Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 4

Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 4
4____________ Sauðárkrókur: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 Oánægja með niður- stöður skoðanakönn- unar Framsóknar Sauðarkróki, 12. marz. EINN af bæjarfulltrúum Frarnsóknarflokksins hér, Steinar Skarp- héðinsson, vélstjóri, hefur sagt af sér sem bæjarfuiltrúi eftir að úrslit í skoðanakönnun um skipan framboðslista, sem flokkurinn efndi til og lauk um síðustu helgi, lágu fyrir. Steinar hefir einnig sagt af sér öðrum trúnaðarstöfum, sem hann hefur gegnt fyrir Framsóknarflokkinn í nefndum bæjarins og sagt sig úr stjórn og fulltrúaráði flokksins. Frambjóðendur í skoðanakönnun- inni voru 11 talsins, en 187 greiddu atkvæði. Leitað var eftir röðun í fimm efstu sæti framboðslista flokksins við kosningamar í vor. Niðurstöður könnunarinnar eru ekki bindandi. Úrslit voru eftirfarandi: 1. Magnús Siguijónsson, vöruhús- stjóri. 53'atkvæði í 1. sæti, samtals 81. 2. Pétur Pétursson, trésmiður, 81 atkvæði í 2. sæti, alls 144, 3. Sighvatur Torfason kennari, 83 atkvæði í 3. sæti, samtals 103. 4. Magnús Sigfússon, trésmiður, 108 Hlutafé Oddeyrar hf.: 30 milljón- ir króna atkvæði í 4. sæti, samtals 128. 5. Bjöm Mikaelsson, yfirlögreguþjónn, 92 atkvæði í það sæti. Það er óhætt að segja að ekki séu allir framsóknarmenn sáttir við úr- slitin. Steinar hafnaði í 11. og neðsta sætinu og hefur það vakið nokkra furðu með tilliti til starfa hans í bæjarstjóm. Steinar var aðalfulltrúi í bæjarstjóminni, en Framsóknar- flokkurinn á þar 4 af 9 fulltrúm. Hann sagði í samtali við fréttaritara, að héðan í frá teldi hann sig engum skyldum hafa að gegna, hvorki við Framsóknarfélag Sauðárkróks né Framsóknarflokkinn. Þá er fréttarit- ara kunnugt um að annar frambjóð- andi í skoðanankönnuninni hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Uppstillingamefnd hefur tekið til starfa og mun hún leggja til endan- lega röð á lista flokksins. Kári *L r4n —^ ,,j*, Morgunblaðið/Ámi Sæberg Árfari hífður af Suðurgötunni sl. mánudag. Flugleiðir leita að nýjum Fokker FLUGLEIÐIR leita nú logandi ljósi að nýjum Fokker í stað Árfara, sem hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli á mánudaginn. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar blaðafulltrúa Flugleiða hefur félagið leitað hófanna hjá nokkrum aðilum, meðal annars finnska flugfélaginu Finair, og ættu línur að skýr- ast í dag hvort tekst að fá nýja vél fyrir páskaönnina. Sæmund- ur sagði að ennþá hefði skortur á farskjótum ekki valdið röskun á áætlun í innanlandsflugi félagsins. Ekki liggur fyrir enn hversu don em þessa dagana að vinna miklar skemmdir urðu á Árfara í að því að reyna að gera sér grein óhappinu á mánudaginn. Sérfræð- fyrir tjóninu. Ekkert nýtt hefur ingar frá tryggingarfélagi í Lon- komið fram um orsakir óhappsins. Sparisjóð- imir með TOPP-bók SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og nágrennis, Kópavogs, Hafn- arfjarðar og í Keflavik bjóða viðskiptavinum sínum svokall- aða TOPP-bók frá og með 11. mars. TOPP-bókin er 18 mánaða bundinn reikningur í bókarformi og er hún veðhæf. Hver innborgun er bundin í 18 mánuði, en er þá laus til útborgunar í einn mánuð, þá binst hún á ný og er laus til útborgunar í einn mánuð á sex mánaða fresti. TOPP-bókin er með föstum vöxtum og leggjast þeir við höfuð- stól tvisvar á ári, þ.e. 30. júní og 31. desember. Vextir eru nú 19% og er hámarksávöxtun á ári allt að 10,15%. Vextimir eru alltaf lausir eftir að þeir hafa verið færðir. Sem trygging gegn verðbólgu er ávöxtun TOPP-bókar borin saman við 6 mánaða bundinn verð- tryggðan reikning og þess gætt að hún beri aldrei lægri ávöxtun á ári. Með TOPP-bókinni vilja ofan- greindir sparisjóðir koma til móts við hina mörgu sparifjáreigendur sem binda vilja fé sitt til lengri tíma gegn topp-ávöxtun. (Fréttatilkynning) - Samherji þriðji .. . „stóri“ stofnaðilinn UllarvoruutflutnmgUK Akureyri, 12. marz. HLUTAFÉ Oddeyrar hf., hins nýskipaða útgerðarfélags á Akureyri, er 30 milljónir króna. Helgi Bergs, bæjarstjóri, upp- lýsti þetta í umræðum á bæjar- stjómarfundi. Þar kom einnig fram að þriðji aðili í stofnun fyrirtækisins er útgerðarfélagið Samherji hf. á Akureyri, sem gerir út frystitogarann Akur- eyrina. Hlutaféð skiptist þannig að Akureyrarbær (Framkvæmdasjóð- ur) mun eiga 11 milljónir, Samheiji hf. 8 milljónir og K. Jónsson og co. hf. 7,8 milljónir króna. Auk þess munu tveir einstaklingar, Jón Kr. Kristjánsson og Gísli Már Olafsson, eiga 100.000 krónur hvor í hlutafé- laginu. Bæjarstjóm samþykkti formlega á fundi sínum með 11 samhljoða atkvæðum að taka þátt í stofnun fyrirtækisins. Samningar hafa ekki náðst við Sovétmenn Alafoss hefur lokið verkefnum sínum fyrir Rússa ENN HAFA ekki verið gerðir samningar um ullarvömútflutn- ing til Sovétríkjanna á þessu ári. Rammasamningur er á milli þjóð- anna um þessi viðskipti en á hveiju ári er samið um verð og magn, venjulega í desember fyrir árið á eftir. Það hefur enn ekki verið gert fyrir þetta ár og hefur Álafoss lokið við þau verkefni sem það var með fyrir Sovétríkin samkvæmt eldri samningum. Viðskiptin við Sovétríkin eru mlkilvæg fyrir ullariðnaðinn og er ljóst að þessi dráttur á samn- ingsgerð kemur sér illa fyrir fyrirtækin í greininni. Pétur Eiríksson forstjóri Álafoss Alþýðuflokkurinn 70 ára: Heimildarmynd um flokkinn o g söguna segir Bryndís Schram, framleið- andi 35-40 mínútna langrar myndar UM HELGINA verður lokið við að afla efnis í 35-40 mínútna langa heimildamynd um Alþýðuflokkinn, sem heldur upp á 70 ára afmæli sitt á sunnudaginn. Það er Bryndís Schram, frambjóð- andi A-listans til borgarstjórnar Reykjavíkur I vor, sem var upphafsmanneskja þessarar myndar og vinnur hún að gerð hennar fyrir framkvæmdastjórn flokksins, og ætlar að „sækja endapunktinn" til Stokkhólms með því að eiga þar viðtal við Benedikt Gröndal sendiherra, fyrrum formann Alþýðuflokksins. Myndin - sem tekin er upp á myndsegulband - verður byggð upp á viðtölum við fyrrverandi og núverandi forystumenn Alþýðu- flokksins, þar á meðal tvo menn um nírætt, Guðmund Jónsson og Elías Sigfússon, sem tóku þátt í stofnun hans fyrir 70 árum. Áðrir, sem leitað heftir verið fanga hjá, eru Hannibal Valdimarsson, fyrr- um formaður Alþýðuflokksins og Alþýðusambands íslands, Helgi Sæmundsson, Björgvin Guð- mundsson, Eggert G. Þorsteins- sonogfleiri. „Hugmyndin er að nota þessa mynd til kynningar á flokknum og steftiumálum hans í gegnum tíðina," sagði Bryndís í samtali við blm. Morgunblaðsins. „Það kemur vel fram í samtölum við þessa menn hve mikil áhrif Al- þýðuflokkurinn hefur haft á ís- lenskt þjóðlíf - ég get nefnt sem dæmi almannatryggingar og vökulögin, sem hvort tveggja voru baráttumál Alþýðuflokksins á sín- um tíma. Svo fer ekki hjá því, að ýmsir þeir sem segja frá f mynd- inni segi jafnhliða sögu ASÍ, því flokkurinn og sambandið voru eitt og hið sama fram til 1940.“ Bryndís Schram sagði að hún myndi Ijúka við gerð myndarinnar á næstu dögum og þá færa hana framkvæmdastjóm Álþýðuflokks- ins. „Upphaflega var ætlunin að geta afhent frumeintakið á af- mælishátíð flokksins á sunnudag- inn en af því getur því miður ekki orðið," sagði hún. „Það er svo í valdi framkvæmdastjómar hvað verður um þessa mynd. Hún verð- ur væntanlega notuð til kynningar á flokknum og stefnumálum hans út um land og svo væri ósköp gaman að fá hana sýnda í sjón- varpi, ef íhaldsöflin sem þar ráða nú um stundir treysta sér til þess.“ sagði að beðið væri eftir svari frá Sovétmönnum. Þessi dráttur á samningsgerð væri farinn að valda erflðleikum hjá fyrirtækinu og þegar fyrirsjáanlegt verkefnaleysi þess vegna. Sagði hann að ef ekkert gerðist í þessum samning- um næstu tvær vikumar væri ekki hægt að gera ráð fyrir þessum viðskiptum og yrði þá að gera ráð- stafanir í samræmi við það. 50-60 manns hafa atvinnu af framleiðslu fyrir Rússlandsmarkað og sagði Pétur að starfsfólki hefði verið fækkað töluvert undanfamar vik- ur. Jón Sigurðarson framkvæmda- stjóri iðnaðardeildar SÍS sagði að iðnaðardeildin hefði næg verkefni fram á vor. Byggðust þau aðallega á viðbótarsamningi sem iðnaðar- deildin gerði við Sovétmenn í des- ember. Hann sagði að atvinna margra tuga manna byggðist á þessum verkeftium og ef ekki næðust samningar yrðu veraleg vandræði. Taldi Jón engar líkur á að til þess kæmi og vonaðist til að geta farið til samninga í Moskvu um næstu helgi. Fyrirtækin hafa selt ullarvörar til Sovétríkjanna fyrir 8,5 milljónir dollara á ári, eða 350 milljónir kr. Álafoss er með rúman helming þessarar upphæðar, og era treflar aðaluppistaðán í útflutningi þess. Iðnaðardeildin flytur mest fatnað til Sovétríkjanna. Jóhaim Friðriksson frá Efri-Hólum látinn JÓHANN Friðriksson frá Efri- Hólum lést í Reykjavík laugar- daginn 8. mars síðastliðinn. Jóhann fæddist á Efri-Hólum í Núpasveitþann 21. maí 1914. Hann var sonur Friðriks Sæmundssonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Halldórsdóttur. Jóhann ólst upp á Efri-Hólum. Hann stundaði nám í Reykholti og íþróttaskólanum í Ollerap á Fjóni og lauk prófl frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1942. Ári síðar stofnaði Jóhann sauma- stofuna Kápuna hf. og nokkram árum síðar Kápubúðina. Hann starfaði við þessi fyrirtæki um þriggja áratuga skeið, þar til hann dró sig í hlé. Þá seidi hann búðina og lagði niður saumastofuna. Jóhann var landskunnur hesta- maður. Jóhann Friðriksson var tvíkvænt- ur. Fyrri kona hans var Oddný Ingimarsdóttir. Þau skildu. Eftirlif- andi kona Jóhanns er Gunnlaug Eggertsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.