Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
4-
Útvarpsráð:
Ráðið í stöðu
frétta- og dag-
skrárgerðar-
manns á
Vestfjörðum
Á SÍÐASTA fundi útvarpsráðs
var samþykkt tillaga Markúsar
Arnar Antonssonar um að ráða
Finnboga Hermannsson í hálfa
stöðu frétta- og dagskrárgerðar-
manns á Vestfjörðum.
Finnbogi hefur starfað að dag-
skrárgerð fyrir ríkisútvarpið á
Vestfjorðum. Ætlunin er að koma
upp svipaðri aðstöðu fyrir frétta-
og dagskrárgerð á Isafirði og þegar
er komin á Egilsstöðum.
Þá var kynnt á fundinum fjár-
hagsáætlun fyrir dagskrárgerð sem
gerir ráð fyrir aukinni fjárhæð til
innlendrar dagskrárgerðar. Sótt
hefur verið um hækkun afnota-
gjalda til að mæta þeim kostnaði.
Ef auglýsingatekjur minnka ekki
verður töluvert fjármagn til inn-
lendrar dagskrárgerðar en hvemig
því verður varið í einstökum liðum
hefur ekki verið tekin ákvörðun um,
að sögn Markúsar Amar Antons-
sonar útvarpsstjóra.
Farnir til Sviss
íslenska landsliðið í handknattleik hélt snemma í gærmorgun til Sviss með Amarflugsvél. Heimsmeistarakeppnin hefst á þriðjudag
og þá mæta íslendingar Suður-Kóreumönnum. Á miðvikudag leikur ísland svo við Tékkóslóvakiu og gegn Rúmeniu á föstudag.
Landsliðsmennirair sjást hér fyrir utan flugvélina í gærmorgun ásamt þjálfara og fararstjórum skömmu áður en haldið var í loftið.
dótturfyrirtækis Norsk Hydro, sem
á 43% og bænda, sem eiga 5%. Á
aðalfundi Fiskiræktar sem haldinn
var sl. föstudag var ákveðið að
auka hlutafé félagsins um 18 millj-
ónir íslenskra króna til að verða við
óskum Norðmannanna. Hlutafé
Fiskiræktar verður þá 54 milljónir.
Tilraunir í fiskirækt hafa staðið
yfir í Kelduhverfi sl. 6 ár, og að
sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
stjórnarformanns Fiskiræktar og
ísnó, hafa þær borið mjög góðan
árangur.
Eyjólfur sagði ennfremur að nú
væri til skoðunar ítarleg skýrsla og
áætlanir um byggingu 4.000 tonna
laxeldisstöðvar við Kistu á Reykja-
nesi. Skýrsla þessi er unnin af A/S
Mowi og Norsk Hydro fyrir Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, ísnó
hf., Sjóefnavinnsluna og Fiskirækt
hf. Eyjólfur sagði að niðurstaða
skýrslunnar væri þess eðlis að úti-
lokað væri annað en ráðast í fram-
kvæmdir, hvort sem Norðmenn
yrðu með eða ekki. „Meira get ég
ekki sagt, þar sem skýrslan er trún-
aðarmál, annað en það að stöðin
mun kosta um einn milljarð ís-
lenskra króna og flytja árlega út
fyrir sömu upphæð. Það yrðu hrein-
ar gjaldeyristekjur, þar sem allur
rekstarkostnaður er innlendur. Mín
skoðun er sú að hér sé áreiðanlega
um að ræða mikilvægasta stórverk-
efnið sem Islendingar geta tekist á
við,“ sagði Eyjólfur Konráð Jóns-
O
INNLENT
Eyrarbakkí:
Grindvíkingur fyrstur íslenzkra skipa til að frysta loðnu og hrogn um borð:
Handtökin mörg
og lítið er sofið
— gengur annars áfallalaust fyrir sig,
segir Willard Ólafsson, skipstjóri
FRYSTING loðnu og loðnuhrogna um borð í Grindvíkingi gengur
þokkalega og á laugardag höfðu 35 Iestir af loðnu verið frystar
og frysting hrogna var að hefjast. Grindvikingur er fyrsta ís-
lenzka nótaskipið, sem frystir þessar afurðir um borð og eykur
það verðmæti mögulegs afla verulega að sögn skipstjórans, Will-
ards Ólasonar.
Grindvíkingur hóf þessa fyrstu
reynsluveiðiferð aðfaranótt mið-
vikudagsins og byijaði veiðar í
Reykjanesröst en flutti sig síðan
vestur undir Jökul. Morgunblaðið
náði talstöðvarsambandi við skip-
stjórann Willard Ólason á laugar-
dag. Hann sagði þetta ganga
áfallalaust, en ýmis ljón væru þó
í veginum, eins og við væri að
búast við upphaf flókinnar vinnsiu
um borð í fiskiskipi. Byijað hefði
verið á heilfrystingu loðnu og
flokkun og frysting gengi vel, en
ýmsa þætti þyrfti þó að færa til
betri vegar. Heilfrystingunni hefði
hins vegar verið hætt á föstudag
vegna átu í loðnunni og vegna
þess, að hrognin voru farin að
losna. Þá hefðu um 35 lestir verið
fiystar og nýting verið þokkaleg.
Frysting hrogna hefði svo hafízt
á laugardaginn og virtist hún
koma vel út.
„Það eru mörg handtök við
þetta og lítið verið sofið síðan við
fórum út,“ sagði Willard. „Vinnsl-
an er tímafrek og flókin, en veið-
amar í raun minnsti þátturinn.
Okkur nægir að kasta einu sinni
á sólarhring og þó við verðum
með minni skammt en ella eiga
aukin verðmæti að bæta mismun-
Gott að nota góða
veðrið til að
keyra þarann
Selfo«si, 20. febrúar.
YFIR vetrarmánuðina er Eyrar-
bakkahöfn auð og tóm, þar er
ekkert það líf sem einkennir
hafnir á vetrarvertíð og af sem
áður var. Menn í fiskvinnslu á
Eyrarbakka horfa vonaraugum
yfir til sundsins þar sem brúin
yfir Olfusá mun rísa innan fárra
ára.
Þegar svipast var um við höfnina
í dag, var eina lífíð þar að finna
vestan bryggjunnar, en þar var
Reynir Böðvarsson á Breiðabóli að
moka þara í kerru og flutti í kart-
öflugarða 'SÍna. „Þetta er alveg
afbragðs áburður," sagði Reynir,
þegar grennslast var fyrir um hvað
hann væri að bardúsa. „Það er
gott að nota góða veðrið til að keyra
þarann," sagði hann og ennfremur
að hann léti þarann grotna í hrúg-
unum í garðinum, áður en hann
væri tættur niður.
Talið barst að nýju brúnni yfir
ósinn og hversu mikil bót hún yrði.
„Já, það verða nú átök maður þegar
áin ryður sig og ef hann gerir
suðvestan stórviðri á stórum
straumi um leið,“ sagði Böðvar, sem
þekkir veðrahaminn við ströndina á
Bakkanum.
SigJóns.
Reynir Böðvarsson á Breiðabóli
mokar þara i Eyrarbakkafjöru.
Hlutafé ísnó
hf. aukið um
36—40 millj. kr.
Utilokað annað en að ráðast í fram-
kvæmdir á Reykjanesi segir Eyjólfur
Konráð Jónsson
Grindvíkingur búinn til veiða og vinnslu.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
inn upp. Þó mikið megi veiða núna
er kvótinn ekki nægur fyrir svona
afkastamikið skip og því er ekki"
um annað að ræða en auka verð-
mætin eins og unnt er. Loðnan
er nánast verðlaus til bræðslu hér
a landi núna, svo það er tvennt
mögulegt, að sigla og fá þrisvar
sinnum hærra verð og ódýrari
olíu, eða margfalda verðmætin á
þennan hátt. Mér lýst vel á þetta,
þó við virðumst búnir að missa
af heilfrystingunni, hrognin eru
eftir og svo kemur vertíð eftir
þessa vertíð. Við erum að gera
meira úr því, sem við höfum, en
áður, það hlýtur að vera stefnan,"
sagði Wiilard Ólason.
Á AÐALFUNDI fiskiræktarfyr-
irtækisins Isnó sem haldinn var
á föstudaginn í fyrri viku óskuðu
norsku hlutafarnir, A/S Mowi,
eftir þvi að hlutafé yrði aukið
um 6 milljónir norskra króna til
að hraða uppbyggingu í Lónum
í Kelduhverfi.
ísnó er sameignarfélag Fiski-
ræktar hf. — fjárfestingarfélags um
fiskirækt — sem á 52%, A/S Mowi,