Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 6
s
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Öryggismál
Það er nánast óbærilegt að
hugsa um öll þessi slys er
berast fregnir af f ríkisfjölmiðlun-
um. Hér er um mjög viðkvæm mál
að ræða og vandmeðfarin. Persónu-
lega er ég þeirrar skoðunar að ætíð
eigi að nálgast slysafregn í fréttum
útvarps og sjónvarps með sama
hætti. Ef svo hörmulega vill til að
manneskja ferst af slysförum á að
mfnu mati ætíð að hefja frétta-
tíma á frásögn af slysinu og sfðan
á að fylgja fréttinni örstutt þögn.
Báta má smíða og kaupa nýja farar-
skjóta en öðru máli gildir um
manneskjumar og harminn í bijósti
aðstandenda. Það skiptir í raun svo
litlu máli hvort bátur ferst eða bíll
klessist ef mannbjörg verður.
Gleðifregn
Sú gleðifregn barst úr viðtækinu
þjá mér í gærmorgun að nemendur
Stýrimannaskólans í Vestmanna-
eyjum hygðust stinga sér til sunds
þann 12. marz og ekki nema staðar
fyrr en eftir 6 klukkustunda svaml
f svokölluðu Guðlaugssundi. En
sund þetta er að sjálfsögðu haldið
til minningar um hið einstæða
björgunarafrek Guðlaugs Friðþjófs-
sonar er allur heimur ætti að
þekkja. Þá vilja þeir stýrimanna-
skólamenn leggja öryggismálum
sjómanna lið með sundinu og er f
fyrstu ætlunin að kaupa eldvamar-
tæki fyrir áheit þau er kunna að
berast Guðlaugi. Sannarlega þarft
framtak og er ég ekki firá því að
Vestmanneyingar standi fremstir í
flokki þeirra hafsins hetja er nú
berjast hvað ákafast fyrir öryggis-
málum sæfara.
Tilathugunar
Ég verð að segja fréttamönnum
sjónvarps til hróss að þeir hafa vikið
nokkuð að örygmsmálum sjó-
manna, þannig vék Omar Ragnars-
son í síðasta þætti hinnar líðandi
stundar að öryggisbúnaði báta hér
við höfnina. Sú sjón er þar blasti
við sjónvarpsáhorfandanum vakti
ugg í bijósti. Er dálftið einkennilegt
til þess að hugsa að á sama tfma
og útgerðarmenn og skipstjórar
veita fúlgum f rafeindastýrð örygg-
istæki svo sem Firrðsjá þá em sára-
ódýr björgunartæki á borð við
bjarghringi nánast f felum f sumum
bátum. Nú en Ómar hefir ekki bara
beint sjónum okkar að hafsins hetj-
um, hann hefir líka annast um
umferðaröryggismál f sjónvarpi.
Mætti gjaman leggja þyngri
áherslu á þann þátt almennrar
öryggisgæslu í ríkissjónvarpinu. Þá
hafa fréttamenn vikið lftillega að
undanfömu að slysum f heimahús-
um. En einn þáttur hefir alveg
gleymst í sjónvarpinu okkar bless-
uðu og hann snýr að bömunum.
Hér á ég við allar þær dauðagildmr
er leynast á byggingarsvæðum
borgarinnar, eða hafa fréttamenn
beint myndauganu að hinum reyk-
lituðu stöðuvötnum er myndast
gjaman hér í rigningartfð á bygg-
ingarlóðum og í húsgmnnum. Laus-
beisluð smáböm em gjaman að leik
við þessi stöðuvötn. Ég get ekki
lokið þessari umræðu um öryggis-
mál án þess að minnast á slysið á
Reykjavíkurflugvelli. Eftir hveiju
em menn eiginlega að bfða? Máski
þvf að fullhlaðin Fokkervél steypist
ofan í miðborg Reylgavfkur? Er
ekki verið að reisa í skotfæri frá
Reykjavík eitt glæsilegasta flug-
skýli er um getur við viðurkenndan
alþjóðaflugvöll. Væri ekki nær að
efla móðurflugvellina úti á landi
leggja af stórhættulega malarvelli
en flytja fólk þess f stað á þyrlum
líkt og gert er á Grænlandi beint
að dymm Boeing 737 þotanna?
Þessi mál mætti gjaman ræða í
ríkisflölmiðlunum.
Ólafur M.
Jóhannesson.
Lífsbarátta
Félagslíf
í Borgamesi
á staðnum; ein af þeim er
ísfirsk og skoðar félagslífið
dálítið utanfrá, þá ræði ég
við einn ungling, mann á
miðjum aldri og eina eldri
konu. Ætlunin er sem sé
að reyna að fá þversnið af
félagslífinu hér í Borgar-
nesi.“
Þættir þessir verða
hálfsmánaðarlega og næst
verður tekið fyrir tónlistar-
líf í Borgarfirði, að sögn
Asþórs Ragnarssonar.
plantna
Karl Ágúst Úlfsson, Þorsteinn Ö. Stephensen, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Róbert Amfinnsson. í baksýn
eru tæknimennimir Friðrik Stefánsson og Runólfur
Þorláksson.
■■■■ Á dagskrá út-
1 jr 15 varpsins, rásar
1, f dag verður
fyrst þátturinn í þáttaröð
„Frá Vesturlandi". Um-
sjónarmaður er Ásþór
Ragnarsson sálfræðingur í
Borgamesi.
„Það er nú hálfgerður
byrjendabragur á þessum
fyrsta þætti," sagði Ásþór.
„Hann verður helgaður fé-
lagslífi í Borgamesi. Ég
ræði við flórar manneskjur
■■■I í kvöld verður
90 00 flutt í útvarpinu,
rás 1, leikritið
„Á sumardegi í jurtagarði"
eftir breska leikskáldið
Don Harworth í þýðingu
Karls Guðmundssonar.
Leikritið gerist í heimi
plantnanna á heitum sum-
ardegi í jurtagarði. Allt
virðist friðsælt á yfirborð-
inu en ef dýpra er skyggnst
má sjá að plöntumar beij-
ast fyrir tilveru sinni. Þær
veikbyggðu víkja fyrir
þeim sterkari, sem aftur á
móti óttast að maðurinn
útrými þeim.
Leikstjóri er Karl Ágúst
Úlfsson og leikendur eru
Þorsteinn Ö. Stephensen,
Róbert Amfinnsson, Sig-
rún Edda Bjömsdóttir, Pét-
ur Einarsson og Guðrún
Þ. Stephensen. Tæknimenn
em Friðrik Stefánsson og
Runólfur Þorláksson.
Leikritið verður endur-
flutt nk. laugardagskvöld
kl. 20.
Úr Borgaraesi
ÚTVARP
Barna-
útvarpiö
áárs-
hátíð
■■■■ Á dagskrá rásar
1 7 00 1 * da£ er
1 1 ■" Bamaútvarpið í
umsjá Kristínar Helgadótt-
ur.
„Við heimsóttum nem-
endur Holtaskóla í Keflavík
og fylgdumst með árshátíð
6.-9. bekkjar þar,“ sagði
Kristín. „Við munum flytja
leikþátt af árshátíðinni sem
kallaðist „Mál málanna" og
þar er leikið með alls konar
afbrigði og samsetningar
orðsins mál, þá er spennu-
leikrit þar sem verið er að
herma eftir útvarpsleikriti,
þá er söngur, spuminga-
keppni og viðtöl við for-
menn nemendaráðs og
krakka í salnum. Bömin
vissu af okkur þama og
sprelluðu sérstaklega fyrir
útvarpið. Það var mjög
gaman á þessari árshátíð
og bömin í miklu stuði,"
sagði Kristín Helgadóttir.
FIMMTUDAGUR
13. mars
7.00 Veöurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veöurfregnir
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund bam-
anna: „Dagný og engillinn
Dúi" eftir Jóninu S. Guö-
mundsdóttur. Jónína H.
Jónsdóttir les (6).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
ogkynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesiöúrforustugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Égmanþátíö"
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liönum
árum.
11.10 Morguntónleikar
a. Þrjú verk fyrir „blúsband"
og sinfóníuhljómsveit op.
50 eftir Willliam Russo.
Siegel-Scwall bandiö og
Sinfóníuhljómsveitin í San
Francisco leika: Seiji Ozawa
stjórnar.
b. „Keisaravalsinn" og
„Suörænar rósir" eftir Jo-
hann Strauss i umritun eftir
Arnold Schönberg. Kamm-
ersveitin í Baden-Baden
leikur; Manfred Reichert
stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Um-
hverfi. Umsjón: Anna G.
Magnúsdóttir og Ragnar
Jón Gunnarsson.
14.00 Miödegissagan: „Opiö
hús" eftir Marie Cardinal.
Guðrún Finnbogadóttir
þýddi. Ragnheiður Gyöa
Jónsdóttir les (10).
14.30 Á frívaktinni. Sigrún
Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna. (Frá
Akureyri.)
15.15 Frá Vesturlandi — Borg-
arnes. Umsjón: Ásþór
Ragnarsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Fagurt galaði fuglinn
sá". Siguröur Einarsson
kynnir.
17.00 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip. Þáttur(um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón: Sigrún Björnsdóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegtmál
Sigurður G. Tómasson flytur
þáttinn.
20.00 Leikrit: „Á sumardegi í
jurtagaröi" eftir Don Hay-
worth. Þýöandi Karl Guö-
mundsson. Leikstjóri: Karl
Ágúst Úlfsson. Leikendur:
Þorsteinn Ö. Stephensen,
Róbert Arnfinnsson, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Pétur
Einarsson, Guörún Þ.
Stephensen. (Leikritiö verð-
ur endurtekiö nk. laugar-
dagskvöld kl. 20.30).
21.00 Stúlknakórinn i Klarup i
Danmörku syngur lög eftir
Palestrina, Johann Crúger,
G.B. Martini, Giuseppe
Verdi, Björn Hjelmborg,
Bengt Johannsson, Knut
Nystedt og C.B. Agnestig.
Stjórnandi. Jan Ole Mort-
ensen. (Hljóöritun frá tón-
leikum í Háteigskirkju 13.
janúarsl. — fyrrihluti.)
21.30 „Keppinautarnir", smá-
saga eftir Martin Arm-
strong. Jónína Leósdóttir
þýddi. Edda V. Guömunds-
dóttirles.
21.40 Nokkur Ijóöakorn eftir
Atla Heimi Sveinsson. Þur-
iöur Baldursdóttir syngur.
Kristinn Öm Kristinsson leik-
urá píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma
(40).
22.30 Fimmtudagsumræðan.
FIMMTUDAGUR
13. mars
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: ÁsgeirTómas-
son og Kristján Sigurjóns-
son.
f SJÓNVARP
19.15 Ádöfinni
19.25 Húsdýrin.
4. Sauðkindin. Barna-
myndaflokkur í fjórum þátt-
um. Þýðandi Trausti Július-
son. (Nordvision — Finnska
sjónvarpiö.)
19.35 Björninn og refurinn.
Fjórði þáttur. Teiknimynda-
flokkur i fimm þáttum. Þýö-
andi Trausti Júlíusson.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpiö.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Unglingarnir i frumskóg-
inum.
FÖSTUDAGUR
14. mars
Umsjónarmaöur Jón Gúst-
afsson. Stjórn upptöku
GunnlaugurJónasson.
21.10 Þingsjá. Umsjónarmað-
urPáll Magnússon.
21.25 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Helgi E. Helgason.
22.00 Ævintýri Sherlock
Holmes. Lokaþáttur.
Breskur myndaflokkur í sjö
þáttum sem gerðir eru eftir
smásögum Conan Doyles.
Aöalhlutverk: Jeremy Brett
og David Burke. Þýöandi
Björn Baldursson.
22.50 Villta vestriö
(Westworld)
Bandarisk bíómynd frá
1973. Leikstjóri Michael
Cricthon. Aöalhlutverk: Yul
Brynner, Richard Benjamin
og James Brolin. I skemmti-
garöi framtiöarinnar býöst
gestum að skylmast viö
miðalda riddara, svalla meö
hinum fornu Rómverjum og
skemmta sér í villta vestr-
inu. Vélmenni sjá gestum
fyrir afþreyingu en eitt þeirra
hættir aö láta aö stjórn og
ofsækir mennska menn.
Myndin er alls ekki við hæfi
barna. Þýöandi Sigurgeir
Steingrímsson.
00.30 Dagskrárlok.
Stjórnandi: Hallgrimur Thor-
steinsson.
23.00 Túlkun í tónlist. Rögn-
valdur Sigurjónsson sér um
þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
12.00 Hlé
14.00 Spjallogspil
Stjórnandi: Ásta R. Jóhann-
esdóttir.
16.00 Ótroðnar slóöir
Halldór Lárusson og Andri
Már Ingólfsson stjórna
þættl um kristilega popp-
tónlist.
16.00 í gegnum tíðina
Þáttur um íslenska dægur-
tónlist i umsjá Jóns Ólafs-
sonar.
17.00 Gullöldin
Guðmundur Ingi Kristjáns-
son kynnir lög frá sjöunda
áratugnum.
18.00 Hlé
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásartvö
Páll Þorsteinsson kynnir tíu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiði Davíösdóttur.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: SvavarGests.
23.00 Tangó
Síöasti þáttur Trausta Jóns-
son og Magnúsar Þórs
Jónssonar um fslenska
tangótónlist.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
minútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK (
17.03—18.00 Svæðisútvarp .
fyrir Reykjavík og nágrenni,
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.