Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986
3
Ríkið kaupir 75
nýja bíla:
Útboð lækk-
aði verðið
umfimm
milljónir
Innkaupastofnun ríkisins
hefur undanfarnar vikur
keypt 75 nýja japanska bíla
til afnota fyrir stofnanir og
fyrirtæki ríkisins. Heildar-
kaupverðið, eins og það var
reiknað fyrir tollalækkunina
í kjölfar kjarasamninganna á
dögunum, er samtals rúmlega
50 miiyónir króna. Sú upp-
hæð mun væntanlega lækka
talsvert vegna niðurfellingar
á tollum, að sögn Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra
Innkaupastofnunar. Hann
sagði að með útboði hafi verð
þessara 75 bfla verið lækkað
um fimm miljjónir króna, sem
hljóíi að teljast mjög góður
árangur.
Þetta er í annað sinn, sem end-
umýjun á bílaflota ríkisins — sem
á nærri 1000 bíla — fer fram með
útboði. Innkaupastofnun kaupir
árlega um 100 bíla og selur annað
eins af 3-5 ára gömlum bflum. í
byrjun janúar var haldið útboð (í
samvinnu Innnkaupastofnunar rík-
isins, Qárlaga- og hagsýslustofti-
unar og bíla- og vélanefndar ríkis-
ins) vegna kaupa á um 100 bflum
og bárust tilboð frá 17 umboðum.
Niðurstaðan varð sú, að keyptir
voru 26 Toyota-bifreiðir frá P.
Samúelssyni hf., 19 af gerðinni
Subam frá Ingvari Helgasyni og
12 Mazda-bflar frá Bflaborg hf.
Fram eftir ári verða keyptir
20—25 nýir bílar til viðbótar, að
sögn Ásgeirs Jóhannessonar, og
eldri bflar seldir jafnóðum.
Siglufjörður:
Mikil rækja
berst á land
Sigtufirði, 12. mars.
SIGLUVÍK kom inn tíl Siglu-
fjarðar með 50 tonn af rækju i
gærkvöldi, sem fer til vinnslu
hjá Sigló hf. og heilfrystingar
hjá Þormóði ramma.
Til marks um aflamagnið fékk
báturinn í síðasta holi 4 tonn. Þá
var hann búinn með kassa og ís
og varð að fara í land.
Heyrst hefur að hásetahlutur
verði 58 til 60 þúsund eftir 5 daga
útivist.
Fréttaritari.
Snæfellsnes:
Mikill af li
hiá netabát-
um a Rifi
Hellissandi, 12. mars.
MIKILL afli hefur verið hjá
netabátum, sem róa frá Rifs-
höfn, frá því þeir byrjuðu veiðar
20. febrúar síðastliðinn. Hefur
aldrei komið jafn mikill afli hér
á Rifi eins og nú.
Aflinn hefur verið frá 15 tonnum
upp í 38 tonn í róðri og allt nætur-
gamall þorskur. Aflahæstu bátam-
ir em Rifsnes SH 44, 550 tonn,
Saxhamar SH 50 með 491 tonn
og Hamrasonur SH 401 með 481
tonn.
Gæftir hafa verið sérstaklega
góðar til sjósóknar. Aflinn hefur
verið það mikill að bátar hafa tekið
meira en helming af netum upp
um helgar og fækkað trossum
miðað við afkastagetu bátanna.
Fréttaritari.
VEGNA
ÞARPTU
LYKILKORT
ÞÚ ÞEKKIR DÆMIN:
• Tíminnrunninnfráþér-bankarnirlokaðir
• Fríúrvinnunni,tilþessaðkomastíbanka
______________• Biðraðir___________
• Kvöld eða helgi og þú manst ekki hvað er inni
____________á reikningnum _________
• Vilt ekki fara með ávísanaheftið á skemmtistað
____________-vantarreiðufé_________
• Gíróreikningamirhlaðastupp
- nærð ekki að greiða þá á vinnutíma
AUt þetta hefur Iðnaðarbanldim leyst fyrir þig
með einu litlu lykilkorti
sem þú getur notað á 9 stöðum hvenær sólarhringsins sem er.
Líttu við á einhverjum afgreiðslustaða okkar og náðu þér
í lykilkort, það er ókeypis.
- og njóttu þægindanna!
0 tönaðarbankinn
-nútfma banki
CEB AUGO'SINGAMÓNUSTAN / SlA