Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 33
íslenska handknattleiksliðið. Deilt um 5 millj. kr. styrk til HSÍ: „Popp-pólitík“ - sagði Kristín Halldórsdóttir TILLAGA um 5 milljón króna fjárstuðning við Handknattieikssam- band íslands kom til fyrri umræðu í sameinuðu þingi í gær og mælti Ellert B. Schram (S.-Rvk.) fyrir henni. í máli þingmannsins kom fram, að tillagan er flutt í framhaldi af mjög góðum árangri íslenska hand- knattleiksliðsins í heimsmeistara- keppninni í Sviss. Kvaðst þing- maðurinn fullviss um að meirihluti þjóðarinnar vildi þakka frábæra frammistöðu liðsins með sérstakri fjárveitingu úr ríkissjóði. Helgi Seljan (Abl.-Al.) kvaðst gleðjast yfir árangri liðsins og vera hlynntur ríflegum fjárveitingum ríkisins til ungmenna- og íþrótta- starfsemi. Það væri hins vegar vandaverk að skipta naumum fjár- munum á milli íþróttagreina og skyndiákvarðanir í þeim efnum vafasamar. Hann sagðist ekki treysta sér til að styðja tillöguna og svo væri um fleiri samflokks- menn sína, þ.á m. Hjörleif Gutt- ormsson. Kristín Halldórsdóttir (Kl.-Rn.) tók undir gagnrýni á til- löguna og kenndi málflutning frum- mælanda við „popp-pólitík“, sem hún kvað heldur ómerkilega pólitík. Hún kvaðst sjálf hafa fylgst af miklum áhuga og ánægju með frammistöðu íslenska handknatt- leiksliðsins og vera reiðubúin að styrkja það með fé úr eigin vasa. Hins vegar væri Kvennalistinn andvígur því að tillagan um 5 millj- ón króna fjárveitingu yrði sam- þykkt. Í því sambandi benti hún á að íþróttasamband íslands fær 22,5 milljónir kr. á fjárlögum og af því fengi Handknattleikssambandið um 1 milljón. Auk þess fengi Ólympíu- nefndin 1,5 millj. kr. og á síðasta ári hefði fyrrverandi fjármálaráð- herra veitt nefndinni aukafjárveit- ingu upp á 2 millj. kr. til að styrkja íslenska handknattleiksliðið í heimsmeistarakeppninni. Kristín spurði hvers vegna Hand- knattleikssambandið hefði ekki notfært sér almenna hrifningu þjóð- arinnar og auglýst eftir framlögum á gíróreikningi strax og sigurganga íslenska liðsins hefði verið ljós. Taldi hún það skynsamlega leið til að afla fjár og kvaðst sannfærð um að peningar hefðu streymt inn hefði þessi leið verið farin. Ólafur Þ. Þórðarson (F.-Vf.) kvaðst vera hlynntur styrkjum til íþróttastarfsemi, en hann setti hins vegar spumingu við tillöguna. Gagnrýndi hann m.a. hina formlegu hlið tillögunnar, þar sem skorað er á fjármálaráðherra að veita styrk- inn. Benti hann á, að ráðherra gæti ekki veitt slíka styrki án end- anlegs samþykkis Alþingis og yrði þvi að leggja málið fyrir þingið á ný í öðra formi. Albert Guðmundsson, iðnaðar- ráðherra, sagði, að handknatt- leiksliðið hefði ekki náð svo góðum árangri, sem raun bæri vitni, ef ekki hefði komið til ríflegur opinber stuðningur. Kvaðst hann taka undir tillöguna, hún væri góð og hann vildi gjaman hafa verið einn flutn- ingsmanna hennar. STUTTAR ÞINGFRETTIR Listadagar Mennta- skólans á Akureyri Akureyri, 11. marz. LISTADAGAR Menntaskólans á Akureyri voru settir í níunda skipti í gærkvöldi. Þeir standa nú yfir til 20. þessa mánaðar. Axel Pétur Asgeirsson, forseti hagsmunaráðs skólafélagsins, setti Listadagana og síðan tróðu nemendur upp. Lásu úr eigin verkum og léku tónlist. Dagskrá Listadaganna að þessu sinni er á þessa leið: í dag, þriðju- dag, var kvikmjmdasýning í Borg- arbíói þar sem sýnd var „Síðasta lestin" eftir Traffaut. Framhaldið er þannig: Miðvikudagur 12. marz Kvikmyndasýning á vegum Bóma (Bókmenntafélag MA) í stofu M2. Mynd um Robert Frost „þjóð- skáld Bandaríkjanna" og mynd um John Steinbeck. Kvikmyndasýning- in hefst kl. 17.00. Kl. 20.00 verður síðan jazzkynning af plötum á setu- stofu heimavistar. M.a. verður tríó Eddie Harris kynnt. Fimmtudagur 13. marz Málverkasýning Baltasars opnuð í Möðravallakjallara kl. 16.00. Aðgangseyrir er kr. 100.00 fyrir aðra en nemendur MA. Föstudagur 14. marz Tónleikar með Stuðmönnum í íþróttahöllinni — hefjast kl. 21.00. Laugardagur 15. marz Opnuð ljósmyndasýning fram- haldsskólanema á göngum Möðra- valla. Það verður gert kl. 14.00. Bókmenntakynning: Einar Kárason rithöfundur les úr verkum sínum. Kaffihlaðborð — kl. 15.30. Sunnudagur 16. marz Tónleikar. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í Akureyrar- Morgunblaðið/Skapti Hallgrfmsson Axel Pétur Ásgeirsson, forseti Hagsmunaráðs MA, setur lista- dagana. kirkju kl. 20.30. Síðasti dagur mál- verkasýningar. Mánudagur 17. marz Lifandi djass í setustofu heima- vistar kl. 20.30. Þriðjudagur 18. marz Opnuð ljósmyndasýning Fálma (félag áhugaljósmyndara í MA) í Möðravallakjallara kl. 10.25. Kvikmyndasýning í Borgarbíói: „Nútíminn" eftir Charlie Chaplin. Aðgangseyrir kr. 150.00 kl. 17.00. Miðvikudagur 19. marz Kvöldvaka í Möðravallakjallara kl. 20.30. Fimmtudagur 20. marz Kaffisamsæti. Verðlaunaafhend- ing. Verðlaunaverk lesin, skoðuð og spiluð. Listadögum slitið kl. 20.30 í Möðruvallakjallara. Fríverzlun við Bandaríkin Frá opnunarkvöldinu í kjallara Möðruvalla — raungreinahúss menntaskólans. Könnun á valdi í íslensku þjóðfélagi Akureyri: Atvinnuleysisdögum fækkaði um 35% milli ára Gunnar G. Schram (S.Rn.) hefur lagt fram tillögu til þings ályktunar, þessefnis, að ríkis- stjómin “láti fara fram könnun á gerð fríverzlunarsamnings við Bandaríkin með hliðsjón af þvi hver yrði viðskiptalegur hagur af slíkum samningi fyrir íslenzka atvinnuvegi og útflutningsstarf- semi“. Mikilvægasti markaðurinn í greinargerð með tillögu þing- mannsins um könnun á fríverzlun- arsamingi við Bandaríkin segir að þar sé að finna „mikilvægasta markaðinn fyrir íslenzkar útflutn- ingsafurðir. Ekkert ríki kaupir jafn mikið af framleiðslu okkar og Bandaríkin en þangað fóra 29% útflutningsins árið 1984". í greinargerð segir ennfremur að við flytjum fyrst og fremst ýmsar sjávarvörar, svo sem frystan flsk, til Bandaríkjanna, en líkur séu tald- ar á því að hægt sé að stórauka útflutning íslenzks iðnvamings til Bandaríkjanna, en þar fæst einna hæst verð fyrir slíkar vörar. Tilgangur tillögunnar er sagður að freista þess að lækka eða fella niður tolla á íslenzkum framleiðslu- vöram og bæta samkeppnisstöðu íslenzkra útflytjenda. Kanadamenn hafa sýnt mikinn áhuga á fríverzlunarsamningi við Bandaríkin. Bandaríkin mun ekki hafa gert slíka samninga við aðrar þjóðir. Könnun á valdi í íslenzku þjóðfélagi Sex þingmenn Framsóknar- flokks, fyrsti flutningsmaður Har- aldur Olafsson, flytja þingsályktun- artillögu um „könnun á valdi í ís- lenzku þjóðfélagi. Könnunin skal fólgin í því að rannsaka og greina hvemig háttað er völdum og valda- hlutfollum stofnana og samtaka, bæði opinberra og óopinberra. Könnun þessari skal lokið innan þriggja ára og niðurstöður hennar kynntar á Alþingi." Tilgangur tillögunnar er sagður að „að safna aukinni þekkingu á þjóðfélagi okkar. Könnun á margsl- ungnu valdakerfi er einmitt til þess fallin að auka skilning á þjóðfélag- inu og gerð þess,“ segir í greinar- gerð. „A líkum skilningi byggist öll umræða um hvemig gera megi umbætur og endurbætur á því.“ í greinargerð er lagt til að Há- skóla íslands verði falin þessi könn- un. Ferðaskrifstofa ríkisins Ferðaskrifstofa ríkisins á engar fasteignir. Hinsvegar á skrifstofan hlut í félögum: Kynnisferðir ferða- skrifstofa sf., kr. 956.260.-; Gestur hf. (félag um rekstur Hótels Flóka- lundar) kr. 15.000.-; og Árey hf. (félag um rekstur Hótels Hvolsvall- ar) kr. 525.000.-. Ferðaskrifstofa ríkisins leigir allnokkur skóiahús, sem og húsnæði í Kópavogi og Reykjavík. Eigendur þessa leiguhúsnæðis era ríki, sveit- arfélög, Sölufélag garðyrkjumanna, og tveir nafngreindir einstaklingar. Húsaleiga til skólanna er á bilinu 7,5%-10% af heildarsölu Eldduhót- ela. Skrifstofu- og geymsluhúsnæði er leigt á ákveðnu verði pr. fer- metra. Heildarleigugreiðslur Ferða- skrifstofu ríkisins 1985 vóra 11,4 m.kr., þar af 10,5 m.kr. vegna hót- elrekstrar. Samningsbundnar greiðslur vegna viðhalds í skólum vóra 1,8 m.kr. Ferðaskrifstofa ríkisins veitti auk framangreinds aðstoð við rekstur Hótels Borgamess, Hótels ísaflarð- ar og Hótels Flókalundar. Framangreint kom fram í svari Matthíasar Bjamasonar, sam- gönguráðherra, við fyrirspum frá Stefáni Benediktssyni (Bj.-Rvk.) Akureyri 10. marz. Atvinnuleysisdögum fækkaði mjög á Akureyri milli áranna 1984 og 1985. Fyrra árið voru þeir 33.179 en i fyrra voru at- vinnuleysisdagar 21.587. Fækk- un hefur þvi orðið um 11.592 daga milli ára - sem er um 35% fækkun daga. „Þetta eru góðar fréttir á sama tima og íbúum bæjarins fjölgar,“ sagði Úlfhild- ur Rögnvaldsdóttir, bæjarfull- trúi Framsóknarflokksins, á bæjarstjórnarfundi i dag. Bótadögum fækkaði um 36% milli ára, úr 31.992 í 20.397 árið 1985. Útgefin atvinnuleysisbóta- vottorð vora 2.995 árið 1985 en 4.453 árið 1984, mismunurer 1.458 vottorð eða 33% milli ára. Bótaþegum fækkaði úr 763 árið 1984 i 749 i fyrra eða um 14, 0,2%. Verkfall sjómanna í marz-mánuði 1985, er um 270 verkamenn frá ÚA fengu greiddar atvinnuleysisbætur, veldur þvi að tala bótaþega lækkar ekki meira. Fjöldi karla á bótum árið 1985 var 359 en kvenna 390. Atvinnuleysisdögum hjá konum fækkaði um 44%, úr 13.685 árið 1984 í 7.631 i fyrra og hjá körlum um 28%, úr 19.494 árið 1984 í 13.956 ifyrra. Tónleikar Musica antiqua í Skálholti TÓNLEIKAR verða haldnir á vegum Musica Antiqua i Skál- holtskirkju fimmtudaginn 13. mars nk. kl. 21.00. Flutt verður endurreisnartónlist frá 16. og byrjun 17. aldar eftir Palestrina, Viadana, Morley, Dow- land o.fl. Fram kemur 8 manna sönghópun Marta og Hildigunnur Halldórs- dætur, Svava Kristín Ingólfsdóttir, Sverrir Guðjónsson, Helgi Braga- son, Kjartan Óskarsson, Jón Stef- ánsson og Halldór Vilhelmsson. Einnig hljóðfæraleikaramir Camilla Söderberg, ólöf Sesselja Óskars- dóttir og Snorri Öm Snorrason sem leika á blokkflautur, viola da gamba Og ÍÚÍU. (Fréttatilkynninfir)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.