Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
59. tbl. 72. árg. _______________________FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986___________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Spánverjar völdu NATO
Þingnefndin hvatti til, að hætt
yrði að kasta geislavirkum efnum
í sjóinn og einnig, að það yrði at-
hugað hvort það borgi sig ekki að
geyma geislavirkan úrgang í stað
þess að endurvinna hann. Þá segir
einnig í skýrslu nefhdarinnar, að
Sellafield sé orðin samnefnari fyrir
sóðaskap og mengun og mikil
hneisa fyrir Breta, sem hafi tiltölu-
lega lítinn kjarnorkuiðnað.
flokkinn, sem hafa banst einarðn
baráttu fyrir því, að Spánveijar
taki þátt í vömum vestrænna þjóða.
Ósigurinn er að sama skapi mikill
fyrir stjómarandstöðu hægri-
manna, sem eru í sjálfu sér hlynntir
aðildinni að NATO, en leiðtogi
þeirra, Manuel Fraga, taldi, að það
gæti komið sér að gagni í væntan-
legum kosningum ef stjómin biði
lægri hlut í þjóðaratkvaeðagreiðsl-
unni.
Þessi úrslit þykja ekki síst merki-
leg fyrir þá sök, að allar skoðana-
kannanir mánuðum saman og sú
síðasta fyrir viku bentu til, að aðild-
in yrði felld með 4—7 prósentustiga
mun. Áköfustu andstæðingar aðild-
arinnar vom kommúnistar, róttækir
vinstrimenn og friðarhreyfíngafólk.
Spánverjar urðu aðilar að Atl-
antshafsbandalaginu í maí árið
1982, þegar Miðflokkasambandið
var við stjóm, og þá voru sósíalistar
andvígir aðildinni og hétu að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hana
kæmust þeir til valda. Gonzalez og
sósíalistum snerist hins vegar hugur
til aðildarinnar og hafa skorað á
Spánveija að taka sér stöðu við
hlið vestrænna þjóða, jafnt í vömum
sem efnahagslegu samstarfí.
Rúmlega helmingur þjóðarinnar studdi áframhald-
andi aðild þvert ofan í skoðanakannanir - Úrslitin
einstakur sigxn* fyrir Gonzalez forsætisráðherra
Madríd, 12. mars. AP.
„ÚRSLITIN ERU sigur fyrir Spánveija, alla spánsku þjóðina," sagði
Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, þegar hann fagnaði því
í kvöld, að Spánverjar verða áfram í Atlantshafsbandalaginu, varnar-
bandalagi vestrænna þjóða. Það er niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar, sem fram fór í dag, þvert ofan í allar skoðanakannanir. Eru
þessi úrslit mikill sigur fyrir Felipe Gonzalez, forsætisráðherra, og
að sama skapi ósigur fyrir hægrimenn og kommúnista, sem tóku
höndum saman í andstöðunni við aðildina.
„Úrslitin em sigur fyrir Spán-
veija, alla spánsku þjóðina. Þessi
gleðilega niðurstaða vísar okkur
áfram veginn að friði og framför-
um, að því marki, sem spánska þjóð-
in setti sér fyrir tíu árum,“ sagði
Gonzalez í útvarpsávarpi til þjóðar-
innar þegar ljóst var, að hún hafði
sagt já við aðildinni að NATO.
Alfonso Guerra, aðstoðarforsætis-
ráðherra, skýrði frá á ellefta tíman-
um í kvöld, að þá hefðu verið talin
32,4% atkvæða og af þeim hefðu
53,4% sagt já við áframhaldandi
aðild Spánar að Atlantshafsbanda-
laginu. 38,6% hefðu verið á móti,
6,8% skilað auðu og 1,2% atkvæð-
anna ógild. Kosningaþátttaka var
58%.
Skömmu eftir að kjörstöðum var
lokað klukkan átta að staðartíma
var birt tölvuspá einkaútvarps-
stöðvar og einnig ríkissjónvarpsins
og samkvæmt þeim hafði aðildin
að NATO verið samþykkt með 49%
atkvæða. Samkvæmt fyrstu tölum
var stuðningurinn enn meiri og
niðurstaðan þvi einstakur sigur
fyrir Felipe Gonzalez, forsætisráð-
herra, og flokk hans, Sósíalista-
Beirut:
Nýjar vonir um
frelsi gíslanna
Beirut, 12. mars. AP.
SADDAM Hussein, forseti íraks, gaf i dag upp sakir tveimur
stjóraarandstæðingum, sem Frakkar framseldu til íraks fyrír
hálfum mánuði. Eru bundnar vonir við, að það geti greitt fyrir
lausn þeirra Frakka, sem Jihad-samtökin hafa i gíslingu.
Talið er, að framsal mannanna
tveggja hafí verið ástæðan fyrir
því, að Jihad-samtökin, félags-
skapur öfgafullra múhameðstrúar-
manna, sem hallast að írönum,
rændu fjórum frönskum frétta-
mönnum. Segjast þau hafa myrt
einn mannanna en vonast er til,
að ákvörðun íraksstjómar geti
orðið til, að hinir verði látnir lausir.
Foringi í franska hemum var i
dag skotinn til bana í Beirut. Átti
hann sæti í eftiriitsnefndinni, sem
fylgist með því, að vopnahléssamn-
ingar séu haldnir, og var við
skyldustörf við Grænu línuna milli
borgarhverfa kristinna manna og
múhameðstrúar í Beirut þegar á
hann var skotið. Var hann strax
fluttur í sjúkrahús en ekki tókst
að bjarga lífí hans. Frá því í mars
árið 1984 hafa sex franskir her-
menn, sem starfað hafa við vopna-
hléseftirlit, verið skotnir í Beirut.
Eftirmaður Olofs Palme valinn:
Ap/Símamynd
Felipe Gonzalez, forsætisráðherra sósíalistastjómarinnar, greiddi
atkvæði snenuna í kjördæmi sínu i Madríd. Spánska þjóðin hlýddi
kalli hans um að skipa sér á bekk með vestrænum þjóðum, jafnt í
vörnum sem efnahagslegu samstarfi.
AP/Símamynd
Ingvar Carlsson tekur við hamingjuóskum
eftir forsætisráðherrakjörið.
Mikill stuðningur við Carlsson
Stokkhólmi, 12. mars. AP.
INGVAR Carlsson var í dag kosinn eftir-
maður Olofs Palme sem forsætisráðherra
Svíþjóðar og studdi stjórnarandstaðan
kjör hans með því að sitja hjá. Yfirlög-
reglustjórínn í Stokkhólmi skýrði frá
því í dag, að ekkert nýtt væri að frétta
af leitinni að morðingja Palme. Útför
Palme fer fram á laugardag og er búist
við miklurn fjölda erlendra fulltrúa.
Carlsson, sem er 51 árs gamall og hefur
gegnt embætti aðstoðarforsætisráðherra,
var valinn forsætisráðherra mótatkvæða-
laust. Stjómarandstöðuþingmenn borgara-
flokkanna sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
og er litið á það sem stuðning við Carlsson
þótt þeir séu eftir sem áður andvígir stefnu
stjórnarinnar og Jafnaðarmannaflokksins.
Carlsson hélt enga ræðu eftir kjörið en búist
er við, að hann skýri frá skipan stjómarinnar
og stefnu á morgun, fímmtudag.
Hans Holmer, yfírlögreglustjóri í Stokk-
hólmi, sagði á blaðamannafundi í dag, að
ekkert nýtt væri að frétta af leitinni að
morðingja Palme. Lögreglan hefði nú miklu
ljósari mynd af aðdraganda morðsins en vissi
þó ekki hvort einn maður var að verki eða
fleiri.
Útför Palme fer fram á laugardag og mun
líkfylgdin fara um götur Stokkhólms. 60 rík-
isstjómir hafa tilkynnt, að þær muni senda
fulltrúa til útfararinnar en búist er við, að
þeim fjölgi enn.
Skýrsla breskrar þingnefndar:
írlandshaf geisla-
virkasti siór í heimi
London, 12. mars. AP.
BRESK þingnefnd segir í
skýrslu, sem birt var í dag, mið-
vikudag, að mengun frá kjarn-
orkuverinu í Seilafield í Norð-
vestur-Englandi sé svo mikil, að
írlandshaf sé nú orðið geislavirk-
asti sjór í heimi. Hafi merki um
mengunina frá verinu fundist í
fiski allt austur að Svíþjóðar-
ströndum.
Umhverfísmálanefnd Neðri
deildarinnar, skipuð þingmönnum
frá öllum flokkum, segir í skýrsl-
unni, að Sellafíeld-stöðin, þar sem
kjamorkuúrgangur er endurunn-
inn, sé „mesta uppspretta geisla-
mengunar, sem fyrirfínnist í heim-
inum. Afleiðingin er sú, að írlands-
haf er mengaðasti sjór í heimi".
Sellafíeld-stöðin hefur verið
starfrækt frá árinu 1952 og á þeim
tíma, sem síðan er liðinn, hafa
geislavirk efni lekið frá henni 300
sinnum, þar af þrisvar á þessu ári.
Það er einnig venja í stöðinni að
kasta lítt geislavirkum efnum beint
í sjóinn. Þingnefndin lætur þess
getið, að víða megi finna merki
geislunarinnar frá Sellafield, t.d í
fiski við Sviþjóð.