Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 46
46 fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986 Kristján Hrafnsson er (rát+uíliir á filrilninarc. Svið eru Karli Bretaprins lítt að skapi. magann Karl Bretaprins lætur sér sjaldnast bregða þótt fyrir hann séu bomir hinir torkennilegustu réttir. Maginn í honum er hertur á þrjátíu ára flakki í framandi löndum. „Mér er ekki klígjugjamt," segir prinsinn. „Maginn í mér hefur kynnst ótrúlegasta sulli í tímans rás og þolir næstum allt.“ Eitt er þó það, sem fær Karli hrolls — kindaaugu. „Tilhugsunin um að tyggja þau ranghverfir í mér maganum," segir hann, „en geti ég gleypt þau er bjöminn unninn." Islendingar skyldu sum sé varast að bera prinsinum svið ef hann rækist til landsins. Halldór Blöndal talaði I stuðlum og höfuðstöfum. Maðurinn með stál- Helgi Hjörvar beitir öllum brögðum mælskulistarinnar til þess að sannfæra áhorfendur um réttmæti og gagnsemi getnaðar- varna. Þingmenn burstaðir í mælskukennni Adögunum var haldin nýstár- leg mælskukeppni þar sem leiddu saman hesta sína úrvalslið framhaldsskólanna í Reykjavík og lið alþingismanna. Þrír menn töluðu úr hvom liði og að auki vom liðsstjórar sínum mönnum til halds ogtrausts. í liði skólanna vommiklir stálkjaftar, þeir Helgi Hjörvar úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, Jónas Fr. Jónsson úr Verzlunarskóla íslands og Krist- ján Hrafnsson úr Menntaskólan- um í Reykjavík. Liðsstjóri þeirra var Amar Már úr Menntaskólan- um í Kópavogi. í liði alþingis- manna vom þeir Steingnmur Sigfússon úr Alþýðubandalaginu, Olafur Þ. Þórðarson, Framsókn- arflokki, og Halldór Blöndal úr Sjálfstæðisflokki undir Liðsstjóm Ama Johnsen úr Sjálfstæðis- flokki. „Það kom upp í sambandi við Lagningardaga í MH að etja saman þeim sem hafa kjaftæði að atvinnu og helstu kjaftöskum í framhaldsskólunum," sagði ónefndur heimildarmaður úr hópi framhaldsskólanemanna. „Það var valið í liðin og ákveðið að alþingismennimir mæltu gegn getnaðarvörnum. Það þarf ekki að orðlengja það að við burstuðum þessa kalla,“ sagði heimildarmað- urinn. Og við ætlum heldur ekki að vera með neinar vífilengjur, heldur láta myndirnar tala. Jónas Fr. Jónsson: Tíðahringur kvenna er jafn sveiflukenndur og fylgi Framsóknarflokksins f Reykjavík. Ólafur Þ. Þórðarson virðist fara halloka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.