ein eða fleiri flagg- stangir er það mjög áhrifarík og skemmti- leg leið til að prýða umhverfi fyrirtækja og vekja um leið athygli á þeim. Þessar stangir þykja fallegar og hafa reynst vel. Þær má meðal annars sjá uppsettar hjá E.Th. Mathiesen i Hafnar- firði, IKEA í Reykjavík og við Gestgjafann í Vestmannaeyjum. Tökum nú pantanirfyrir vorið. eftirJóhann J. Olafsson Það verður öflugt athafnalíf hvers tíma sem greiðir ellilífeyris- þegum ellilífeyri en ekki ríkissjóður, húsbyggjendur eða lífeyrissjóðir. I umræðunni um lífeyrissjóðina um þessar mundir eru því miður allt of mikið ríkjandi sjónarmið ríkis- valdsins og þarfir þess svo og hús- byggjenda en ekki tekið nógu mikið tillit til hagsmuna þeirra, sem at- vinnureksturinn hefur í málinu. Það hefur því miður loðað við Islendinga allt of lengi að hafa mjög undarleg- ar hugmyndir um peninga. Á sér- hvem lausan pening er litið sem villikött sem þurfi umsvifalaust að handsama því allt á að hrærast saman við steinsteypu. í þjóðfélagi eins og okkar, þar sem allur spam- aður fer fram í formi peninga, er slíkur spamaður einungis gegnum- streymi. Við erum aðeins að spara ávísanir á framtíðina og það fer eftir því hvemig athafnalífíð þá er í stakk búið til að leysa út þessar ávísanir, hvað menn fá í ellilífeyri. Það er ekki nóg að hafa digra sjóði, ef ekki em til vömr og þjónusta til að láta af hendi, þegar ellilífeyris- þeginn kemur með peningana og vill fá sína þjónustu. Þess vegna er það afar nauðsynlegt að sem mest af ráðstöfunarfé lífeyrissjóð- anna streymi um æðar athafnalífs- ins, því til eflingar, svo að það verði þannig í stakk búið á hveijum tíma, að það geti greitt ellilífeyrisþegum lífsviðurværi. Allt frá lokum seinni heimsstyrj- aldarinnar hafa Islendingar hamast Jóbann J. Ólafsson. við að byggja yfír sig nýtt bjart og rúmgott húsnæði svo mikið að nú er þessari þörf að mestu fullnægt. Ef frá er tekinn afmarkaður hópur manna sem lentu illa í vaxtabreyt- ingunni upp úr 1980 og sjálfsagt er að hjálpa, em íslendingar sér- staklega vel stæðir í húsnæðismál- um. Á hvert mannsbam í landinu, hvort sem það er komabam eða öldungur, em nú til ráðstöfunar 40 m 2 af fyrsta flokks húsnæði, sem hvergi gerist betra í heiminum. Þessu húsnæði komum við upp meðan aðrar þjóðir hömuðust við að byggja upp verksmiðjur og at- vinnufyrirtæki. Nú er þessum þætti að ljúka og íslendingar ætla að snúa sér að öflugri uppbyggingu atvinnuveganna, fjárfestingu sem skilar meiri arði, meiri atvinnu, meiri tekjum og meira öryggi í framtíðinni. í umræðum við for- menn lífeyrissjóða í Englandi kom fram að fjárfestingu lífeyrissjóða þar í landi lauk að mestu fyrir 10 ámm og nú er svo komið að lífeyris- sjóðir þar í landi ávaxta um helming ráðstöfunaríjár síns í hlutabréfum atvinnufyrirtækja. Nú er að verða straumhvörf í íslensku efnahagslífí, Qármagn er að leita úr fasteignun- um og það væri hörmulegt öfug- streymi ef menn á þessum tímamót- um yrðu þvingaðir til að setja pen- inga sína inn í steinsteypuna aftur hvað sem hver vill eða segir. Ef þetta fé fær að leita inn á lánamark- aðinn á frjálsan hátt mun fslenskur lánamarkaður eflast stórlega, vext- ir lækka og jafnvægi sem við höfum sárlega þarfnast í bráðum 50 ár nást á ný. Fichtel & Sachs verksmiðjurn- ar vestur-þýsku eru leiðandi framleiðendur á gas- og olíufyllt- um höggdeyfum í allar helstu tegundir evrópskra og japanskra bifreiða. Hjá Fichtel & Sachs sitja gæðin í fyrirrúmi, enda nota Mercedes Benz, BMW, SAAB, Volvo og nær 40 aðrir vandfýsnir bifreiða- framleiðendur Sachs höggdeyfa í bifreiðar sínar. Eigum fyrirliggjandi höggdeyfa í algengustu gerðir evrópskra og japanskra fólksbíla. ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA ALLA FÁANLEGA HÖGGDEYFA í FÓLKS-, VÖRU- OG LANGFERÐABIFREIÐAR. ÞEKKING- REYNSLA - ÞJÓNUSTA FÁLKINN EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI ________ FYRIR SACHS HÖGGDEYFA SACHS SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.