Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Eurovision-söngkeppnin:
Annað lag flutt
opinberlega áður?
VAFI er nú talinn leika á því,
að lagið „Ég lifi í draumi" eigi
rétt á því að vera með í söngva-
keppni sjónvarpsins. Talið er af
mörgum, að lagið hafi verið flutt
í útvarpi 17. júní á síðasta ári í
flutningi „Hálft í hvoru“. Björg-
vin Halldórsson söng umrætt lag
í fyrsta kynningarþætti keppn-
innar.
Stjómendur söngvakeppninnar
hafa ekki tekið mál þetta til um-
ræðu, þar sem þeim hafa ekki
borizt ótvíræðar sannanir um þetta,
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun lagið vera eftir fyrrum
liðsmann fyrmefndrar hljómsveitar
Eyjólf Kristjánsson og hefur alloft
verið flutt af henni, meðal annars
einu sinni í útvarpi.
Stjómendur keppninnar hafa enn
ekki tekið endanlega afstöðu til
þess hvort lagið „Vögguvísa" telst
lögmætt í keppninni, en samkvæmt
reglum má þar ekki leggja fram
lög, sem áður hafa verið flutt í út-
varpi eða sjónvarpi.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
f orseti sameinaðs þings:
Ekki hægt að kjósa
um bjórinn 1 vor
„ÞAÐ ER gott ef tekst að af-
greiða bjórfrumvarpið á þessu
þingi, en ef það tekst verður
timinn alltént of knappur til að
framkvæmanlegt sé að bera það
undir þjóðina í atkvæðagreiðslu
samhliða sveitarstjómarkosning-
unum í vor,“ sagði Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, forseti
sameinaðs þings, aðspurður
hvort sá möguleiki væri fyrir
hendi að þjóðin fengi tækifæri
Menntamálaráðherra:
10 milljón-
ir til kvik-
myndasjóðs
SVERRIR Hermannsson
menntamálaráðherra hefur
ákveðið að beita sér fyrir 10
milljóna króna lántöku til
Kvikmyndasjóðs.
Ráðstöfunarfé sjóðsins eykst
sem því nemur á árinu og verður
heildarfé til hans 26 milljónir á
þessu ári. Ekki hefur endanlega
verið gengið frá hvaðan féð
verður fengið en Þorsteinn Páls-
son fjármálaráðherra hefur fall-
ist á þessa málsmeðferð fyrir
sitt leyti, að sögn Sverris Her-
mannssonar.
til að kjósa um bjórinn strax í
vor, ef Alþingi samþykkir frum-
varp Stefáns Benediktssonar og
Björns Dagbjartssonar um
bruggun og innflutning áfengs
öls. I frumvarpinu er það gert
að skilyrði að það hljóti samþykki
meirihluta þjóðarinnar í at-
kvæðagreiðslu.
Þorvaldur Garðar sagist enn-
fremur telja það óheppilegt að láta
kjósa um bjórinn samhliða sveitar-
stjómarkosningunum, þar eð kosn-
ing færi ekki fram á sama tíma
alls staðar á landinu. „Ef kemur til
þjóðaratkvæðagreiðslu er ekkert
sem mælir á móti því að hún verði
framkvæmd sérstaklega, eins og
gert var þegar bannlögin voru sett
og afnumin á sínum tíma,“ sagði
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Píanóleikarinn ungi, Dmitris Sgouros, ásamt móður sinni, Marianti, að snæðingi í veitingahúsinu
E1 Sombrero í gærkvöldi. MorgunbUðið/Bjarní
Dmitris Sgouros, 16 ára píanósnillingnr:
Ashkenazy búinn að fá mig
til að koma á Listahátíð ’88
„ÉG ER svo spenntur að ég get
varla beðið eftir því að sjá eitt-
hvað af þessu landi sem ég er
búinn að lesa svo mikið um.
Auðvitað verð ég mjög önnum
kafinn þessa þijá daga sem ég
verð hér í þetta skipti en samt
vonast ég til að fá tækifæri til
að skoða mig um,“ sagði Dmitr-
is Sgouros, gríski píanóleikar-
inn, sem þegar hefur náð
heimsfrægð þótt hann sé aðeins
sextán ára að aldri, nýkominn
til Reykjavíkur í gærkvöldi.
„Einn aðalkosturinn við þetta
starf er að maður fær tækifæri
til að ferðast og ég nýt þess svo
sannarlega. Það eru mikil forrétt-
indi að fá þannig tækifæri til að
skoða sig um í heiminum og
kynnast siðum framandi þjóða,“
sagði Dmitris.
Hann leikur einleik á tónleikum
hjá Tónlistarfélagi Reykjavíkur í
Austurbæjarbíói í kvöld þar sem
verk eftir Beethoven, Scarlatti,
Chopin o.fl. verða á efnisskránni,
en á laugardaginn leikur hann
píanókonsert eftir Tjsækovskí á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói. Stjómandi
á þeim tónleikum er grískur,
Carolos Trikolidis.
Dmitris Sgouros er hér í fylgd
móður sinnar og héðan fara þau
mæðgin rakleiðis heim til Grikk-
lands þar sem pilturinn stundar
nám í menntaskóla. „En þótt
viðdvölin hér verði stutt að þessu
sinni á ég sennilega eftir að fá
betra tækifæri til að kynnast
landinu og fólkinu sem hér býr
því að Vladimir Ashkenazy er
búinn að ganga frá því við mig
að koma hingað á Listahátíð
1988. Hann vildi að ég kæmi í
vor en það var ekki hægt af því
að það er svo mikið að gera í
skólanum og svo er löngu búið
að ganga frá þeim tónleikum sem
ég kem fram á næstu tvö árin.“
Ráðherrar til Sviss til viðræðna og til að horfa á handbolta:
„Landsliðið átti það skilið
að ég kæmi og sæi tvo leiki“
Iðntæknistofnun:
Þrír sóttu um
ÞRÍR sóttu um stöðu forstöðu-
manns Iðntæknistofnunar ís-
lands, en frestur til að sækja um
stöðuna rann út hinn 11. mars
síðastiiðinn.
Þessir þrír eru: Páll Kr. Pálsson
vélaverkfræðingur hjá Félagi ís-
lenskra iðnrekenda, Rögnvaldur
Gíslason efnaverkfræðingur hjá
Iðntæknistofnun og Daníel Gests-
son yfírverkfræðingur hjá Vita- og
hafnarmálaskrifstofunni.
— segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
FERÐ ÞEIRRA Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og
Matthíasar Á. Mathiesen utanríkisráðherra ásamt eiginkonum til
Sviss, þar sem þau voru meðal áhorfenda á heimsmeistaramótinu í
handbolta, hefur verið umræðuefni manna á meðal að undanförnu.
Af því tilefni sneri Morgunblaðið sér til ráðherranna og spurðist
fyrir um tilgang ferðarinnar og hver stæði straum af kostnaði við
hana.
Steingrímur Hermannsson sagði
að kostnaður við ferð hans hefði
verði mjög lítill. „Ég hafði ákveðið
að verða áfram í Kaupmannahöfn
að loknu þingi Norðurlandaráðs en
mér fannst okkar ágæta landsliði í
handbolta ekki verða sýnd of mikil
viðurkenning þó að ég kæmi og sæi
tvo leiki. Þeir áttu það fullkomlega
skijið.
í öðru lagi tel ég að þær viðræður
sem ég átti við Alusuisse hafí verið
mér mjög gagnlegar. Þar kom fleira
fram en ég hef sagt í fjölmiðlum.
í ferðinni kynntist ég og ræddi við
einn helsta forystumann í ríkis-
stjóm Sviss, serh ég geri ráð fyrir
að hitta aftur síðar. Ég gæti vel
trúað að seinna kæmi eitthvað
gagnlegt úr þeim viðræðum. Þá bar
ég það undir ráðuneytisstjóra hvort
það væri eitthvað óeðlilegt við að
fara þessa ferð og hvort fyrirrenn-
arar mínir í starfí hefðu gert eitt-
hvað svipað. Hann fullvissaði mig
um að ekkert óeðlilegt væri við
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra:
Viðræðurnar komu mér á óvart
„ÉG VEIT ekkert um viðræður Steingríms við Alusuisse," sagði
Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra þegar hann var spurður um
niðurstöður viðræðna Steingríms Hermannssonar við forráðamenn
Alusuisse í Sviss fyrir skömmu.
„Maðurinn fór til Sviss og talaði
þar við einhverja, ég veit ekki
hveija, það er mér og máiinu óvið-
komandi," sagði Albert. Hann sem
iðnaðarráðherra vissi ekkert um
viðræðumar né heimild forætisráð-
herra til þeirra. Málefni álversins
væru í hans höndum og fylgdist
hann vel með þeim. „Viðræður
forsætisráðherra komu mér á óvart.
Málið er ekki á því stigi að um
viðræður sé að ræða. Þegar að þeim
kemur verður forsætisráðherra ekki
beðinn að leiða þær. Álverið heyrir
undir iðnaðarráðuneyti sem til-
heyrir Sjálfstæðisflokknum og mér
sem iðnaðarráðherra," sagði Albert.
Ákveðið hefur verið að iðnaðarráð-
herra og forsvarsmenn Alusuisse
ræðist við seinna í þessum mánuði
um framhald viðræðnanna.
ferðina. Ég hef því ekki nokkurt
minnsta samviskubit yfír að hafa
farið til Sviss og notað tímann til
góðra hluta.
Satt að segja finnst mér fárán-
legt hvemig þið látið í fjölmiðlum.
Ég á ekki orð yfír það. Auðvitað á
maður ekki að svara svona spum-
ingum en mín samviska er hrein.“
— Ferðalög ráðherra verða oft
að umtalsefni.
„Já, já, en ég mun meta það sjálf-
ur hvenær ég tel slíkt eðlilegt, ég
fer ekki eftir fjölmiðlum í þeim
efnum.“
— Hver borgaði ferðina?
„Ferðin er borguð í framhaldi af
þingi Norðurlandaráðs í Kaup-
mannahöfn af forsætisráðuneytinu
að sjálfsögðu."
— Hvað með dagpeninga?
„Og dagpeningar einnig að sjálf-
sögðu."
— Finnst þér óeðlilegt að fólk
vilji vita um ferðir ykkar?
„Já mér fínnst það. Mér fínnst
að oft hafi verið gert eitthvað verra
heldur en að sýna landsliðinu okkar
virðingu með því að koma og horfa
á að leika. Og eins og maður les í
blaði um að „ferðaglaðir ráðherrar
fara f jarðarför Palme", þá mætti
halda að við værum alltaf í
skemmtiferð."
— Átt þú ekki einhvem þátt f
þessum umræðum með tali um
ferðir Páls Péturssonar?
„Jú, jú, en ég verð að segja eins
og er að ég vildi losna við mikið
af þessum utanferðum. Mér er boðið
á tvo fundi á næstunni, sem ég hef
hafnað og ég vildi gjaman losna
við að fara á þing Norðurlandaráðs
en það er talið nauðsynlegt. Héðan
fóm 80 manns, kynntu þér það.
Hitt er svo annað mál að það
kostar að vera sjálfstæð þjóð í
alheimsþjóðfélagi. Forsætisráð-
herra Dana sagði mér að hann
væri að fara aðra ferð sína til
Austurlanda fjær með mikla fylgd-
arliði til að „opna dyr fyrir danska
viðskiptaaðila", hvað væri sagt ef
ég færi?“
— Finnstþérþettasambærilegt?
„Já, ég held að koma okkar
Matthíasar til Sviss hafí ekki verið
landinu til tjóns, frekar til góðs. Ég
held til dæmis að viðræður sem við
áttum einn eftirmiðdag við fyrrver-
andi forsætisráðherra og forseta
Sviss, hafi verið gagnlegar. Þá tel
ég að samskipti ráðamanna vest-
rænna þjóða séu mjög gagnlegar
og mættum við taka meiri þátt f
þeim en við höfum gert hingað til.“
Matthías Á. Mathiesen sagði f
samtali við Morgunblaðið að hann
greiddi úr eigin vasa ferðakostnað
fyrir eiginkonu sína, svo og allan
uppihaldskostnað þeirra beggja á
meðan þau dvöldu í Sviss. „Sjálfur
var ég á leið til Portúgal í erindum
fyrir ríkisstjómina með viðkomu í
Sviss,“ sagði Matthías.