Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBMÐIÐ, SUNNUDAGUR 23: PEBRÚAR1986
B 13
Fátækrabústaður í sveit á Filippseyjum.
geta þau helst fengið góð störf,
þess vegna eru háskólar geysistórir
og fjölmennir. í Manila er mjög
gamall háskóli, ívið eldri en Harvard
háskóli. Nemendurnir skipta tugum
þúsunda. Miðað við núverandi at-
vinnuástand er alltof mikið af
menntafólki. Maður hitti fyrir leigu-
bílstjóra sem voru verkfræðingar
aðmennto.þ.h.
Fólksf lótti mikill úr landinu
Það er gífurlegur fólksflótti út úr
landinu. Allir vilja komast til
Bandaríkjanna en það er takmark-
aður hópur sem þangað kemst.
Margir fara því til arabalandanna
í kring. Þangað fara verkfræðingar,
hjúkrunarfræðingar, lyfjafræðingar
og fleiri. Að sögn hrekjast konur á
Filippseyjum oft út í vændi og ég
heyrði talað um að þær réðu sig
oft til Japan undir því yfirskini að
þær ættu að starfa sem þjónustu-
stúlkur en raunverulega færu þær
til að starfa í vændishúsum.
í mínu starfi hafði ég mest skipti
við meinatækna og yngri lækna sem
unnu við krabbameinsdeildina.
Meðal þessa fólks var oft íjörugt
og menn buðu hveijir öðrum heim
til sín í átveislur (kamayan). I slík-
um veislum borða menn kjöt og
hrisgrjón. í stað diska nota menn
bananablöð og í stað áhalda eru
guðsgafflarnir brúkaðir.
Drykkjuskapur er lítill
Vatnið er ágætt á Filippseyjum
og mikið drukkið, a.m.k í Manila.
Vín er lítið notað, hins vegar er
bjór drukkinn og er góður. Bjórinn
heitir cervweza sem er spánskt
heiti, eitt af fáum sem eftir lifir.
Opinbera tungumálið er byggt á
einni af ótal mállýskum eyjanna,
Tagalog, en enskan er mjög mikið
töluð. Nokkrar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar senda út á ríkismálinu
en enskan er aðal viðskiptamálið.
Helstu dagblöð eru á ensku, það
er einnig sent út efni á ensku í
útvarpi og sjónvarpi. Sjálfsagt er
til drykkjuskapur á Filippseyjum en
ég sá lítið af slíku þó engin höft
séu á vínsölu þarna. í Manila eru
næturklúbbar og er þar leikin mjög
hávær diskótónlist. Fólk á Filipps-
eyjum hlustar nær eingöngu á
poppmúsik. Ég fór sárasjaldan á
skemmtistaði. Fólk hefur yfirleitt
ekki efni á að stunda að ráði slíka
staði, helst að karlmenn fari út og
fái sér bjór og spili billjard. Kvik-
myndahús eru mörg og fólk fer
talsvert í bíó. Mikið er um myndir
gerðar á Filippseyjum, mest hasar
og ástarmyndir. Ég fór aldrei á bíó
en ég sá auglýsingar um myndirnar
og heyrði fólk tala um þær.
Fátæklegt menningarlíf
í Manila, á svæðinu meðfram
ströndinni er mikill fjöldi stórra
hótela sem eru mjög vannýtt um
þessar mundir, því lítið er af túrist-
um þarna. Á þessu svæði hefur
verið töluverð viðleitni til að koma
upp menningarkjarna, tónlistar- og
sýningahöll. Slík starfsemi nær þó
til fárra, deyfð er yfir menningarlíf-
inu og það nær ekki til Ijöldans.
Leikhúslíf var dræmt þegar ég var
á Filippseyjum.
Dauðhræddur við að
hreyfa hendurnar
Ég sótti flestar skemmtanir lítið
enda bjó ég í úthverfí. Einni
skemmtun kynntist ég þó sem er
Einn ótalmargra ávaxtamarkaða
í Manila.
vinsæl á Filippseyjum. Það er hana-
at. Mér fannst dálítið rosalegt að
sjá menn binda spora á hanana,
oddhvassa og langa spora. Hanarnir
sjálfir eru mjóslegnir og hreint ekki
eins pattarlegir og ég bjóst við.
Hanaat er þjóðaríþrótt á Filippseyj-
um og er aðallega fólgin í veðmál-
um. Áður en slagurinn hefst er
komið með hanana inn til áhorfenda
og þeim sýndir þeir svo þeir geti
gert upp við sig hvaða hana þeir
eigi að veðja á. Menn gefa síðan
umboðsmönnum merki um hversu
hátt þeir ætli að veðja og það gera
þeir með því að beina fimm fingrum
annað hvort niður, það þýðir 50
peso, upp, sem þýðir 5000 peso eða
til hliðar sem merkir 500 peso. Ég
var alltaf dauðhræddur við að
hreyfa hendurnar á meðan á þessu
stóð, hræddur við að gefa vitlaus
merki.
Ég var á Filippseyjum á regntím-
anum, þá er veðurfarið þægilegt
fýrir Evrópubúa, mátulega hlýtt
fyrir minn smekk , fyrst þegar ég
kom voru flóð en ég varð lítið var
við þau. Þægilegasti tíminn á
Filippseyjum er þó, að því að mér
skildist, frá nóvember og fram í
janúar, úr því fer að hitna og þorna
og gróður að skrælna.
Marcos og fólkið
Marcos og fjöldskylda hans birt-
ist lítt meðal fólks á Filippseyjum.
Imelda hafði sig þó meira í frammi.
Flestir báru heldur þungan hug til
Marcosar og töldu hann bera
ábyrgð á slæmu efnahagsástandi
og fjármálaóreiðu. Allir sögðu að
eftir morðið á Benito Aquino hefði
allt versnað að miklum mun. Þá
urðu greinilega að allra áliti þátta-
skil í landinu. Stóru fyrirtækin
hættu að fjárfesta á Filippseyjum
og drógu starfsemi sína út úr
landinu. Höll Marcosar er í Manila,
þar vissu menn að hann hafði opin-
berar móttökur en almenningur
vissi ekki hvar hann bjó í raun og
veru. Mér virtist fólk bera einna
mesta virðingu fyrir prestum og
prelátum.
Fróm ósk
Mig langar til að fara til Filipps-
eyja aftur einhvemtíma og hafa þá
meiri tíma fyrir sjálfan mig. Ég ber
í bijósti þá frómu ósk að þessum
málum, sem nú eru í deiglunni á
Filippseyjum, Ijúki á þann veg að
Filippseyingar beri gæfu til að fá
traustan og góðan stjórnanda sem
rétti við efnahagslíf þeirra svo allur
almenningur njóti betri kjara en
hann gerir nú.
Gunnlaugur við kennslu á Filippseyjum.
Textl: Guðrún Guðlaugsdóttir
Útgerðarmenn - skipstjórar
Höfum til afgreiðslu strax, afar vandaðar
amerískar CAT Pumps háþrýstiþvotta-
dælur til hreinsunar á lestum skipa o.fl.
Vinnuþrýstingur 170 bar. Tækin þola
mikinn vatnshita og eru með sápublönd-
un. Dælurnar eru ryðfríar og þola sjó.
Tækin eru fáanleg án vagns til uppsetn-
ingar á vegg. Góð viðgerða og varahluta-
þjónusta.
STALTAK
Borgartúni 25.
105 Reykjavík. Símar 28933 og 28870.
Við höldum áfram með prjóna-
námskeiðin okkar vinsælu og að
þessu sinni verður tekið fyrir
peysuprjón úr spánnýju bandi
sem við nefnum „Flos“.
Álafossbúðin,
Vesturgötu 2,
sími 13404.
Flosið okkar er silkimjúk blanda af ull
og mohair í 12 frábærum tískulitum.
Kristín Jónsdóttir Schmidhauser hand-
menntakennari leiðbeinir.
Skráning og upplýsingar í Álafoss-
búðinni.
Námskeið
Akveðni-þjálfun og
mannleg samskipti
fyrir þá sem vilja læra á markvissan hátt að vera
ákveðnari í framkomu, bæta samskipti sín við aðra og
auka sjálfstraust sitt.
í hópvinnu mun þátttakandi læra:
• Hverjir veikleikar hans og hverjir styrkleikar
hans eru í mannlegum samskiptum.
• Áhrif sjálfsmats hans á framkomu.
• Ákveðnari tjáningarmáta.
Leiðbeinandi:
Baldvin H. Steindórsson
sálfræðingur.
Lengd: Sjö skipti frá kl.
18.00-20.30.
Námskeið I á þriðjudagskvöldum byijar 4. marz.
Námskeið II á fimmtudagskvöldum byijar 6. marz.
Uppl. og innritun í dag kl. 16.00—19.00 og á kvöldin
í s. 671509 og virka daga frá 8.30—12.00 í s. 622442.
Sálfræðistofa
Eg hef nú hætt störfum við geðdeild Landspítalans og
starfa nú við sálfræðistofu mína í fullu starfi.
Baldvin H. Steindórsson, sálfræðiþjónusta,
Austurstræti 10 A, 3. hæð.
Símaviðtalstími kl. 11.00—12.00 í s. 622442,
heimasími: 671509.