Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 1
ðfioi 51 Aöaas'i .csauöAdUKMUS .aiUAJavíuoflOM
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
BLAÐ
fimmtudaginn sagði Morgunblaðið frá því, að Yelena
Bonner, eiginkona Andreis Sakharov, hafi fengið leyfi
til að dveljast á Vesturlöndum til 2. júní. Hún beið þessa
leyfis í nokkurri eftirvæntingu, þar sem ella hefði hún
orðið að snúa aftur til Sovétríkjanna fyrir 2. mars, en
þá eru þrír mánuðir liðnir frá því hún flaug frá Moskvu
til Rómar. Síðan hefur hún gengið til lækna og er á
batavegi. Sakharov dvelst einn og einangraður í Gorkí. Hann getur yljað
sér við minninguna um sigur yfir KGB í baráttunni um ferðaleyfi handa
Yelenu.
í dag birtir Morgunblaðið síðari hluta Gorkí-bréfa Sakharovs, þar sem
hann lýsir því, hvernig hann vann sigurinn yfir KGB i þessu máli. Sumir
telja, að sovéska öryggislögreglan ætli að hefna sín á honum. Fjölskylda
Sakharovs bíður milli vonar og ótta. Aðrir eru þeirrar skoðunar, að hann
kunni að verða látinn laus á næstu mánuðum. Því var til dæmis haldið
fram i þýska vikuritinu Der Spiegel, sem er eitt fjölmargra blaða og tima-
rita, sem hafa birt þessi merkilegu gögn um sovéskt harðræði og grimmd.
Nú um þessa helgi birtist sá hluti Gorki-skjalanna, sem hér er kynntur, i
fyrsta sinn.
Breska vikublaðið The Observer fékk einkarétt á birtingu bréfanna
frá Gorkí, sem bárust fjölskyldu Sakharovs í Bandarikjunum eftir ókunnum
leiðum. Hún dregur heimildagildi bréfanna ekki í efa. Þau eru ómetanlegur
vitnisburður um atvik, sem áttu að fara leynt. Hér er stuðst við samantekt
Nicholas Bethell, sem ritar í The Observer. Hann er breskur lávarður og
á sæti á Evrópuþinginu fyrir íhaldsflokkinn. Hann er formaður nefndar
þingsins, sem fjallar um mannréttindi. Bethell er kuniiur rithöfundur og
þýðandi, meðal annars á verkum Alexanders Solzhenitsyn.
Sjá næstu síðu.
Bréf Sakharovs frá Gorkí:
Allt lagt í
sölurnar fyrir frelsi
handa Yelenu
Flokkurinn guggnaði að lokum og skipaði KGB að gefa eftir
Andrei Sakharov og Yelena Bonner. Á myndinni stendur: í bænum Gorkí árið 1985. Minni myndin er
tekin, áður en Sakharov hóf hungurverkföllin í baráttunni fyrir rétti konu sinnar.