Morgunblaðið - 23.02.1986, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.02.1986, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 Iriiia Kristi, vinkona Sakharov-hjónanna, fékk skyndilega brott- fararleyfi frá Sovétríkjunum í maí 1985. Hér sést hún með eigin- manni sínum, Sergei Genkin, og syninum Grigory á flugvellinum við Vínarborg, þegar þau komu vestur fyrir járntjald. Hún var með skeyti frá Gorki í fórum sínum — það reyndist falsað. Úr KGB-kvikmyndinni. Sakharov-hjónin á markaðstorgi í Gorkí. Allt lagt í sölurnar fyrir frelsi handa Yelenu SKOÐANIR Mikhails Gorbachev, sovéska flokksleiðtog-ans, á því, hver skuli vera framtíð Andreis Sakharov sýn ast ótvíræðar. Hann lét orð falla um það í Moskvu fyrir tveimur vikum, að Sakharov feng-i ekki að fara frá Sovétríkjunum, af því að hann þekkti of mörg vísinda-leyndarmál. Hafi þessi ummæli borist eftir ein- hveijum króka- leiðum til dr. Sakharovs, þar sem hann býr nú einn í útlegð í íbúðinni við Gagarín- stræti í Gorkí, koma þau honum ekki á óvart. Sjálfur hefur hann lýst því yfir við sovésk yfirvöld, að hann sætti sig við, að þau kunni aldrei að leyfa honum að ferðast til Vest- urlanda. Frásögnin af því, hvemig þessi yfírlýsing varð til, er í bréfí, sem hann ritaði fjölskyldu sinni í Boston í nóvember sl., en því hefur nú verið smyglað vestur fýrir jámtjald. í því kemur fram, að hann hafði þrek til að hefja nýtt hungurverkfali á árinu 1985, þótt hann hafi tapað samskonar baráttu 1984 (sjá Morg- unblaðið síðasta sunnudag). Hann vann sigur á árinu 1985. Hann vannst þó ekki áfalialaust: Sak- harov var neyddur til þess af KGB að afsala sér rétti til að ferðast til útlanda. „Ég skrifaði og sagðist sætta mig við rétt sovéskra yfirvalda til að neita mér um fararleyfí út fyrir landamæri ríkisins, þar sem ég hef haft aðgang að sérlega mikilvæg- um, hemaðarlegum leynigögnum, sem kunna að hafa gildi enn þann dag í dag.“ I sama bréfí skýrir Sakharov fíá því, að í miðju hungurverkfallinu hafí hann skrifað til Gorbachevs og Iýst fyrir honum þeim skoðunum og stefnu, sem hann hafði tileinkað sér á 5 útlegðarárum sínum. „Ég er tilbúinn að bera ábyrgð á eigin gjörðum, jafnvel þótt ég telji mig beittan rangindum og ólög- um. Hitt er með öllu óbærilegt fyrir mig, að ábyrgð á gjörðum mínum sé varpað á axlir konu minni.“ Og hann gerði Gorbachev ótrú- legt tilboð: „Ég vil gjaman hætta öllum opinberum afskiptum (nema auðvitað í alveg sérstökum undan- tekningartilvikum) og helga mig þess í stað vísindastörfum mínum.“ Frásögn af baráttu Sakharovs hefur aidrei áður birst opinberlega, þótt undarlegt sé. Til þessa hefur KGB varðveitt hana sem leyndar- mál. Þögn akademíunnar Löngu og mælsku bréfí Sak- harovs frá því í október 1984 til Anatoly Alexandrov, forseta sov- ésku Vísindaakademíunnar (sjá Morgunblaðið síðasta sunnudag), var svarað með þögn. Ekki er vitað til þess, að neitt hafi verið gert af hálfu stjómvalda í framhaldi af því. Ekki sáust að minnsta kosti nokkur merki þess í Gorkí. Á hinn bóginn var ekki fallist á úrsögn Sakharovs úr akademíunni. Að því er virðist geta félagar í mikilvægum sovéskum stofnunum ekki sagt af sér. Það er bara unnt að reka þá. Næsta bréf, sem hann ritaði þennan vetur, hafði að geyma áfrýj- un vegna dómsins, sem kveðinn var upp yfir Yelenu, þar sem hún sætti refsingu fyrir að „ófrægja Sovétrík- in“. Eftir að hún hafði verið dæmd í fimm ára útlegð í Gorkí, var henni bannað að ferðast til Moskvu, þar sem hún hitti vini þeirra hjóna. Lögreglan innsiglaði íbúð þeirra í húsi 48B við Chkalov-stræti í Moskvu. Þar voru lögregluþjónar stöðugt á verði. Síminn var fjar- lægður og númerið (227-2720) afhent byggingafyrirtæki. Einmana á erfiðum vetri í áfrýjunarbréfínu til ríkissak- sóknara (9. nóvember 1984) benti Sakharov á, að réttarfarsreglur hefðu verið brotnar. Hann gat vænst þess, að KGB snerist gegn honum af fullri hörku fyrir bragðið. Hann yrði að safna kröftum fyrir nýtt hungurverkfall. Hann yrði að búa sig andlega undir það, að lenda aftur í höndunum á „hjúkrunarkon- unurn" í héraðssjúkrahúsinu í . Gorkí, sem neyddu ofan í hann mat. Sakharov-hjónin dvöldust ein í íbúð sinni í Gorkí þennan vetur og höfðu ekkert samneyti við aðra. Dag og nótt var lögreglumaður fyrir utan dymar hjá þeim. Fylgst var með svefnherbergisglugganum og pallinum úr næsta húsi, sem er í 20 metra fjarlægð. KGB-menn í húsbíl höfðu gætur á gluggunum fjórum, sem sneru út að Gagarín- stræti. Færi annað hvort þeirra út á götu, var þeim fyigt eftir af hópi KGB-manna, sem slógu um sig og réðust gegn hveijum, er reyndi að tala við þau. Færu þau í búðir, voru KGB-menn einnig á næsta leiti þar. Þau gátu lítið annað gert en að sitja heima yfír bókum. Sakharov reyndi að sinna vísindastörfum eftir bestu getu, en hann saknaði þeirrar hvatningar, sem samband við starfsbræður í vísindunum er. Lísa, tengdadóttir Yelenu, sem fór nokkr- um sinnum til Gorkí, áður en hún yfirgaf Sovétríkin í árslok 1981, lýsir íbúðinni þannig, að í henni séu tvö sæmilega stór herbergi og tvö mjög lítil. Þar er eldhús og bað. Hún var áður „leyni-hótel" KGB fyrir gesti og yfírheyrslumenn. Það er sjónvarpstæki í íbúðinni, en lítið gagn er að því, vegna þess að truflunarstöð hefur verið komið upp í nágrenninu til að hindra, að Sakharov-hjónin geti hlustað á er- lendar útvarpsstöðvar. Truflunar- geislinn er svo öflugur, að illa heyrist í Útvarpi Moskvu og ná- grannastöðvum. Vilji þau hlusta á útvarp, fara þau með ferðatækið sitt í tæplega tveggja kílómetra Qarlægð frá íbúðinni. í Gorkí eru miklar vetrarhörkur. Þær eru síður en svo til þess að draga úr þeirri tilfinningu Sakharov-hjónanna, að þau séu ein og yfírgefin. Opið bréf til vina um heim allan Snemma í mars 1985 tók Sak- harov loks af skarið. Hann samdi opið bréf, þar sem hann lýsti ráða- gerðum sínum: „Kæru vinir! Ég ætla aftur í hungurverkfall til að tryggja konu minni, Yelenu Bonner, rétt til aðleita sér lækninga í útlöndum. Hún er hjartveik og með augnsjúkdóm. Hún þarfnast lækninga utan yfírráðasvæðis KGB, hún þolir ekki sálræna áreitni KGB og hatur. Með hungurverkfallinu vil ég einnig styðja kröfu hennar um að fá að hitta móður sína, börn og barnabörn eftir áralangan sárs- aukafullan aðskilnað. KGB hefur gert allt til að hindra einu lausnina á þessu máli, að leyfa henni að fara úr landi. KGB hefur notað þýlynda dómara og saksókn- ara og jafn þrællundaða lækna. Sjálfur var ég neyddur með pynt-' ingum, þegar mat var troðið ofan í mig meðal annars með því að nota nefklemmuna, til að binda enda á fyrra hungurverkfall 26. maí 1984. Og ég hætti síðara hungurverkfalli í september 1984 til að geta hitt konu mína aftur eftir fjögurra mánaða aðskilnað. Heilsu minni var gert mikið og óbætanlegt tjón af þeim læknum, sem fóru að fyrirmælum KGB. Kona mín hefur verið dregin fyrir gervidómara. Hún hefur mátt þola lygavitnisburð og ákæru á fölskum í Gorkí-sjúkrahúsinu. Myndin er tekin með falinni kvikmyndavél KGB. Henm var síðan dreift á mynd- bandi til Vesturlanda til að telja mönnum trú um, að Sakharov fengi góða umönnun í sjúkrahúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.