Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
B 3
forsendum. Hún var dæmd, vegna
þess að hún stjórnaðist af eigin
sannfæringu og fór að óskum mín-
um og lét í Ijós skoðanir mínar og
las það, sem ég hafði skrifað, bæði
þegar hún tók á móti Nóbelsverð-
laununurn og á ítah'u. Hún var
dæmd, af því að hún var tengiliður
minn við umheiminn, eftir að ég
var dæmdur í útlegð í Gorkí.
Hún hefur raunar verið svipt
læknishjálp, meira að segja þeirri
hjálp, sem hún naut í Moskvu og
stundum varónóg. Hún hefur meðal
annars fengið alvarlegt hjartaáfall
1983. Við það drápust margir vefir
í hjartavöðvanum. Hún hefurfengið
alvarlega krampa í hjartavöðvann
og hafa þeir varað lengi. Hana
hrjáir gláka, sem þrengir sjónsvið
hennar jafnt og þétt. Mörg fleiri
mein sækja á hana, þar á meðal
slæm áhrif á hjartað afþeim lyfjum,
sem hún hefur fengið við augn-
veikinni, og á augun af nítrógluss-
eríni, sem hún hefur fengið við
hjartveikinni, þetta erþví vitahring-
ur. Þetta krefst nákvæmrar hjúkr-
unar, sem hún (áhersla Sakharovs)
getur auðvitað ekki fengið í Sovét-
ríkjunum. Um þessar mundir er hún
mun verr á sig komin en fyrír ári.
Hún hefur alls engin tengsl við
fjölskyldu sína í Bandaríkjunum og
vini í Sovétríkjunum.
Hún mun aldrei geta séð móður
sína, böm og barnaböm nema
ákvörðun sé tekin um fararleyfí
fyrir hana. Þetta veldur okkur báð-
um jafnvel meiri sorg en veikindi
hennar.
Mitt eina úrræði er að hefja
hungurverkfall að nýju, þrátt fyrír
þá hættu, sem það hefur í för með
sér fyrir mig, og það getur jafnvel
orðið enn hættulegra fyrír konu
mína. Ég treysti á hjálp ykkar,
þegar églýsiþessum ásetningi mín-
um. Ég er þess fullviss, að þið
munuð aldrei gleyma okkur, sér-
staklega konu minni, sem hefur
fómað öllu fýrir mig með tryggð
sinni við það, sem er heiðarlegt og
gott, og hefur aldrei bmgðist nein-
um.
Mælist til þess, að refsingu henn-
ar verði aflétt, að minnsta kosti
tímabundið. Mælist til þess, að kona
mín fái að fara til útlanda, svo að
hún geti fengið nauðsynlega að-
hlynningu, sem felst Iíklega íhjarta-
og augnaðgerð, og svo að hún geti
hitt móðursína, böm ogbamabörn.
Ég bið um, að kröftunum verði
einbeitt að för konu minnar. Ekki
þarf aðhuga aðlíðan minni. Bjargið
okkur!
Ykkar, ívon
Andrei Sakharov“
Með þessu bréfi sneri Sakharov
sér til almennings um heim allan.
Hann ætlaði að koma því á framfæri
um leið og það var ritað. Það barst
þó fyrst til Vesturlanda með skjöl-
unum frá Gorkí, tæpu ári eftir að
það var fest á blað — svo algjör
var einangrun Sakharov-hjónanna.
Pyntaður að nýju
Hinn 16. apríl 1985 hóf Sakharov
hungurverkfall enn á ný. Fimm
dögum síðar var hann fluttur með
valdi á héraðssjúkrahúsið í Gorkí.
í bréfi til fjölskyldu sinnar, sem
aldrei hefur birst áður, lýsir hann
því, sem síðan gerðist:
„Frá þeim degi (21. apríl) til 11.
júlí var neytt ofan í mig fæðu. Á
þessu tímabili og síðar var andstaða
mín, oft en ekki alltaí, meiri af vilja
en mætti. Stundum var það ótrú-
lega sársaukafullt að taka við
næringu. Ég var bundinn og mér
var haldið í rúminu með svo miklu
afli, að ég meiddist illilega í andlit-
inu. Skeið var notuð til að opna á
mér munninn og önnur til að hella
í mig matnum. Haldið var fyrir
nefið á mér eða sett á það klemma.
Ég mataðist aðeins, þegar allt
„mötunar-liðið" mætti til leiks og
ekki annars staðar en í stofunni.
Tvisvar sinnum drógu þeir mig inn
í stofuna með aðstoð KGB-manna.
Ég hafði enga hugmynd um það,
hvort nokkur utan Rússlands vissi
um hungurverkfall mitt.“
Sakharov-fjölskyldan í Boston
vissi ekkert um þetta. Hið eina, sem
hún hafði sér til vísbendingar, var,
að póstkort, er bárust af og til frá
Gorkí, hættu að koma. Þau voru
tölusett til að sýna, hve mörg hefðu
verið gerð upptæk. í desember
1984, rétt áður en Gorbachev fór í
heimsókn til Bretlands, sendi KGB
frá sér mynd af hjónunum, þar sem
þau litu vel út. Engar nýlegar
myndir af þeim bárust. Enn einu
sinni voru Sakharov-hjónin horfin
og fjölskyldan óttaðist hið versta.
Huggunar-fréttir
Það kraftaverk gerðist, að Sak-
harov tókst að smygla handskrif-
aðri orðsendingu frá Gorkí til
Moskvu. Hún var dagsett 2. maí. í
henni sagði: „Hungurverkfall hófst
16. apríl og nauðungarmötun í
sjúkrahúsinu." Frá þessu sagði
Associated Press-fréttastofan, en
fréttin var aldrei staðfest.
Nokkrum dögum síðar barst fjöl-
skyldunni í Boston póstkort, sem
virtist stangast á við grunsemdir
um, að hjónin í Gorkí ættu í erfið-
leikum. Það var dagsett 21. apríl
og á því stóð meðal annars: “ ...
svo nú er apríl liðinn ... snjórinn
er farinn.“ Ólíklegt þótti, að Yelena
hefði fest þessi orð á blað, ef maður
hennar hefði nýlega hafið hungur-
verkfall.
Síðan barst önnur huggun. Irina
Kristi, sem var hin síðasta úr vina-
hópnum, sem hitti Yelenu eftir að
einangrun hennar hófst í maí 1984,
kom til Bandaríkjanna sem útflytj-
andi frá Sovétríkjunum. Hún hafði
með sér kveðjuskeyti frá Gorkí, sem
sent hafði verið fáeinum dögum
áður. Daginn eftir komu Irinu barst
bömum Yelenu í Boston póstkort.
Það var dagsett 21. apríl og þar
stóð meðal annars: „Svo nú er
apríl liðinn... Snjórinn hefur
bráðnað og sólin skín.“
Svona kort mundi Yelena ekki
skrifa, ef maður hennar væri í
hungurverkfalli í sjúkrahúsi.
Eftir nokkra daga höfðu sérfræð-
ingar ráðið gátuna og komist að
hinu sanna. „Fiktað" hafði verið við
póstkortið. Yelena hafði skrifað það
þremur vikum áður en dagsetningin
gaf til kynna — áður en hungur-
verkfallið hófst. Tölustafnum „2“
hafði verið bætt framan við og 1.
apríl breytt í 21. apríl. Tveimur
aðgreindum orðum hafði þar að
auki verið breytt, svo að á kortinu
stóð „apríl er liðinn" í stað „apríl
er bytjaður" og „snjórinn hefur
bráðnað" í stað „snjórinn er að
bráðna". Útkoman varð sú, að allt
virtist í himnalagi — einmitt þegar
Sakharov var að hefja hungurverk-
fallið.
Símskeytið var einnig grunsam-
legt og það kom fjölskyldunni í
meira uppnám. Hún gaf út yfirlýs-
ingu þess efnis, að hún vissi ekki
hvort Sakharov hefði hafið hungur-
verkfal! eða ekki, hún vissi ekki
einu sinni hvort hjónin væra á lífi
eðaekki.
„Við vitum ekki til þess að nokk-
ur hafi séð Sakharov-hjónin síðan
í febrúar," sagði í yfirlýsingunni.
„Þessi fölsuðu gögn vekja þeim mun
meiri ógn fyrir þá sök, að þau kunna
að hafa verið send á þeim forsend-
um, að hjónin hafi aldrei tækifæri
til að segja sannleikann. Við getum
ekki útilokað, að þau séu látin."
Kvikmyndir KGB og
Helsinki-fundurinn
Mánuði síðar birtist önnur lyga-
frétt á Vesturlöndum. Það var
hugvitsamlega staðið að henni.
Send var filma af Sakharov, sem
var greinilega tekin í sjúkrahúsinu
í þeim sama mánuði. Hann sást
lesa erlend blöð, horfa á sjónvarp,
nota æfíngahjól, snæða og njóta
lífsins en í bakgranni var almanak,
Við þurfum heilbrigð
bein til að dansa.
Munum þvi eftir
halkinu i mjólkinni.
Með líkamanum skapar dansarinn listaverk. Með líkamanum tjáir hann
hryggð, kátínu, reiði, stolt, hatur - allt tilfinningasvið mannsins.
Heilbrigður og þrautbjálfaður líkami er dansaranum jafn mikil nauðsyn
og röddin er söngvaranum.
Eins og aðrir íslenskir dansarar í fremstu röð hugsar Asdís Magnúsdóttir
vel um likama sinn. Hún æfir mikið og gætir þess að borða hollan mat.
Og hún drekkur mikla mjólk.
Úr mjólkinni fáum við kalk, auk fiölda annarra næringarefna, og án kalks
getur líkami okkar ekki verið. Allir verða að neyta kalks, ekki aðeins í
uppvexti á meðan beinin eru að stækka, heldurævilangt. Án stöðugrar
kalkneyslu þynnast beinin, ve(ða brothætt og gróa seint eða ekki þegar
þau brotna.
Talið er að um 70% alls kalks sem við fáum komi úr miólkurmat, enda
er hann lang kalkríkasta fæða sem við neytum að staðaldri.
Drekkum miólk daglega alla ævi og tryggjum beinunum kalk í hæfilegu
magni!
um beln, kalk og mjólk
eftlr dr. Jón óttar Ragnarsson
Til þess að bein líkamans vaxi eðlilega í æsku og haldi styrk
sinum á efri árum þurfa þau daglegan skammt af kalki. Mjólkin
er ríkasti kalkgjafi sem völ er á. Líkaminn framleiðir ekki kalk
sjálfur, en verður að treysta á að daglega þerist honum nægilegt
magn til að halda eðlilegri líkamsstarfsemi gangandi.
99% af kalkinu fertil beina og tanna, hjá bömum og unglingum
til að byggja upp eðlilegan vöxt, hjá fullorðnu fölki til að viðhalda
styrknum og hjá ófr ískum konum og bijóstmæðrum til viðhalds
eigin llkama auk vaxtar fóstursins og mjólkurframleiðslu I
bijóstum.
MJÓLKURDAGSNEFND
Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna.
ŒB AUGIÝSINGAPJÓNUSTAN / SÍA — MjÓlk 0f góð