Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986
Pamela Brement
talar um Island
Frá Jóni Ás^eiri Signrdssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
Því miður urðu margir frá að
hverfa þegar Pamela Sanders
Brement hélt nýlega erindi um
ísland i New York. Pamela er
vel þekkt og vinsæl á íslandi, hún
bjó þar um árabil ásamt manni
sínum, Marshall Brement sendi-
herra. Hún er mikill íslandsvinur
og lét nýlega frá sér fara mynda-
skreytta bók sína “Iceland“.
Stærsti salurinn í Norsku sjó-
mannakirkjunni í New York rúmar
nær 70 manns og var hann þéttskip-
aður. Aðgöngumiðar seldust upp
mörgum dögum áður en Pamela
hélt erindi sitt, þann 27. febrúar.
Síðustu dagana linnti ekki sím-
hringingum til Eddu S. Magnússon
sem sá um allan undirbúning sam-
komunnar. Fréttaritari varð vitni
að því að talsverður Qöldi mætti
upp á von og óvon, en fólkið þurfti
frá að hverfa við dymar.
Pamela hélt nærri tveggja
klukkustunda erindi um ísland nú-
tíðar og fortíðar. Hún sýndi fjöldann
allan af litskyggnum, gat þar að líta
handritin góðu og myndir úr ferða-
lögum þeirra hjóna víðsvegar um
landið. Útlendingum sem hlýddu á
erindið þótti það mjög fróðlegt og
líflegt, og flestir íslendingar þætt-
ust líklega góðir að geta gert landið
og söguna jafn áhugaverð. Pamela
mismælti sig á einum stað, þegar
hún sagði „okkur tókst að heimta
handritin aftur". Þegar þess er
gætt af hvaða sjónarhóli hún talaði
um land og þjóð var þetta í raun
ekkert mismæli.
Eftir fundinn sagði Pamela S.
Brement fréttaritara að hún hafí
fullan hug á að flytja erindi af þessu
tagi víðar í Bandaríkjunum. Ber að
fagna þessu aðdáunarverða fram-
taki og skemmtilegu kynningu á
landinu og íbúum þess.
Pamela Sanders Brement og Hörður Helgason, sendiherra íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum
Ari Jóhannesson
póstrekstrarstj óri
Samgönguráðherra hefur
skipað Ara Jóhannesson póst-
rekstrarstjóra yfir póstrekstrar-
deild 1 í Reykjavík. Starfið felst
meðal annars i þvi að hafa yfir-
umsjón með rekstri póstútibú-
anna i Reykjavík. Sigurður Inga-
son gegndi þessu starfi um árabil
en hefur nú látið af störfum fyrir
aldurs sakir.
Ari Jóhannesson er fæddur á
Akureyri 27. júnf 1926. Hann starf-
aði um tíma á pósthúsinu á Akur-
eyri en hefur starfað í póstþjón-
ustunni í Reykjavík frá því í febrúar
1946, meðal annars sem yfírdeild-
arstjóri á tollpóststofu og yfírdeild-
arstjóri á böggladeild. Hefur hann
kynnt sér póstmál í Danmörku og
starfaði þar um skeið. Ari var um
tíma formaður Póstmannafélagsins
og hefur gegnt ýmsum öðrum trún-
arstörfum fyrir póstmenn.
Ari Jóhannesson
Norðurmynd Akureyri.
Sigurvegarar í Sjóvá-sveitahraðkeppni BA 1986
Aftari röð frá hægri: Jónas Karlesson, Gylfí Pálsson, Rögnvaldur
Olafsson. Fremri röð: Haraldur Sveinbjömsson, Stefán Vilhjálmsson,
sveitarforingi og Guðmundur V. Gunnlaugsson.
Brids
Arnór Ragnarsson
Meistarastigaskrá
1976-1986
Meistarastigaskrá Bridssam-
bandsins er nýlega komin út en
nú eru um það bil 10 ár síðan
farið var að halda saman meist-
arastigunum á vegum BSÍ. L
skránni eru um 1400 spilarar
innan vébanda 43 félaga.
40 spilarar hafa hlotið yfir 200
meistarastig og fara nöfn þeirra
hér á eftir:
Þórarinn Sigþórsson BR 899
Jón Baldursson BR 820
Ásmundur Pálsson BR 762
Siguróur Sverrisson BR 744
Öm Araþórsson BR 727
Guðlaugur R. Jóhannsson BR 726
Valur Sigurðsson BR 686
Símon Sfmonarson BR 660
Jón Ásbjörasson BR 619
Guðmundur P. Arnarson BR 615
Karl Sigurhjartarson BR 562
Hörður Araþórsson BR 555
Guðmundur Hermannsson BR 529
Sævar Þorbjörasson BR 501
Stefán Guðjohnsen BR 487
Guðmundur Pétursson BR 464
Hjalti Elíasson BR 452
ÓIi Már Guðmundsson BR 392
Þorgeir Eyjóifsson BR 373
Björa Eysteinsson B. Haf. 365
Sigtryggur Sigurðsson BR 358
Jón Hjaltason BR 352
Aðalsteinn Jörgensen B. Haf. 342
Þórir Sigurðsson BR 323
Hermann Lárusson BR 321
Ólafur Lárasson BR 316
Hörður Blöndal Björasson BR 295
Þorlákur Jónsson BR 274
Sigfús Þórðarson B. Sel. 267
Gestur Jónsson TBK 262
Sverrir Armannsson BR 256
Hrólfur Hjaltason BR 241
Jón Páll Siguijónsson TBK 232
Armann J. Lárusson BK 229
Skúli Einarsson BR 226
Vilhjálmur Þór Pálsson B. Sel. 226
Jakob R. Möller BR 223
Sævin Bjaraason BK 223
Egill Guðjohnsen BR 218
SigfúsÖraÁrnasonTBK 208
Krefjast þess að skóla-
stjórí dragi ummæli til baka
PAN Póstverslun sf. hefur sent
Þorvarði Elíassyni skólastjóra
bréf og farið þess á leit að hann
taki ummæli í fjölmiðlum um
verslunina og sýningarstúlku
sem starfar á hennar vegum til
baka, ellegar verði málið afhent
lögfræðingi til umfjöllunar.
I bréfínu segir að ummælin hafí
valdið versluninnni tjóni og gefíð
rangar hugmyndir um starfsemi
hennar og sé ærumeiðandi fyrir
persónu umræddrar sýningar-
stúlku.
Morgunblaðið leitaði svars hjá
Þorvarði Elíassyni skólastjóra
Verzlunarskóla íslands og sagði
hann: „Ég er ekki tilbúinn til að
ræða í fjölmiðlum um Pan póstversl-
un.“
radauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
í Húnavatnssýslu
Eftirgreindar fasteignir i Húnavatnssýslu sem auglýstar hafa verið í
Löqbirtingablaði og uppboðsmál hafa verið þingfest verða seldar á
uppboði er hefst hór á skrifstofu sýslunnar á Ðlönduósi, föstudaginn
14. mars og hefst kl. 14.00. Uppboðunum verður svo framhaldið á
eignunum sjálfum eftir nánari ákvörðun uppboðsþingsins.
Höfðabraut 17, Hvammstanga, eigandi Steindór Sigurðsson.
Fífusund 7, Hvammstanga, eigandi Ingi R. Sigurðsson.
Melavegur 17, Hvammstanga, eigandi GunnarJósefsson.
Hólabraut 9, Blönduósi, eigandi Sigurjón Már Pótursson.
Húnabraut 24, Blönduósi, eigandi skv. kaupsamningi Guðmundur
Arason.
Aðalgata 11, Blönduósi, eigandi Haraldur Haraldsson.
Blöndubyggð 9, Blönduósi, eigandi Einar Gunnarssön.
Hólabraut 27, Skagaströnd, eigandi Magnús Jónsson.
Hólabraut 29, Skagaströnd, eigandi Guðný Björnsdóttir.
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, Skagaströnd, eigandi
Trésmiðja Guðmundar Lárussonar
Jörðin Þóreyjarnúpur, eigandi Halldór Gisli Guðnason.
Sýslumaður Húnavatnssýslu,
Jón ísberg.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 35., 37. og 41. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985
á fastelgninni Litli Hvammur, Reykholtsdalshreppi, fer fram að kröfu
Guðjóns Á. Jónssonar hrl. og Útvegsbanka islands á eigninni sjálfri,
þriöjudáginn 18. mars nk. kl. 13,00.
SýslumaðurMýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta sem auglýst var i 35., 37. og 41. tölublaöi Lög-
birtingablaðsins 1985 á fasteigninni Lundi 2, Lundarreykjadalshreppi,
þinglesinni eign Einars Gislasonar, fer fram að kröfu Sigríðar Thorla-
cius hdl., Veðdeildar Landsbanka Islands og Guðjóns Ármanns Jóns-
sonar hrl. á eigninni, sjálfri þriðjudaginn 18. mars nk. kl. 11.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Til sölu
Jörðin Þórisstaðir, Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Upplýsingar gefur undirritaður. Tilboð skulu
hafa borist fyrir 20. apríl 1986. Áskilinn réttur
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Uppl. ekki gefnar í síma.
Guðni Ólafsson,
Þórisstöðum,
Hvalfjarðarstrandarhrepp,
Borg.
Til sölu
háþrýstitogspil frá Rapp og einnig netaaf-
dragari.
Upplýsingar í síma 97-3395 frá kl.
08.00-19.00.
Iðnaðarhúsnæði - Kópav.
Til leigu eða sölu 300 fm jarðhæð við Auð-
brekku (Dalbrekkumegin). Nymálað. Laust
strax. Stórar innkeyrsludyr. Sprautuklefi fylgir.
Upplýsingar í síma 43466.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf
Sölum.: Jóhann Hálfdánars. Vilhjálmur Einarss.
Jón Eiríksson hdl. Rúnar Mogensen hdl.
Skrifstofuhúsnæði
— miðsvæðis
Til leigu nú þegar er ný, björt skrifstofuhæð,
88 fm, á horni Snorrabrautar og Hverfisgötu,
gegnt Lögreglustöðinni. Leigist tilb. undir
trév. með sameign fullfrágenginni gjarnan til
lengri tíma.
Upplýsingar í síma 17266 á skrifstofutíma.