Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1986 39 Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson FiskamerkiÖ (19. febr.—19. mars) Hér á eftir verður fjallað um samband tveggja dæmigerðra Fiska. Allir eru hins vegar samsettir úr nokkrum stjömu- merkjum og því hafa aðrir þættir einnig áhrif. Tilfinningamenn í samskiptum tveggja Fiska hafa tilfmningar mikið að segja og samskiptin fara að miklu leyti fram á sálrænum sviðum. Skilningur getur ríkt á milli þeirra, þeir þurfa varla að tala saman, heldur senda þeir skilaboð sín á milli með augum og líkamshreyfíngum, eða hreinlega „skynja" líðan hvors annars án þess að nokk- ur sjáanleg skilaboð fari þeirra á milli. Þetta getur verið gott en getur einnig verið slæmt. Það góða er að hér em tveir einstaklingar sem geta skilið dýpstu þarfír hvors annars og geta því náð að mynda djúpt samband. Það sem er vara- samt er að ef annar aðilinn er langt niðri skynjar hinn það strax og getur dottið niður á sama plan. Fiskurinn er sveiflukenndur og næmur og því getur taugastrekkingur annars aðilans haft áhrif á hinn, sem aftur hefur áhrif á hinn o.s.frv. og úr getur orðið hálfgerður vítahringur. Fyrri aÖstceÖur Það sem mestu máli skiptir í þessu sambandi eru fyrri að- stæður. Ef viðkomandi Fiskar eru jákvæðir, þ.e. rækta garð sinn og fara vel með orku sína, þá horfir öðruvísi við en t.d. hjá þeim Fiskum sem gera það ekki. Samband tveggja já- kvæðra Fiska getur verið á- gætt. Við höfum þá þægilega og „mjúka" persónuleika sem hneigjast að listrænum og andlegum málum, fólk sem hefur gaman af tónlist og því að sækja leikhús og list- sýningar. Flökt Ef neikvæðari hliðin er ofan á, höfum við tvo einstaklinga sem geta dregið hvom annan niður. Tveir draumlyndir menn geta ómeðvitað hvatt hvom annan til lífsflótta, ýtt á það að veruleikaskynið minnki. Fiskurinn á það til að vera sveiflukenndur, flökt- andi, ósjálfstæður, áhrifa- gjam og stefnulaus. Þegar tveir slíkir mætast getur sambandið skort markmið og tilgang og þeir flúið á vit drauma og vímugjafa. Skilningur Það er tvennt annað sem ein- kennir Fiskamerkið. f fyrsta lagi botnlaus skilningur og síðan ákveðið metnaðarleysi og óveraldleiki. Skilningur Fisksins birtist m.a. í sam- ræðu hans við annað fólk. Hann horfír á þig stóram rökum augum og hann skilur þig. Hann fordæmir ekki, hann tekur allt til athugunar, hann fínnur til með þér og hefur samúð með þér. MetnaÖarlaus í sambandi við metnaðinn er það svo að margir Fiskar sjá of marga möguleika í lífínu. Þeir skynja hveija stund sterkt, lifa sig inn í það sem er að gerast hverju sinni og eiga því erfítt með að gera langtímaáætlanir. Það kemur alltaf eitthvað nýtt upp á teninginn. Hvað varðar hið óveraldlega má segja að margir Fiskar Iifa í tveim heimum, annar er raunvera- leikinn hér og nú, hinn er heimur ímyndunaraflsins og þess óræða. Margir Fiskar fínna fyrir sterkri þrá til ein- hvers æðra, til guðdómsins og andlegs veraleika. LJOSKA l'aiom OSS SJARÉTT 111' . Od/SCINIQ y *c~ TOMMIOG JENNI FERDINAND VOUR GRANPFATHER LEP THE 6REAT MI6RATI0N OF '79.. ACTUALLY, I MAPE IT ALL UP..THERE LUA5 NO MI6RATI0N OF '79, ANP I PON'T EVEN KNOL) LUHERE THE CITV HALL 15 ' Ég fletti því upp I ráð- húsinu... Afi þinn var foringi í hópfluginu 1979. Þú getur verið mjög stclt af honum. í sannleika sagt skáldaði ég þetta... það var ekkert hópflug 1979, og ég veit ekki einu sinni hvar ráðhúsið er! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þrátt fyrir opnun vesturs á sterku grandi teygðu N/S sig upp í sex spaða, sem vestur gat ekki stillt sig um að dobla: Norður ♦ 54 ♦ Á43 ♦ ÁG ♦ Á65432 Vestur Austur ♦ KGIO 432 ♦ KDG llllll V 109872 ♦ K1098 ♦ 76 ♦ KDG ♦ 10987 Suður ♦ ÁD9876 ♦ 65 ♦ D5432 ♦ - Sagnir era of fáránlegar til að hafa eftir en úrspilið er þeim mun athyglisverðara. Vestur byijar á hjartakóng. Ef sagnhafí reiknar með að vestur eigi spaðakónginn þriðja er eini möguleikinn að vinna spilið sá að endaspila vestur í trompi. En þá þarf fyrst að hreinsa til í hinum litunum. Hjartakóngur- inn er drepinn með ás, hjarta hent í laufásinn, hjarta trompað heim og tígli svínað. Síðan stytt- ir sagnhafí sig heima með því að stinga lauf og hjarta og trompar í millitíðinni tvo tígla í borðinu. Þegar þtjú spil era eftir er staðan þessi: Norður ♦ - ¥- ♦ - ♦ 654 SMÁFÓLK Vestur ♦ KG10 ¥- ♦ - ♦ - Austur ♦ 32 ♦ - ♦ - ♦ 10 Suður ♦ ÁD ♦ D ♦ - Vestur verður að trompa tíg- uldrottninguna og gefa sagn- hafa tvo siðustu slagina. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Þessi staða kom upp á Reykja- víkurskákmótinu í viðureign þeirra Lárusar Jóhannessonar, sem hafði hvítt og átti leik, og Áskels Arnar Kárasonar. m, á JL *■ »■ ■ £J| Wt&WI, fH B ( ÁW f ú m m m%m& 24. Hxe5! - Bxe5, 25. Re7+ - Kh8, (Eða 25. - Kg7, 26. Bh6+ og svarta drottningin fellur) 26. De3 og svartur gafst upp, þvi hann á enga viðunandi vöm við hótuninni 27. Dh6 mát.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.