Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986
5
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands
íslands minntist þess í gær á
hátíðarfundi að 70 ár voru liðin
frá stofnun sambandsins. í til-
efni dagBÍns voru boðnir til
fundarins fyrrverandi forsetar
Alþýðusambandsins og var
myndin tekin af þeim í fundar-
lok. Frá vinstri eru Hannibal
Valdimarsson, Helgi Hannes-
son, Ásmundur Stefánsson, nú-
verandi forseti ASÍ, Guðgeir
Alþýðusambandið sjötíu ára
Morgunblaðið/Ljósm.
Jónsson og Hermann Guð-
mundsson. Fjarverandi var
Snorri Jónsson, sem var fyrir-
rennari Ásmundar á forseta-
stóli.
Ásmundur sagði í gær að
ákveðið hefði verið að halda ekki
sérstakiega upp á afmælið að
þessu sinni, en gera þeim mun
meira til að minnast 75 ára af-
mælisins 1991. í tengslum við
afmælið nú hefði þó verið gerð
20 mínútna kvikmynd um upp-
byggingu, verkefni og stefnu
Alþýðusambandsins. Asmundur
kvaðst vonast til að sú mynd, sem
gerð var af Þorsteini Jónssyni
kvikmyndagerðarmanni, yrði
sýnd í sjónvarpi, auk þess sem
hún yrði notuð til fræðslu á nám-
skeiðum og fundum aðildarfélaga
ASÍ.
Alþýðubandalagið:
Ekki lengur það af 1
sem því var ætlað
— segir Bjarnfríður Leósdóttir
„Það hlýtur að koma að því
fyrr eða síðar að gert verði upp
við þá verkalýðsforystu sem
fyrir er. Ef það verður ekki gert
þá tel ég flokkinn glataðan,"
sagði Bjarnfríður Leósdóttir
formaður verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins sem sagði
sig úr Alþýðubandalaginu vegna
óánægju með stefnu flokksins í
launa- og kjaramálum.
Af sömu ástæðu segja þær
Dagbjört Sigurðardóttir, Stella
Hauksdóttir og Margrét Pála Ólafs-
dóttir, sem einnig eiga sæti í verka-
lýðsmálaráði flokksins, sig úr
flokknum. í bókun þeirra á fundi
ráðsins lýsa þær yfir vantrausti á
forystu verkalýðshreyfingarinnar,
sem „Alþýðubandalagsmenn leiða
og þeim afdráttarlausa stuðningi
sem flokksforystán veitir þeim. Síð-
ustu samningar sýna svo ekki verð-
ur um villst, samtiyggingu þeirra
við atvinnurekendur og óvinveitt
ríkisvald."
Þá kemur fram að núverandi
stjóm verkalýðsmálaráðs hafi borið
fram ákveðna stefnu í launa- og
kjaramálum og flutt ályktanir þar
að lútandi í flokknum. Samþykkt-
imar hafí verið samþykktar nær
mótatkvæðislaust en sniðgengnar
af þeim sem halda völdum í flokkn-
um.
„Við höfum verið virkar í samtök-
um kvenna á vinnumarkaðinum og
ætli við reynum ekki að vinna áfram
með kvennahreyfingunni,“ sagði
Bjamfríður. „Þessir samningar
koma konum hvað verst, þær hafa
ekki sömu möguleika á launaskriði
og karlmenn. Þannig að þegar allar
hugsjónir manns og barátta er borin
fyrir borð og flokkurinn tekur undir
á Alþingi, þá er hann ekki lengur
það afl fyrir verkafólk, sem maður
hefur ætlað honum."
Viö bjóðum fermingarbörnum og öörum tónlistarunnendum
glæsilega hljómtækjasamstæðu frá Philips á sérstöku
tilboðsverði - 28.400.- kr. staðgreitt.
Þótt þessi stæða sé hvorki sú stærsta né háværasta í bænum skilar
hún hlutverki sínu óaðfinnanlega. Enda vita þeir hjá Philips að ungt
og auralítið fólk gerir síst minni kröfur en þeir sem eldri eru.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 S: 20455 - SÆTÚNI 8 S: 27500
I stæðunni eru 2x25 W magnari, útvarp með lang-, mið- og FM
bylgju, tvöfalt kassettutæki, plötuspilari og tveir 25 W hátalarar.
Hentar sérstaklega vel þar sem hvorki er hátt til lofts né vítt til veggja.
FALLEG OG VONDUÐ
HUÓMTÆKJASAMSTÆÐA
FRÁ PHILIPS FYRIR AÐEINS
28.400.- KRÓNUR.