Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
Afmæliskveðja:
Jensína Halldórs-
dóttir skólastjóri
Það tel ég til sérlegs atburðar á
árinu 1985, er frk. Jensína Hall-
dórsdóttir hefur sett Húsmæðra-
skóla Suðurlands í síðasta sinn.
Nýlega er það afmæli hennar
liðið, sem opnar nú hveijum og
einum, er þeim tíma nær, ný þátta-
skil á starfsævi.
Langan og gæfuríkan starfsdag
hefur hún að baki. Hún hafði enn
ekki náð hinu lögboðna fríi, þegar
nýtt skólaár byijaði. Hún hélt því
skólastjóm ótrauð áfram, eins og
lög gera ráð fýrir, og sýnir það ást
hennar á því starfi, sem hún helgaði
alla krafta sína ung að árum.
Það tel ég eftir löng kynni af
skólastjóra Húsmæðraskóla Suður-
lands, að það hafi verið mikið happ
fyrir Laugarvatn, þegar Bjami
Bjamason, skólastjóri, réð tvær
ungar stúlkur að sínum nýstofnaða
húsmæðraskóla, þær frk. Jensínu
og frk. Gerði Jóhannsdóttur. Jens-
ína varð skólastjóri og frk. Gerður
aðalkennari.
Jensína hafði óhagganlega ró
með fögru ljúflyndi, en Gerður eins
og vorblærinn, léttur og hraður,
gleðjandi ogglaður.
Þeirra samstarf var framúrskarandi
farsælt og gott og entist þar til
Gerður gifti sig og fór til Reykjavík-
ur.
Stúikumar sungu: „Gerður og Jens-
ína“, glöðum rómi.
Ekki var að furða f raun og vem,
þótt farsælt yrði þeirra skólasystra
samstarf, þar sem þeirra markmið
var ekki eingöngu að kenna ungum
stúlkum flest það, sem góða hús-
móður má prýða og kennt verður,
heldur einnig og ekki síður að gleðja
bæði einstaklinginn og samfélagið
í skólanum, því að gleðin gerir allt
starf auðvelt.
Mér er það minnisstætt, þegar ég
sá skólastjóra Húsmæðraskóla
Suðurlands í fyrsta sinn. Hún kom
að skólasetningu Héraðsskólans.
Hún vakti mjög athygli mína, þessi
fallega, brúnhærða, granna stúlka
með fögur, blá augu, dökk.
Hún var hlédræg og aðlaðandi f
senn. í hljóðleika sínum komst hún
ekki hjá því að eftir henni væri
tekið. Eg fékk að vita það á eftir,
hver hún var. Líka minnist ég þess,
þegar þær, hún og Gerður, buðu
okkur hjónunum heim, hvað ég var
eiginlega feimin við þær báðar,
undir niðri. Enda var alltaf einhver
fagur og rismikill hátíðarblær yfir
öllum skólanum og þurfti ekki nein
stórkostleg húsakynni til. Sá svipur
var þó ekki síst yfir sérstöku heim-
boði.
Hér var að baki innlifun lista-
mannsins, fegurðarsýn komin inn í
hversdagsleikann, driffjöður alls,
listin í verki, því að frk. Jensína á
ríka listamannsgáfu til myndlistar.
Rithönd hennar er mjög fögur og
sérstæð.
Hvar sem hún leggur hönd að
verki kemur myndlistargáfan fram.
Ég tók eftir því síðar, vetur eftir
vetur, hvað ungu stúlkumar breytt-
ust strax frá hausti til áramóta.
Þær urðu fijálsar í fasi og öruggar
í framkomu. Margar þeirra komu á
fyrri tíð úr „einvistum fjalla og
stranda". (E.B.) — Það var að jafn-
aði glæsilegur hópur, sem kvaddi
skólann hvert vor.
Áhrif forstöðukonu og kennara
urðu fastari og mótuðu meira allan
hópinn í hinum allþröngu húsa-
kynnum í Lind, þar sem ár eftir ár
var yfirfullt hús, 32—35 nemendur,
heldur en síðar í miklum sölum og
húsrými nýja skólans.
Aðsókn að honum fyrstu árin
sprengdi þó af sér stærðina. Nem-
endur urðu fleiri en ráð var fyrir
gert. En ekki vil ég segja, að hin
góða, sterka mótun hafi týnst í
þeim rúmgóðu húsakynnum en
tæpast urðu áhrif skólastjóra og
annarra ágætra kennara jafn örugg
fyrir hvem einstakling eftir að
skólastjóri og yfirkennari fluttu í
Heimaklett og nábýlið varð minna.
„Vinnirðu eitt, þá týnirðu hinu,“
segir Einar Benediktsson. Þröng-
býlið hafði sína kosti vegna þess,
hvað samstarfið var með miklum
ágætum.
Frk. Jensína var afar heppin með
sitt kennaravai. Mjög var látið af
handavinnukennurunum.
Ekkert var í verki sparað tii þess
að efla gleðina og samfélagið. Mikil
var einnig gestrisnin í skólanum,
bæði við nágranna, sem áttu erindi
þangað, og ýmsa þá, sem komu að
Laugarvatni. Biblían sjálf segin
Gleymið ekki gestrisninni, því að
vegna hennar hafa menn stundum
óafvitandi hýst engla.
Það gleymist nokkuð oft í kven-
frelsisumræðum á þessari tíð, hvað
húsmóðir þýðir. Oft hefur fómfysi
húsmóðurinnar bjargað mannslífi,
fullkomlega í eiginlegri merkingu.
Skyldi það nokkm sinni geta
gleymst á Laugarvatni, ellegar í
Laugardal, þegar öll böm af staðn-
um og innan úr Dal voru boðin í
Lind, rétt fyrir jólafrí?
Öll litlu bömin fengu fyrst bam-
fóstm, sem sá um þau, ein fyrir
hvert þeirra — allt kvöldið.
Borð vom dúkuð og skreytt m.a.
með mörgum litlum fánum. Köku-
hús með húsagarði, fólki og dýmm
og tijám stóðu þar á borðum, tertur,
mjög skreyttar og allskonar kökur.
Verðandi húsmæður höfðu lært
jólabaksturinn. Þær lærðu líka að
taka á móti gestum, bæði stómm
og smáum.
Þegar súkkulaði hafði verið
dmkkið með öllu, sem þar heyrði
til, þá var opnað inn í salinn, þar
sem fagurgrænt, mikið, alskreytt
jólatré blasti við.
Erindi jólanna gleymdist ekki.
Nú var öllum bömunum raðað
þar í kring, sunginn sálmur með
undirspili og presturinn var beðinn
að lesa jólaguðspjallið. Síðan sung-
inn sálmur.
Svo var gengið í kring um tréð.
Þá vom fyrst sungnir jólasálmar.
En síðan ýmisleg léttari lög með
hringleik. Og síðast fengu bömin
góðgæti og epli.
Þama vom að verki „ríku“ kenn-
aramir, sem hvorki spömðu sitt
eigið fé né fyrirhöfn til þess að
gleðja bömin og allt samfélagið í
skóla og nágrenni.
Ég minnist gleðinnar í bamaskól-
anum, þegar jólaboðið kom á þeim
dögum, sem ég var skólastjóri
Laugardalsbamaskóla, og síðar, er
ég var þar kennari.
Það þótti tignarleg sjón, þegar
skari af hvítskeggjuðum rauð-
klæddum jólasveinum sást allt í einu
koma á hvítri fönn eða föli, gang-
andi með stóran staf einhverstaðar
ofan úr §öllum á einum af síðustu
skóladögum fyrir jól, og þeir komu
með falleg boðskoit, sem stúlkumar
í Lind, síðar nýja skólanum, höfðu
teiknað og buðu til jólafagnaðar í
Húsmæðraskóla Suðurlands.
Þegar rauðklæddi skarinn sást,
þá urðu öll bömin að fá að fara út
að glugganum í gangi nýja bama-
skólans til þess að horfa á þessa
gesti.
Tilhlökkun bamanna var mikil,
og ég held helst engu síður okkar
kennara skólans.
Hér með sendi ég frk. Jensínu
og hennar kennurum innilegustu
þakkir fyrir skólabömin okkar.
Þakkir fyrir ríkidæmi hjartans.
Mjög hafa nemendur Húsmæðra-
skóla Suðrlands haldið föstu sam-
bandi við skóla sinn. Þær hafa
komið þar á tug-afmælum sínum.
Hið sameiginlega aðdráttarafl var
þar fyrir hendi, alltaf sömu alúð
að mæta. Innileiki og fómfysi eru
sameiningar-afl. „Hin gömlu kynni
gleymast ei.“
Frétt hef ég, að nú síðast hafi
margir fulltrúar frá öllum ár-
göngum skólans komið á afmæli
frk. Jensínu í haust. Þær bám þar
fram þá skemmtilegu og snjöllu
hugmynd, að þær vildu kaupa í
sameiningu til eignar sína gömlu
Lind. Þær langar til að endurreisa
það hús að öllu leyti eins og það
var, halda því við og mætast þar.
Á þennan sérstæða hátt vilja þær
heiðra skólastjóra sinn, frk. Jensínu
Halldórsdóttur, og minningu sinna
fyrstu kennara, sem gerðu garðinn
frægan.
Betri minningu geta þær ekki
gefið sinni forstöðukonu.
Betur geta þegnar Laugarvatns
ekki launað frk. Jensínu fyrir þær
yndisstundir, sem böm og fiillorðnir
nutu í Lind, en með því að styrkja
þessa hugmynd nemendanna
gömlu, sem allir vom ásamt for-
stöðukonu og kennumm þátttak-
endur i því mikla starfi, sem af
hendi var fagurlega leyst, til þess
að gleðja öll böm í Laugardal hvert
ár fyrir jól.
Kæru Laugvetningar, styðjið
hugmyndina, að hún verði fram-
kvæmd.
Það er skemmtilegt, að skóla-
minning skuli vera svo hugstæð og
góð, að nemendur vilji leggja á sig
mikið starf til þess að fá að ganga
raunvemlega um sali minninganna.
Og það er svo sjaldfengið, að gólf
og veggir minninganna séu ekki
reykur einn, þegar inn er stigið.
Áþreifanleg minning æskunnar síð-
ar meir er sjaldfengin.
Þetta tryggðardæmi sýnir að
náin kynni af skólastjóra þeirra og
öðmm góðum kennurum hafa borið
mikinn ávöxt í vom þjóðlífi.
Ég óska þeim ungu stúlkum til
hamingju, sem nú fá síðastar enn
að njóta hinnar sérstæðu hand-
leiðslu núverandi skólastjóra Hús-
mæðraskóla Suðurlands. Þessi skóli
hefur haldið velli í öllum áróðurs-
herferðum gegn þessum fyrstu
verknámsskólum íslands fyrir kon-
ur.
Ég óska frk. Jensínu, skólastjóra
Húsmæðraskóla Suðurlands, inni-
lega til hamingju með margfaldan
árangur af fagurlega unnu ævi-
starfi, sem borið hefur og bera mun
mikinn ávöxt í þjóðlífi vom á
komandi tíð. Því að þær ævistundir,
sem aldrei vom reiknaðar til pen-
ingaverðs, em alltaf það framlag
einstaklingsins, sem mestum arði
skilar til þjóðlífs og þjóðmenningar,
bæði á yfirstandandi og ókominni
tíð.
Jensína eyddi miklum óskráðum
og óborguðum tíma fyrir sitt skóla-
starf. Hvorki var þar heldur sparað
eigjð fé né fyrirhöfn, til þess að
gleðja nemendur, böm og samfélag.
Þakklátur hugur fylgir hinni síð-
búnu afmæliskveðju frá húsi mínu.
Rósa B. Blöndals
Slökkvilið-
ið kvatt að
Alafossi
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kvatt að Álafossverksmiðjunni í
Mosfellssveit um klukkan sjö i
gærkvöldi.
Hitnað hafði í ullartætara á efri
hæð gamla verksmiðjuhússins og
glóð komist í gegnum loftstokk í
ullarþvottavél sem var á neðri
hæðinni. Glóð komst einnig í vegg-
klæðningu og urðu slökkviliðsmenn
að rífa niður stokkinn. Skemmdir
urðu mjög litlar, enda hafði starfs-
mönnum tekist að slökkva eldinn
að mestu áður en slökkviliðið kom.
I BEINTFUIG
ISÓISKINID
Alls verða famar tíu ferðir til Benidorm í sumar, flogið er í beinu leigu-
flugi. Gistimöguleikar eru allmargir, íbúðir eða hótel og mismunandi verð-
flokkar. Páskaferð 26. marz, 2 vikur.
Njótið þess að fara til Benidorm á ströndina hvítu,í ósvikna tveggja,
þriggja eða fjögurra vikna sólarlandaferð á eina bestu baðströnd Spánar.
Blessuð sólin skín allan daginn og það er bara ekkert notalegara en að láta
hana baka sig. Gleðjið sál og líkama og kynnist götulífinu með kaffihúsum
og sölubúðum. Rannsakið næturlífið: Kitlandi diskótek eða rökkvaða og
rómantíska dansstaði.
FERÐA.. Cuitcaí
MIÐSTÖDIIM JtíMd
AÐALSTRÆTI 9 ■ SÍMI 28133 • REYKJAVÍK
mars
APRÍL
2 vh~H3-\
Uyíu£\
]ÚLÍ
6121117II
y v [EBI J _ Lyðvoldisdagutirin^^B
ÁGÚST W;SEPTEMBER H SEPTEMBER |
2211212 23
3 VÍKUH. ■ 3 Vifídf