Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 62
82
MORGUNBLAÐIÐ; SUNNUDAGUR 23. FEBROAR1986
Tölvunámskeið
FRAM
INNRITUN:
Tölvunám er fjárfesting í framtíð þinni
Innritun og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Félögum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
skólans í Síðumúla 27, Reylqavík, og í símum skal bent á að VR styrkir félaga sína til þátttöku
39566 og 687434 frá kl. 9:00 til 17:00. á námskeiðum hjá Tölvuskólanum Framsýn.
Flotið að
feigðarósi
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
TÓNABÍÓ — í trylltum dans
— Dance with a Stranger ☆
☆ ☆
Leikstjóri Mike Newell.
Framleiðandi Roger Randall-
Cutler. Handrit Shelagh Del-
any. Kvikmyndataka: Peter
Hannan. Tónlist: Richard
Hartley. Aðalhlutverk Mir-
anda Richardson, Rubert
Everett, Ian Hohn, Matthew
Caroll, Tom Chadbon, Jane
Bertish. Bresk, frá Goldcrest
1985.
í trylltum dans er döpur
mynd um persónur dæmdar í
glötun. Burðarásinn er barstýr-
an Ruth Ellis (Miranda Ric-
hardson), glæsileg og lokkandi,
tveggja bama fráskilin móðir.
Hún kynnist árið 1953 veiklyn-
duðum kvennabósa og ökuþór
og eiga þau stormasamt ástar-
samband um tveggja ára skeið.
Því lýkur með því að Ruth skýt-
ur hinn ótrygga ástvin sinn til
bana. Refsingin dauðadómur
sem jafnframt var hinn síðasti
sem fullnægt var á Bretlandi.
Inní söguna fléttast vinur
Ruth, aðdáandi og bakhjarl,
Desmond Cussen (Ian Holm).
Hann nýtur aldrei þráðrar hrifn-
ingar sinnar ljóshærðu draum-
sýnar en sér einn fyrir ógæfuleg
endalok fylgilags sem flýtur að
feigðarósi. Og fær ekki rönd við
reist.
Úr þessu nöturlega efni hefur
listapenninn Shelagh Delaney
(Hunangsilmur) skrifað safaríkt
handrít um veraldarvol lán-
lausra einstaklinga, sem láta
stjórnast af ofbeldi, afbrýði og
blindum tilfínningum fremur en
að klóra sig framúr aðsteðjandi
vandamálum og hlita góðra
manna ráðum.
Til að leika þetta hversdags-
fólk í vanda hafa yfírleitt verið
valdir góðir leikarar. Þau Mir-
anda Richardson og Ian Holm
eru hreint út sagt Óaðfínnanleg.
Þá er Andy umkomulaus og
skelkaður í túlkun nýliðans
unga, Matthew Carroll. Yfír-
bragð Everetts hentar vel.
í flesta staði er í trylltum
dans athyglisverð mynd sem
fengur er í. Hér hafa verið
dregnir fram í sviðsljósið átak-
anlegir atburðir úr gráleitu lífí
almúgafólks og Delaney valið
þann góða kost að segja söguna
umbúðalaust. Fylgja atburðar-
ásnni eins og hún hefur líklegust
verið og kveða ekki upp neina
dóma.