Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIЄSyNNUDAGUR 23- FEBRÚAR 1986
47
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
IflLAUSAR STÖÐUR HJÁ
M REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Skrifstofumaður óskast á skrifstofu
gatnamálastjóra. Góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar veitir yfirverkfræðingur
gatnamálastjóra í síma 18000.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 3. mars nk.
Afgreiðslustúlkur
Óskum eftir afgreiðslustúlku hálfan daginn
frá 13.00-18.00. Yngri en 25 ára kemur ekki
til greina. Snyrtimennska, kurteisi og þægi-
legt viðmót skilyrði.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 10.00-18.00.
boulique
rn.imaima
Nýja Kjörgarði,
Laugavegi 59, 2. hæð.
Þroskaþjálfar
uppeldisfulltrúar
Svæðisstjórn Reykjanessvæðis starfar að
málefnum fatlaðra skv. lögum nr. 41/1983.
Verkefni Svæðisstjórnar eru fjölþætt og yfir-
gripsmikil.
Eitt af verkefnum Svæðisstjórnarinnar er að
annast rekstur sambýla og eru nú starfandi
tvö slík á svæðinu, þriðja sambýlið mun hefja
starfsemi í byrjun apríl nk. Sambýli er heim-
ili fámenns hóps fatlaðra í almennum íbúðar-
hverfum og skulu þau líkjast venjulegum
heimilum að svo miklu leyti sem unnt er.
Sambýlishugmyndin byggir á því að litlar
heimiliseiningar skapi aukna þroskamögu-
leika.
Á sambýlinu verður lögð áhersla á fagleg
vinnubrögð, jafnræði og góðan starfsanda.
Svæðisstjórn óskar eftir að ráða þroskaþjálfa
og uppeldisfulltrúa á þetta nýja sambýli sem
verður annað hvort í Kópavogi eða Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
Svæðisstjórnar eða forstöðumaður hins nýja
sambýlis á skrifstofutíma í síma 651692.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVlK
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Efna(verk)fræðingur
— matvæla-
(verk)fræðingur
Iðntæknistofnun fslands vill ráða tvo sér-
fræðinga, annars vegar efnaverkfræðing eða
efnafræðing og hins vegar matvælafræðing
eða matvælaverkfræðing, vegna aukinna
verkefna fyrir íslensk fyrirtæki í efna- og
matvælaiðnaði.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi störf.
Verkefnin eru m.a. fólgin í vöru- og ferlis-
þróun, prófunum og gæðaeftirliti, nám-
skeiðahaldi og ráðgjöf ásamt hagnýtum
langtímarannsóknum á efnum og ferlum.
Leitað er eftir dugmiklum og áhugasömum
starfsmönnum, sem geta unnið sjálfstætt.
Reynsla af störfum í iðnfyrirtækjum æskileg.
Umsóknum skal skilað til Iðntæknistofnunar
íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík, fyrir 10.
mars nk. á umsóknareyðublöðum, sem fást
hjá stofnuninni. — Upplýsingar veitir Rögn-
valdur S. Gíslason yfirverkfræðingur í síma
(91)68-7000.
Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækniþróun og aukinni fram-
leiöni í islenskum iönaöi meö þvi aö veita einstökum greinum hans og
iönfyrirtækjum sórhæfða þjónustu á sviði tækni- og stjórnunarmála, og
stuöla aö hagkvæmri nýtingu íslenskra auölinda til iönaðar.
Fjórðungssjúkrahúsið
á ísafirði
Röntgentæknar
— röntgentæknar
Óskum að ráða nú þegar röntgentækni til
afleysinga.
Húsnæðitilstaðar.
Upplýsingar veitir Samúel Samúelsson lækn-
ir, alla virka daga milli kl. 8.00 og 12.00 í síma
94-3811.
RÍKISSPÍTALARNIH
lausarstöður
. »
Sérfræðingur í almennum lyflækningummeð
ónæmisfræði sem undirsérgrein óskast
við ónæmisfræðideild Landspítalans. í starf-
inu felast nokkrar starfsskyldur við lyflækn-
ingadeild Landspítalans. Umsóknir á um-
sóknareyðublöðum fyrir lækna sendist
stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 24. mars nk.
Upplýsingar veitir yfirlæknir ónæmisfræði-
deildar í síma 29000.
Sérfræðingur í nýrnasjúkdómum óskast við
lyflækningadeild Landspítalans í 25 til 40%
starf. Umsóknir á eyðublöðum fyrir lækna
sendist stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 24.
mars nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður lyflækn-
ingadeildar í síma 29000.
Sérfræðingar í almennum skurðlækningum
og hjartaskurðlækningum óskast í 50% starf
til afleysinga við handlækningadeild Land-
spítalans.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir
lækna sendist stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir
24. mars nk.
Sérfræðingur í almennum skurðlækningum
óskast í 50% starf til afleysinga við hand-
lækningadeild Landspítalans.
Umsækjandi skal hafa starfsreynslu við smá-
sjáraðgerðir (microkirugiu).
Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir
lækna sendist stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir
24. mars nk.
Upplýsingar vetir forstöðumaður handlækn-
ingadeildar í síma 29000.
Sendimaður óskast í 50% vinnu á vakt- og
flutningadeild Landspítalans. Vinnutími kl.
12-16 virka daga.
Upplýsingar veitir verkstjóri vakt- og flutn-
ingadeildar í síma 29000.
Deildarritari óskast við skurðdeild Land-
spítalans í fullt starf.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Land-
spítalans í síma 29000.
Læknaritari óskast við göngudeild geðdeild-
ar Landspítalans. Stúdentspróf eða hliðstæð
menntun áskilin ásamt góðri vélritunar- og
íslenskukunnáttu.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri Geðdeildar
Landspítalans í síma 29000.
Reykjavík 23. febrúar 1986.
Hagvangur hf
- SÉRHÆF4Ð RÁÐNINGARRJÓNUSTA
BYGGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐL
Deildarstjóri
tölvudeild (631)
Starfssvið: Stjórnun, skipulagning og áætl-
anagerð í sambandi við daglegan rekstur.
Stefnumótun í tölvuvæðingu og notkun. Ráð-
gjöf gagnvart notendum.
Við leitum að manni með góða þekkingu/
menntun á tölvusviði. Hann þarf að geta
stjórnað og rekið tölvudeildina þannig að
starfsemi hennar þjóni hagsmunum stofnun-
arinnar sem best á hverjum tíma.
í boði er áhugavert starf. Laust eftir mánaðar
samkomulagi. Vinsamlegast sendið skrifleg-
ar umsóknir á eyðublöðum sem liggja frammi
á skrifstofu okkar eða hafið samband við
Holger Torp fyrir 1. mars næstkomandi.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARPJÓNUSTA
GRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: 83666 - 83472 - 83483
Rekstrar- og tækniþjónusta Namskeiðahald
Markaðs- og söluráðgjöf TölTuþjónusta
Þjóðhagfræðiþjónusta Ráðningarþjónusta
Skoðana- og markaðskannanir
Þórir Þorvarðarson
Katrín Óladóttir og Holger Torp.
Barnagæsla —
Vesturbær
Barngóð kona óskast til að annast 2 börn
(9 mánaða og 10 ára) og vinna létt heimilis-
störf eftir samkomuiagi. Upplýsingar í síma
13262.
Skrifstofustarf
Opinber stofnun óskar eftir starfskrafti til
spjaldskrárfærslu, ritvinnslu og annarra al-
mennra skrifstofustarfa.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Vinsamlegast sendið upplýsingar til augld.
Mbl. merktar: „S-8686".
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Siðumúla 13 — 105 Reykjavík. Sími 82970
Kerfisfræðingur/
forritari
Fyrirtækið er ungt og vaxandi á sviði hug-
búnaðar.
Starfið felst í kerfissetningu og forritun.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi reynslu
í RPG forritunarmáli, ásamt reynslu eða
menntun á viðskiptasviði. Þarf að geta unnið
sjálfstætt.
Vinnutími er frá kl. 9.00-17.00 eða eftir nán-
ara samkomujagi.
Umsóknarfrestur er til 28. janúar nk. Æski-
legt er að umsækjendur geti hafið störf sem
fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
AUeysinga- og ráðnmgaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavórðustig' la - iOt Reykjavik - Simi 621355