Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 27
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986
27
i4*J jí
-
N
JUi
Mikill viðbúnaður var í Kairó þegar uppreisnarástandið var. Hér sjást bryndrekar í röð fyrir framan
járabrautarstöðina í upphafi þessarar viku.
Hreinsanir i egypsku
öryggissveitunum
Kafró, II. mars. AP.
„TIL ÞESSA hefur ekkert komið
fram, sem bendir til þess að
öfgahópar hérlendis eða erlend
öfl hafi haft afskipti [af óeirðun-
um, sem spruttu upp í egypsku
öryggissveitunum í síðasta mán-
uði],“ að því er Hosni Mubarak,
forseti Egyptalands, sagði í við-
tali við vikublaðið Mayo, mál-
gagn Lýðræðisflokksins.
Forsetinn sagði að nú færu fram
umfangsmiklar rannsóknir og var-
aði við fyrirhyggjulausum ásökun-
um. Sagði hann að niðurstöður
rannsóknanna yrðu birtar að þeim
loknum.
Haft var eftir Zaki Bar, innan-
ríkisráðherra, að öfgasinnaðir mú-
hameðstrúarmenn og þá fyrst og
fremst samtökin „Heilagt stríð"
gætu hafa kynnt undir óeirðunum.
Um tuttugu og eitt þúsund her-
menn verða látnir víkja úr egypsku
öryggissveitunum eftir óeirðinar.
Hundrað og sjö manns létust í þeim
að sögn yftrvalda og eru það þrisvar
sinnum fleiri en í upphafí var talið.
Að sögn stjómarinnar særðust sjö-
hundmð og nítján í uppreisninni,
sem braust út í röðum öryggissveit-
anna, vegna orðróms um að Iengja
ætti herskyldu.
Badr segir að 21.644 mönnum
yrði vikið úr öryggissveitunum um
miðjan mars og nú sé verið að gera
lista yfír þá, sem tilheyrðu spilling-
aröflum innan sveitanna.
Richard Murphy, sérlegur sendi-
fulltrúi Bandaríkjastjómar, kom á
sunnudag til Egyptalands til þriggja
daga viðræðna við Mubarak og
aðra egypska ráðamenn um undan-
fama atburði í egypskum innan-
ríkismálum.
Moskva:
Yurchenko skrifar bók
um skipti sín við CIA
Moskvu, 11. raars. AP.
Yurchenko (í miðið) veifar fréttamönnum er hann yfirgefur utan-
ríkisráðuneytið í Washington í fylgd sovéskra sendiráðsmanna.
Myndin er tekin 5. nóvember, eftir fund Yurchenkos með banda-
rískum embættismönnum.
PRAVDA, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, greinir
frá þvi í dag, að Sovétmaðurinn
Vitaly Yurchenko, sem kom eft-
irminnilega við sögu bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, síðast-
liðið haust, hafi í hyggju að
skrifa bók um þá reynslu sína.
í ágústmánuði sl. sögðu banda-
rískir embættismenn frá því, að
Yurchenko hefði leitað hælis í sendi-
ráði Bandaríkjanna í Róm, og væri
hann í hópi æðstu yfírmanna sov-
ésku leyniþjónustunnar, KGB. En
þremur mánuðum seinna skaut
Yurchenko skyndilega upp í sov-
éska sendiráðinu í Washington, þar
sem hann lýsti þvi yfír, að CIA
hefði rænt honum í Róm og flutt
hann til Bandaríkjanna.
Yurchenko hélt blaðamannafund,
áður en hann hélt heim til Moskvu
í nóvembermánuði, og endurtók
fyrri ásakanir sínar. Kvað hann
útsendara CIA hafa dælt í sig
geðlyfjum og reynt að sannfæra sig
um, að hann hefði svikist undan
merkjum.
Eftir að Yurchenko kom til
Moskvu sagði hann gjörr frá
reynslu sinni, „en hann á enn ýmis-
legt ósagt," segir í frásögn Pravda,
„og nú er hann að útbúa dagbók
um þessa reynslu sína undir út-
gáfu.“
Ekkert frekara var látið uppi um
hagi Yurchenkos og í engu vikið
að nýlegum orðrómi um, að hann
hafí verið tekinn af lífí.
Í erær eraf sovéska sendiráðið í
Washington út yfírlýsingu, þar sem
sagði, að „Vitali Yurchenko er á.
lífí, við góða heilsu og starfar í
Moskvu."
Bandarísk útvarpsstöð sagði frá
því í síðustu viku, að Yurchenko
hefði verið tekinn af lífi. Bar stöðin
ótilgreinda heimildarmenn innan
bandarísku stjómarinnar fyrir frétt-
inni.
OCÞAER
SKÍÐA
BAKTERIAN
KOMIN Á KREIK
Á NÝJAN LEIK
Því ekki að koma
fermmgarbartúnu
í snertingu við kana í sumar?
SKÍÐASKÓUNN ( KERUNGARFJÖUJJM
Brottför Tegund námskeiðs Daga- fjöldi Grunngjald breytilegt eftir aldri fátttakenda
Júní
24. UNGLINGA 6 10.600
29. F/ÖLSKYLDU 6 6.925 ti/11.950
Júlí
6. FULLORÐINNA 6 11.950
13. FIÖLSKYLDU 6 6.925 til 11.950
20. FIÖLSKYLDU 6 6.925 til 11.950
27. FIÖLSKYLDU 6 6.925 til 11.950
Ágúst
1. ALMENNT ( verslunarmannahelgi) 4 4.325 til7.500
4. FIÖLSKYLDU 5 5.625 til 9.750
10. UNGLINGA 6 10.600
15. UNGLINGA 6 10.600
20. UNGLINGA 5 8.600
GRUNNGJALD felur i sér fæði og húsnxði í Skiðaskólanum. ferðir milli
skála og skíðalands. afnot af skiðalyftum og aðgang að kvoldvökum. svo
og skiðakennstu fyrir 15 ára og yngri.
KENNSLUGIALD FYRIR FULLORÐNA er kr. 1.150 á 4 daga námskeiði.
kr. 1.500 á 5 daga námskeiði og kr. 1 850 á 6 daga námskeiði
FARGIALD RVIK - KERLINGARFJÖLL - RVÍK er kr 1.850.
Afsláttur fyrir börn yngri en 12 ára á fjötskytáu- og almenningsnámskeiðum.
FJÖLSKYLDU- OG HELGARNÁMSKEIÐ (fó.-su.)
Allar ftelgar í júlí og helgina 8 -10. ágúst.
Grunnverð kr. 3.025 til 5.250 Kennsla fyrir fullorðna kr. 800.
UPPLÝSINCAR OG BÓKANIR.
VIO AUSTURVOLL
SIMI 26900
OC UMBOÐSMENN ÚRVALS UM LAND ALLT
I