Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1986 39 Siglufjörður; Nýr kirkju- garður við Saurbæjarás Siglufirði, 6. marz. NÝLEGA var haldinn almennur safnaðarfundur í safnaðarheim- ili Siglufjarðarkirkju. Á fundin- um voru kynnt ný lög um sóknar- nefndir og sóknargjöld. Einnig voru sýndar teikningar af nýjum kirkjugarði, og voru fundar- menn mjög ánægðir með stað- setningu á horium, en hann á að vera við Saurbæjarás. Á fundin- um voru sýndar teikningar af nýju orgeli, en núverandi orgel, sem er ellefu radda, er orðið nokkuð gamalt, og viðhalds- kostnaður því allmikill. Sóknarpresturinn Qallaði um safnaðarstarfið á liðnu ári. Á það setti svip heimsóknir nokkurra kirkjukóra og sóknarpresta, en einkum og sér í lagi heimsókn dr. Sigurbjamar Einarssonar biskups og konu hans, frú Magneu Þorkels- dóttur. Koma þeirra hjóna var Sigl- firðingum ómetanleg, og ógleyman- leg, setti sinn svip á aðventuna. Síðan var greint frá starfí Æsku- lýðsfélagsins og starfí aldraða. Áðstaðan í safnaðarheimilinu hefír haft mikil og góð áhrif á það starf sem og allt safnaðarstarfíð. Sóknamefnd var öll endurkosin. Hana skipa: Páll Helgason, formað- ur, Regína Guðlaugsdóttir, ritari, Hermann Jónasson, gjaldkeri og Hinrik Andrésson og Jón Dýrfjörð, meðstjórnendur. Safnaðarfundur endurkaus einnig safnaðarfulltrúa Júlíus Júlíusson. Samkvæmt nýjum lögum var kosin vara sóknamefnd. Hana skipa Guðlaugur Karlsson, Brynja Stef- ánsdóttir, Guðrún Ámadóttir, Sig- urður Hlöðversson, Erla Svanbergs- dóttir og Haraldur Ámason. í lok fundarins þakkaði formaður sóknamefndar höfðinglegar gjafír sem kirkjunni hafa borist á liðnu ári. Sérstaklega var sparisjóðnum þökkuð aðstoð og styrkur. Fundinum lauk með því að sókn- arpresturinn, sr. Vigfús Þór Áma- son, flutti ritningarorð og bæn. Fréttaritarí. Yfirlýsing BLAÐINU hefur borist eftir- farandi frá Gisla Gunnars- syni: Jón Kristvin Margeirsson fíl,- lic. hefur í greinum í Morgun- blaðinu 7. og 8. þessa mánaðar fjallað um þá atburðarás þegar tvær dómnefndir heimspeki- deildar Háskóla íslands 1981 og 1984, töldu ákveðið óbirt verk hans um einokunarverslun- ina ekki hæft til doktorsvamar við Háskólann. í greinum þess- um víkur hann nokkuð að mér persónulega, en ég var einn þriggja manna í síðari dóm- nefndinni. Ég tel því nauðsyn- legt að benda á eftirfarandi atriði: 1. Það kemur hvergi fram í greinum Jóns Kristvins að for- maður þeirrar dómnefndar, sem ég átti sæti í, var Ólafur Bjöms- son prófessor. Ólafur er með hæfustu mönnum á íslandi til að fjalla um hagsöguleg við- fangsefni. 2. Það er nær ómögulegt að fjalla um mál Jóns Kristvins á nokkum vitrænan hátt á síðum dagblaða meðan hann hefur ekki komið fyrrgreindu hugverki sínu á prent og þar með fyrir almenningssjónir. 3. í seinni grein sinni í Morg- unblaðinu 8. mars notar Jón Kristvin gífuryrði um mig. Þau koma efni málsins ekki við og eru vítaverð. 10. mars 1986, Höfundur er doktor í hagaögu. Sigurvegari í einstaklingskeppn- inni, Guðrún Júlia Jóhannsdóttir frá Neskaupstað. Auður Vala, Ólafía, Guðrún, Berglind og Lovísa. Morpfunblaðið/Ol Egilsstaðir: Fjölsótt danskeppni Egilsstöðum 9. mars. ÞAÐ VORU þéttsetnir áhorf- endabekkirnir í íþróttahúsinu hér á Egilsstöðum í gær þegar keppt var um Austurlandstitilinn í svonefndri „freestyle- danskeppni“ einstaklinga og danshópa. Til keppni mættu einstaklingar og dansflokkar frá Hallormsstað, Neskaupsstað, Eskifírði og Egils- stöðum og er skemmst frá því að segja að Guðrún Júlía Jóhannsdóttir frá Neskaupsstað sigraði í einstakl- ingskeppninni en dansflokkurinn frá Egilsstöðum sigraði hins vegar flokkakeppnina. Dansflokkinn skipta þær Auður Vala Gunnars- dóttur, Ólafía Marelsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Berglind Orradóttir og Lovísa Sigurðardóttir. Þessir Austurlandsmeistarar í Frá danskeppninni í íþróttahúsinu. J./'t*',: , -. e/ ■' & „freestyle-dansi" 1986 munu síðan halda til Reykjavíkur um næstu helgi og taka þátt í danskeppni í „freestyler-dansi" sem væntanlega mun fara fram í Tónabæ og hefjast föstudaginn 14. mars. Að lokinni danskeppninni í gær var efnt til hljómsveitakeppni sem þijár hljómsveitir tóku þátt í: Ru- stikus og Strix frá Egilsstöðum og Apollo frár Eskifírði og sigraði sú síðasttalda. Tómstundaráð Egilsstaðahrepps annaðist framkvæmd þessarar danskeppni. Formaður tómstundar- áðsins er Guðlaug Ólafsdóttir en Kolbrún Marelsdóttir er tómstunda- fulltfui. _ Ólafur Æskulýðsgnðsþjónusta í Borgarfirði eystri Bakkagerði, Borgarfirði eystra, 3. mars. ÞANN 2. mars sl. var guðsþjónusta í Bakkagerðiskirkju, á æskulýðs- degi þjóðkirkjunnar. Nokkuð var brugðið út af hinu hefðbundna messuformi, þar sem segja má að presturinn og söngfólkið séu hinir einu virku þátttakendur messunnar. Að sjálfsögðu þjónaði sóknar- presturinn fyrir altari, nema hvað tvö ungmenni, Herdís Ingadóttir og Áskell Heiðar Ásgeirsson, lásu pistil og guðspjall. Ragnheiður Ólafsdóttir kennari Persónulega þykja mér alltof fáir steig í stólinn og flutti snjallt erindi taka virkan þátt í guðsþjónustum í sem fjallaði fyrst og fremst um stöðu æskunnar í þjóðfélaginu. Auk þess kom hún víða við í máli sínu og vék að mörgu sem sérstaklega átti við á æskulýðsdeginum og að enduðu ári æskunnar. Við Bakkagerðiskirkju er því miður enginn fastur kirkjukór held- ur fara einfaldlega þeir sem sungið geta upp á söngloft og syngja þar við athöfnina, þegar einhverjir slíkir mæta. Eins var í þetta skipti nema hvað hópur skólabama á aldrinum .7—11 ára söng tvo sálma undir stjóm kennara síns, Margrétar Bragadóttur og tókst með ágætum. kirkjunum okkar. Það ætti miklu oftar að gefa leikmönnum kost á að stíga í stólinn og æskilegt væri að sem flestir kirkjugestir syngju í sætum sínum. Þá fyrst yrði guðs- þjónustan almenn í þess orðs bestu merkinu en ekki, eins og ég heyrði eitt sinn haft eftir vígðum presti, að líkja mætti messunni við eins konar knattleik þar sem knötturinn gengi milli prests og kirkjukórs. Að sjálfsögðu var þetta sagt í gamni en öllu gamni fylgir jafnan nokkur alvara. Sverrir Bjóöum nánastallar stærðir rafmótora frá EOF í Danmörku. EOF rafmótorar eru í háum gæðaflokki og á hagkvæmu verði. Ræðið við okkur um rafmótora. = HEÐINN = SELJAVEGI 2, SÍMl 24260 Kynning á lands- móti hesta- manna FRÆÐSLUNEFND Fáks ef nir til opins fundar fimmtudaginn 13. mars í Félagslieimili Fáks, Víði- völlum. Þar verður landsmót hestamanna kynnt og haldin kvikmyndasýning frá fyrri landsmótum. Á fundinum verður skýrt frá framkvæmdum og undirbúnings- störfum á mótssvæðinu, en lands- mótið fer fram 2.-6. júlí nk. á Gaddastaðaflötum á bökkum Ytri- Rangár. Rætt verður um tilhögun og framkvæmd mótsins, þátttöku- skilyrði gæðinga, kappreiðahesta og kynbótahrossa, aðstöðu fyrir hesta mótsdagana, umferð að og frá svæðinu, bflastæði, tjaldstæði, snyrtiaðstöðu, veitingar, dagskrá og fleira. Kynntar verða reiðleiðir í nágrenni mótssvæðisins, fyrir- huguð hópreið Fáksfélaga á mótið og möguleikar á áframhaldandi ferð að því loknu. Áð loknum erindaflutningi verða fyrirspumir og umræður. Gunnar Jóhannsson Ásmundarstöðum, for- maður framkvæmdanefndar lands- mótsins, og Öm Ingólfsson, fulltrúi Fáks í nefndinni, sitja fyrir svcmm. Sýndar verða kvikmyndir frá lands- mótinu ’78 á Skógarhólum og landsmótinu ’82 á Vindheimamel- um. Fundurinn hefst kl. 20.30 og em allir hestaunnendur velkomnir. Úr fréttatilkynningu RYÐFRIAR HÁ-OG LÁGÞRÝSTI ÞREPADÆLUR 1 0G 3JA FASA Til stjórnunar á vatnsrennsli, hentugar í þvottakerfi. = HÉÐINN = VÉLAVERSLJUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER * «'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.